Skessuhorn


Skessuhorn - 08.11.2006, Qupperneq 19

Skessuhorn - 08.11.2006, Qupperneq 19
 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 19 Breiða út fagnaðarerindið um íslensku sauðkindina Til stuðnings íslenskum landbúnaði - 3 staðreyndir Mikil umræða hefur verið um matvælaverð hér á landi. Sagt er að verðið sé hátt og mun hærra en meðalverð 15 ESB landa og talið vandinn liggi í takmörkunum á inn- flutningi á mjólk - og kjötvöru. Með þessari framsemingu er neytendum eða almenningi steflit gegn bænd- um. En ekki er allt sem sýnist í þessu máli fremur en í mörgum öðrum. Lítum á 3 staðreyndir sem tala öðru máli. 1. Kaupmáttur tekna gegnvart matvælum er meiri en í ýmsum suð- rænum Evrópusambandsríkjum. Það þýðir að Islendingur ver minna af tekjum sínum hlutfallalega til matvælakaupa en í þessum löndum. Aðeins um 14% hérlendis en tæp- lega 20% í Portúgal og um 16% á Spáni. Auk þess eru hlutfallið hærra í Grikklandi og svipað á Italíu og Frakklandi. I löndum norður Evr- ópu, sem eru með háþróaðan land- búnað í stórum einingum eru mat- vælaútgjöldin um 1-2% lægri en hér á landi, það er allur munurinn. 2. Innlendi hluti matvælakaupa Is- lendingsins er aðeins ríflega 5% af útgjöldum heimilisins. Sá hluti hef- ur lækkað á undanförnum 8 árum úr tæplega 7%. Þetta gerist vegna þess að innlend framleiðsla lækkar í verði. Hagræðing í atvinnugreininni hefur skilað sér til neytenda. 3. Verðlag búvöru sem frjáls inn- flutningur er á er í mörgum tilvikum mtm hærra yfir meðalverði 15 ESB landanna en matvælaverðið í heild.. Frjálsa kerfið skilar ekki alltaf lægra verði, það skulu menn athuga. Þannig er verð á grænmeti um 67% yfir meðalverði 15 ESB landa, brauð og kornvörur einnig, gosdrykkir safar og vatn um 64% hærra svo nokkur dæmi séu nefnd. Meira að segja fiskur- inn er um 21 % dýrari en að meðaltali í ESB löndunum 15 og skyldi þá mega ætla að annað væri upp á ten- ingnum. Svo má nefna að óvíða er meira frjálsræði í innflutningi á búvöru en einmitt hér á landi. Um helmingur af orkugildinu í búvörunni er irm- flutt. Vörur eins og kaffi, sykur, kakó og tóbak eru fluttar inn frá svo- nefndum 3. heims löndum hindrun- arlaust. Það gera ekki margar þjóðir betur í þeim efhum. Þessar þrjár staðreyndir er vert að hafa í huga í umræðunni um mat- vælaverð og innflutning á búvöru. Kristinn H Gunnarsson „Þetta byrjaði allt saman í Hús- dýragarðinum, en þar var ég feng- inn til þess að koma og rýja kindur fyrir gestina með vissu millibili. Fljótlega fór ég að taka Ullarsels- konurnar af Hvanneyri með mér, til þess að sýna þeim sem á horfðu, hvað væri svo gert við ullina,“ seg- ir Guðmundur Hallgrímsson, ráðsmaður á Hvanneyri, um þá kynningu sem hann hefur hafið í skólum landsins á sauðkindinni og flestu henni tengt. Guðmundur og konurnar í Ull- arselinu hafa myndað með sér teymi og fara nú saman með kynn- ingarstarf sitt um landið. Krökk- unum er sýnt hvernig uppbygg- ingin á ullinni er, hún þæfð og búið til band sem þau fá að eiga. „Eg áttaði mig engan veginn á því til að byrja með hversu merkilegt þetta væri fyrr en ég fór að sjá sama fólkið koma aftur og aftur til komist í snertingu við sveitina en líka til þess að þau upplifi þetta sem í náttúrulegasta umhverfi. Það vantar ekki áhugann og að mínum dómi veitir ekki af frekar tengingu milli sveita og borgar. Börn í þétt- býlum vita varla nokkuð um land- búnað lengur, hvað er um að vera í sveitunum og það má ekki gerast,“ segir Guðmundur ákveðinn. Aðspurður um fleiri hugmyndir sem hann hafi í farvatninu segir Guðmundur: „Það getur vel verið, nóg er af kúnum í fjósum landsins, öðrum spendýrum og fuglum sem ég gæti vel hugsað sér að kynna.“ KH/ljósm.ÁE Bifreiðaeign marg- faldast en lögreglu- mönnum fækkar Á undanförnum áratugum hefur bifreiðaeign á Islandi þrefaldast en á sama tíma hefur heildarfjöldi lög- reglumanna sem starfa eingöngu við umferðaröryggismál fækkað umtalsvert. I dag starfa einungis tveir við þann málaflokk hjá ríkis- lögreglustjóra. A sama tíma eru 37 menn starfandi í sérsveit embættis- ins. Þetta kemur fram í svari Björns Bjarnasonar dómsmálaráð- herra á Alþingi við fyrirspurn Jó- hönnu Sigurðardóttur alþingis- manns Samfýlkingarinnar um lög- gæslu vegna umferðaröryggis. I svari ráðherra kemur ffarn að ffá árinu 1990 hefur hlutfall lög- reglumanna af heildarfjölda sem eingöngu sinna umferðaröryggis- málum