Skessuhorn - 16.05.2007, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 16. MAI2007
oiEasums.-
Langþráð uppbygging á Kárastaða-
flngvelH í startholunum
Sturla Böðvarsson og Páll S. Brynjatsson handsala sanininginn sem þeir voru að Ijiíka
undirskrift á.
Heilbrigðisráðherra
hunsar beiðnir
DaÍamanna
í síðustu viku skrifuðu Páll S.
Brynjarsson sveitarstjóri Borgar-
byggðar og Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra undir samstarfs-
samning milli þessara aðila um
uppbyggingu á Kárastaðaflugvelli.
Flugbrautin fer úr 630x12 metrum
í 799x18 metra. Við sama tilefni
skrifuðu Haukur Hauksson fram-
kvæmdastjóri Flugstoða og Theo-
dór Þórðarson formaður flug-
klúbbsins Kára undir samstarf-
samning milli flugklúbbsins og
Flugstoða um að klúbburinn taki að
sér rekstur vallarins, með íjárstuðn-
ingi ffá Flugstoðum.
Borgarbyggð og samgönguráðu-
neytið samþykkja að veita fjórtán
milljónum króna í uppbyggingu og
lagfæringar á vellinum, sjö milljón-
ir hvort ár. Peningunum verður
meðal annars varið í að styrkja,
breikka og lengja brautina og lag-
færa umhverfi vallarins. Páll S.
Brynjarsson sveitarstjóri sagði í
ávarpi sínu að verið væri að ganga
frá langþráðu samkomulagi þar sem
forsvarsmenn Kára ættu stærstan
hlut að máli með því að sannfæra
menn um nauðsyn þessa framtaks. I
sama streng tók Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra og sagði þá
Theodór Þórðarson og Magnús
Guðjónsson forsvarsmenn Kára
hafa verið bæði ýtna og seiga við að
halda málinu lifandi. Hann hefði
jafnframt komist að því eftir sam-
ræður við mæta menn að mikilvægt
væri að viðhalda þessum flugbraut-
um úti á landsbyggðinni, sérstak-
lega í nágrenni Reykjavíkur til þess
að æfa sig á og læra.
Unnið hefur verið að þessu máli
síðan árið 2001 og árið 2002 keypti
Borgarbyggð frekara land undir
flugvöllinn, en ekkert hefur þokast í
málinu fyrr en nú. Flugstoðir veita
fjármagni til flugklúbbsins Kára,
eina milljón á ári, fyrsta sinn árið
2008 og næstu þrjú ár þar á eftir, til
þess að sjá um viðhald á vellinum.
hgk
í nokkum tíma hafa Dalamenn
farið þess á leit við heilbrigðisráðu-
neytið að hjúkrunarrýmum á Silfúr-
túni verði fjölgað um sjö. Ráðherra
hefúr ýmist boðið dagvistun sem
ekki er hægt að sinna eða að breyta
tveimur dvalarrýmum í eitt rými fyr-
ir hvíldarinnlagnir, ekki fyrir heils-
árshjúkrun. Að sögn Ingibjargar
Kristjánsdóttur, hjúkrunarforstjóra
Silfúrtúns eru heildarrými á heimil-
inu fimmtán talsins, sjö hjúkrunar-
rými og átta dvalarrými. „Við vild-
um gjaman hafa eingöngu hjúkrun-
arrými og ég skil ekki þessa af-
greiðslu ráðherra sem hefur komið
hingað og veit hvernig aðstaðan er
að það er ekkert hægt bjóða hér dag-
vistun. I fyrra svari ráðherra er okk-
ur úthlutað tveimur dvalarrýmum, í
síðara svarinu er boðið upp á að
breyta tveimur dvalarrýmum í eitt
hjúkrunarrými fyrir hvíldarixmlagn-
ir. Við sóttum um að breyta okkar
átta dvalarrýmum í hjúkrunarrými
og fáum þessi svör. Hinsvegar emm
við að veita hjúkrunarþjónustu
heima af því að þörf er fyrir hana, en
fáum það ekki greitt ffá ríkinu.“
Gunnólfur Lárasson, sveitarstjóri
Dalabyggðar sagðist í samtali við
Skessuhom vera afar ósáttur við af-
greiðslu ráðherra og sama giltd um
aðra í byggðaráði Dalabyggðar. „Vð
viljum frekar fá svör um að ekld sé
hægt að verða við þessum óskum
okkar heldur en að fá svona af-
greiðslu. I dvalarrýmum Silfurtúns
era nú hjúkrunarsjúklingar sem bíða
eftir flumingi yfir í hjúkrunarrými.
