Skessuhorn - 08.11.2006, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006
23
Snæfell á toppi
úrvalsdeildarinnar
Lið Snæfells í Stykkishólmi er í
fyrsta sæti úrvalsdeildarinnar í
körfuknattleik eftir frækinn sigur á
liði Njarðvíkur á sunnudag. Lið
Njarðvíkur var taplaust fyrir leik-
inn. Snæfellingar spiluðu eins og
sá sem valdið hefur og gestirnir
sáu því í raun aldrei til sólar í
leiknum. Það var frábær spila-
mennska leikmanna Snæfells í
fyrri hálfleik sem skipti sköpum í
leiknum því í hálfleik var staðan
47-28. Munurinn jókst þó í síðari
hálfleik og mest náði lið Snæfells
24 stiga forskoti. Á síðustu mínút-
um leiksins gáfu Snæfellingar að-
Fimm leik-
menn ÍA
á úrtaks-
æfingum
Fimm leikmenn ÍA hafa verið vald-
ir til úrtaksæfinga hjá yngri lands-
liðum f knattspyrnu. Viktor Ýmir El-
íasson hefur verið valinn til æfinga
hjá landsliði leikmanna undir 17
ára aldri og Arnar Már Guðjóns-
son, Hafþór Ægir Vilhjálmsson,
Heimir Einarsson og Jón Vilhelm
Ákason voru valdir til æfinga hjá
landsliði sem skipað er leikmönn-
um undir 21 árs aldri. Þjálfari
beggja liðanna er Lúkas Kostic
fyrrum leikmaður ÍA.
HJ
Umf Skipa-
skagi hlýtur
Hvatningar-
verðlaun
UMFÍ
Á sambandsráðsfundi UMFÍ á
Flúðum 25. október sl. var tilkynnt
hverjir hefðu hreppt Hvatningar-
verðlaun UMFÍ fyrir árið 2006.
Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ,
gerði grein fyrir verðlaununum og
tilkynnti að þau hefðu komið í hlut
Keflavíkur íþrótta- og ungmenna-
félags og Ungmennafélagsins
Skiþaskaga á Akranesi. Ung-
mennafélagi Skipaskaga verður
afhent verðlaunin í sinni heima-
byggð við hátíðlegt tækifæri síðar
en Einar Haraldsson, formaður
Keflavíkur íþrótta og ungmennafé-
lags tók við blómavendi úr hendi
Björn B. Jónssonar.
MM
eins eftir og lauk leiknum með
með 18 stiga sigri Snæfells 88-
70.
Magni Hafsteinsson var stiga-
hæstur heimamanna með 30 stig,
Jón Ó. Jónsson 15 stig, Sigurður
Á. Þorvaldsson 14 stig, Justin
Shouse 11 stig, Hlynur Bærings-
son 10 stig, Helgi Guðmundsson
5 stig og Guðni Valentínusson 3
stig. Stigahæstur gestanna var
Jeb Ivey með 18 stig. Eins og
áður sagði er lið Snæfells nú í
efsta sæti úrvalsdeildarinnar með
10 stig að loknum sex leikjum.
HJ
Góður sigur Skallagríms
í Grafarvogi
Skallagrímsmenn gerðu góða
ferð á föstudag þegar liðið lagði
heimamenn í Fjölni Grafarvogi,
80:94. Leikurinn var jafn allt fram í
síðasta leikhluta þegar Borgnes-
ingar gáfu í og lönduðu nokkuð ör-
uggum sigri. Skallagrímur náði
góðum kafla í upphafi leiks og flest
skot þeirra á upphafsmínútunum
rötuðu rétta leið á meðan heima-
menn í Fjölni voru heldur seinir í
gang. Bæði lið voru að leika góð-
an körfubolta og skiptust á að
hafa forystuna.
Skallagrímsmenn höfðu þó yfir í
hálfleik, 42:44 og röðuðu svo stig-
um síðar í leiknum með frábærri
nýtingu á þriggja stiga skotunum.
