Fréttablaðið - 10.09.2019, Síða 8

Fréttablaðið - 10.09.2019, Síða 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Sighvatur Arnmundsson sighvatur@frettabladid.is Það er hættulegt til lengri tíma í lýðræðisríki að almenn- ingur treysti ekki grunn- stofnunum lýðræðisins. Gúndi á Bessastaði? Forsetakosningar fara fram á næsta ári og erfitt er að sjá að nokkur eigi möguleika á að velta Guðna Th. Jóhannessyni úr sessi. Um áratuga skeið þótti það ekki við hæfi að bjóða sig fram gegn sitjandi forseta en breyting hefur orðið á. Á föstudag skoraði varaformaður Íslensku þjóðfylkingarinnar á Guðmund Franklín Jónsson, hótelstjóra í Danmörku og sérlegan utanríkismála gúru Útvarps Sögu, til að bjóða sig fram. Í kjölfarið stofnaði Guð- mundur „læk-síðu“ á Facebook sem vekur grunsemdir um að kallinu verði svarað enda áður sýnt embættinu áhuga. Píratar í fortíðinni Píratar eru f lokkur sem státar sig af þekkingu á gangverki int- ernetsins. Ungt fólk sem lifir og þrífst í hinum stafræna heimi. En þegar heimasíða f lokksins er skoðuð mætti halda að maður hefði óvart rambað inn á vefsafn Háskóla Íslands. Þar er allt að finna um frambjóðendur og stefnumálin frá árinu 2017. Fyrir áhugamenn um stjórnmálasögu er þetta prýðileg upprifjun um löngu horfna þingmenn eins og Einar Brynjólfsson og Evu Pan- dóru Baldursdóttur. Einnig er skemmtilegt að rifja upp tveggja ára gömul skuggafjárlög. En fyrir tölvunördaf lokkinn sjálfan er þetta í besta falli pín- legt. kristinnhaukur@frettabladid.is Ein áskorun hátækni- og hugverkafyrirtækja er að sækja hæfileikaríkt fólk með sérfræði-þekkingu á fjölbreyttum sviðum, og íslensk fyrirtæki eru þar ekki undanskilin. Það er ekki að ástæðulausu að fyrirtæki af ýmsum stærðum og í fjölbreyttum atvinnugreinum eigi rætur sínar að rekja til Íslands og að ný spretti upp hér á landi. En til þess að bæði sprotar og stærri fyrirtæki haldi áfram að vaxa og dafna, er öflugt hugvit og ríkur mannauður nauðsynlegt. Að sama skapi er fjölbreytileiki einstakur styrkleiki fyrir fyrirtæki, ekki síst þeirra sem hugsa stórt – hvort sem það er í markaðssókn eða uppfinningum. Samhliða því að efla enn frekar þekkingu og færni ungs fólks og þeirra sem eru nú þegar á atvinnumarkaði hér á landi, getur aðgangur að alþjóðlegum mannauðs- markaði verið stökkbretti fyrir íslensk fyrirtæki að frekari vexti og verðmætasköpun. Forsenda þess að laða að hæfileikaríka einstakl- inga er að þessi markaður sjái Ísland sem ákjósan- legan stað til búsetu og vinnu. Nýr vefur, Work in Iceland, heildstæð upplýsingagátt á ensku er framfaraskref á þeirri vegferð að efla samkeppnis- hæfni hátækni- og hugverkaiðnaðar hér á landi. Á vefnum er hægt að nálgast allar upplýsingar um það ferli að flytja til Íslands vegna vinnu auk þess sem kostir þess að búa á Íslandi eru reifaðir. Vefurinn er liður í því mikilvæga verkefni að fá sérfræðinga til landsins sem stuðla að enn frekari uppbyggingu á innlendri þekkingu og getu, og áframhaldandi nýsköpun á ýmsum sviðum, enda stendur fjöldi íslenskra fyrirtækja frammi fyrir spennandi tæki- færum til vaxtar og framfara í þágu samfélagsins. Opnun þessarar nýju upplýsingagáttar er upp- hafið að vegferð og samstarf atvinnulífsins og stjórnvalda er einkar mikilvægt til að ná enn meiri árangri á sviði hátækni- og hugverkaiðnaðar. Það mun skila sér í auknum útflutningi á þessu sviði, nýrri þekkingu í íslensku atvinnulífi, auknum