Morgunblaðið - 01.05.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Hraðbankar sem bjóða bæði upp á út-
tektir og innlagnir hafa fengið góðar
móttökur hjá viðskiptavinum og þjón-
ustan gengið mjög vel, en upp hafa
komið einstaka dæmi þar sem inn-
lagnir gengu ekki sem skyldi. Það sé
fylgifiskur þessarar tækni og þekkt
hjá öllum bönkum, en reynt sé að
leysa slík tilvik strax.
Þetta segir Haraldur Guðni Eiðs-
son, forstöðumaður samskiptasviðs
Arion banka, í samtali við Morgun-
blaðið. Tilefnið er reynsla viðskipta-
vinar sem blaðið ræddi við og ætlaði
að leggja peninga inn á reikning í
gegnum hraðbanka. Þegar hraðbank-
inn var búinn að taka við peningunum
komu upp skilaboð þar sem sagði að
ekki hefði tekist að leggja inn á reikn-
inginn. Viðkomandi var vinsamlegast
beðinn um að taka kortið sitt, en pen-
ingarnir sátu eftir í hraðbankanum.
Starfsmaður bankans var til að-
stoðar við innlögnina þegar atvikið
átti sér stað og gat því staðfest atvik-
ið, en viðskiptavinurinn hafði annars
ekki neitt í höndunum um að þetta
hefði gerst. Upphæðin var í kringum
400 þúsund krónur, en bankinn lagði
300 þúsund krónur inn á reikninginn
og ætlaði svo að hafa samband þegar
búið væri að gera upp hraðbankann,
sem gæti tekið einhverja daga.
Viðskiptavinurinn vissi ekki ná-
kvæmlega hversu há fjárhæðin var
sem ætluð var inn á reikninginn, en
þótti ljóst að erfiðara hefði verið að fá
botn í málið ef starfsmaður hefði ekki
orðið vitni að atvikinu. Þess vegna
hefði viðskiptavininum verið trúað að
um svo háa upphæð hefði verið að
ræða, sem gagnrýndi þó að geta ekki
haft umráð yfir eigin peningum í ein-
hverja daga.
Um undantekningu að ræða
Haraldur segir að það séu undan-
tekningartilfelli að ekki sé hægt að
sannreyna strax hvaða upphæð var
lögð inn. Þá þurfi að bíða eftir að
hraðbankinn sé gerður upp og þá
gæti viðskiptavinur þurft að bíða í
einhverja daga eftir niðurstöðu.
„Hins vegar er í slíkum tilfellum
mögulegt að koma til móts við við-
skiptavininn sem undirritar yfirlýs-
ingu þar sem fram kemur sú upphæð
sem viðkomandi var, eða telur sig
hafa verið, að leggja inn og bankinn
leggur þá upphæð inn á reikning við-
komandi. Yfirlýsingin felur jafnframt
í sér að viðskiptavinurinn heimilar
bankanum að leiðrétta upphæðina
reynist munur á þeirri upphæð sem
bankinn leggur inn á viðkomandi og
upphæðinni sem í raun var lögð inn í
gegnum hraðbankann,“ segir Harald-
ur. Hann undirstrikar að þjónustan
hafi þó gengið mjög vel og hafi fengið
góðar viðtökur.
Peningar viðskiptavinar
sátu eftir í hraðbankanum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hraðbankaviðskipti Í dag bjóða margir hraðbankar upp á bæði úttektir og innlagnir á reikning.
Vandræði með innlögn í hraðbanka eru ekki algeng Tæknin þó ekki óskeikul
Ágúst Ólafur
Ágústsson, þing-
maður Samfylk-
ingarinnar, mun
snúa til baka úr
leyfi frá störfum
á Alþingi í dag.
Ágúst fór fyrst í
tveggja mánaða
leyfi í lok síð-
asta árs eftir að
hann fékk
áminningar frá trúnaðarnefnd
flokksins vegna framkomu sinnar í
garð konu í byrjun síðasta sumars.
Hann áreitti hana kynferðislega
og þegar hún hafnaði honum
ítrekað fór hann særandi orðum
um hana.
Í febrúar tilkynnti Ágúst að
hann færi í framhaldinu í veik-
indaleyfi. Í færslu á Facebook-síðu
sinni segir Ágúst að hann hafi
undanfarna mánuði þurft að end-
urskoða líf sitt og sækja sér fag-
lega aðstoð vegna áfengisvanda
sem hafi verið meiri en hann átt-
aði sig á. „Ég hef þurft að horfast
í augu við líf mitt, viðurkenna van-
mátt minn gagnvart áfengi og
vera tilbúinn að þiggja aðstoð ann-
arra,“ segir Ágúst í færslu sinni.
