Skessuhorn


Skessuhorn - 08.11.2006, Síða 16

Skessuhorn - 08.11.2006, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 Vill að markaðsfulltrúi hafi aðsetur á Safiiasvæðinu Þetta eigulega par létfara vel um sig áSur en basarinn hófst. Eru nú vafalaust á leið íjólapakka. Starfsfólk DAB sem aðstoda íbúa viS framleiðslu ogframsetningu hlutanna ájólabasar DAB á heiSur skilinn. Hér eru þaufrá vinstri: ÞuríSur Helgadóttir og systkinin Margrét og Vignir Sig- urþórsböm. Fjölmenni sóttí sýningar á Höfða Um 400 manns sóttu Dvalar- heimilið Höfða á Akranesi heim á laugardaginn en þá var þar opið hús. I raun má segja að fjórar sýn- ingar hafi glatt augu gesta. I fyrsta lagi var það málverkasýning Sveins Guðbjartssonar íbúa á Höfða. Fjölmargir vildu kaupa myndir Sveins en þær voru ekki til sölu að þessu sinni. Helgi Daníelsson sýndi ljósmyndir úr bæjarlífinu á Akranesi frá sjöunda áratug síðustu aldar og vöktu þær mikla athygli og sýndu betur en margt annað hversu fljótt tíminn líður. Þá voru til sýnis skipslíkön í eigu Sveins Sturlaugssonar. Allt voru það þekkt skip úr flota Skagamanna á sínum tíma. Rúsínan í pylsuendanum var að sjálfsögðu Höfðabazarinn. Þar voru til sýnis og sölu munir gerðir af dagvistarfólki og íbúum á Höfða. Munirnir vöktu verðskuld- aða athygli enda seldust þeir vel. Margir gestanna kynntu sér í leið- inni starfsemina á Höfða og fengu sér hressingu með heimilisfólki. HJ * 31 nm i *■ Stjórn Byggðasafhsins að Görð- um á Akranesi hefur samþykkt að óska eftir því við Akraneskaupstað að markaðsfulltrúi kaupstaðarins verði með starfsaðsetur á Safna- svæðinu að Görðum og taki yfir ákveðna verkþætti í rekstri Safna- svæðisins í náinni samvinnu við stjórn Byggðasafnsins og forstöðu- mann þess. Má þar nefna markaðs- og kynningarmál svæðisins, rekstur Safnaskála, þar með talið veitinga- rekstur, sölustarfsemi og upplýs- ingamiðstöð, öll viðburðastjórnun og öflun styrkja vegna sýninga og rekstur svo eitthvað sé nefnt. I tillögu stjórnarinnar segir að með því að markaðsfulltrúinn taki yfir áðurnefnda verkþætti og ábyrgðarsvið skapist aukin tækifæri til sóknar fyrir Safnasvæðið jafh- ffamt því sem að hið faglega fær aukna vigt. Þá segir að gert sé ráð fyrir að töluvert af daglegri starf- semi markaðsfulltrúa verði dagleg stjómun á svæðinu sjálfu. Talsverðar umræður urðu um þessa tillögu á fundi stjórnarinnar. Guðni Tryggvason lagði til að mál- inu yrði frestað en á það var ekki fallist og var tillagan að lokum sam- þykkt. Guðni taldi að ganga þyrfti mun lengra en tillagan segir til um í markaðssetningu safnsins og innra skipulagi. HJ Launamunur jafnaður árið 2588? í ávarpi Runólfs Ágústssonar, rektors Háskólans á Bifföst á mál- þingi háskólans og félagsmálaráðu- neyrisins á Bifföst sl. föstudag um launajafhréttí á vinnumarkaði kom ffam að með sömu þróun og verið hefur undanfarin ár mun það taka 581 ár þar tíl jöfhum rétti kynja til launa verður náð á Islandi. Sam- kvæmt rannsókn Capacent er óút- skýrður launamunur nú 15,7 % en var 16% árið 1994. I ávarpi sínu sagði Runólfur ma: „Kynbundin launamunur á vinnumarkaði er staðreynd og nú blasir það við okk- ur að samkvæmt þeirri könnun sem við erum hér að fjalla um dregur afar hægt úr þessum smánarbletti á okkar atvinnuhfi og samfélagi. Þeg- ar búið er að ffamkvæma svokallaða leiðréttingu á kynbundnrun launa- mun var svokallaður óútskýrður launamunur 16% árið 1994 en er 15,7% í dag. Þetta er ekki mikil huggun nýbökuðum foreldrum stúlkubarna því þegar þær fá aldur til getum við skýrt út fyrir þeim að jöfhun rétti þeirra til launa verði með sama áframhaldi náð árið 2588, eða eftir 581 ár. Það er langur tími að bíða, bæði fyrir foreldra og börn,“ sagði Runólfur. MM Akraneskaupstaður dæmdur tíl greiðslu Héraðsdómur Reykjavíkur dæmi Akraneskaupstað í síðustu viku til þess að greiða skipverja á dráttar- bátnum Leyni tæpar 5 milljónir króna auk málskostnaðar vegna slyss er varð um borð í bátnum árið 2001. Dómurinn taldi að öryggi skipverja hefði ekki verið tryggt og því bæri bæjarfélagið alla ábyrð á því tjóni er skipverjinn varð fyrir. Forsaga málsins er sú að í aprfl 2001 var dráttarbáturinn Leynir kallaður út til aðstoðar skipi norð- vestur af Garðskaga. Skipið var tek- ið í tog en þegar þau voru komin inn fyrir Garðskaga slitnaði dráttartaug- in. Tókst