fjöl- breytileika og bættum lífskjörum. Upphaf að vegferð Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir framkvæmda- stjóri Marels á Íslandi EKKERT BRUDL Sensodyne Tannkrem 2 tegundir 2x75 ml Sensodyne Tannkrem - 2x75 ml kr./pk.598 Illa hefur gengið að endurheimta traust á stjórn-málum og Alþingi á þeim tæpu ellefu árum sem liðin eru frá hruninu. Þetta ætti að vera alþingismönnum ofarlega í huga í dag þegar þeir koma til setningar 150. löggjafarþingsins.Samkvæmt könnun Gallup sem gerð var í febrúar síðastliðnum bera aðeins rúm 18 prósent mikið traust til Alþingis. Á árunum fyrir hrun var traustið yfirleitt í kringum 40 prósent en féll að vísu niður í 29 prósent árið 2007. Svo virtist sem hlutirnir væru á réttri leið og var traustið komið á sama stað og 2007 í mælingu síðasta árs. Klaustursmálið og eftirmálar þess gerðu hins vegar út um þær vonir að hlutirnir væru að þróast í rétta átt. Því þingi sem lauk formlega í byrjun síðustu viku verður minnst fyrir umræður um þriðja orkupakk- ann. Alls var rætt um málið í þingsal í rúmar 147 klukkustundir, en það eru tæp 17 prósent alls ræðu- tíma þingsins, og ekkert mál í allri þingsögunni hefur verið rætt lengur. Ekki skal gert lítið úr mikil- vægi málsins en það er samt í engu samræmi við allan þann tíma sem fór í umræðurnar. Staðan var þannig um tíma að Alþingi var í raun óstarfhæft og lét þingforseti meðal annars þau orð falla að völdum hafi verið rænt af Miðflokksmönnum. Ef takast á að endurvekja traust almennings á Alþingi sem stofnun væri ekki úr vegi að dusta rykið af rúmlega sex ára gamalli skýrslu sem þingið lét Félagsvísindastofnun gera. Þar var rýnt í ástæður lítils trausts til Alþingis. Helstu niðurstöðurnar fyrir vantraustinu reyndust vera samskiptamáti og fram- koma þingmanna, vinnulag á þingi og ómálefnaleg umræða. Þessu er öllu hægt að breyta ef vilji er fyrir hendi en því miður hefur lítið áunnist á þeim árum sem liðin eru. Málþóf eru enn alltof tíð, virðing fyrir pólitískum andstæðingum er oft á tíðum lítil sem engin og það heyrir til algerra undantekninga að þingmenn taki ábyrgð á mistökum sínum eða viður- kenni þau. Þá þarf orðræðan, sem einkennist oft af miklum gífuryrðum, að breytast. Það er hættulegt til lengri tíma í lýðræðisríki að almenningur treysti ekki grunnstofnunum lýð- ræðisins. Alþingi fer ekki bara með löggjafar- og fjárveitingarvaldið heldur gegnir einnig mikilvægu eftirlitshlutverki gagnvart framkvæmdarvaldinu. Á Íslandi hefur verið þingræði frá árinu 1904 en það grundvallast á þeirri reglu að ríkisstjórn sitji í skjóli meirihluta þings. Veruleikinn er hins vegar sá að þingið stendur veikt gagnvart þeirri ríkisstjórn sem situr á hverjum tíma. Það er þess vegna jákvætt skref að í fjárlagafrumvarpinu sé gert ráð fyrir bættri aðstoð við þingmenn og þingflokka sem og eflingu sérfræðiaðstoðar við þingnefndir. Þingmenn vita það jafn vel og aðrir að traust er áunnið. Traust á Alþingi verður ekki aukið á einum degi heldur þurfa þingmenn að sýna vilja í verki til lengri tíma. Einhvers staðar þarf að hefja þá vegferð. Dagurinn í dag er tilvalinn til þess. Áunnið traust 1 0 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 1 0 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 B B -8 B 1 4 2 3 B B -8 9 D 8 2 3 B B -8 8 9 C 2 3 B B -8 7 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 9 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.