Morgunblaðið - 01.05.2019, Side 12

Morgunblaðið - 01.05.2019, Side 12
Varað við blóð- baði í Venesúela  Guaidó sakaður um valdaránstilraun Stjórn sósíalista í Venesúela sakaði í gær leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu um tilraun til valdaráns og sagði að herinn væri að brjóta hana á bak aftur. Áður hafði Juan Guaidó, sem hefur lýst sig þjóðhöfðingja landsins, sagt að baráttan fyrir því að koma sósíalistastjórninni frá völd- um væri á „lokastigi“. Yfirmaður hersins varaði við því að aðgerðir stjórnarandstöðunnar gætu leitt til blóðsúthellinga. Fjölmiðlar birtu þriggja mínútna myndskeið þar sem Guaidó og annar leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Leo- poldo López, sögðust njóta stuðn- ings hermanna. López hafði verið í stofufangelsi fyrir að hvetja til mót- mæla gegn sósíalistastjórninni árið 2014 og sagði á myndskeiðinu að hópur hermanna hefði frelsað hann og lýst yfir stuðningi við stjórnar- andstöðuna. Guaidó kvaðst einnig njóta stuðnings „hugrakkra her- manna“ í höfuðborginni Caracas. Stjórn sósíalistans Nicolás Mad- uro sagði að „fámennur hópur svik- ulla hermanna“ hefði hafið valda- ránstilraun í Caracas og herinn væri að brjóta hana á bak aftur. Guaidó er forseti þings Venesúela og sakar Maduro um að hafa rænt völdunum með kosningasvikum í fyrra. Samtök Ameríkuríkja, Banda- ríkjastjórn og Evrópusambandið viðurkenndu ekki forsetakosning- arnar og sögðu að þær hefðu ekki verið lýðræðislegar. Frá því að Guaidó lýsti sig þjóðhöfðingja lands- ins þar til forsetakosningar fara fram hefur hann hvatt herinn til að styðja stjórnarandstöðuna. Yfir- menn hersins hafa hingað til stutt Maduro en andstæðingar stjórnar- innar vona að herinn snúist á sveif með þeim vegna óðaverðbólgu, raf- magnsleysis og skorts á matvælum og öðrum lífsnauðsynjum í landinu. AFP Barist Þjóðvarðliðar í átökum við stjórnarandstæðinga í Caracas. 12 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019 295 Vinnuvettlingar PU-Flex Öflugar Volcan malarskóflur á frábæru verði frá 365 Ruslapokar 120L Ruslapokar 140L Sterkir 10/50stk Greinaklippur frá 595 695 Strákú á tann verði Öflug stungu- skófla Garðverkfæri í miklu úrvali frá 995 Garðslöngur í miklu úrvali Fötur í miklu úrvali 3.995 Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur, balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar......... Léttar og góðar hj með 100 kg burðargetu 999Barna- garðverk- færi frá 395 Ruslatínur frá 295 Laufhrífur frá 999 Laufsugur 7.495 Úðabrúsar í mörgum stærðum frá 995 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Akihito Japanskeisari sagði af sér keisaradómi í gær og sonur hans, Naruhito, kom til ríkis, varð þá 126. keisari landsins. Þetta er í fyrsta skipti í rúm 200 ár sem keisari segir af sér í Japan. Akihito er 85 ára gamall og hafði fengið leyfi til að afsala sér keis- aradómi eftir að hann hafði sagt í sjónvarpsávarpi að hann gæti ekki lengur gegnt skyldum sínum vegna aldurs og heilsubrests. Hann flutti síðasta ávarp sitt sem keisari við at- höfn í keisarahöllinni í Tókýó í gær og skilaði formlega veldistáknunum, fornu sverði og helgum gimsteini. Áður hafði Akihito skýrt áum sínum og goðum sintotrúarinnar frá áform- um sínum um að afsala sér keisara- dómi við athöfn í keisarahöllinni. Naruhito tók formlega við elsta arfgenga þjóðhöfðingjaembætti heimsins við tíu mínútna athöfn í gær. Engin kona í keisarafjölskyld- unni fær að vera viðstödd slíkar at- hafnir í höllinni og eiginkona nýja keisarans, Masako, var