Ágúst Ólafur
Ágústsson snýr
aftur til þingstarfa
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Opnaðar verða
göngugötur í
miðborg Reykja-
víkur í dag.
Göngugöturnar
verða opnar frá
1. maí til 1. októ-
ber næstkom-
andi og verður
útfærslan með
svipuðu sniði og
undanfarin ár á
meðan unnið er að varanlegu
göngusvæði. Segir frá þessu í til-
kynningu frá Reykjavíkurborg.
Göngusvæðin eru eftirfarandi:
Laugavegur og Bankastræti frá
Klapparstíg að Þingholtsstræti,
Skólavörðustígur milli Bergstaða-
strætis og Laugavegar, Póst-
hússtræti milli Kirkjustrætis og
Hafnarstrætis og Austurstræti
ásamt Veltusundi og Vallarstræti.
Göngugötur opnaðar
í miðborginni í dag
Laugavegur Lokað
verður fyrir bíla.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosamargrett@gmail.com
Þorsteinn Hermannsson, samgöngu-
stjóri á umhverfis- og skipulagssviði
Reykjavíkurborgar, staðfestir í sam-
tali við Morgunblaðið að ekið hafi ver-
ið á barn á gangbraut á Hringbraut
við Bræðraborgarstíg á föstudaginn
langa. Mikil umræða varð um um-
ferðaröryggi á sömu slóðum eftir að
keyrt var á þrettán ára stúlku á
gatnamótum Hringbrautar og Meist-
aravalla 9. janúar síðastliðinn. Þor-
steinn segir að í kjölfar fyrra slyssins
hafi verið samþykkt að lækka há-
markshraða úr 50 kílómetra hraða
niður í 40. Segir hann að lögreglu-
stjóri hafi þegar auglýst breytinguna
í Stjórnartíðindum og að stefnt sé á
að setja upp skilti með breyttum há-
markshraða í maí. „Í leiðinni ætlum
við að setja upp hraðavaraskilti sem
blikka ef þú ekur of hratt,“ segir Þor-
steinn. Einnig segir hann að sam-
þykkt hafi verið að lýsing á svæðinu
verði bætt og gönguleiðir gerðar
meira áberandi. Vonast hann til þess
að þessar breytingar verði kláraðar á
árinu. Þorsteinn segir að fleiri breyt-
ingar séu í bígerð á næsta ári en þá er
á dagskrá að skipta út öllum umferð-
arljósabúnaði á Hringbraut frá hring-
torginu við Þjóðminjasafnið og vestur
úr. Segir hann umferðarljósin komin
á tíma en ekki er hægt að samtengja
ljós af þessari gerð eins og hægt er á
nýrri ljósum. Segir hann ekki á dag-
skrá að bæta við eiginlegum hraða-
hindrunum á svæðinu. Til standi þó
að gera breytingar á gatnamótum
Hofsvallagötu og Hringbrautar og
rætt hafi verið um að setja þar upp-
hækkanir til að freista þess að draga
þar úr hraða. „Við höfum séð fyrir
okkur að þegar búið verði að breyta
þessum aðaðalgatnamótum munum
við fara í sambærilegar aðgerðir á öll-
um öðrum gatnamótum, til dæmis við
Bræðraborgarstíg.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hætta Tvö slys á börnum hafa orðið
í umferðinni á Hringbraut á árinu.
Ekið á barn
á Hringbraut
Breytingar í bígerð í kjölfar slysa
Arion banki vinnur nú að því að breyta verklagi ef upp
koma tilvik þar sem innlagnir í hraðbanka ganga ekki
sem skyldi. Ýmislegt getur valdið því að innlögn gangi
ekki, t.d. seðlar sem eru of illa farnir, erlendir seðlar inn-
an um íslenska og bréfaklemmur utan um seðlana. Slík
vandamál eru þekkt víða og fylgifiskur þessarar tækni,
en stefna bankans er að geta brugðist hraðar við ef upp
koma slík mál.
„Við erum að breyta verklagi þessa dagana og upp-
færa hugbúnað hraðbankanna þannig að betri upplýs-
ingar liggja fyrir sem mun fjölga þeim tilfellum sem við getum leyst strax.
Þá verður jafnframt hægt að leysa flóknari mál í síðasta lagi daginn eftir,“
segir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs bankans.
Vinna nú að breyttu verklagi
INNLAGNIR Á REIKNING Í GEGNUM HRAÐBANKA
Haraldur Guðni
Eiðsson