Morgunblaðið - 01.05.2019, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019
Um tíma var ástæða
til að óttast hörð átök
á vinnumarkaði, með
tilheyrandi verkföllum.
Átök sem allir hefðu
skaðast á, jafnt al-
menningur sem at-
vinnurekendur. Ekki
síst þess vegna var
gleðilegt þegar for-
ystumenn launafólks
og atvinnurekenda á
almennum vinnumarkaði náðu sam-
an. Lífskjarasamningarnir gefa góð-
ir vonir um að traustur grunnur til
bættra lífskjara hafi verið lagður.
Hið opinbera ætlar að leggja sín lóð
á vogarskálarnar.
Fyrir þann sem þetta skrifar er
sérstaklega ánægjulegt hve mikil
áhersla var lögð á lækkun skatta og
þá fyrst og fremst á lægstu launin.
Þótt útfærsla á lækkun tekjuskatts
einstaklinga sé ekki sú sem ég hef
barist fyrir er hún með þeim hætti
að allir njóta góðs af, ekki síst fólk
með lægstu tekjurnar.
Ástæða er til að ætla að lífskjara-
samningarnir geti markað þáttaskil
í kjarabaráttunni. Með svokölluðum
hagvaxtarauka er komið á beinni
tengingu milli svigrúms atvinnulífs-
ins til launabreytinga og hækkunar
launa. Ákvæði um launaauka vegna
aukinnar framleiðni tryggir launa-
fólki hlutdeild í ávinningi þegar
landsframleiðsla á hvern íbúa eykst.
Með öðrum orðum: Það er verið að
tryggja hlutdeild launafólks í hag-
vexti í komandi framtíð. Þannig er
samþætting hagsmuna atvinnu-
rekstrar og starfsmanna aukin.
Samningarnir leggja grunn að því
að vextir haldi áfram að lækka og
þar með aukast ráðstöfunartekjur
heimila og fyrirtæki fá betra svig-
rúm til að standa undir launahækk-
unum. Ríkisstjórnin hefur heitið því
að grípa til víðtækra aðgerða í hús-
næðismálum, ekki aðeins að styrkja
félagslegar íbúðir heldur ekki síður
að gera fólki betur
kleift að eignast eigið
húsnæði. Þannig verð-
ur fólki heimilt að nýta
sér séreign (3,5%)
skattfrjálst til íbúða-
kaupa auk almenns
séreignasparnaðar.
Fyrir þá með
lægstu launin
Í öllum málflutningi,
jafnt í aðdraganda og
eftir að kjarasamn-
ingar voru undirrit-
aðir, lögðu forsvarsmenn atvinnu-
rekenda og launafólks áherslu á
kjarabætur til tekjulágs fólks. Breið
samstaða væri á vinnumarkaði um
að „launafólk með lágar tekjur
hækki hlutfallslega meira í launum
en þeir sem hærri laun hafa“.
Mikilvægt er að þeir kjarasamn-
ingar sem eftir er að ganga frá og
þá ekki síst á opinberum vinnu-
markaði rjúfi ekki þá samstöðu sem
hefur náðst um bætt kjör þeirra
sem lakast standa. Vítin eru til að
varast þau. Geir Hallgrímsson, þá
utanríkisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins, vék að stöðu
þeirra sem lægstu launin hafa í um-
ræðum um stefnuræðu forsætisráð-
herra í október 1983:
„Allir stjórnmálaflokkar hafa á
orði í umræðum sem þessum, að
þeir vilji bæta hag hinna lægstlaun-
uðu. Ég er sammála því, að það á að
bæta hag hinna lægstlaunuðu, en ég
leyfi mér að segja að engin röksemd
í kjaramálum hefur verið jafn mikið
misnotuð og einmitt þessi. Sannleik-
urinn er sá, hvort sem okkur líkar
betur eða verr, að þeir sem hærri
launin hafa og hinir með meðallaun
vilja gjarnan skríða upp eftir bak-
inu á hinum lægstlaunuðu og bera
þá fyrir sig til þess að ná fram betri
kjörum fyrir sjálfa sig. Það hefur
yfirleitt mistekist að bæta kjör
hinna lægstlaunuðu umfram aðra,
vegna þess að hinir hafa aldrei sætt
sig við það. Og staðreynd er, að þeir
sem hafa lægstu launin sýna oft
meiri þolinmæði og skilning á nauð-
syn þess, að atvinnufyrirtækin fái
tækifæri til að rétta við, en hinir
sem við betri kjör búa.“
Geir var sannfærður um að „hinir
lægstlaunuðu hafi fengið nóg af lýð-
skrumi, þegar menn hafa á orði
nauðsyn þess að bæta kjör þeirra
en athafnir fylgja ekki orðum“.
