Morgunblaðið - 01.05.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 01.05.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019 FALLEG OG VÖNDUÐ LEIKFÖNG úr náttúrulegum efnivið, tré og silki ERUM FLUTT ! á Nýbýlaveg 8 – Portið Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þær virðast engan enda ætla að taka hremm- ingarnar í sambandi við samgöngur til Eyja. Hver dagur skiptir okkur máli. Það er svo áfall þegar einhver flækja kemur varðandi afhend- ingu skipsins,“ segir Berglind Sigmarsdóttir, formaður Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja og eigandi Gott - veitingastaðar í Eyjum. Til- efnið var frétt um að nýja ferjan myndi ef til vill ekki koma til Vestmannaeyja vegna deilna við pólsku skipasmíðastöðina. Illa hefur gengið að dýpka í og við Landeyja- höfn í vor og hefur Herjólfur enn ekki getað notað hana. Ástandið er óvenju slæmt. Berg- lind segir að fjöldi fólks hafi lagt í fjárfestingar í ferðaþjónustu eftir að Landeyjahöfn kom. „Það hafa orðið vonbrigði á vonbrigði ofan. Við höfum aðeins örfáa mánuði til að taka á móti ferðafólki. Nóg er að gera þá en þess á milli reyna menn að lifa af og sumir ná því ekki, því miður,“ segir Berglind. Afbókanir daglega Berglind bætir því við að munurinn á milli þess tíma sem Herjólfur siglir í Land- eyjahöfn og Þorlákshöfn sé eins og dagur og nótt fyrir ferðaþjónustuna og einnig íbúana. Hún segir ástandið alvarlegt þegar dregst að opna Landeyjahöfn, eins og nú í vor. Afbókanir berist daglega til gististaða og fyrirtækja sem selja ferðir og afþreyingu og heilu hóparnir af- bóki mat á veitingastöðum. Hún segist hafa gert ráð fyrir því að Land- eyjahöfn myndi opnast ekki seinna en 1. apríl í vor og hagað mannaráðningum og rekstri í samræmi við það. Fólkið hefur verið verkefna- lítið á veitingastaðnum í mánuð. Nú er stefnt að því að Herjólfur hefji sigl- ingar í Landeyjahöfn á morgun. Trygging framlengd Nýr Herjólfur er tilbúinn í Póllandi en fæst ekki afhentur vegna deilna um háa reikninga fyrir aukaverk sem skipasmíðastöðin Crist krefur Vegagerðina um. Í gærkvöldi átti bankatrygging skipasmíðastöðvarinnar, nokk- urs konar verktrygging upp á rúma 3 millj- arða, að renna út og ekki bárust neinar upplýs- ingar frá Póllandi um að hún yrði framlengd. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að Vegagerðin hafi ekki átt neinn annan kost en að krefjast þess að fá tryggingarfjárhæðina greidda út áður en ábyrgðin rynni út. Síðdegis bárust pappírar um framlengingu sem Vegagerðin er nú að skoða. Innköllunin hefur þó ekki verið aftur- kölluð og verður ekki fyrr en rætt hefur verið við bankann, að sögn G. Péturs. Ætlar engan enda að taka  Ládeyða í ferðaþjónustu í Eyjum á meðan ekki er siglt í Landeyjahöfn  Starfsfólkið verkefnalítið  Gamla ferjan hefur siglingar  Enn hnútur í samskiptum við skipasmíðastöðina um nýja skipið Berglind Sigmarsdóttir Ferja Nýr Herjólfur bíður tilbúinn í Póllandi. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Tveir íslenskir sjómenn sem úr- skurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald í Finnmörku í Noregi vegna morðs- ins á Gísla Þór Þórarinssyni á heimili hans í þorpinu Mehamn aðfaranótt laugardags verða yfirheyrðir hjá lög- reglunni klukkan 10 í dag. Rann- sókninni miðar vel, samkvæmt upp- lýsingum lögreglu, og telur hún sig hafa góðar vísbendingar um hvernig málið er vaxið. Sá sem grunaður er um verknað- inn, Gunnar Jóhann Gunnarsson, var úrskurðaður í 4 vikna gæsluvarðhald og einangrunarvist í héraðsdómi Austur-Finnmerkur í Vadsø. Norska dagblaðið VG segir frá því í netútgáfu sinni í gær og hefur eftir talsmanni lögreglunnar að Gunnar hafi viðurkennt þegar hann var hand- tekinn á laugardag að hafa orðið Gísla hálfbróður sínum að bana. Eins og fram hefur komið áður virðist hann einnig viðurkenna að hafa skot- ið Gísla, þótt það hafi ekki verið ætl- unin, í færslu á Facebook sem hann sendi frá sér skömmu áður en hann var handtekinn og bað fólkið sitt jafnframt afsökunar. Sú færsla er meðal