Skessuhorn - 08.11.2006, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006
9
r
Veiðimálastofiiiin í íjársvelti
Ef fjárlagafrumvarpið sem nú
liggur fyrir Alþingi nær óbreytt ff am
að ganga er ljóst að Veiðimálastofn-
un þarf að segja upp starfsfólki og
jafnvel loka starfsstöðvum. Stofntm-
in er með starfsstöðvar á nokknnn
stöðum á landinu, meðal annars á
Vesturlandi. Að sögn Sigurðar Guð-
jónssonar, forstjóra Veiðimálastofn-
unar, eru hjá stofnuninni 16-17
stöðugildi og fjárveiting samkvæmt
ijárlagafrumvarpinu dugar ekki til
að greiða öllum þeim starfsmönnum
laun. Þrátt fyrir mikla vinnu sér
hann ekki ffam á að hægt verði að ná
sértekjum uppí það sem á vantar. Þá
liggur ekkert annað fyrir en að
fækka starfsfólki. „I fjárlagaffum-
varpinu sem liggur fyrir núna er gert
ráð fyrir 52,3 milljónum til starfsemi
Veiðimálastofhunar, en fjárveitingar
voru 63,4 milljónir fyrir yfirstand-
andi starfsár. Skyldur stofhunarirm-
ar gagnvart hinu opinbera eru
einnig alltaf að aukast þannig að ef
starfsfólki fækkar, kemur það niður á
þeim sem kaupa þjónustu Veiði-
málastofntmar,“ segir Sigurðtir og
bætir við að stofnunin hafi ekki
haldið sjó í fjárveitingum til starf-
seminnar og það yrði stórslys ef úti-
búum þyrffi að loka.
Vesturlandsdeildin
mikilvæg
Samkvæmt upplýsingum frá
Veiðimálastofnun veiddust árið
2005 ríflega 55 þúsund laxar á stöng
hér á landi, þar af um 22 þúsund á
Vesturlandi, eða um 40% af heildar-
veiðinni. Þar af veiðist um helming-
ur á vatnasvæði Hvítár. I skýrslu um
lax- og silungsveiði sem tekin var
saman fyrir Landssamband veiðifé-
laga árið 2004 kemur ffam að stang-
veiði leggur mun meira til þjóðar-
búsins en áður hefur verið ætlað.
Bein áhrif voru árið 2004 talin vera
á bilinu 1,7 - 2,1 milljarðar króna á
ári. Óbein og afleidd áhrif af stanga-
veiði voru 6,1-7 milljarðar króna.
Þessar tölur eru miðaðar við árið
2004 og hafa að líkindum hækkað
síðan. „Til að stangaveiði geti hald-
ið hlut sínum þarf að halda áff am því
markvissa ræktunar- og rannsóknar-
starfi sem unnið hefur verið við ís-
lenskar laxveiðiár undanfarin ár. Þar
hefur Veiðimálastofnun verið ffam-
kvæmdaaðili,“ segja veiðiréttarhafar
í Borgarfirði, sem Skessuhom ræddi
við. I útibúi stofhunarinnar á Vest-
urlandi, sem staðsett er á Hvann-
eyri, vinna tveir menn sem sinna
Vesturlandi öllu. Stór hluti af störf-
um þeirra tengist laxveiðiám á Vest-
urlandi. Utibúið hefur séð um að
mæla seiðafjölda, segja til um veiði-
álag, gera búsvæðamat fyrir árnar og
margt fleira í þeim tilgangi að þessi
auðlind skili sem mestum tekjum
fyrir eigendur og þjóðarbúið allt.
BGK
L#FT
Mengun frá jámblendiverksmiðj-
unni langt innan leyfóra marka
Mengun ffá járnblendiverksmiðu
Islenska járnblendifélagsins ehf. á
Gmndartanga er langt innan þeirra
marka sem fyrirtækinu era sett í
starfsleyfi og sömu sögu er að segja
af ryklosun verksmiðjunnar sem
vora nokkuð sýnileg á þessu ári.
Þetta kemur ffam í svari umhverfis-
ráðherra á Alþingi við fyrirspurn
Kolbrúnar Halldórsdóttur þing-
manns Vinstri grænna.
I svari ráðherra kom ffam að Um-
hverfisstofnun fari með effirlit með
ffamkvæmd starfsleyfis verksmiðj-
unnar sem tók gildi 1. júní 1999 og
gildir í tíu ár. I upphafi voru gerðar
mælingar á útblæstri ffá hreinsivirki
verksmiðjunnar og sýndu þær að
mengun var langt undir mörkum.