Dimitar Karadzovski var líklega
besti maður vallarins, en hann
setti 24 stig og gaf 8 stoðsending-
ar. Nemanja Sovic og Keith Vassel
skoruðu báðir 16 stig fyrir Fjölni,
en Patrick Olvier var atkvæða-
mestur með 21. Jovan var einnig
mjög góður í liði Borgnesinga og
var mestmegnis að einbeita sér að
því að finna aðra menn. Hann end-
aði með 23 stig og 6 stoðsending-
ar. Darrel Flake hefur oftar en ekki
spilað betur í sókninni en hann var
engu að síður að skila sínu, með
16 stig og 21 frákast. Hann var
með hæsta framlag Borgnesinga
til leiksins, eða 31. Pálmi, Sveinn,
Axel og Hafþór áttu allir ágætan
dag, en þeir hafa allir spilað betur.
Pétur Már lenti í villuvandræðum
strax í 2. leikhluta og gat ekki beitt
sér sem skyldi eftir það.
Rétt er að benda á nýja síðu
Skallagrímsmanna á vefslóðinni
www.skallagrimur.org. Þar er að
finna ítarlegri frásagnir af leikjum
liðsins. Næsti leikur Skallagríms er
í kvöld, miðvikudag gegn Tinda-
stóli á heimavelli.
MM
Formaðurinn
leiðir mótið
Fyrsta spilamennskan af sex í
aðaltvímenningskeppni Bridsfé-
lags Borgarfjarðar hófst sl. mánu-
dag með þátttöku 23. para. Spil-
aður er barómeter og forgefin
spil. Sauðfjárbændur virðast
koma vel undan hausti og er
höggþungi þeirra engu minni en
fallþungi dilka þeirra í haust. Röð-
uðu bændurnir sér í
þrjú efstu sætin eftir
fyrsta kvöld, fast fylgt
eftir af Skagamönnun-
um Einari og gömlu
kempunni Alfreð Krist-
jánssyni. Þess ber þó
að geta að hæsta skor var ekki
sérlega hátt og vafalaust eiga
margir eftir að gera tilkall til efri
sæta þegar fram líður, t.d. Borg-
nesingar sem eru til alls líklegir.
Jón formaður og Baldur bóndi
leiða keppnina eftir fyrsta kvöld,
en annars er staða efstu para
þessi:
1. Jón Eyjólfsson - Baldur Björnsson 50
2. Sveinn Hallgr.s - Magnús Magnússon 49
3. Egill Kristinsson - Sindri Sigurgeirsson 39
4. Einar Guðmundsson - Alfreð Kristjánss. 36
5. Lárus Pétursson - Sveinbjörn Eyjólfsson 24
6. Jón Pétursson - Eyjólfur Örnólfsson 19
7. Jón H Einarsson og Jóhann Gestsson 16
IA hættir þátttöku
í íslandsmóti
innanhúss
Knattspyrnufélag ÍA tekur ekki
þátt í íslandsmótinu innanhúss í
knattspyrnu sem hefst síðar í
þessum mánuði. Gísli Gíslason,
formaður rekstrarfélags meist-
araflokks félagsins segir ástæð-
una ekki þá að skortur sé á leik-
mönnum heldur hafi aðstæður
breyst með tilkomu knattspyrnu-
húsa. Nú séu æfingar að vetri
ekki bundnar við götuhlaup og
hefðbundna íþróttasali og því
hafi „parketfótbolti" verið lagður
Björgunarsveitin Brák kaupir
nýjan íjallaM
í liðnum mánuði festi Björgunar-
sveitin Brák í Borgamesi kaup á
nýrri jeppabifreið af fyrirtækinu Art-
ic Trucks. Kaupin voru í framhaldi
af undirbúningsvinnu sem björgun-
arsveitarmenn lögðu í þar sem byrj-
að var að meta þörf sveitarinnar
varðandi tækjakost með hliðsjón af
tegundum útkalla síðustu árin. Hef-
ur sveitin nú yfir að ráða tveimur
bifreiðum; Ford Econoline og
Toyota Landcruiser 70 á 38“ dekkj-
um. Þessi bílar hafa reynst vel en
ekki hentað við allar þær erfiðu að-
stæður sem upp koma í vetrarfærð
til dæmis við aðgerðir á jöklum. Var
því farið í að kaupa fullbreyttan bíl á
44“ dekkjum og varð Landcrusier
105 fyrir valinu. Mun Artic Trucks
sjá um breytingar á bílrnun og af-
henda hann fúllbúinn í útkall þann
30. janúar á næsta ári.
