Morgunblaðið - 01.05.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019
Í áratug var Osama bin Ladenefstur á lista yfir eftirlýsta
menn. Oft bárust fréttir um það
að leiðtogi hreyfingarinnar sem
stóð fyrir mesta hryðjuverki sög-
unnar væri loks allur.
Gerðar höfðuverið loft-
árásir á staði þar
sem nær öruggt
var talið að bin
Laden væri á ferð.
Deilt var um það
hvort stuðnings-
menn Osama
dreifðu þessum andlátssögum, til
að draga úr leit, eða
leyniþjónustumenn sem vantaði
vísbendingar og vildu að bin Lad-
en styngi upp höfðinu til að gefa
fylgjendum von.
Hvað sem því líður er hitt stað-reynd að bin Laden tók að
senda spólur með boðskap sínum á
arabískan ljósvaka til að stappa
stálinu í liðið. Og Bandaríkin og
bandamenn hertu þegar leitina.
Hún bar loks árangur.
Nú er það al-Baghdadi, æðstileiðtogi ISIS, sem minnir á
sig. Hann sendi frá sér mynd-
bandsspólu og hefur hríðskota-
byssuna hjá sér svo minnir á fyrr-
nefndan foringja.
Bandaríkjamenn og fleiri, þarmeð taldir Rússar, hafa
margoft gefið til kynna að al-
Baghdadi hafi særst, jafnvel dáið í
árásum þeirra. Miðað við það var
mesta furða hversu vel hann leit
út, rétt eins og hann væri nýkom-
inn af sólarströnd.
Rétt eins og bin Laden nefndihann nýliðnar fréttir til að
sýna að upptaka væri ný. Nú herð-
ist leitin. Kannski byrjað á sólar-
ströndum.
Abu Bakr
al-Baghdadi
Séð þetta áður
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Heitara var í apríl í Reykjavík en
nokkurn tímann áður. Sömu sögu er
að segja um Stykkishólm og hitinn á
Akureyri jafnar fyrra met. Fyrri
met á þessum stóðum voru flest frá
árinu 1974. Kemur þetta fram í
færslu Einars Sveinbjörnssonar
veðurfræðings á Facebook.
Einar hefur þá fyrirvara að síðasti
dagur mánaðarins var ekki liðinn
þegar hann tók stöðuna og eftir sé að
yfirfara allar skráðar mælitölur á
Veðurstofunni. En stóra myndin
liggi fyrir.
Meðalhitinn í Reykjavík er um 6,4
gráður. Er það 3,5 stigum yfir með-
allagi. Fyrra metið var 6,3 C, frá
1926 og 1974. Meðalhitinn í Stykkis-
hólmi verður annaðhvort 5,7 eða 5,8
stig, 4 stigum yfir meðallagi. Er það
talsvert yfir fyrra meti sem var 5,4 C
sett 1974. Hitinn á Akureyri er um
6,8 stig, 5 stigum yfir meðallagi.
Stefnir í að þar verði metið frá 1974
jafnað.
Þetta gerist þótt mánuðurinn hafi
ekki byrjað sérstaklega vel. Hiti var
um eða undir frostmarki fyrstu þrjá
dagana í apríl með snjómokstri og
hálkuvörn á vegum. Síðan hlýnaði
með sunnanátt svo um munaði. Frá
12. apríl hefur meðalhiti á láglendi
verið lengst af 7-8 stig.
helgi@mbl.is
Hitametin frá árinu 1974 slegin
Meðalhitinn í Reykjavík var í apríl
um 6,4 stig og um 6,8 stig á Akureyri
Morgunblaðið/Valli
Reykjavík Borgarar njóta sumars
og sólar á Austurvelli.
Hestamenn víða um land bjóða gest-
um heim á degi íslenska hestsins
sem er í dag, 1. maí. Fólki er boðið í
heimsókn í hesthús til að kynna sér
allt sem hrossum og hestamennsku
viðvíkur. Þá er efnt til myndbanda-
samkeppni í tilefni dagsins sem er á
slóðinni www.facebook.com/
horsesoficeland
Meðal atburða dagsins í dag er
sýning á vegum Hestamannafélags-
ins Spretts og Landbúnaðarháskól-
ans sem verður Kjóavöllum efst í
Kópavogi. Þar verður teymt undir
börnum kl. 15.30. Hestamanna-
félagið Skagfirðingur á Sauðárkróki
heldur sýninguna Æskan og hest-
urinn í reiðhöllinni Svaðastöðum kl.
13. Geysisfélagar á Hellu bjóða á
æskulýðssýningu Geysis, í Rang-
árhöllinni kl. 11 og Hörður í Mos-
fellsbæ stendur fyrir sýningu í reið-
höll Harðar kl. 14.00. Í
Sleipnishöllinni á Selfossi komast
börnin á bak frá kl. 12.30-14.30 og á
Sörlastöðum í Hafnarfirði er sýning
sem hefst kl. 13.00.
Á laugardag standa hestamanna-
félögin á höfuðborgarsvæðinu: Fák-
ur, Hörður, Máni, Sprettur og Sörli
sameiginlega fyrir sýningunni Æsk-
an og hesturinn í TM-reiðhöllinni
hjá Fáki í Víðidal, Reykjavík. Tvær
sýningar verða haldnar, kl. 13 og 16.
Þar koma fram efnilegustu hesta-
menn landsins og sýna afrakstur
vetrarstarfsins og er óhætt að segja
að sýningin sé hápunktur vetr-
arstarfsins hjá ungum knöpum.
Verkefnið Horses of Iceland var
stofnsett 2015 til að auka verðmæta-
sköpun í tengslum við íslenska hest-
inn og styrkja ímynd hans. Íslands-
stofa sér um framkvæmd
verkefnisins og starfar með verkefn-
isstjórn sem skipuð er fulltrúum
bænda, hestamanna, stjórnvalda og
margra fleiri.
Margt í boði á degi
íslenska hestsins
Fjölbreyttar
sýningar og börnin
komast á hestbak
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hestaferð Við förum bara fetið.