Morgunblaðið - 01.05.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 01.05.2019, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019 Elsku mamma, dagurinn sem ég kveið svo mikið fyrir rann upp aðfaranótt 11. apríl þegar þú kvaddir okkur. Hugur minn reik- ar aftur í tímann allt frá því að ég man fyrst eftir mér úr Kópavog- inum þar sem við litla fjölskyldan bjuggum og litla systir ekki fædd. Þú varst alltaf að kenna mér og segja mér frá um lífið á svo ógleymanlegan hátt að minning- ar mínar um þig eru mér svo ljós- lifandi enn í dag, alveg frá því að ég var fjögurra ára aldri, og er ein þeirra sú að ég sem lítill ung- ur drengur var í rimlarúmi á litla heimili okkar og átti það til að stanga rimlana úr rúminu á nótt- unni til að reyna að komast upp í heitt og notalegt rúm þitt og pabba og finna öryggið sem ég fann alltaf hjá þér, elsku mamma mín. Árið 1966 kaupa foreldrar mín- ir nýja íbúð í Árbæjarhverfinu og fæ ég mitt sérherbergi, en ennþá þótti mér gott að fá að skríða upp í rúm foreldra minna og liggja við hlið mömmu ef ég var veikur og finna væntumþykju mömmu þar sem hún leyfði mér að hjúfra mig upp að sér. Mamma var stórkost- leg kona eins og allir vita sem henni kynntust og sögðu mínir æskuvinir við mig að mamma mín væri frábær og töluðu oft við hana, enda gaf mamma sér alltaf tíma þó mikið væri að gera hjá henni. 1966 fæddist foreldrum mínum dóttir, litla systir mín, sem ég tók eiginlega að mér strax enda treysti mamma mín mér ungum syni sínum alveg 100% fyrir henni enda unnu foreldrar mínir mjög mikið en mamma var mjög atorkusöm saumakona og afkastaði á við þrjár. Foreldrar mínir unnu þá við húsgagnabólstrun og saumaskap og kom svo sá tími að þau stofn- Sigurjóna Haraldsdóttir ✝ SigurjónaHaraldsdóttir fæddist 14. desem- ber 1942. Hún lést 11. apríl 2019. Útför hennar fór fram í kyrrþey. uðu sitt eigið fyrir- tæki, Z-Húsgögn. Í mörgum frí- stundum yfir sum- artímann ferðuð- umst við fjölskyldan saman um landið og var mamma sérlega dugleg að kenna mér að þekkja nöfn staða og kennileita. Þrátt fyrir að ég, sonur hennar, færi svolítið ótroðnar slóðir í prakk- araskap sem mamma komst alltaf að þá skammaðist hún ekki í mér heldur gerði mér ljóst á sinn móð- urlega hátt að svona gerði maður ekki, útskýrði frekar fyrir mér hlutina á sinn einstaka hátt. Ég var alltaf mikill mömmustrákur og við treystum hvort öðru og átt- um margar góðar samræður okk- ar á milli í mikilli einlægni. Mamma var mér stoð og stytta og gaf mér mörg og góð ráð. Árin liðu og við upplifðum fjölmargt skemmtilegt saman, svo margar góðar og fallegar minningar sem ég mun alla tíð muna og jafnvel segja börnum mínum og barna- börnum frá. Mamma, ég sakna þín en minning mín um þig lifir með mér. Eitt langar mig að nefna sem mér finnst lýsa mömmu ein- staklega vel, hversu gegnheil hún var og gaf svo ósegjanlega mikið frá sér. Hún hugsaði alltaf fyrst um aðra áður en hún gaf sér tíma fyrir sjálfa sig. Ó, elsku mamma mín, ég sakna þín svo mikið. Að lokum vil ég senda pabba, Hallborgu systur og fjölskyldu, fjölskyldu minni, einlægar sam- úðarkveðjur nú þegar við sjáum á eftir ástkærri eiginkonu pabba, móður okkar, ömmu og lang- ömmu. Minningin