Skessuhorn - 16.05.2007, Side 11
SKESSUii©BM
MIÐVIKUDAGUR 16. MAI 2007
11
Bdrðarsaga Snœfellsás í GrundarfirSi.
Bárðarsaga Snæfellsáss
sýnd í FSN
Nemendur í Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði sem
nefna sig SNÆ hópinn sýndu sl.
sunnudag leikritið Bárðarsögu
Snæfellsás, sem er byggt á Islend-
ingasögunni um Bárð Dumbsson
sem samkvæmt sögunni bjó í Snæ-
fellsjökli. Sýningin var þannig sett
upp að tvær stúlkur (sögumenn)
ætla að búa til leikrit. Rifja þær upp
ýmsa hluti af sögunni með gestum
sem annaðhvort voru leiknir á
staðnum, kvikmyndaðir eða ljós-
myndaðir. Til þess var stuðst við
margmiðlunarbúnað sem kastað
var á sýningartjald.
Þessir nemendur eru búnir að
vera að vinna með landnám á Snæ-
fellsnesi og sögur og sagnir tengd-
ar þeim í vetur. Þegar hafist var
handa við að lesa Bárðarsögu Snæ-
fellsáss þótti hún heldur torlesin og
var því ákveðið að rýna betur í hana
og vinna eitthvað skemmtilegt úr
sögunni. A endanum var ákveðið
að gera úr henni leik- og marg-
miðlunarsýningu og fékk skólinn
m.a. styrk frá Menningarráði Vest-
urlands til að koma sýningunni á
koppinn.
I vor fóru svo nemendur með
sýninguna til Svíþjóðar og sýndu
hana í bænum Haninge.
Af
Ennimáni kominn út
Út er komið skólablað
Nemendafélags Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á
Akranesi, Ennimáni.
Þetta er í 25. sinn sem
blaðið kemur út og var
Hólmfríður Magnús-
dóttur ritstjóri þess,
en með henni í í rit-
stjórn sátu þær Est-
er Björk Magnús-
dóttir, Guðrún
Halldórsdóttir,
Halldóra Guð-
jónsdóttir, Kristrún
Inga Valdimarsdóttir og Margrét
Alda Magnúsdóttir. Ymissa grasa
kennir í blaðinu, m.a. viðtal við
Sun sem var skiptinemi í skólanum
á skólaárinu 2005-2006, en er nú
staddur í
K a n a d a .
Hann ber
vistinni í FVA
vel söguna og
segir Island
vera besta stað í
heimi. Þá er
nemendakönn-
unin á sínum stað
og ber þar helst að
Gyða Bents var val-
in besti kennarinn
annað árið í röð og
eiginmaður hennar
Flemming Madsen
lenti í öðru sæti. Fjöl-
breytt viðtöl má finna í blaðinu
ásamt umfjöllun um félagslífið.
kóp
Tillaga að deiliskipulagi fyrir hreinsistöð
fráveitu á Hvanneyri, Borgarbyggð.
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 m.s.br. er hér með lýst eftir
athugasemdum við ofangreinda skipulagstillögu.
Um er að ræða deiliskipulag lóðar undir hreinsistöð fráveitu.
Lóðin er staðsett suð-vestan við skeiðvöllinn, norðan megin
við Ásveg á Hvanneyri.
s Tillaga að deiliskipulagi verður til sýnis á skrifstofu
I Borgarbyggðar frá 16.05.2007 til 14.06.2007. Frestur
í til að skila inn athugasemdum rennur út 29.06.2007.
| Athugasemdir við skipulagið skulu vera skriflegar og berast
5 til skrifstofu Borgarbyggðar Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við breytingatiIlöguna
fyrir tiltekin frest til athugasemda telst samþykkur þeim.
Borgarnesi 9.05.2007
Forstöðumaður framkvæmdasviðs Borgarbyggðar.
Deildarstjórar, leikskólakennarar, leikskólasérkennari
og annað uppeldismenntað starfsfólk óskast í leikskólann
Ugluklett í Borgarnesi frá og með 1. ágúst.
