Skessuhorn - 16.05.2007, Blaðsíða 14
14
MIÐVTKUDAGUR 16. MAÍ 2007
§k)e£áiú'nK>M[
Háskóla-
nám
Búvísindi
Hestafræði
Náttúru- og
umhverfisfræði
Skógfræði og
landgræðsia
Umhverfis-
skipulag
Starfs-
menntanám
• Blómaskreytingar
• Búfræði
• Garðyrkju-
framleiðsla
• Skógur og
umhverfi
• Skrúðgarðyrkju-
braut
Umsóknarfrestur um
skólavist fyrir skólaárið 2007- 8
er til 4. júní
iO \
5
Hvanneyri • 311 Borgarnes
Sími 433 5000
www.lbhi.is
Mælt með tillögum Kanon varðandi Brákarey
Skipulags- og byggingarnefnd
Borgarbyggðar hefur samþykkt að
mæla með því við sveitarstjórn að
tillögur Kanon arkitekta um
deiliskipulag í Brákarey verði sam-
þykkt. Að sögn Björns Bjarka Þor-
steinssonar forseta sveitarstjórnar
verður tillaga nefndarinnar tekin
fyrir á sveitarstjórnarfundi næst-
komandi miðvikudag [í dagj og þá
kemur í ljós hvort gengið verði til
samninga við Kanon. „I tillögum
arkitektanna er gert ráð fyrir bland-
aðri byggð, bæði íbúðum, hóteli,
menningarhúsi og fleiru. I þessum
tillögum er ýtt undir sérstöðu eyj-
arinnar. Hins vegar er þetta bara á
Þrívíddarmynd af eyjunni skv. tillögu Kanon arkitekta.
vinnslustigi og sem dæmi má nefna
að það eru tíu eigendur að bygging-
um í eyjunni, að sveitarfélaginu
meðtöldu, svo að mörgu er að
hyggja," sagði Björn Bjarki Þor-
steinsson.
A vef Borgarbyggðar og í Ráð-
húsi sveitarfélagsins eru tillögur
allra arkitektanna sýndar. I tillögum
Kanon má sjá að gert er ráð fyrir
byggingu við torg, raðhúsi með
fimmtíu íbúðum, menningarhúsi
allt að 1.500 fm. að stærð, strand-
hóteli og útsýnisíbúðum.
bgk
Náttúrun'æðistofiiiin eklá í Borgarbyggð
Umhverfisráðherra hefur fengið
heimild frá ríkisstjórn Islands til að
auglýsa eftir hentugu húsnæði til
leigu fyrir Náttúrufræðistofnun Is-
lands sem uppfyllir þörf stofnunar-
innar fyrir almennan rekstur og vís-
indasöfn. Ekki er talað um að það
húsnæði verði í Borgarbyggð. Eins
og fram hefur komið í fréttum
Skessuhorns buðu forsvarsmenn
Borgarbyggðar húsnæði undir
Náttúrufræðistofnun í byggðarlag-
inu, nánar tiltekið á Hvanneyri.
Páll S. Brynjarsson sveitarstjóri
sagði í samtali við Skessuhorn að
ekkert yrði af því að stofnunin sett-
ist að í Borgarbyggð. Jónína Bjart-
marz umhverfisráðherra hefur gef-
ið það út að stofnunin yrði staðsett
í Reykjavík og þessi auglýsing stað-
festir það,“ sagði Páll.
Náttúrufræðistofnun hefur nú
aðsetur í Reykjavík og á Akureyri.
Húsnæðisaðstaða stofnunarinnar er
góð á Akureyri en í Reykjavík upp-
fyllir hún ekki þær kröfur sem gera
verður til starfsemi hennar. Stofh-
unin er með aðstöðu fyrir allan al-
mennan rekstur og sýningasafn að
Hlemmi. Stofhunin flutti í húsnæð-
ið til bráðabirgða en hefur verið þar
síðan. Nú hefur ráðherra sem sagt
fengið leyfi til að auglýsa eftir hent-
ugu húsnæði, sem ekki veður í
Borgarbyggð.
bgk
Hreinsunarátak í
Grundarfirði
Allar vöru að vera komnar á sína staði og verslunin tilbúin til opnunar á laugardaginn.
Bónus opnar á Akranesi
á laugardaginn
Næstkomandi laugardag opnar
Bónus nýja verslun við Þjóðbraut á
Akranesi af svipaðri stærð og í
Borgarnesi. Að sögn Þorsteins
Böðvarssonar verslunarstjóra er
verið að leggja lokahönd á allt.