„Eg vil um leið minna á að öll
störf í björgun-
arsveitinni eru
unnin í sjálf-
boðavinnu og
má kalla félaga
út allan sólar-
hringinn, alla
daga ársins.
Helstu fjáröfl-
unarverkefni
okkar eru sala á
jólatrjám og
flugeldum fyrir
hátíðarnar auk
ýmissa verkefna
sem til falla. Það er von okkar að
einstaklingar og fyrirtæki bregðist
vel við þegar leitað verður til þeirra
um fjárstuðning til verkefhisins sem
hér hefur verið lýst. Um leið þakkar
Brák frábærar viðtökur sem við
fengum við sölu á Neyðarkallinum
um liðna helgi, en hann seldist upp á
Gufimundur Finnur Guðmundsson, formafiur bílaflokks Brákar
gekkfrá samningi um btlakaupin vifi Hinrik Jóhannesson frá
Artick Trucks.
rétt rúmum klukkutíma,“ sagði Er-
lendur Breiðfjörð, formaður bjsv.
Brákar í samtali við Skessuhom.MM
á hilluna.
í pistli á heimasíðu félagsins
segir formaðurinn að með til-
komu knattspyrnuhúsanna sé
hægt að spila „alvöru“ fótbolta
allan veturinn án þess að veður
hamli og nú æfi Skagaliðið að-
eins í Akraneshöllinni. „Það má
hinsvegar ef til vill spyrja hvers
vegna ekki sé fremur boðað til
hraðmóts í nýju fótboltahúsun-
um, en slíkt væri vel þegin nýj-
ung með breyttri aðstöðu,“ segir
formaðurinn orðrétt.
Eins og fram hefur komið í
fréttum eru hugmyndir uppi um
nýtt mótafyrirkomulag í knatt-
spyrnu frá árinu 2010 á þann veg
að fyrstu níu umferðir (slands-
mótsins verði leiknar í Egilshöll-
inni og nýju húsi í Kópavogi.
Gísli telur að þrátt fyrir þessar
hugmyndir megi notast við Eg-
ilshöllina og hin fimm knatt-
spyrnuhúsin sem reist hafa verið
í veigaminni leiki.
íslandsmeistaramótið í knatt-
spyrnu karla innanhúss var fyrst
haldið árið 1969 og fyrstu tvö
árin sigraði lið ÍA. Liðið varð
einnig meistari árin 1992 og
1998. Alls vann liðið 17 meistar-
titla í karlaflokki innanhúss. [
kvennaflokki hófst keppni árið
1971 og þar vann lið ÍA titilinn
einnig fyrstu tvö árin og 10 titla
samtals.
HJ
Kyrrlátt kvöld við Hvammsfjörð
Þessa mynd frá Búfiardal tók Bjöm A Einarsson, Ijósmyndari Skessuhoms í síðustu viku í hauststillunni. Þetta var lognið á undan
storminum sem kom sífian á sunnudag.
Skallagrímur-
Tindastóll
Miðvikudag klukkan 19:15
í Borgarnesi
(Ath! Breyttur leikdagur)
ALLIR Á VÖLLINN!