Morgunblaðið - 01.05.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 01.05.2019, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019 Í kjarasamn- ingum almenna vinnumarkaðarins var gerður tíma- mótasamningur, svokallaður lífs- kjarasamningur. Þar var samið um að laun hækkuðu um ákveðna krónu- töluhækkun sem tryggi hinum lægst launuðu verulega kjarabót. Samið var til langs tíma. Hinir hærra launuðu fá þannig lægri pró- sentuhækkun en þeir verst settu. Þetta er sanngjarnt þar sem launamun- ur var orðinn mikill. Nú er bara að vona að opinberir starfsmenn fari sömu leið en noti ekki prósentuhækk- anir til að hækka þá betur settu enn meir og auka þannig launamun. Hvað fá eldri borgarar? Nú er það stóra spurningin hvaða áhrif hafa kjarasamningar á stöðu eldri borgara sem byggja sínar tekjur fyrst og fremst á Tryggingastofnun. Eins og allir vita hafa eldri borgarar ekki neina beina aðkomu að kjarasamningum. Eldri borgarar áttu heldur ekki aðild að þeim hópi sem sat með stjórnvöldum. Að sjálfsögðu kemur það mörg- um eldri borgurum til góða ef skattbyrði léttist hjá þeim lægst launuðu. Samkvæmt leikreglum stjórn- vala þurfa eldri borgarar að bíða til næstu áramóta til að fá ein- hverja leiðréttingu sinna launa. Samkvæmt niðurstöðu síðustu ár hafa greiðslur TR ekki hækkað í samræmi við launaþróun í landinu. Eldri borgarar hafa þannig sífellt dregist atftur úr. Hækka þarf greiðslur um sömu krónutöluhækkun Alþingi þarf að taka þá einföldu ákvörðun að greiðslur TR til eldri borgara hækki um sömu krónutölu og samið var um í kjara- samningum. Það er réttlætismál. Þannig bætum við kjör þeirra lægst launuðu meðal eldri borgara. Þeir sem betur eru settir fá þá lægri prósentu- tölu. Nú er búið að semja til næstu ára um það hvenær krónutölu- hækkanir eiga að koma til framkvæmda. Alþingi þarf að sam- þykkja að þau tíma- mörk breyti kjörum eldri borgara. Hvað gera stéttarfélögin? Forystumenn stéttarfélaganna sögðu í aðdraganda samninga að þeir myndu berjast fyrir hag eldri borgara. Hvað varð um bar- áttuna? Stéttarfélögin hefðu get- að neitað að skrifa undir nema það væri tryggt að eldri borgara fengju sömu krónutöluhækkun. Það virðist því miður gleymast allt of oft að eldri borgarar voru í stéttarfélögum og greiddu ára- tugum saman félagsgjöld til síns stéttarfélags. Við eigum það því inni að stéttarfélögin hafi okkur með á sínum baráttulista. Það ættu menn að hafa í huga á bar- áttudeginum 1. maí. Eldri borgarar fái sömu krónu- töluhækkun Eftir Sigurð Jónsson »Hvað varð um barátt- una? Stéttar- félögin hefðu getað neitað að skrifa undir nema að tryggt væri að eldri borgarar fengju sömu krónu- töluhækkun. Höfundur er eldri borgari. Sigurður Jónsson BORÐPLÖTUR OG SÓLBEKKIR • Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré • Mikið úrval efna, áferða og lita • Framleiðum eftir óskum hvers og eins • Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is Stéttmeð stétt! V E R K A LÝ Ð S R Á Ð S J Á L F S TÆ Ð I S F L O K K S I N S 1.maí kaffi Verkalýðsráðs 1. maí vöfflukaffiVerkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins verður haldið íValhöll við Háaleitisbraut 1, miðvikudaginn 1. maí, kl 14:00-16:00 að lokinni kröfugöngu og útifundi. Kristinn Karl Brynjarsson, 2. varaformaður Verkalýðsráðs býður gesti velkomna ogValgerður Sigurðardóttir borgarfulltrúi flytur stutt ávarp í tilefni dagsins. Allir velkomnir! Í nýliðnum kjara- viðræðum gerði verka- lýðshreyfingin kröfu um verulegar launa- hækkanir, einkum til hinna lægst launuðu. Veigamikil rök voru hækkun húsnæð- iskostnaðar á höf- uðborgarsvæðinu, en hann hefur á und- anförnum árum hækk- að langt umfram aukningu kaup- máttar. Sífellt stærri hluti þess sem kemur upp úr launaumslaginu fer í húsnæðiskostnað. Leigjendur og þeir sem eru að kaupa íbúð í fyrsta skipti hafa fundið mest fyrir hækkuninni, sem er einkum til komin vegna skorts á íbúðarhúsnæði. Eftirspurnin hefur vaxið hraðar en framboðið. Sér- staklega er skortur á ódýrum litlum íbúðum. Margumtöluð þétting byggð- ar á höfuðborgarsvæðinu á einnig verulegan þátt í hækkun húsnæð- iskostnaðar. Útspil stjórnvalda um ýmsar að- gerðir til lækkunar húsnæðiskostn- aðar áttu sinn þátt í að liðka fyrir því að samningar næðust. Eftir er að taka afstöðu til ýmissa tillagna um úr- bætur og útfæra þær nánar, en þó er ljóst að úrbætur ríkisvaldsins