Búið að ráða starfsfólk, vörur að
vera komnar á sína staði og verið að
snyrta fyrir utan. „Við verðum með
fullt af tilboðum í tilefni opnunar-
innar og vonandi verður bara mik-
ið að gera, því þannig viljum við
hafa það,“ sagði Þorsteinn Böðv-
arsson verslunarstjóri í samtali við
Skessuhorn.
bgk
í næstu viku, dagana 21. - 25.
maí verður hreinsunarátak í
Grundarfirði. Starfsmenn áhalda-
húss munu fara um bæinn og hirða
rusl í sorppokum eða snyrtilega
umbúið sem staðsett verður við
lóðamörk. Bæjarbúar eru hvattir til
þess að fjarlægja alla hluti sem hætt
er að nota og eru ónýtir. Jarðvegs-
gámur hefur verið staðsettur á Gi-
lóseyrum fyrir ofan íþróttavöllinn.
Þangað er hægt að fara með og losa
gróðurúrganginn úr garðinum.
Aðgengi að gáminum er auðvelt og
hægt er að sturta beint úr kerrum í
hann. A vef Grundarfjarðarbæjar
kemur fram að talsvert hefur borið
á því að möl úr innkeyrslum berist
inn á götur bæjarins sem verða
heldur ósnyrtilegar yfir að líta. Þar
að auki skemmir mölin malbikið og
gerir holur í það. Umráðamenn
fasteigna sem þetta á við um, eru
hvattir til þess að bæta úr þessu eins
og mögulegt er.
Innan skamms verður tilbúið ffá-
lagssvæði við Hjallatún þar sem
verður unnt að fá geymda hluti sem
viðkom-andi eru ekki að nota en
vilja ekki farga gegn gjaldi. I tilefni
af átakinu verður gámastöðin í
átaksvikunni opin til kl. 19.00 frá
mánudegi til föstudags.
kóp
Meiri fiskafii í apríl en í fyrra
Fiskafli í nýliðnum apríl var
120.663 tonn sem er rúmlega 36
þúsund tonnum meiri afli en í apríl
2006 en þá var aflinn 84.383 tonn.
32 þúsund tonna aukning
kolmunnaafla vegur þyngst í aukn-
ingu afla milli ára. Einnig var meiri
botnfisksafli í apríl 2007 en í apríl
2006. Bomfisksaflinn í apríl 2007
var 51.167 tonn sem er tæplega 4
þúsund tonna aukning frá apríl í
fyrra þegar botnfisksaflinn 47.375
tonn. Þorskafli var nánast sá sami
nú og í apríl í fyrra eða rúmlega 17
þúsund tonn. Hinsvegar jókst ýsu-
afli um 2 þúsund tonn milli ára og
sama gildir um karfann. Heildarafli
íslenskra skipa á árinu var kominn í
tæplega 603 þúsund tonn í lok apr-
íl 2007 en það er 129 þúsund tonn-
um meiri afli en á sama tíma á síð-
asta ári þegar heildaraflinn janúar -
apríl var rúmlega 473 þúsund tonn.
Aukning í afla milli ára er vegna
meiri loðnu- og kolmunnaafla í ár.
Nú þegar fjórir mánuðir eru eftir
af fiskveiðiárinu eru eftirstöðvar
botnfisksaflamarks meiri en á sama
tíma á síðasta fiskveiðiári. Vekur
þar sérstaka athygli að meiri afla-
heimildir eru eftir í þorski þrátt fyr-
ir að úthlutað var minna aflamarki í
ár en á síðasta fiskveiðiári. Einnig
vekur athygli slakur afli af grálúðu.
Nánast ekkert hefur veiðst af rækju
það sem af er ári. Aðeins hafa fjórir
bátar verið á rækjuveiðum þar til í
síðustu viku þegar nokkrir bátar til
viðbótar fóru að reyna fyrir sér.
kóp
Þórisniðjastræti fær að halda gömlum heitum sínum
Hús við götuna Tröð í Reykholti,
sem sumir nefna Þórisniðjastræti
eftir niðjum Þóris Steinþórssonar
sem margir byggðu sér hús við
þessa götu, fá að halda sínum
gömlu heitum samkvæmt nýlegri
samþykkt byggðaráðs Borgar-
byggðar. Að sögn Páls S. Brynjars-
sonar, sveitarstjóra var fyrir ríflega
tveimur árum sett inn heiti á áður
nefnda götu og húsin því númeruð
við hana í fasteignamati, eins og
víðast hvar er. Nú hefur sr. Geir
Waage sem beneficiator í Reyk-
holti sótt um að húsin fái að nota
sín upprunalegu nöfn. Til gamans
má geta þess að við götuna standa
meðal annars Lyngholt, Þórsham-
ar, Brennubær, Smiðjuholt, I véum
og Lulluhús sem verða nú þannig
skráð hjá Fasteignamati ríkisins.
bgk
Séra Geir Waage stendur hér viSfi'œðsluskilti um skógrækt í Reykholti sem stendur neðst
við húsin í Þórisniðjastrteti.