sönnunargagna sem lögreglan hefur aflað. Mótmælir aðild að málinu 32 ára Íslendingur sem grunaður er um aðild að málinu var úrskurð- aður í viku gæsluvarðhald í héraðs- dómi. Hann neitar allri ábyrgð á morðinu og hefur áfrýjað gæsluvarð- haldsúrskurðinum til áfrýjunardóm- stóls. Norska ríkisútvarpið NRK greindi frá því í gær að maðurinn hefði verið með aðalsökunaut í nærri fimm tíma eftir morðið og þar til þeir voru báðir handteknir í þorpinu Gamvik sem er skammt frá Mehamn. NRK hefur eftir verjandanum að maðurinn hafi reynt að koma í veg fyrir morðið. Talsmaður lögreglunnar sagði við vefmiðilinn iFinnmark að talið væri nauðsynlegt að hafa yngri manninn í haldi í að minnsta kosti viku til að skapa svigrúm fyrir lögregluna til að greina aðdraganda atburðarins. Unnið að vettvangsrannsókn Lögreglan vinnur að rannsókn málsins, meðal annars á morðstaðn- um. Blóðsýni úr hinum handteknu eru rannsökuð til að athuga hvort þeir hafi verið undir áhrifum. iFinnmark hefur eftir talsmanni lögreglunnar að rannsóknin gefi henni góðar vísbendingar um það hvernig málið er vaxið. Söfnun úti í Noregi „Gísli Þór, hjartað mitt, svo blíður og góður, heimsins besti kærasti og stjúpfaðir. Allt mitt.“ Þannig hefst texti Elenu Undeland, kær- ustu Gísla Þórs heitins. Hún skrifar á Face- book um söfnun- arátak sem hún hefur hleypt af stokkunum svo flytja megi jarð- neskar leifar Gísla til Íslands þar sem til stendur að leggja hann til hinstu hvílu á Ísafirði. „Gísli Þór var rifinn af okkur í einu vetfangi á laugardaginn,“ skrifar Elena. Systkini hans og vinir á Íslandi hafa einnig kynnt Facebook-söfnun í sama tilgangi. Ljósmynd/Visit Finnmark Höfnin Mehamn er lítið friðsælt sjávarþorp í Finnmörku, nyrst í Noregi. Í sveitarfélaginu búa nærri 40 Íslendingar og hafa þeir lagt mikið af mörkum við að byggja upp atvinnulífið í Gamvik og Mehamn eftir erfiðleikatíma. Telja sig hafa góða mynd af atburðinum  Yngri maðurinn áfrýjar úrskurði um gæsluvarðhald Gísli Þór Þórarinsson Það styttist í undirritun samn- inga samtakanna í samfloti iðnaðarmanna og Samtaka at- vinnulífsins. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðn- aðarsambands Íslands og tals- maður samflotsins, staðfesti það í gærkvöldi en tók fram að það væri háð því að ekkert kæmi upp á í ferlinu sem þá var í gangi. „Þetta gengur alveg ágætlega. Við erum búin að vera í texta- vinnu,“ sagði Kristján Þórður. Samninganefndirnar funduðu sleitulaust í Karphúsinu hjá ríkis- sáttasemjara frá því klukkan 11 í gærmorgun og fram á kvöld. Kristján sagði að ætlunin væri að vera að eins lengi kvölds og þörf væri á. Sex félög og sambönd standa að sam- floti iðn- aðarmanna í þessum samn- ingaviðræðum. Þau eru Raf- iðnaðarsam- band Íslands, Samiðn, Grafía, Matvís, Félag hársnyrtisveina og VM - félag vélstjóra og málm- tæknimanna. Um 13 þúsund fé- lagsmenn eru í þessum sam- tökum. johann@mbl.is Styttist í undirritun hjá iðnaðarmönnum Kristján Þórður Snæbjarnarson Stjórn útgerðarfyrirtækisins Sam- herja og forstjóri þess, Þorsteinn Már Baldvinsson, hafa kært fimm stjórnendur Seðlabanka Íslands til lögreglu vegna ætlaðra brota þeirra í starfi. Þar er um að ræða Má Guð- mundsson seðlabankastjóra, Arnór Sighvatsson, fv. aðstoðarseðla- bankastjóra, Ingibjörgu Guðbjarts- dóttur, fv. framkvæmdastjóra gjald- eyriseftirlits, Rannveigu Júníus- dóttur, framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlitsins, og Sigríði Logadóttur aðallögfræðing. Þorsteinn segir frá kærunni á vef Samherja. Segir hann Seðlabankann hafa hafnað formlegri beiðni Sam- herja um sáttafund, „til að ákvarða bætur og málalok vegna tilhæfu- lausra aðgerða bankans gegn Sam- herja sem staðið hafa í rúm sjö ár“. Bendir hann á að þetta geri bank- inn þrátt fyrir að formaður banka- ráðs hafi tjáð Alþingi að hann teldi slíkan sáttafund eðlilegan. Umboðs- maður Alþingis hafi auk þess bent á að bankinn ætti að hafa frumkvæði að því að endurgreiða álagða sekt. Kæra Seðlabankann

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.