Skessuhorn - 16.05.2007, Page 23
Viltu starfa á alþjóðavettvangi?
T--V''/Vi
Meistaranám í Evrópufræðum með áherslu á Austur-Evrópu
Staðnám á sumrin - fjarnám á veturna
Nýtt og endurbætt meistaranám
Háskólinn á Bifröst kynnir nýtt og endurbætt nám til
meistaragráðu í Evrópufræðum. Með nýju fyrirkomulagi
er lögð aukin áhersla á samfélög Austur-Evrópu, rætur
þeirra, menningu og sameiginlega sögu. Með auknum
samskiptum okkar við Austur-Evrópuríkin er Ijóst að
margvísleg tækifæri framtíðarinnar búa þar.
w
Alger sérstaða á Islandi
í þessu nýja námi, sem hefur algjöra sérstöðu á íslandi, fá
nemendur raunhæfan og fræðilegan undirbúning að
margvíslegum störfum á alþjóðlegum vettvangi um leið
og þeir dýpka skilning sinn á öflum sem móta viðskipti,
stjórnmál og hagkerfi Evrópuríkja á líðandi stundu.
Evrópufræðin er kjörin fyrir þá sem vilja starfa á alþjóða-
vettvangi, hvort heldur sem er í fjölþjóðafyrirtækjum eða
alþjóðastofnunum á borð við Sameinuðu þjóðirnar, NATO,
ESB eða EFTA.
Umsóknafrestur í meistaranám er til 1. júní 2007
HÁSKÓLINN Á BIFRÖST
Frekari upplýsingar: BIFRÖST UNiVERSITY
www.bifrost.is 311 Borgarnes I Slmi 433 3000
Stjórnenda- og leiðtogaskóli i hartnær 100 ár