Árlegar mælingar á útblásturslofti
ffá ofnhúsi eru gerðar af Iðntækni-
stofnun og hafa rykmælingar verið
innan marka starfsleyfis og sömu
sögu er að segja af losun brenni-
steinsdíoxíðs. Eina ffárennslið frá
verksmiðjtmni er frá setþró fyrir
vætingu á forskiljuryki og sam-
kvæmt starfsleyfi ber að mæla gildi
svifagna í ffárennslinu. Vegna breyt-
inga á frárennslislögnum við
Grundartangahöfn hefur þessu ekki
verið komið í framkvæmd en að
mati Umhverfisstofnunar er engin
ástæða til að ætla að gildi svifagna sé
yfir viðmiðunarmörkum sem sett
eru í starfsleyfi.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um Skessuhorns hefur nokkuð borið
á ryklosun ffá verksmiðjunni. I svari
ráðherra kemur ffam að hámarks-
reyklosun fyrir hvern ofn verksmiðj-
unnar verði að vera innan við 2% af
rekstrartíma miðað við eitt ár en
1,5% miðað við þriggja ára tímabil.
Samkvæmt tölum síðustu þriggja ára
hefur losunin verið langt innan
þessara marka eða ffá 0,1% til 0,7%
af starfstíma ofnanna. I ár hefur
verksmiðjan tilkynnt um reyklosun í
rúma 26 klukkutíma.
Þrátt fyrir nokkra umræðu um
ryklosun frá verksmiðjunni á þessu
ári hefur formlegum kvörtunum um
sýnilega mengun ffá verksmiðjunni
ekki fjölgað „en hins vegar hafa
borist ýmsar ábendingar um að
reyklos hafi verið tíð, einkum á fyrri
hluta ársins" segir orðrétt í svari
ráðherra.
Þá kemur fram að samkvæmt
starfsleyfi hafi verksmiðjan leyfi til
framleiðslu 190 þúsund tonna fram-
leiðslu í fjórum oftium en núna er
framleiðslan 120 þúsund tonn í
þremur ofnum.
Fyrir dyrum standa breytingar á
starfsemi verksmiðjunnar og um
þær segir ráðherra: „Þær breytingar
sem fyrirhugaðar eru felast í ffam-
haldsvinnslu á kísiljárni með íblönd-
un magnesíums og fleiri málma til
framleiðslu á sérhæfðari afurðum.
Þessi íblöndun mun fara fram í nýj-
um biðofnum. Við stækkun eykst
ekki heildarlosun í andrúmsloff en
bætt er við mölunar- og pökktmar-
búnaði.“
HJ
BORGARNESI E H F
Loftorka Borgamesi leitar eftir
starfsfólki í eftirfarandi störf.
Deildarstjóri- Steypuframleiðsla
í starfinu felst meðal annars:
• Daglegur rekstur deildarinnar
• Mannauðsstýring
• Samskipti við aðrar deildir sem og
framkvæmdarstjórn
• $kipulagning vinnuumhverfis og dagleg stýring.
• Abýrgð og samþykktir reikninga
Hæfniskröfur:
• Skipulögð og öguð vinnubrögð
• Færni í mannlegum samskiptum
• Leiðtogahæfileiki
• Reynsla í stjórnun er kostur en ekki skilyrði
• Haldgóð tölvuþekking
Næstráðandi yfirmaður er
Framkvæmdarstjóri steypuframleiðsiu
Vélvirki
í starfinu felst meðal annars:
• Viðhald og viðgerðir á steypustöðvum
• Smíðavinna tengd umhverfi okkar
• Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
• Menntun/reynsla á sviði véla
• Brennandi áhugi á vélum
• Skipulögð og öguð vinnubrögð
Næstráðandi yfirmaður er Deildarstjóri
steypuframleiðslu
Loftorka Borgarnesi ehf. er alhliða verktakafyrirtæki á sviði
byggingamannvirkja og sérhæfir sig í framleiðslu á forsteyptum
hlutum úr steinsteypu, steinsteyptum einingum til húsbygginga
og steinrörum í holræsi. Loftorka er fyrirtæki í örum vexti og
leitar að liðsmönnum í sterka og skemmtiiega liðsheild. Hvetjum
við bæði kynin til þess að sækja um störf í okkar hópi. Loftorka
Borgarnesi er starfsvetvangur þar sem metnaðarfullir einstaklingar
njóta sín í umhverfi í mikilli þróun.
Nánari upplýsingar veitir Inger Ericson
í s: 8609080 eða í póstfangi
inger@loftorka.is
Umsóknarfrestur er til 12. Nóvember
GEORG JENSEN CHRISTMAS CLASSICS
MODEL
f / rcomm
Slillliolt /6-/<V ilniiirsi siiiii: I II II > >
• •, 'Mm Hhmm I
s" ' U
Hlpf ; ^ *
k