Allir íbúar heimihsins fá alla þá þjón-
ustu sem þeir þurfa þótt ríkið greiði
ekki daggjöld með þeim. Heimifið er
því rekið með umtalsverðum halla
sem Dalabyggð getur ekki staðið
undir til lengdar. Við verðum því
enn og aftur að ítreka óskir okkar
um að ráðuneytið fjölgi hjúkrunar-
rýmum í Silfurtúni án þess að fækka
rýmum þar í heild. Þetta er heimil-
inu og öllum íbúum þess algerlega
nauðsynlegt og eina færa leiðin í
málinu. Við eram búnir að senda
bréf sem faxað var til ráðuneytisins í
dag [fyrir sl. helgi] og vonandi fáum
við svör sem fyrst,“ sagði Gtmnólfur
Lárusson sveitarstjóri.
bgk
Brotist í tvígang inn í blokk á Miðbæjarreit
Brotist var inn í fjölbýlishús
sem er í byggingu á Miðbæjar-
reitnum á Akranesi um helg-
ina. Um er að ræða stóru
blokkina við Skagaver. Til-
kynning barst um innbrot að-
fararnótt sunnudagsins og
þegar lögreglan kom á staðinn
höfðu nokkur skemmdarverk
verið unnin. Rúður voru
brotnar, málningu slett út um
allt, mjólkurfernur rifnar í
sundur og kaffi skvett víða.
Fulltrúar verktakans mættu á
svæðið og gengu ffá til bráða-
birgða. A milli klukkan 17 og
20 á sunnudag var aftur brotist
inn í húsið og frekari skemmd-
arverk unnin. Innréttingar
voru skemmdar, rafmagnstöfl-
ur eyðilagðar, perur og fleiri
rúður brotnar. Allt í allt voru
brotnar á milli 15 og 20 rúður.
Þá var málningu hellt ofan í
lyftugöngin og á lyftuna og á
viðkvæman búnað í gangverki
hennar. Ekki er vitað hve tjón-
ið er mikið en það gæti numið
tugum milljóna hafi lyftubún-
aðurinn eyðilagst. Lögreglan
hefur engar vísbendingar um
hver eða hverjir voru að verki.
Þeir sem hafa orðið varir við
mannaferðir í húsinu aðfara-
nótt sunnudags og á milli
klukkan 17 og 20 á sunnudag
eru beðnir um að hafa sam-
band við lögreglu.
kóp
Brotist var í tvígang inn í hlokkina um helgina.
Málningu var hellt niður lyftugöngin.
PISTILL GISLA
Urslit
Lauslega reiknað þá hefur
verið kosið til Alþingis nálægt tíu
sinnum síðan ég fæddist og er
það nokkuð vel að verki verið. I
seinni tíð hef ég fylgst með þessu
af nokkurri athygli en framan af
heldur minna. Allavega get ég
ekki með nokkru móti munað
hver vann í fyrstu kosningunum
sem haldnar voru efrir að ég
fæddist. (Þetta hljómar reyndar
eins og efnt hafi verið til kosninga
af því tilefhi sérstaklega. Svo mun
þó ekki hafa verið heldur er
einfaldlega erfitt að orða þetta á
annan hátt. Bið ég því lesendur
að virða viljann fyrir verkið).
Svona eftir á að hyggja er heldur
ekki víst að neinn hafi unnið.
Allavega er allsendis óvíst að
nokkur hafi tapað.
Eg hef nefnilega lært það á
þessum tíu kosningum (Þær eru
allavega því sem næst tíu. Eg
ætlaði, til að fa þetta á hreint, að
hringja í vin minn sem er
stjómmálafræðingur og ætti að
vita þetta. Hann bara svaraði ekki
helvískur þannig að fyrir vikið get
ég ekki boðið upp á meiri
nákvæmni í þetta skiptið) að sigur
er afar afstætt hugtak. Ef við
skoðum í fljótheitum úrslit
kosninganna á laugardaginn
síðasta þá bætti
Sjálfstæðisflokkurinn við sig
tveimur mönnum frá síðustu
kosningum. Flokkurinn hafði
reyndar fengið einn þingmann
eða svo að gjöf á miðju
kjörtímabili þannig að þetta var
ekki svo mikil viðbót en sigur þó.
Vinstri grænir unnu stórsigur
miðað við síðusm kosningar en
hinsvegar virðast margir miða við
skoðanakannanir að eigin vafi og
þá er hægt að túlka úrsfitin sem
stórkostlegt tap fyrir þennan
ágæta flokk. Á sömu forsendum
er Samfylkingin talin vera
sigurvegari þrátt fyrir að hafa
tapað tveimur þingmönnum
vegna þess að miðað við
skoðanakannanir í febrúar eða
mars hefði tapið getað orðið mun
meira. Tveir mínusar eru þar
með orðnir að plús.
Framsóknarflokkurinn tapaði
mestu og um það eru flestir
sammála en hinsvegar var tapið
minna en margir bjuggust við og
er þar með orðið sigur.
Frjálslyndi flokkurinn vann
hinsvegar hvorki né tapaði
þannig að kannski gerði hann
jafnteffi sem hlýtur að teljast
nokkuð gott. Islandshreyfingin
fékk meira fylgi en í síðustu
kosningum þar sem hún var ekki
í framboði og því hlýtur hún að
teljast sigurvegari þrátt fyrir að
hafa ekki komist nálægt því að
eignast sinn eigin þingmann.
I stjórnmálum eru allir
sigurvegarar líkt og á pollamóri í
knattspymu þar sem hver einn og
einasti fær gullpening í mótslok.
Gísli Einarsson, hakari.