Fréttablaðið - 10.09.2019, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 1 0 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 1 0 . S E P T E M B E R 2 0 1 9
Besta verðið
með áskrift
Kynntu þér spennandi leikár á borgarleikhus.is
ÍÞRÓTTIR Frjálsíþróttasamband
Íslands, FRÍ, hefur þurft að afþakka
mótshald í Laugardalnum og nýlega
hafa orðið slys í lendingu í stangar-
stökki vegna skorts á rými og frá-
gangi við lendingarsvæði. Það er
ekki aðeins KSÍ sem berst fyrir
nýjum keppnisvelli.
Í Laugardal er einnig að finna
íþróttahöll sem stenst ekki alþjóð-
lega staðla og er á undanþágu og
FRÍ vill fá nýjan keppnisvöll enda
er frjálsíþróttaaðstaða í Laugar-
dal óboðleg að mati Freys Ólafs-
sonar, formanns sambandsins.
„Okkar krafa er að hafa átta brauta
völl í Laugardal. Ég á von á því
að það sé betra fyrir báða aðila
að vera með sitthvorn völlinn.“
Nánar er fjallað um aðstöðuleysið
í íþróttum dagsins. – bb / sjá síðu 10
Slysahætta og
mót afþökkuð
Freyr Ólafsson,
formaður FRÍ. STJÓRNMÁL Samþykkt þriðja orku-
pakkans á Alþingi þann 2. septem-
ber síðastliðinn virðist ekki hafa
haft mikil áhrif á hið pólitíska
landslag sem hefur verið að teikna
sig upp síðustu mánuði.
Sjálfstæðisf lokkurinn mælist
stærstur og er eini f lokkurinn með
yfir 20 prósenta fylgi. Fimm flokkar
fylgja í hnapp á eftir en Framsókn
virðist eiga erfiðara uppdráttar.
Í nýrri könnun sem Zenter rann-
sóknir gerðu fyrir Fréttablaðið og
fréttablaðið.is 5. til 9. september síð-
astliðinn, þremur til sjö dögum eftir
að þingið samþykkti orkupakkann,
kemur í ljós að aðeins kjósendur
Miðf lokksins, Sósíalistaf lokksins
og Flokks fólksins, telja orkupakk-
ann skipta miklu máli um hvað þeir
myndu kjósa.
Níu af hverjum tíu þeirra sem
sögðust myndu kjósa Miðflokkinn
segja orkupakkamálið í þinginu
hafa haft mikil áhrif á hvaða flokk
þeir myndu kjósa. Að sama skapi
telja tveir af hverjum þremur fylg-
ismanna Flokks fólksins hið sama,
að atkvæðagreiðslan í þinginu hafi
haft mikil áhrif á að þau velji þann
flokk. Þessir f lokkar eru hins vegar
ekki að bæta stórkostlega við sig
fylgi á milli kannana og því líklegt
að málið breyti ekki landslaginu.
Framsóknarf lokkurinn virðist
vera að dragast aftur úr hinum
f lokkunum á þingi, utan Flokks
fólksins sem hefur ekki mælst með
þingmann í nokkuð langan tíma.
Framsóknarf lokkurinn mælist
nú með 6,2 prósentustig og er það
tveimur prósentustigum minna en
í síðustu mælingu og fjórum pró-
sentustigum minna en hann var
með í síðustu kosningum þegar
f lokkurinn fékk 10,7 prósent
atkvæða. Einnig virðist hann vera
að hverfa af höfuðborgarsvæðinu,
mælist þar aðeins með um tveggja
prósenta fylgi þar sem flestir íbúar
landsins búa.
Verði niðurstöður næstu alþingis-
kosninga í samræmi við þessa
könnun fækkar flokkum á þingi um
einn og ríkisstjórnin fellur.
Því er líklegt að þingveturinn,
sem hefst í dag, verði nokkuð harð-
ur og þingmenn takist mikið á um
stóru málin áður en kosið verður,
líklegast, vorið 2021. – sa / sjá síðu 4
Stóra myndin breytist ekki
þrátt fyrir orkupakkann
Framsóknarflokkurinn á undir högg að sækja samkvæmt nýrri könnun Zenter rannsókna og mælist nú
með rétt rúmlega sex prósenta fylgi. Meðal annarra flokka stendur fylgið að mestu í stað. Ríkisstjórnin
myndi falla yrðu þetta niðurstöður kosninga. Þing kemur saman í dag þegar kjörtímabilið er hálfnað.
Leikmenn íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu voru einbeittir á lokaæfingunni fyrir leikinn gegn Albaníu sem fram fer í Elbasan klukkan 18.45 í kvöld að íslenskum tíma. Fyrir leikinn er
Ísland í þriðja sæti riðilsins í undankeppni EM 2020 með jafnmörg stig og Frakkland og Tyrkland og leikurinn í kvöld því afar mikilvægur upp á framhaldið. MYND/HAFLIÐI BREIÐFJÖRÐ
6,2%
prósenta fylgi mælist Fram-
sóknarflokkurinn með í
nýrri könnun sem gerð var
fyrir Fréttablaðið
1
0
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
B
-8
B
1
4
2
3
B
B
-8
9
D
8
2
3
B
B
-8
8
9
C
2
3
B
B
-8
7
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
9
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K