því ekki með manni sínum á þessum sögulegu tímamótum. Vill breyta hefðunum Naruhito er 59 ára og nam sagn- fræði við Gukushuin-háskóla í Tókýó og við Oxfordháskóla á Englandi. Hann kvæntist Masako, sem er 55 ára, fyrir 26 árum eftir að hún hafði tvisvar sinnum hafnað bónorði hans vegna þess að hún treysti sér ekki til að ganga í hjónaband með krón- prinsi Japans því að hún taldi að það myndi skerða sjálfstæði hennar og frelsi um of. Naruhito hefur sagt að hann vilji að keisari Japans gegni „nýjum skyldum“ sem hæfi betur nútímanum og hefur gagnrýnt hefð- irnar og lífshættina sem keisara- fjölskyldan hefur þurft að temja sér. Sú gagnrýni er einkum rakin til þess að konu hans hefur veist erfitt að laga sig að lífinu í keisarahöllinni. Nýju keisarahjónin eiga eitt barn, Aiko prinsessu, sem fæddist árið 2001. Japanskeisari var sviptur pólitísk- um völdum þegar Japönum var færð stjórnarskrá eftir síðari heimsstyrj- öldina en hann gegnir því hlutverki að vera sameiningartákn japönsku þjóðarinnar. Akihito var ellefu ára og táraðist þegar faðir hans, Hiro- hito keisari, tilkynnti uppgjöf Jap- ana í heimsstyrjöldinni í sögulegu útvarpsávarpi. Seinna lagði Akihito sitt af mörkum til að bæta tengsl Japans við önnur lönd eftir styrjöld- ina, m.a. með því að viðurkenna að Japanar hefðu valdið grannríkj- unum miklum þjáningum í stríðinu. Fyrri keisarar komu sjaldan fram opinberlega og Akihito breytti þeirri hefð. Hann hefur notið mikilla vin- sælda í Japan fyrir að votta fólki samúð sína þegar það á um sárt að binda, m.a. vegna náttúruhamfara. 126. keisari Japans stígur til ríkis  Fyrsta afsögn keisara í Japan í rúmar tvær aldir Akihito 1956 Ljósmyndir: AFP Nóv. 1952 Athöfn í tilefni af því að hann hafði náð lögræðisaldri og varð krónprins 1953 Var viðstaddur krýningu Elísabetar 2. drottningar í Bretlandi í fyrstu utanlandsferð sinni og heimsótti síðan 13 önnur lönd 23. febr. 1960 Eldri sonur hans, Naruhito krón- prins, fæddist 1959 Kvæntist Michiko Shoda, varð fyrsti krónprinsinn til að giftast konu sem var ekki aðalborin 2016 Flutti sjónvarpsávarp þar sem hann gaf til kynna að hann vildi fá að segja af sér keisaradómi 30. apríl 2019 Sagði af sér keisaradómi og Heisei-tímabilinu lauk Æskuárin Var fluttur í sveitasetur Japanskeisara í síðari heimsstyrjöldinni Ágrip af ævi 125. keisara Japans Hann viðurkenndi í sögulegri ferð til Kína að Japanar hefðu valdið kínversku þjóðinni „miklum þjáningum“ Jan. 1989 Varð keisari Japans eftir að faðir hans, Hirohito, dó Keisaratíð hans var nefnd Heisei (að öðlast frið) og hann verður nefndur Heisei keisari eftir að hann deyr 1992 1965 Yngri sonur hans, Akishino prins, fæddist 2011 Keisarahjónin áttu sögulegan fundmeð fólki sem lifði af mannskæðan jarðskjálfta og flóðbylgju 11. mars 23. des. 1933 Fæddist, var fimmta barn Hirohitos keisara og Nagako keisaraynju Lauk námi við Gakushuin- háskóla í Tókýó AFP Nýr keisari Hjónin Masako og Naruhito í keisarahöllinni í gær. Sögulegar afsagnir » Akihito keisari bætist í hóp eins páfa, tveggja konunga og einnar drottningar sem hafa sagt af sér á síðustu árum. » Benedikt 16. páfi sagði af sér í febrúar 2013 og var það fyrsta afsögn páfa af heilsu- farsástæðum í 700 ár. » Beatrix Hollandsdrottning sagði af sér í apríl 2013, 74 ára að aldri. » Í júlí sama ár afsalaði Albert 2. sér konungdómi í Belgíu, 79 ára gamall, vegna veikinda. » Jóhann Karl Spánarkon- ungur sagði af sér 2014, 76 ára að aldri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.