lækkaði úr 6,4% árið 1990 í 3,2% árið 2006. I svarinu kemur fram að samanburður sem byggist á fjölda eða hlutfalli þeirra sem ein- göngu starfa við umferðarlöggæslu gefi ekki rétta mynd af þróun mála og umferðarmálum sé betur sinnt af hálfu lögreglunnar en áður var. Þá kemur fram að á árinu 1975 voru 71.469 bifreiðar á Islandi. Þann 22. október 2006 voru þær orðnar 226.137 talsins. Frá árinu 1985 hefur löggæslumönnum sem störfuðu eingöngu að umferðarör- yggismálum fækkað úr 46 í 23 í ár. Þá eru ekki taldir með starfsmenn slysarannsóknardeildar lögregl- unnar í Reykjavík né þeir sem sinna umferðarfræðslu. Sérstök umferðardeild er ekki lengur rekin hjá embætti ríkislög- reglustjóra en hún var lögð niður í árslok 2004. Hins vegar sinnir sér- sveit embættisins umferðarefrirliti samhliða öðrum störfum. Einnig kemur fram í svari ráðherra að á þessu ári hafa aðeins 4,4% af öllum kærum um umferðarlagabrot til- komin vegna löggæslumyndavéla en 95,6% vegna umferðarlöggæslu lögreglumanna. Hjá ríkislögreglu- stjóra sinna aðeins tveir menn um- ferðarlöggæslu sérstaklega. A sama tíma starfa 16 manns við rannsókn skatta- og efriahagsbrota þar af 11 lögreglumenn. Þá eru nú 37 lög- reglumenn starfandi í sérsveit emb- ættisins. HJ þess að fylgjast með og velti ég því fyrir mér hvort ekki væri rétt að gera eitthvað með þetta.“ Guð- mundur sótti um styrk hjá Bænda- samtökum Islands og Istex og hóf kynninguna og þá fyrst hjá börn- unum í Andakílsskóla. „Auk þess að vera búin að fara víða um Vesturlandið höfum við komið við í Húnaþingi og Skafta- fellssýslu og mjög líklegt að við látum sjá okkur á Austurlandi og breiðum út fagnaðarerindið þar,“ segir hann og hlær. „Við fáum að vera í fjárhúsum ekki langt frá þeim skólunum sem við erum að kynna, bæði til þess að börnin Meðalhófireglan Höfundur er Valdimar Sigur- jónsson sem býður sig fram í 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norð- vesturkjördæmi. í gegnum lífið öðlast einstakling- ar reynslu, með því að læra af um- hverfi sínu og af samskiptum við samferðafólk sitt. Reynslan getur verið bitur þegar gengið hefur ver- ið of langt en stundum er hægt að afjmá hnökra þegar góð ráð eru tek- in gild og farið er eftír þeim. Allt leiðir þetta til þess að einstaklingur gæti hófs í aðgerðum sínum og framkomu. Allar öfgar fara oftast í reynslubankann sem eitthvað sem á að forðast. Þegar einstaklingur hef- ur tamið sér meðalhóf eru meiri lík- ur að hann lifi hamingjusamur og sáttur við sig og samfélag sitt. í stjómmálum I stjómmálum er meðalhófsregl- an mjög sterk. Við stjórnsýsluá- kvarðanir er hún gegnumgangandi og skapar viðmið. Lög verða að vera byggð upp á þann hátt að þau tryggi réttíndi en skapi ekki of ríkar skyldur. Þarna á milli er hárfín lína. Þegar verið er að framfylgja lögum þarf líka að beita hófsömum að- gerðum þ.e.a.s. ekki má ganga of langt Þegar ekki er gætt að meðal- hófi geta skapast hættur og afleið- ingarnar orðið ófyrirsjáanlegar. Þetta á ekki bara við um lagasetn- ingar eða aðrar stjórnsýsluákvarð- anir heldur líka umræður. Umræð- ur og orð stjórnmálamanna eru oft mótandi og geta haft mikil áhrif út í samfélagið. Innflytj endamál Innflytjendamál eru í umræðunni núna og era skýrt dæmi um hversu mikil áhrif setningar og einstök orð stjórnmálamanna hafa. Þegar fjallað er um þessi mál þá er hárfín lína milli þess að ganga of langt og að fjalla um málin af ábyrgð, skynsemi og tillitsemi. Allar umræður þurfa að vera vel ígrundaðar, þar sem öll gífuryrði geta skapað usla og haft alvarlegar afleiðingar. Auðvelt er fyrir stjórnmálamenn að detta í þá gryfju að ganga of langt í þessum efnum, sérstaklega ef von er á auknu fylgi. Skammtímahugsun sem nær til næstu skoðanakönnun- ar getur haft slæm áhrif á einstak- linga. Fólk horfir á fréttir og heyrir þar ummæli eins og að „ófremdará- stand ríki í innflytjendamálum“ eða önnur gífuryrði. Svona málflutn- ingur getur lagt grunn að einelti og öðram óbæt- a n 1 e g u m miska sem er óafturkræfur og til skamm- ar fyrir það góða þjóðfé- lag sem við viljum búa í. Það er nauðsynlegt að ræða mál op- inskátt og að marka skýra stefriu en aðalmarkmiðið er að umræðan skapi ekki grundvöll fyrir óham- ingju, virðingarleysi og ofbeldi. Ávalt skal gæta meðalhófs, það er allavega mín skoðun. Valdimar Sigurjónsson

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.