Skessuhorn - 16.05.2007, Page 31
31
X
MIÐVIKUDAGUR 16. MAI2007
FH haíði sigur í baráttuleik
FH lagði IA í fyrsta leik Islands-
mótsins á Akranesi á laugardag.
Lokatölur urðu 2-3 fyrir Islands-
meistarana. Skagamenn máttu vel
við una, en þeir léku manni færri í
nálega 70 mínútur. Tryggvi Guð-
mundsson náði forustunni fyrir
gestina á 20. mínútu úr vítaspyrnu
sem dæmd var þegar Arni Thor
handlék knöttinn innan teigs og
uppskar hann gult spjald fyrir. Fjór-
um mínútum síðar fékk hann sitt
annað gula spjald og var rekinn af
velli. FH gekk á lagið og Arnar
Gunnlaugsson sem kom gestunum
í 2-0 á 30. mínútu þegar hann skor-
aði gegn sínum gömlu félögtun.
Tommy Nielsen átti þá skot af
löngu færi sem Páll Jónsson sló fyr-
ir fætur Arnars sem skoraði með
laglegu hægrifótar skoti. Bjarni
Guðjónsson skoraði fyrir IA úr
vítaspyrnu á 44. mínútu og staðan í
hálfleik því 1-2.
Bæði lið komu ákveðin til leiks í
síðari hálfleik, en FH var ívið
sterkara fyrsta kastið. Varnarmenn
IA voru nærri því að skora sjálfs-
mark á 48. mínútu og þremur mín-
útum síðar skoraði Matthías Guð-
mundsson með skalla. Þórður
Guðjóns hafði skömmu fyrr átt gott
skot að marki og mikil hætta skap-
ast í hornspyrnunni sem kom í kjöl-
farið. Það hefur kannski kveikt
neistann í heimamönnum því á 58.
Liiin á leið inn á völlinn ífyrsta leik sumarsins.
mínútu skoraði Þórður með lag-
legu skoti. Boltinn féll fyrir hann í
vítateigshorninu hægra megin og
hann þrumaði honum að marki í
stöngina, slána og inn.
Eftir þetta var sem drægi aðeins
af FH en liðið átti þó nokkrar
hættulegar sóknir. Heimamenn
eiga lof skilið fyrir baráttuna og
þeir gáfust aldrei upp. Þórður átti
nokkrar hættulegar homspyrnur og
FH skoraði næstum sjálfsmark eftir
eina sókn Skagamanna. í uppbótar-
ta'ma sótti Skaginn grimmt og var
nærri því að skora, en allt kom fyr-
ir ekki og lokatölur urðu 2-3. Ljóst
er að ekkert lið gemr bókað sigur
gegn Skagamönnum ef þeir halda
áffam á þessari braut. Baráttugleði
liðsins og ákveðni gætu fleytt liðinu
mun ofar á töflunni en menn hafa
búist við. Ungu strákarnir í liðinu
eiga hrós skilið.
IA spáð áttunda sæti
IA er spáð áttunda sætinu í ár-
legri spá fyrirliða, þjálfara og for-
manna félaga í efstu deild Islands-
mótsins í knattspyrnu sem birt var í
síðustu viku. Liðið hlaut 108 stig en
FH er spáð Islandsmeistaratitlinum
þriðja árið í röð með 288. Valur og
KR fengu jafnmörg stig í annað til
þriðja sæti. Aðeins eitt lið fellur
niður í fyrstu deild að þessu sinni
og spá forsvarsmanna félaganna er
að það verði HK, en liðið fékk 94
stig. IA endaði í sjötta sæti á mótinu
í fyrra.
Spáin er þannig
í heild sinni:
1. FH 288 stig
2. -3. Valur 252 stig
2.-3. KR 252 stig
4. Keflavík 201 stig
5. Fylkir 157 stig
6. Breiðablik 133 stig
7. Fram 129 stig
8. ÍA 108 stig
9. Víkingur 94 stig
10. HK43 stig
Víkingnr Ó tapaði fyrir norðan
Víkingur Ólafsvík laut í gras á
Akureyri fyrir KA á sunnudaginn.
Lokatölur urðu 1-0. Leikurinn var
færður á KA-völl þar sem Akureyr-
arvöllur kom illa undan vetri.
Heimamenn kunnu vel við sig þar
og skoruðu mark þegar á fimmtu
mínútu. Eftir það var allt í járnum í
leiknum, en hvorugu liðinu tókst að
skora mark. Víkingur sótti meira
eftir því sem leið á leikinn, en hafði
ekki erindi sem erfiði. Undir lok
leiks skipti Slobodan Milisic þjálfari
þremur mönnum inná, en allt kom
fyrir ekki. Fyrstu umferð deildar-
innar lauk á mánudag, en Víkingur
á aðra ferð norður framtmdan þeg-
ar liðið mætir Þór á Akureyri á
föstudaginn.
kóp
SA á fjölmennu sundmóti
í Reykjanesbæ
Um helgina tóku rúmlega 60
krakkar frá Sundfélagi Akraness
þátt í fjölmennu sundmóti í Reykja-
nesbæ. Yfir 400 sundmenn frá tíu
félögum víðsvegar um landið tóku
þátt í mótinu sem Sparisjóðurinn í
Keflavík styrkti. Veitt voru verð-
laun fyrir fyrsta, annað og þriðja
sæti í öllum einstaklingsgreinum 10
ára ogyngri, 13-14 ára og 15 ára og
eldri. Allir hnokkar og allar hnátur
fengu einnig þátttökupeninga. Þá
voru fjórir farandbikarar afhentir
fyrir stigahæstu sund 13-14 ára og
15 ára og eldri, kvenna og karla í
200m grein.