Vonandi höfum við öll lært á þeim
36 árum sem liðin eru frá því að
Geir Hallgrímsson taldi nauðsyn-
legt að setja fram harða gagnrýni á
lýðskrum á vinnumarkaði og stjórn-
málum.
Meinsemd á vinnumarkaði
Hagsmunir launafólks felast ekki
aðeins í að tryggja hækkun launa,
heldur ekki síður kaupmátt þeirra
og miklu fremur kaupmátt ráðstöf-
unartekna. En launin eru ekki allt.
Heilbrigði vinnumarkaðarins er
mikilvægur þáttur í bættum lífs-
kjörum.
Félagsleg undirboð á vinnumark-
aði eru meinsemd sem atvinnulífið –
atvinnurekendur og launafólk –
verður að takast á við í samstarfi
við stjórnvöld. Hér fara saman
hagsmunir launafólks og hagsmunir
atvinnurekenda, að minnsta kosti
þeirra sem stunda sín viðskipti með
heiðarlegum hætti. Fórnarlömb fé-
lagslegra undirboða á vinnumarkaði
eru mörg. Launamaðurinn sem
svikinn er um rétt kjör, ríkissjóður
sem með vélabrögðum verður af
tekjum og atvinnurekandinn er
stundar heiðarleg viðskipti en verð-
ur undir í samkeppninni vegna
óheiðarleika annarra.
Heilbrigður vinnumarkaður er
ein forsenda góðs samfélags. Þegar
hafa verið stigin ákveðin skref í að
takast á við meinsemd á vinnu-
markaði en í tengslum við lífskjara-
samningana hefur ríkisstjórnin heit-
ið því að gripið verði til
margvíslegra aðgerða gegn brota-
starfsemi í atvinnulífinu. Þórdís
Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráð-
herra ferðamála, iðnaðar og ný-
sköpunar, hefur þegar mælt fyrir
frumvarpi þar sem tekið verður á
sviksamlegu kennitöluflakki í at-
vinnurekstri. Frumvarpið verður
vonandi að lögum nú í vor.
Ójöfnuður og misrétti
Lífskjör ráðast ekki aðeins af því
hversu margar krónur eru í launa-
umslaginu eftir að skattar og gjöld
hafa verið greidd. Lífskjörin ráðast
ekki síður af því hvernig til tekst
við alla stjórnsýslu hins opinbera, –
hversu hagkvæm og góð þjónustan
er. Með þetta í huga er erfitt að
skilja hvers vegna forysta verka-
lýðshreyfingarinnar beinir ekki
sjónum sínum í auknum mæli að því
hvernig hið opinbera stendur að
verki við að veita landsmönnum
þjónustu, sem við höfum ákveðið að
veitt skuli og greitt að miklu leyti
úr sameiginlegum sjóðum. Þetta á
ekki síst við um heilbrigðisþjónustu.
Allir landsmenn eru sjúkra-
tryggðir og eiga að njóta nauðsyn-
legrar heilbrigðisþjónustu, óháð
efnahag og búsetu. Verulegir og oft
alvarlegir brestir í heilbrigðiskerf-
inu koma í veg fyrir að sjúkra-
tryggðir njóti skilgreindra réttinda.
Með stofnanavæðingu heilbrigðis-
þjónustunnar er sú hætta raunveru-
leg að til verði tvöfalt heilbrigðis-
kerfi. Við þessu hefur sá er þetta
skrifar varað ítrekað. Því miður
hafa helstu talsmenn launafólks
ekki tekið undir.
