Skessuhorn - 16.05.2007, Blaðsíða 26
26
MIÐVIKUDAGUR 16. MAI 2007
SSESStíHQBiJ
f^etininn^
Byggjum nýja kirkju
Akraneskirkja var vígð 23. ágúst
árið 1896 eða fyrir nær 111 árum
og hefur þjónað hlutverki sínu með
sóma enda eitt fegursta guðshús
sem á Islandi stendur. Á þessum
langa notkunartíma hefur henni
verið vel við haldið, gerðar hafa
verið endurbætur á henni t.d. byggt
við hana skrúðhús árið 1965, skipt
um kirkjuturn árið 2002 og leitast
hefur verið við að breyta ekki upp-
runalegu útliti hennar og er það
vel.
Akraneskirkja rúmar tæplega 200
manns í sæti, þar af eru um 50 sæti
á efri hæð og dugar því vel í þeim
athöfnum þar sem gestir kirkjunnar
eru ekki fleiri.
Hinsvegar eru á hverju ári nokkr-
ar útfarir í Akraneskirkju sem eru
mjög fjölmennar og getur þá fjöldi
gesta orðið á bilinu 500-600, þá er
Akraneskirkja auðvitað þétt setin
og einnig safnaðarheimilið Vina-
minni þar sem að sett er upp að-
staða fyrir þá gesti sem ekki komast
fyrir í kirkjunni.
Undirritaður vill því varpa þeirri
spumingu til sóknarnefndar Akra-
neskirkju hvort að ekki sé rétt að
fara að huga að byggingu nýrrar
kirkju sem að rúmað getur þann
fjölda syrgjenda sem að sækja útfar-
ir hér á Akranesi. Greinarhöfundur
gerir sér grein fyrir að þó svo að
hafist yrði handa við byggingu
nýrrar kirkju á þessu ári þá verðum
við að gera okkur að góðu þá að-
stöðu sem að við búum við í dag í
nokkur ár enn og leggur því til að
safnaðarheimilið verði enn betur
útbúið fyrir syrgjendur. Salur safn-
aðarheimilisins verði notaður sem
fyrsti valkostur (ekki anddyrið) og
þar verði hægt að sjá fleiri sjónar-
horn frá útförinni, t.d. flytjendur
tónlistar og hljóðkerfi yrði endur-
hannað og endurnýjað.
Greinarhöfundur hefur verið
meðlimur í athafnakór Akranes-
kirkju undanfarin ár og vill bera lof
á starfsfólk Akraneskirkju sem hef-
ur unnið frábært starf við oft á tíð-
um þröngar aðstæður.
Halldór Hallgrímsson
Akranesi
~f*enninn—.
Framsóknarflokkurinn fékk
skýr skilaboð firá kjósendum
Kosningaúrslitin era einstaklega
skýr skilaboð kjósenda til Fram-
sóknarflokksins og forystu hans.
Þegar fækkar um 5 þingmenn þeir
fara úr 12 í 7 og formaður flokksins
og ráðherra flokksins ná ekki kjöri
þá ættu skilaboðin að vera alveg
skýr. Hugmyndir um áffamhald-
andi samstarf við Sjálfstæðisflokk-
inn við þessar aðstæður eru fráleit-
ar. Framsóknarflokkur er m.a. að
tapa fylgi vegna þess að áherslur
Sjálfstæðisflokksins hafa verið ráð-
andi í samstarfinu.
Samstarf við VG eru út í hött.
Formaður VG og fleiri í þeim
flokki hafa notað hvert tækifæri
sem boðist hefur á liðnu kjörtíma-
bili til þess að ausa svívirðingum
yfir Framsóknarflokkinn og for-
ystumenn hans. Framsókn á enga
samleið með því fólki.