A heimasíðu Sundfélags Akra-
ness kemur fram að yngri krakkarn-
ir bættu sig nánast í öllum greinum,
margir krakkar tóku þátt í hverri
grein og voru sumir þeirra að taka
Hnokkar og hnátur af Skaganum taka
viS þátttökupeningum. Ljósmynd fengin
afvef ÍRB.
þátt í fyrsa skipti á svo stóru móti.
Eldri krakkarnir eru búnir að vera
uppteknir í próflestri og ýmsu öðru
og setti það strik í reikninginn hjá
sumum, en aðrir bættu sig og syntu
góð sund.
Mótið fór fram í Vatnaveröldinni
í Reykjanesbæ og var boðið upp á
ýmislegt til skemmtunar. Heiða í
Unun tók lagið á laugarbakkanum
fyrir keppendur og áhorfendur og
kom öllum í Evróvisiongírirm með
laginu Eg og heilinn minn. Öllum
sundmönnum mótsins sem gistu í
Holtaskóla, þar með talið Skaga-
krökkunum, var svo boðið á kvik-
myndasýningu á myndina Blades of
Glory. Eldri hópurinn fór á laugar-
deginum þegar keppni þeirra lauk
en yngri hópurinn fór í 9 bíó á
sunnudagsmorgni.
kóp
Leikurinn var á köflum fjörugur og skemmtilegur.
■fy "i
Vw 'fssjfe"" 1' . “ / • .i.
Stuðningsmannafélagið Skagamörkin hitaði upp fyrir leikinn ásamt stuðningsmönnum
FH á Café Mörk. Hér heldur liðið af stað ásamt lukkudýri sínu.
Akraneshlaupið verður
á laugardaginn
Næstkom- y tt að bjóða upp á
andi laugardag styttri göngu-
verður Akra- leiðir. Boðið er
neshlaupið l ' JélSiJt. éL W 1 ■'■ Jlii upp á fjöl-
haldið í fimmt- jp ■ 61S .> skylduafslátt í *
ánda sinn og " aifíwt Ww MfÆm ®| skemmtiskokki
mun Kvenna- iK J* Wt -x » og göngu.
nefnd Knatt- M m O? 3 WagKli. jpi®l ■ «flV- - Allir þátttak-
spyrnufélags IA endur fá bol
sjá um fram- kvæmd þess eins og undan- Úm&te } f: * hlaupsins og verðlaunapen- ing að launum
farin ár. Hægt verður að velja um
10 km hjólreiðar, 21 km og 10 km
hlaup, 3.5 km skemmtiskokk eða
göngu og einnig er boðið upp á
styttri gönguleið.
Akraneshlaupið hefur verið eitt
af vinsælustu almenningshlaupum
landsins og margir tekið þátt í hálf-
maraþoni og 10 km göngu en und-
anfarin ár hafa vinsældir þess farið
stöðugt vaxandi hjá trimmurum og
ijölskyldufólki. Framkvæmdaaðilar
vilja leggja áherslu á að Akranes-
hlaupið sé mjög fjölskylduvænt
enda ættu allir aldursflokkar að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Undanfarin tvö ár hefur t.d. verið
talsvert um það að eldri borgarar
hafi tekið þátt í stafagöngu en sú
nýjung hefur mælst mjög vel fyrir
auk hressingar þegar komið er í
mark og einnig er frítt í Jaðars-
bakkalaug að hlaupi loknu. Verð-
laun eru veitt fyrir bestu tímana og
er aldursflokkaskipting í hlaupa-
greinunum, en einnig eru í boði
fjöldi veglegra útdráttarvinninga
sem allir tengjast ferðaþjónustu á
Vesturlandi. Má þar t.d. nefna gist-
ingu fyrir tvo með morgunverði á
ýmsum stöðum, matarvinninga,
siglingar á Breiðafirði, sleðaferð á
jökul, kort í Hvalfjarðargöng og
golf og sund.
Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu hlaupsins
www.akraneshlaup.k2.is en þar má
einnig sjá fjölda mynda ffá undan-
förnum árum.
Draga sig út úr
landsliðshópnum
Þeir Hlynur Bæringsson og Sig-
urður Þorvaldsson, leikmenn Snæ-
fells í körfuknattleik, hafa dregið
sig út úr landsliðshópnum. I sam-
tali Hlyns við Morgunblaðið sl.
föstudaga kemur ffam að það sé af
fjárhagslegum ástæðum. Þeir þurfi
sjálfir að greiða allan kosmað við að
mæta á æfingar og ferðakostnaður
og vinnutap geti numið hundmð-
um þúsunda króna. Landsliðsæf-
ingar eru ýmist haldnar í Reykjavík
eða á Reykjanesi. Hlynur segir að
þeir Sigurður hafi þurft að hætta í
vinnu á miðju degi til að fara á æf-
ingar og ekki komið affur fyrr en -í
um miðnætti, það sé törn sem hann
sé ekki tilbúinn í núna. „Það gæti
að sjálfsögðu breyst ef KKI myndi
ákveða að hafa allar æfingar lands-
liðsins hérna í Stykishólmi," segir
Hlynur í samtali við Morgunblað-
ið. Þeir Hlynur og Sigurður eiga að
baki 69 landsleiki samanlagt. #