Tvöfalt heilbrigðiskerfi, þar sem
efnafólk getur nýtt sér þjónustu
sjálfstætt starfandi sérfræðilækna
og einkarekinna heilbrigðisfyr-
irtækja án þess að þurfa að bíða
mánuðum saman eftir bót meina
sinna, verður fleygur í þjóðarsálina
– leiðir til aukins ójafnaðar og mis-
réttis. Gerir að engu sáttmála um
að sameiginlega tryggjum við hvert
öðru nauðsynlega þjónustu. Jafn-
ræði í heilbrigðiskerfinu heyrir þar
með sögunni til.
Kerfið stokkað upp
Í síðustu viku gerði ég að umtals-
efni það flókna regluverk sem búið
hefur verið til hér á landi, ekki síst
um atvinnulífið. Við Íslendingar
höfum gengið lengra en aðrar þjóðir
í að regluvæða samfélagið. Reglu-
byrðin er þyngri hér á landi en í
helstu samkeppnislöndum, kostn-
aðurinn er hærri og samkeppnis-
hæfnin þar með lakari. Ætla má að
árlegur kostnaður fyrirtækja við að
framfylgja sífellt flóknari og strang-
ari reglum hlaupi á tugum milljarða
króna. Erfitt er að meta óbeinan
kostnað vegna minni framleiðni,
verri skilvirkni og lakari samkeppn-
isstöðu. Beinn og óbeinn kostnaður
við regluverkið og eftirlitskerfið er
ekki aðeins borinn af eigendum fyr-
irtækja heldur ekki síður af launa-
fólki í formi lægri launa og af neyt-
endum öllum sem þurfa að sætta
sig við hærra verð á vöru og þjón-
ustu. Dýrt og flókið kerfið hefur
bein áhrif á verðlag, skuldir og
tekjur launafólks.
Uppskurður á opinberu eftirlits-
kerfi – færri og einfaldari reglur –
styrkir hag fyrirtækja og eykur
möguleika til nýsköpunar. Störfum
fjölgar, vöruverð lækkar og skatt-
tekjur ríkisins aukast. Allir hagn-
ast.
Það er sameiginlegt hagsmuna-
mál atvinnurekenda og launafólks
að kerfið verði stokkað upp, fitan
skorin í burtu og leikreglurnar ein-
faldaðar.
Ég óska launafólki um allt land til
hamingju með daginn.
Eftir Óla Björn
Kárason » Það er sameiginlegt
hagsmunamál
atvinnurekenda og
launafólks að kerfið
verði stokkað upp, fitan
skorin í burtu og leik-
reglurnar einfaldaðar.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Kjarabarátta nýrra tíma
Gleðigjafi eða ekki Sitt sýnist hverjum um starann, sem er
spörfugl og upprunninn í Evrópu og Asíu en finnst víðar.
Eggert
Öll viljum við búa við
góða heilsu og þegar aldur
færist yfir þarf að hlúa enn
betur að heilsunni en áður.
Það var að minnsta kosti
niðurstaða samráðs vel-
ferðarráðs við eldri Reyk-
víkinga. Annað meginþema
úr samráðinu var mik-
ilvægi þess að hafa eitthvað
gefandi fyrir stafni og að
viðhalda eigin getu til at-
hafna daglegs lífs sem
lengst. Því valdi velferðarráð heitið „Ald-
ursvæn og heilsueflandi borg“ á stefnu í
málefnum, eldri borgara og nú í apríl
2019 samþykkti velferðarráð aðgerða-
áætlun í málefnum eldri borgara, byggða
á þessari sömu stefnu.
Aukin lífsgæði
Í aðgerðaáætluninni er lögð áhersla á
fimm meginþætti sem eiga að stuðla að
meiri lífsgæðum eldri borgara; félagsauð,
matarþjónustu, sérhæfða aðstoð vegna
heilabilunar, sérhæfð teymi um heima-
þjónustu og mannauð. Með mannauð í
þessu sambandi er verið að ræða um
eldri borgararana sjálfa sem eru mik-
ilvægur þáttur í mannauði Reykjavíkur
og því mikilvægt fyrir okkur öll að standa
vel að innleiðingu þessarar stefnu.