Fyrir kosningar og á kosninga-
nóttina talaði formaður flokksins
alveg skýrt, m.v. horfur um niður-
stöðu kosninganna væri þátttöku
Framsóknarflokksins í ríkisstjórn
lokið. Við þetta á að standa. Verði
það ekki gert hefur forysta flokks-
ins endanlega sagt skilið við gras-
rótina og kjósendur.
Að horfast ekld í augu við skila-
boð kjósenda er upphafið af enda-
lokum Framsóknarflokksins.
Flokkurinn á að vera utan stjórnar,
vera í stjórnarandstöðu. Nú er tími
til þess að horfa til baka, meta stöð-
una, skipuleggja starf flokksins og
stefnu. Undirbúa flokkinn til nýrr-
ar sóknar þar sem markið verði sett
á að ná aftur 12-15 þingmönnum.
Höfundur hefur lengst af stutt
Framsóknarflokkinn og hefur trú á
stefnumálum hans.
Borgamesi 15. maí 2001.
Guðsteinn Einarsson
Borgamesi.
Slökkvibúnaður fyrir
þyrlur afhentur
Landhelgisgæslunni
Landhelgis-
gæslan hefur
fengið búnað til
að nota í þyrlum
Landhelgisgæsl-
unnar sem er sér-
staklega hannaður
til að slökkva
gróðurelda. Um
er að ræða sér-
hannaða fötu sem notuð er í þess-
um tilgangi. Hiín rúmar alls 2000
lítra af vatni. Brunamálamálastofn-
un hafði ffumkvæði að því fyrir
nokkru að kaupa þennan búnað og
óskaði eftir liðsinni Skógræktar
ríkisins, Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins, Almannavarnadeildar
ríkislögreglustjóra og Landhelgis-
gæslunnar. Úr varð að þessar
stofnanir skiptu með sér kostnaðin-
um og hefur búnaðurinn verið af-
hentur Landhelgisgæslu Islands.
Að sögn Björns Karlssonar,
brunamálastjóra hafði Brunamála-
stofnun forgöngu um að láta þýða
kennslubók um viðbrögð við gróð-
ureldum en Eignarhaldsfélagið
Brunabótafélag ís-
lands fjármagnaði
útgáfu bókarinnar.
Bókin verður not-
uð verður til að
mennta viðbragðs-
aðila um slökkvi-
starf þegar gróður-
eldar eiga sér stað
og er ætlunin að
gera sérstakt átak í fræðslu hvað
þetta varðar. I haust mun svo
sænskur sérfræðingur koma til
landsins og halda námskeið fyrir
þyrluáhafnir og stjórnendur
slökkviliða á landi um hvernig best
sé að nýta búnaðinn til að slökkva
gróðurelda.
Björn Karlsson brunamálastjóri
segist vera mjög ánægður með
samstarfið við stofiianirnar sem að-
stoðuðu við kaup á búnaðinum
enda er mikilvægt, sérstaklega í
ljósi eldanna á Mýrum í fyrra, að
slíkur búnaður sé til staðar hjá
Landhelgisgæslunni.
mm
Söfhuðu fyrir RKI
Þessar duglegu stelpur héldu tombólu í Borgamesi jýrir skömmu og söfiiðu 3351 kr. Af-
rakstrinum var skilað til Borgarfjarðardeildar Rauða Kross Islands til góðra verka.
Stöllumar heita Guðrún Hildur Hauksdóttir og Erla Björk Kristjánsdóttir.
mm
f*mninn^~
Hvemig gekk í samræmdu prófunum og hvað svo?
