Skessuhorn - 16.05.2007, Qupperneq 9
gglSSIÍH©S2RI
MIÐVIKUDAGUR 16. MAI2007
9
Karl V. Matthíasson:
Gleði og vonbrígði
Karl V! Matthíasson skip-
aði annað sætið á lista Sam-
fylkingarinnar. Hann er
ekki ókunnur störfum Al-
þingis, en þar sat hann á
kjörtímabilinu 1999-2003.
Karl segir sín viðbrögð við
kosningunum einkennast af
ólíkum tilfinningum; gleði
og vonbrigði. „Eg er óskap-
lega glaður yfir því að Sam-
fylkingin náði sér á strik
miðað við það sem við
stóðum frammi fyrir í haust
sem og mótdrægum skoð-
anakönnunum. Ég tel að landsfundurinn og
vinna þess mikla fjölda sem þar kom að hafi
smitað út frá sér á jákvæðan hátt. Sorgin er
yfir því að ríkisstjórnin skuli hafa haldið velli.
Utkoma Framsóknarflokksins sýnir manni að
fólkið er orðið þreytt á ríkisstjórninni. I raun
og veru er stórfurðulegt að
það skuli vera í umræðunni
að flokkurinn skuli ætla í
ríkisstjórnarsamstarf á sama
grunni áfram.“
Karl segist afskaplega
þakklátur fyrir þann stuðn-
ing sem hann fann fyrir.
Næsta verkefni sé að byggja
upp félagsstarf Samfylking-
arinnar í kjördæminu. Þá
þakkar hann mótframbjóð-
endum fyrir mestan part
drengilega kosningabar-
áttu. „Ég vil sérstaklega
óska Krismi H. Gtmnarssyni og Einari Oddi
Kristjánssyni til hamingju með að hafa hald-
ið sætum sínum. Ég harma það hins vegar að
Anna Kristín Gunnarsdóttir hafi ekki náð
kjöri. Hún vann vel inni á þingi sem og í bar-
áttunni.“
Einar Oddur Kristjánsson:
Þakklátur og ánægður
Einar Oddur Kristjáns-
son skipaði þriðja sæti lista
Sjálfstæðisflokksins og hélt
sínu þingsæti. Hann segist
vera ánægður með úrslitin.
„Maður á bara að vera
þakklátur og ánægður. Við
lögðum okkur öll fram og
vorum dugleg og uppskár-
um eftir því. Við í Sjálfstæð-
isflokknum erum sátt við
niðurstöðuna.“
Einar segir að baráttan
hafi verið hörð og strembin.
„Við vorum að berjast við á-
kveðna drauga sem fylgdu
okkur og voru okkur erfiðir,
s.s. þjóðlendumálið. Verst
var þó að höndla kviksögur
sem andstæðingar okkar komu á fót. Osann- imir.“
indi eins og þau að við ætl-
uðum okkur að selja
Landsvirkjun. Það er alltaf
erfitt að eiga við ósann-
indi.“ Einar segir barátt-
una þó ekki hafa verið
óvenju harða. „Maður
gleymir svona ati nú fljótt
þegar ffá líður.“
Urslitin í Norðvesmr-
kjördæmi komu Einari lít-
ið á óvart. „Þetta var mjög
líkt því sem við héldum.
Það varð í raun ofboðslega
lítil breyting, eiginlega
engin. Meira að segja datt
Kristinn H. Gunnarsson
inn á þing, en þeir eiga það
nú til að vera stríðnir guð-
Kristinn H. Gunnarsson:
Biðin eftir úrslitum varð nokkuð löng
„Ég tel að þetta hafi verið mjög
góð niðurstaða fyrir Érjálslynda
flokkinn í ljósi þess að hann byrjaði
árið með alvarlegum klofningi. Þeir
sem klufu sig út úr flokknum stóðu
að því að stofna annað stjórnmálaafl
og þetta hafa verið töluverð átök.
Érjálslyndi flokkurinn kemur út
með sama fylgi sem er ansi gott og
sýnir hvaða tækifæri hann hefði haft
að öllu óbreyttu, en það kemur bara
næst,“ segir Kristinn H. Gunnars-
son. Hann er níundi þingmaður
kjördæmisins og sat áður á þingi
fyrir Framsóknarflokkinn og þar
áður Alþýðubandalagið, en bauð sig
nú fram fyrir Frjálslynda flokkinn.
Flokkurinn fékk 2.432 atkvæði, eða
13,6%, en fékk fyrir fjóram árum
2.666 eða 14,25%. Kristinn segir að
niðurstaða kosninganna hafi verið
ánægjuleg.
Kristinn segir að Guðjón Arnar
hafi staðið sig vel í barátmnni og
frammistaða formanna skipti alltaf
máli. Hvað hann sjálfan varðar seg-
ist hann ánægður með sinn hlut.
„Mér tókst það sem ég ætlaði mér,
að halda þingsætinu og vil ég þakka
öllum sem studdu mig fyrir þeirra
liðsinni." Kristni var aldrei spáð
þingsæti í þeim fjölda kannana sem
birtar voru og datt ekki inn á þing
fyrr en síðustu tölur komu úr kjör-
dæminu. Hann segir það vissulega
hafa verið taugatrekkjandi. „Fyrst
að talningin fór fram eins og raun
ber vimi vissi ég að við mundum
hækka okkur eftir því sem fram leið
og við hefðum möguleika á jöfnun-
arsæti. Biðin varð hinsvegar nokkuð
löng og ég hefði kosið að hafa hana
styttri."
Kristinn segir að úrslitin í Norð-
vesturkjördæmi sýni að það sé meiri
krafa um áherslubreytingar í at-
vinnu- og byggðamálum þar en í
öðrum kjördæmum. „Það er ekki ó-
eðlilegt í ljósi þróunarinnar, sér-
staklega í þeim hluta kjördæmisins
sem hefur átt á brattann að sækja og
endurspeglar stöðu mála hér. Þetta
er eina kjördæmið þar sem Sjálf-
stæðisflokkurinn bætir ekki við sig
fylgi og Framsókn er undir 20% og
bara með einn þingmann í kjör-
dæmi þar sem hann á að vera um
30% ef allt skilar sér.“
kóp
Þökkum traustið
SJALFSTÆÐISFLOKKURINN
i NORÐVESTURKJÖRDÆMI
Við þökkum það mikla
traust sem okkur var sýnt f
nýafstöðnum kosningum.
Útkoman erglæsilegog
fjölmörg verkefní framundan.
Við viljum þakka þeim
fjölmörgu stuðningsmönnum
sem lögðu hönd á plóginn í
kosningabaráttunni. Ykkar
framlagogstuðningur
skipti sköpum.
Við hlökkum til að
vinna meðykkurá komandi
kjörtfmabili.
Nýtum sóknarfærin!
SiálúLuiV.intmr! í