Ugluklettur er nýr þriggja deilda leikskóli í Borgarnesi, sem tekurtil starfa 1. ágúst.
Unnið er samkvæmt hugmyndafræði John Dewey og Howard Gardner.
Einkunnarorð leikskólans eru leikur, virðing, gleði.
Nánari upplýsingar veitir Ingunn Alexandersdóttir, leikskólastjóri, í síma 437-1050/844-6677
eða á netfangið ingunna@borgarbyggd.is.
Við leitum að fólki á öllum aldri, af báðum kynjum, með margs konar menntun og reynslu.
Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til og með 25. maí
BORGARBYGGÐ
Fjölbrautaskóli Vesturlands
Vogabraut 5, 300 Akranes. Sími 433-2500. Tölvupóstur: skrifstofa@fva.is
Innritun fyrir haustönn 2007 lýkur 11. júní.
Fjölbrautaskóli Vesturlands býður kennslu á eftirtöldum brautum:
• Bóknámsbrautir til stúdentsprófs:
o Félagsfræðabraut
oMálabraut
o Náttúrufr æðibraut
oViðskipta-og hagfræðibraut
Duglegir námsmenn geta lokið stúdentsprófí á
3 árum.
• Almenn námsbraut
• Starfsbraut fyrir hugfatlaða
Umsóknareyðublað og upplýsingar um skólann má
finna á vefnum http://www.fva.is/
Nemendur sem ljúka 10. bekk í vor sækja um með
rafrænum hætti. Aðstoð við raffæna innritun verður
veitt i skólanum kl. 14 til 18 dagana 7., 8. og 11. júní.
Verðandi nemendur og forráðamenn þeirra geta fengið
samband við skólastjómendur og pantað tíma hjá
námsráðgjöfúm skólans til 11. júní í síma 433-2500.
Starfstengdar brautir og listnám:
o Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina
o Gmnnnám málmiðngreina
o Grunnnám rafíðngreina
o Húsasmíði
o Listnámsbraut-tónlistarkjörsvið
oNám til iðnmeistaraprófs fyrir þá sem hafa
lokið sveinsprófí
oRafvirkjun
o Sjúkraliðabraut
o Tölvufræðibraut
o Vélstjómarbraut, 2. stig fyrir nemendur sem
lokið hafa burtfararprófí í vélvirkjun
o Vélvirkjun
o Viðskiptabraut
Hægt er að ljúka stúdentsprófí í beinu fram-
haldi af eða samhliða námi á öilum ofantöld-
um brautum.
Nám með vinnu - góður kostur fyrir fullorðið fólk
Á haustönn 2007 verða teknir inn nýir hópar í dreifnám með staðbundnum lotum á eftirtaldar brautir ef
næg þátttaka fæst. Kennsla verður miðuð við þarfir fullorðinna nemenda sem em í vinnu. Nánari upplýs-
ingar em á vef skólans http://www.fva.is/
• Grunnnám málmiðna. Bæði fyrir nýja nemendur og nemendur sem þegar hafa lokið hluta af brautinni.
• Húsasmiðanám. Nemendur sem eru orðnir 20 ára og hafa reynslu af störfum i byggingariðnaði mega
sleppa verklegum hluta gmnnnáms í bygginga- og mannvirkjagreinum.
• Nám til iðnmeistaraprófs fyrir nemendur sem hafa lokið sveinsprófi.
• Sjúkraliðanám. Nemendur sem hafa 5 ára starfsreynslu við umönnun sjúkra, fatlaðra eða aldraðra og
meðmæli frá vinnuveitanda geta látið reynslu sína og starfstengd námskeið koma í stað hluta af áföng-
um Sjúkraliðabrautar.
• Viöskiptanám til verslunarprófs.
Einnig verður boðið upp á kennslu í dagskóla á Vélstjórnarbraut, 2. stigi, fyrir nemendur sem lokið
hafa burtfararprófí í vélvirkjun.