Eftir álags-
tímá sam-
ræmdu próf-
ana er nú á
m ö r g u m
h e i m i 1 u m
ákveðinn léttir en um leið mikil eft-
irvænting um einkunnir og náms-
mat að lokinni 10 ára grunnskóla-
göngu barnsins. Nemendur hafa nú
aukið valfrelsi í námi í samræmi við
áhuga og framtíðaráform sem
byggir á einkunnum eða námsmati
sem miðast oftast við þá vinnu sem
þeir hafa lagt í námið. Varðandi af-
rit af prófum þá er hægt að fá Ijósrit
af prófaheffinu með svörum nem-
andans. Foreldrar þurfa að fara inn
á namsmat.is og ná þar í eyðulað
sem þeir skrifa undir og senda
Námsmatsstofhun. Nú í byrjun
maí eru nemendur að fá bréf með
leiðbeiningum frá menntamála-
ráðuneyti ásamt veflykli sem veitir
þeim persónulegan aðgang að inn-
ritun í framhaldsskóla sem fer ffarn
14. maí til 11. júní. Reglugerðar-
dagurinn á því hvenær einkunnir á
samræmdum prófum eigi að vera
tilbúnar er 2. júní.
Foreldrar/forráðamenn nemenda
10. bekkjar fá einnig bréf frá ráðu-
neytinu með upplýsingum um inn-
ritunina. Til að sækja um er hægt að
nýta allar tölvur með netaðgangi, til
dæmis í grunn- og framhaldsskól-
um segir í fréttatilkynningu frá
Menntamálaráðuneytinu. Umsækj-
endur sem luku grunnskólanámi
árið 2006 eða fyrr þurfa að sækja sér
veflykil á menntagatt.is. Þann 14.
maí var opnað fyrir rafræna innrit-
un á skólavef menntamálaráðuneyt-
is, www.menntagatt.is
Allar umsóknir um nám í dag-
skóla eru rafrænar. Sótt er um á
netinu og berast umsóknirnar beint
til upplýsingakerfa framhaldsskól-
Við útfyllingu umsóknar er fram-
haldsskóli valinn ásamt skólum til
vara, sem og námsbraut og önnur
þjónusta sem er í boði í einstökum
skólum. Nemendur 10. bekkjar
geta breytt eða afturkallað umsókn-
ir allt þar til lokað verður fyrir
skráningu á miðnætti mánudaginn
11. júní 2007. Frá og með 15. júní
geta umsækjendur opnað umsóknir
sínar aftur og fylgst með afgreiðslu
þeirra. Geti skóli ekki orðið við
umsókn verður hún send í skóla
sem nemandi valdi til vara. Þegar
allar umsóknir hafa verið afgreiddar
fá nemendur bréf með upplýsing-
um um afgreiðsluna. Nemendur
þurfa að staðfesta veitta skólavist
með greiðslu innritunargjalds.
Nú hafa nemendur góðan tíma til
að ganga frá umsóknum og nýir
möguleikar opnast til að tengja inn-
ritunina við námsráðgjöf. Akveðin
inntökuskilyrði eru fyrir náms-
brautir í framhaldsskóla og er nauð-
synlegt að foreldrar fari vel yfir um-
sóknirnar með börnum sínum og
lesi vel yfir bréfið frá ráðuneýtinu.
Ef nemendur eru mjög óvissir um
sitt námsval eða vilja fá nánari upp-
lýsingar um námsframboð eða um-
sóknarferlið er gott fyrir þá að snúa
sér til námsráðgjafa. Þá er gott fyr-
ir foreldra að setjast niður með
unglingum sínum og ræða mögu-
leikana og áhugasvið þeirra.
Fyrir foreldra barna sem nú vora
að ljúka 9. bekk og þurfa að ákveða
sig fyrir næsta skólaár inn hvaða
samræmd próf þeir ætla að taka og
um valfög í 10. bekk er vert að
benda foreldrum á að kynna sér
hvað er í boði og hafa samráð við
námsráðgjafa í grunnskólunum.
Einnig er hægt að fá ýmsar upplýs-
ingar um samræmd próf á
www.namsmat.is. Gott er að gera
þetta með góðum fyrirvara, helst
strax að hausti. Þannig geta foreldr-
ar lagt sig fram um að styðja böm
sín þegar þau huga að framtíð sinni.
Helga Margrét Guðmundsdóttir
verkefnastjóri hjá Heimili og skóla -
landssamtökum foreldra