eftir nokkrar tilraunir að koma tauginni fyrir á nýjan leik, en veður var þá vont, hvasst og sjó- skaðabóta vegna vinnuslyss gangur nokkur. Slóst armur dráttar- króks í skipverjann með þeim afleið- ingum að hann brotnaði illa á hægri fæti og varð líkamstjón hans varan- legt og var örorka hans síðar varan- lega metin 10%. Akraneskaupstaður hafhaði bótaskyldu vegna slyssins með bréfi árið 2003. I mars 2003 óskaði bæjarfélagið effir því að sjó- próf vegna slyssins færu fram. Fyrir dómi krafðist skipverjinn þess að viðurkennt væri að Akranes- kaupstaður bæri sakarábyrgð á því tjóni er hann varð fyrir . Taldi hann dráttarbúnað bátsins hafa verið ófor- svarandi enda hafi honum verið breytt effir að skipið kom nýtt til landsins og ekki hafi verið aflað sam- þykkis Siglingastofhtmar á breyting- um búnaðarins. Akraneskaupstaður krafðist sýknu sem meðal annars var byggt á því að um óhapp hafi verið að ræða sem hafi orsakast af öldugangi, veðurfari og aðstæðum sem skapast geta úti á sjó án þess að nokkur eigi sök á. Dómurinn féllst ekki á að slysið hafi stafað af óhappatilviki. Breytingar hafi verið gerðar á bámum án þess að þær hafi verið samþykktar af Sigl- ingamálastofhun svo sem lögskylt var. Breytingarnar hafi dregið úr stöðugleikahæfni bátsins og þar með öryggi áhafnar hans. Þá segir í dómnum að samkvæmt skilgrein- ingu Rannsóknarnefndar sjóslysa flokkist slys þetta sem alvarlegt slys. Það að sjópróf hafi ekki verið haldin fyrr en tveimur árum seinna beri „nokkurn vott um tómlæti“ segir í dómnum. Þá taldi dómurinn einnig óvarlegt að nota bátinn Leyni við verkefhi það er vinna skyldi í umrætt sinn. Hins vegar var ekki talið sýnt ffam á að skipstjóri Leynis hafi beitt bámum óeðlilega né að báturinn hafi verið óeðlilega mannaður. I niðurlagi dómsins segir meðal annars: ,Áf þessum sökum verður fallist á það með stefhanda að stefhdi hafi ekki tryggt öryggi starfsmanna sinna um borð í Leyni og ekkert að- hafst til að draga úr hættueiginleik- um við notkun dráttarkróksins og ber stefhdi því alla ábyrgð á tjóni stefhanda vegna slyssins." HJ Intrum justitía opnar í Borgamesi Intrum justitia, sem rekur sem kunnugt er innheimtuþjónustu, opnar starfsstöð í Borgarnesi öðru hvoru megin við áramót. Fast- eignafélag sem Intrum er í sam- starfi við keypti fyrir nokkru hús- næði við Borgarbraut þar sem KB- banki var áður til húsa. Þar verður starfsemin hýst. Að sögn Sigurðar Arnars Jónssonar, forstjóra Intrum verður þess ekki langt að bíða að einhver fari að starfa í húsinu, þótt formleg opnun verði ekki strax. Mannauðssvið Intrum á Islandi ehf. sér um mannaráðningar á þessa nýju starfsstöð og þegar hef- ur María Magnúsdóttir, lögmaður verið ráðin. Til að byrja með verða að líkindum 3-4 starfsmenn í Borg- arnesi, en Akranes og Borgarnes verða eitt starfssvæði svo starfsfólk mun eitthvað fara á milli staða. I samstarfi með Intrum eru fjög- ur fyrirtæki, þar sem Intrum er stærst. Hin fyrirtækin eru: Pacta- málflutningur og ráðgjöf, Lög- heimtan ehf, Domus-fasteignasala, Rentus-leigumiðlun. Nöfnin á þessum samstarfsfyrirtækjum segja allt um hvaða starfsemi þau bjóða. Intrum hefur markvisst verið að flytja störf út á land, þar sem ýmsa þjónustu er hægt að inna af hendi, hvar sem er á landinu. Sem dæmi þá starfa mun fleiri í starfsstöðinni á Akranesi en þarf í raun til að reka hana og allar úthringingjar á veg- um fyrirtækisins eru framkvæmdar á landsbyggðinni. „Við erum reyndar að leita að ein- hverjum til leigja með okkur, húsið er svo stórt að það rúmar alveg fleiri, og tilvalið fyrir eitthvert fyrir- tæki með svipaða starfsemi að vera þarna einnig með aðstöðu“ segir Sigurður Arnar að lokum. BGK Jólabasar í Borgamesi KaffihlaSborS af bestu gerS erfastur liSur á basardegir DAB. Ljósm. Eva SumarliSad. Hinn árlegi Jólabasar Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi var sl. laugardag. Þar voru til sýnis og sölu ýmsar handgerðar vörur eftir heimils- og starfsfólk. Að vanda var mjög vandað til verksins og var margt eigulegra og fallegra muna sem skiptu um eigendur á laugardaginn. Selt var kaffi þar sem rmgir og eldri gæddu sér á margrómuðu kaffihlaðborði starfsstúlkna DAB, en hagnaðurinn af kaffisölunni rennur í sumar- ferðasjóð íbúa. MM Munir á basamum.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.