Skessuhorn


Skessuhorn - 08.11.2006, Page 22

Skessuhorn - 08.11.2006, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 .■.r-ViliH... • • • Spuming vikunnar Hvað er það skemmtilegasta við vetiirinn? (spurt í dagvistun í Grundaskóla á Akranesi) Ama Berg: Renna mér á snjóþotu ogfara í snjókast Anna Berta: Biía til snjókalla og renna mér á sleða Halldór Vilberg: Biía til snjóbolta ogfara í snjó- kast Óskar: Jólin Að vera úti í snjónum Borgfirskar konur sýndu tískufatnað á Landnámssetrinu Það var fullt út úr dyrum á Land- námssetrinu fyrsta dag nóvember- mánaðar þegar húsráðendur blésu til tískusýningar þar sem íslensk hönnun var í fyrirrúmi. Sýningin, sem borgfirskar konur og börn tóku þátt í skiptist í tvennt. Til að byrja með voru vörur úr lopa, treflar, vettlingar, húfur og skartgripir úr náttúrlegum efhum sýnt og mest var um borgfirskt handverk að ræða. Áður en konurn- ar stigu síðan á stokk með föt eftir hönnuðinn Rögnu Fróðadöttur, söng Freyjukórinn nokkur lög und- ir styrkri stjórn Zsuzsamia Budai. Það setti óneitanlega skemmtilegan svip á hópinn að allar klæddust þær íslenskum lopapeysum, í öllum regnbogans litum, auk þess sem söngurinn naut sín mjög vel þar sem þær sungu beint á móti berg- Freyjukórinn inu sem búið er að byggja yfir og er hluti af innréttingu tengibyggingar Landnámssetursins. Það sem einkenndi föt Rögnu Fróðadóttur var fyrst og fremst kvenleiki en það gerir hún m.a. með því að leggja áherslu á mittið og notar til þess snið sem dregur það vel fram auk þess sem hún not- ar ffngerð bönd og linda. Fötin voru flest úr silkiefni og svifu mód- elin um á meðal gesta líkt og gyðj- ur, meðan Sigríður Margrét kynnti og skýrði út hönnunina. Hugmyndina að sýningunni og skipulag hennar átti Elísabet Hall- dórsdóttir en auk hennar kom starfsfólk setursins að ffamkvæmd- inni. Afar góður rómur var gerður af framtakinu meðal gesta og skemmtu þeir sér hið besta. KH Eygló Egilsdóttir sveifum eins og gyíja og sýndi ullarvörur Hönnuðurinn Ragna Fróðadóttir og skipulegg/andi sýning- arinnar, Elísabet Halldórsdóttir Skartgripir frá Kristý voru til sýnis og sölu. Dýrindiskjóll eftir Rögnu Fróðadóttur Frá hátíðarhöldunum tjýrra. Pólski þjóðhátíðardagurmn haldinn hátíðlegur í Röst Næstkomandi laugardag, 11. nóv- boði verður pólskur matur, dans við ember verður pólski þjóðhátíðar- pólska tónlist og fleira skemmtilegt. dagurinn haldinn hátíðlegur í fé- Nánari upplýsingar má finna á vef lagsheimilinu Röst á Hellissandi. I Snæfellsbæjar, snb.is. MM Sturla segir brýnt að auka framlög til markaðssetningar Sturla Böðvarsson, samgöngu- ráðherra segir í frétt á vef sínum að brýnt sé að auka kynningu á Islandi erlendis enda sé ferðaþjónustan mikilvæg atvinnugrein sem afli um 12% gjaldeyristekna þjóðarbúsins. „Þess vegna er mikilvægt að við höldum áfram markaðsstarfi bæði austan hafs og vestan því það er alls staðar mikil samkeppni um ferða- menn,“ segir ráðherra. Ferðamála- ráð samþykkti á fundi sínum síðast- liðinn föstudag að beina því til samgönguráðherra að fjárframlög til landkynningar á næsta ári verði stóraukin og að stefiit skuli að því að fjármunir til markaðssóknar verði um 300 milljónir króna ár- lega. Sturla Böðvarsson kveðst fagna þessum