snúa meir að eftirspurnarhliðinni en fram- boðshliðinni. Gera verður þá kröfu til sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu að tryggt verði nægilegt framboð á ódýrum lóðum þar sem unnt er að byggja ódýrt húsnæði. Þétting byggðar við Borgarlínu Í svæðisskipulagi höfuðborg- arsvæðisins er lögð mikil mikil áhersla á þéttingu byggðar. Einna lengst á að ganga í Reykjavík, þar sem segja má að þétting byggðar eigi að verða aðallega þar sem byggðin er þéttust fyrir, þ.e. vestan Elliðaáa. Á auðum randsvæðum höfuðborg- arsvæðisins, þar sem töluvert er af ódýru landi sem er kjörið fyrir upp- byggingu ódýrra íbúða, er hins vegar ekki gert ráð fyrir mikilli uppbygg- ingu. Ofuráhersla er lögð á þéttingu byggðar meðfram samgönguásum Borgarlínu. Til þess að þær áætlanir gangi upp þarf sums staðar að rífa eldra húsnæði og byggja í staðinn fjöl- býlishús. Í ofanálag er reiknað er með að leggja svokölluð inn- viðagjöld á nýbygg- ingar við Borgarlínu til að fjármagna hana að hluta. Þessi einstreng- ingslega þétting byggð- ar ásamt innviðagjöld- um mun leiða til enn frekari hækkunar húsnæðis- kostnaðar á höfuðborgarsvæðinu. Erlend dæmi Víða erlendis hefur verið ráðist í þéttingu byggðar meðfram mikil- vægum samgönguásum almennings- flutningakerfis í þeim tilgangi að fjölga farþegum. Yfirleitt hefur það gefið góða raun hvað varðar fjölgun farþega á viðkomandi leiðum strætó/ lesta. Þar eð höfuðborgarsvæðið er bílaborg er fróðlegt að skoða hvernig til hefur tekist í BNA, þar sem flestar borgir eru bílaborgir. Til að bregðast við síversnandi umferðarástandi hafa samgönguyfirvöld í BNA lagt aukna áherslu á almenningssamgöngur. Samhliða því hefur sums staðar verið lögð meiri áhersla á þéttingu byggðar meðfram lestarleiðum og veigamikl- um strætóleiðum. Það hefur gjarnan leitt til hærra húsnæðisverðs og telja sumir að það geti flæmt tekjulægsta fólkið yfir á randsvæði, þar sem hús- næðiskostnaður er lægri. Þá yrði eftir hlutfallslega fleira tekjuhærra fólk, sem notar síður almenningsflutn- ingakerfið. Í BNA hefur á síðustu áratugum verið lögð aukin áhersla á að hamla gegn dreifingu byggðar á borgar- svæðum. Sem dæmi má nefna að í Oregonríki eru skipulagsyfirvöld borgarsvæða skyldug að nota byggðamörk (Urban Growth Bo- undary) í svæðisskipulagi. Stærsta borgarsvæðið í Oregon er Portlands- væðið með yfir 2 milljónir íbúa. Þar virðist þétting byggðar komin úr hófi fram með þeim afleiðingum að hús- næðisskortur og hátt íbúðaverð er mjög alvarlegt vandamál. Meðalverð íbúða á svæðinu er um 43 milljónir ISK, sem er um 90% yfir landsmeð- altali fyrir BNA. Scott Beyer, blaða- maður hjá Market Urbanism Report, fjallar um þetta í grein sinni „Port- land’s Urban Growth Boundary: A Driver of Urban Sprawl“. Hann telur að markmið skipulagsyfirvalda á Portlandsvæðinu geti hæglega snúist upp í andhverfu sína, þ.e. stuðlað að aukinni dreifingu byggðar. Máli sínu til stuðnings bendir hann á að tölu- verður hluti þeirra sem vinna á Port- landsvæðinu búi utan þess, jafnvel í allt að 140 km fjarlægð frá svæðinu. Hvað er til ráða? Það er engin von til þess að opin- berir sjóðir eða lánakerfi geti til lengri tíma niðurgreitt húsnæði eða veitt húsnæðislán á hagstæðum kjör- um fyrir almenna launþega í svo miklum mæli að kaupmáttur skerðist ekki. Auk þess snúa slíkar aðgerðir að eftirspurnarhliðinni og eru tvíeggjaðar þar eð þær geta hæglega leitt til meiri eftirspurnar eftir hús- næði og þar af leiðandi til enn frekari hækkunar húsnæðiskostnaðar. Eina raunhæfa lausnin til lengri tíma er að tryggja nægilegt framboð á ódýru húsnæði á höfuðborgar- svæðinu. Til að svo megi verða þarf að breyta svæðisskipulagi höfuðborgar- svæðisins. Byggja verður í auknum mæli á jaðarsvæðum, jafnvel að ein- hverju leyti utan núverandi byggða- marka svæðisskipulags. Það er skárra en að fólk sem stundar vinnu á höf- uðborgarsvæðinu neyðist í auknum mæli til að flytja til fjarlægari sveitar- félaga á suðvesturhorninu til þess að fá húsnæði á viðráðanlegum kjörum. Gæta verður hófs við þéttingu byggðar Eftir Þórarin Hjaltason » Þessi einstrengings- lega þétting byggð- ar ásamt innviðagjöld- um mun leiða til enn frekari hækkunar hús- næðiskostnaðar á höf- uðborgarsvæðinu. Þórarinn Hjaltason Höfundur er umferðarverkfræðingur og MBA. thjaltason@gmail.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.