Aukin þjónusta
Með aðgerðaáætluninni er tryggt að
þjónusta við eldri borgara verður veru-
lega aukin á næstu misserum sem og
upplýsingaflæði til þeirra. Þetta er m.a.
gert með sérhæfðum þjónustufulltrúa,
aukinni miðlun upplýsinga og útgáfu og
fleiri tækifærum til virkni og þátttöku í
félagsstarfi, útiveru, menningu og heilsu-
eflingu. Hér er vert að nefna frí-
stundakort eldri borgara sem hægt er að
nálgast og veitir gjald-
frjálsan aðgang að öllum
listasöfnum í eigu Reykja-
víkur, sundlaugum og bóka-
söfnum.
Heilsuefling og
félagsstarf
Ýmsir aðilar vinna að
heilsueflingu aldraðra á Ís-
landi. Sveitarfélögin leika
hér stórt hlutverk því sam-
kvæmt lögum skulu þau
tryggja öldruðum aðgang
að félags- og tómstunda-
starfi. Þjónustumiðstöðvar
aldraðra, sem ýmist geta starfað sjálf-
stætt eða í tengslum við aðra þjónustu,
skulu tryggja öldruðum félagsskap, nær-
ingu, hreyfingu, tómstundaiðju, skemmt-
un og heilsufarslegt eftirlit. Þá getur
þátttaka í félagsstarfi komið í veg fyrir
einmanaleika og dregið úr fylgifiskum
hans, svo sem áfengis- og vímu-
efnaneyslu.
Heimahjúkrun og næring
Í Reykjavík er heimahjúkrun og fé-
lagsleg heimaþjónusta rekin sem sam-
einuð heimaþjónusta og innan þess teym-
is er endurhæfing í heimahúsi og
heimkeyrsla á máltíðum. Endurhæfing-
arteymið hefur sannað mikilvægi sitt fyr-
ir þá eldri borgara sem þurfa að þjálfa
færni í heimilisverkum til að mynda. Nú
hefur næringarfræðingur verið ráðinn til
að starfa með teyminu til að tryggja að
skimað verði sérstaklega eftir næringar-
ástandi fólks í heimahúsi þar sem það er
mikilvægt að vera vel nærður til að við-
halda færni og lífsgæðum.
Innleiða á næringarviðmið Landlækn-
isembættisins í máltíðaþjónustu velferð-
arsviðs og tryggja á aðgengi að innihaldi
og næringu máltíða. Aukin heldur verður
meiri sérhæfð þjónusta veitt eldri borg-
urum sem þurfa á aðstoð að halda í
heimahúsum og í þjónustuíbúðum aldr-
aða.
Heilabilaðir fá meiri þjónustu
Elliglöp og gleymska geta átt sér
margvíslegar orsakir og margt hægt að
aðstoða með. Sett verður á laggirnar sér-
stakt þverfaglegt teymi sem þjónustar
þennan hóp fólks. Við ætlum að opna
nýja dagdvöl fyrir þennan hóp og fé-
lagslegan stuðning heima til þess að
koma í veg fyrir eða seinka flutningi á
hjúkrunarheimili.
Þekkingaröflun
Að lokum verður lögð áhersla á aukna
þekkingu í öldrunarþjónustu m.a. með
því að komast að því hvað eldri borgarar
telja að hverfi þurfi að innihalda til að há-
marka lífsgæði þeirra sem íbúa. Þá verða
framkvæmdar reglulegar þjónustukann-
anir meðal eldri borgara til að tryggja að
þjónustan þróist í samræmi við vænt-
ingar notenda.
Sýn Reykjavíkurborgar er að eldri
borgarar eigi að ráða sér sjálfir og að öll
aðstoð skuli taka mið af því að fólk fái
tækifæri til að viðhalda færni sinni og öll-
um sé gert kleift að lifa því lífi sem þeir
kjósa. Með samþykkt aðgerðaráætlunar
velferðarráðs í málefnum eldri borgara
eru stigin mörg mikilvæg framfaraskref
sem tryggja munu meiri lífsgæði í borg-
inni og risavaxið framfaraskref fyrir
Reykjavik, sem heilsueflandi og aldurs-
væna borg.
Eftir Heiðu Björg
Hilmisdóttur
Heiða Björg
Hilmisdóttir
» Þjónusta við eldri
borgara verður
verulega aukin.
Höfundur er formaður velferðarráðs
Reykjavíkurborgar og varaformaður
Samfylkingarinnar og Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga.
hbh@reykjavik.is
Aldursvæn og heilsueflandi borg