tillögum sem hann hyggst skoða nánar og vinna úr. Þá leggur ferðamálaráð til að ráðist verði þegar í stað í rannsókn á veg- Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra. um hlutlauss aðila til að fá heildar- mynd af áhrifum hvalveiða í at- vinnuskyni á íslenska ferðaþjónustu og ímynd landsins á erlendum mörkuðum. Einnig að kannaðar verði skoðanir almennings sem og söluaðila ferðaþjónustu á erlendum mörkuðum. MM Leitað að framtíðarhúsnæði fyrir Amtsbókasafiúð Starfshópur um fyrirhugaða byggingu nýs skólahúss í Stykkis- hólmi hefur fundað um hvað eigi að vera í væntanlegu skólahúsi og einnig hvort Amtsbókasafnið eigi heima þar. I samtali við Eyþór Benedikts- son, formann safna- og menningar- nefhdar Stykkishólms, kom meðal annars fram að safhið sé að flytja úr núverandi húsnæði. Það hús er að mörgu leiti gott og á fallegum stað en hefur lengi þótt of lítið. I um- ræðunni hefur verið að finna eða byggja stærra húsnæði undir safhið. Stykkishólmsbær hefur selt núver- andi húsnæði safnsins og mun það hýsa svokallað Vatnasafn sem eru listaverk effir Roni Horn. Til að byrja með fer safnið niður í gamla bæinn, í verslunarhús sem þar er að losna. A meðan geta menn velt fyrir sér kostum og göll- um þess að hafa Amtsbókasafhið tengt við grunnskólann. Hvort vegur þess og notkun yrði minni eða meiri eða hvort einfaldlega eigi að byggja glæsilegt bókasafnshús í hjarta bæjarins, sem gæti hýst öll þau söfn sem Stykkishólmsbúum dettur í hug að setja á stofn í ffam- tíðinni. BGK Undirskriftarlistar gegn byggingu Sóhnundarhöfða Sigurbjörg Ragnarsdóttir og Unnur Guðmundsdóttir starfs- menn á Dvalarheimilinu Höfða hafa afhent Gísla S. Einarssyni undirskriftalista þar sem 119 ein- staklingar mótmæla fyrirhugaðri byggingu á Sólmtmdarhöfða. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns ákvað bæjarstjórn Akraness fyrir skömmu að fjölga hæðum áðurnefnds fjölbýlishúss úr fjórum í átta auk bílakjallara og við það fjölgaði íbúðum úr 12 í 31. Sú breyting kallaði á breytingu á deiliskipulagi Sólmundarhöfða og var auglýst eftir athugasemdum við þá breytingu nýverið og þurfti að skila þeim inn til Akraneskaupstað- ar fyrir 1. nóvember. I formála listans segir að þeir sem tmdir hann rita vilji koma á framfæri við bæjaryfirvöld óánægju og undrun yfir þeirri ákvörðun „að leyfa byggingu háhýsis á Sólmund- arhöfða," eins og segir orðrétt. Þá segir að til standi að byggja lokaða deild fyrir Alzheimer sjúklinga við Höfða og sé undirbúningur að þeirri hugmynd þegar hafinn og því samræmist nýbyggingin engan veginn þeim hugmyndum sem ríkj- andi eru um starfsemi slíkrar deild- ar „það er að ró og friður sé sem mestur ef kostur er“. Þá segir að háhýsi á þessum stað muni hafa í för með sér mikla um- ferðaraukningu og ónæði við hjúkrunardeildina sem nú þegar er starfrækt við Höfða. „Það verða ekki eingöngu íbúar hússins sem koma til með að keyra þarna ffarn hjá því að það gefur auga leið að 31 íbúð fylgir mikil umferð. Það er einlæg ósk okkar að þetta svæði fái að vera ósnortið enda eitt fallegasta útivistarsvæði á Akranesi í tengsl- um við íþróttasvæðið og Langa- sand,“ segir í niðurlagi undirskrift- arlistans. HJ

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.