lifir. Þinn sonur, Haraldur Örn Arnarson. Ég hitti fyrst tengdamömmu á haustdögum 1984 þegar ég og Haraldur byrjuðum að rugla saman reytum. Jóna var mér virkilega góð og drukkum við ófáa kaffibollana saman og var gott að tala við hana. Það var oft tekið upp tólið og hringt í Jónu, og var þá spjallað að lágmarki í klukkustund. Jóna var kona sem hélt fjöl- skyldunni saman. Alltaf kom hún hlaupandi ef eitthvað þurfti að gera og var tilbúin að hjálpa með það sem hún gat, en átti mjög erf- itt með að þiggja aðstoð sjálf. Eitt sem oft var talað um var þegar hún fór með Kristjönu átta ára í klippingu án þess að spyrja okkur og létt klippa hana stutt, einhverja tískuklippingu. Ég minnist þess ekki að hafa sagt neitt en það sauð á mér. Á seinni árum var oft talað um þetta og ég hlæ að þessu í dag, því hárið vex aftur. Jóna og Örn ásamt dóttur þeirra og maka hennar reistu sér sumarbústað í Grímsnesinu og var mikið gróðursett og alltaf var Jóna að hlúa að gróðrinum. Jóna gleymdi engum. Gestrisin var hún og tjaldaði öllu til þegar gest bar að garði, og fuglarnir fengu epli. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Takk fyrir allt elsku Jóna. Þín tengdadóttir, Björg Stígsdóttir. Elsku amma mín. Orð fá því ekki lýst hversu mikið þín er saknað. En ég er óendanlega þakklát að hafa átt þig að ömmu, þær gerast nefni- lega ekki betri og ég er svo hepp- in að fá að taka það með mér í veganesti. Ég átti nefnilega ömmu af bestu gerð, ég lærði svo margt af þér. Maður verður að sjá spaugilegu hliðina og við verð- um að hlæja. Því annars, hver er tilgangurinn? Vegna þíns óþrjótandi styrks urðu margir sigrar í þínu lífi. Mér er það mikil huggun þegar við Jóna systir komum til þín daginn áður en þú kvaddir að þú varst al- veg söm við þig, þú spjallaðir heil- mikið, brostir og tókst utan um okkur. Það skyldi engan undra að þeir sem hittu þig einu sinni, vildu hitta þig aftur. Þú varst nefnilega einstök og stórbrotin kona og ég er svo stolt að fá að kalla þig ömmu mína. Minningin um þig lifir áfram. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Ástarkveðja, Kristjana. Amma var frábær og skemmti- leg og alltaf til í fjörið og gestrisin eins og ömmu var von og vísa, gjafmild bæði við börn sín, barna- börn og eiginmanninn sinn. Eins var amma skemmtileg og stríðin. Eitt sinn fórum við, ég og amma, í bæinn og fórum út að borða. Amma gaf mér fyrsta töfradótið mitt í einni bæjarferð okkar. Við gróðursettum tré við sumar- bústaðinn hennar og afa austur í Grímsnesi. Við ferðuðumst oft saman og það var alltaf gaman. Takk fyrir allt, elsku amma, þú ert ljós gleðinnar og það er erfitt að kveðja þig. Minning mín um þig lifir alltaf. Þitt barnabarn, Atli Már. Elsku Jóna frænka mín er fall- in frá. Frá því að ég man eftir mér var Jóna alltaf til staðar. Hún var síkát, hláturmild og alltaf í góðu skapi. Hún vildi allt fyrir alla gera. Ég á yndislegar barnæsk- uminningar frá því að við syst- urnar heimsóttum þau Jónu og Örn í Dalselið. Jóna frænka átti fallegasta Sylvaniu-hús sem ég hef nokkurn tímann séð og það fóru ófáar klukkustundirnar í leik í því húsi. Alltaf fylgdi kaka og kók með heimsóknunum og ekki furða að við systurnar nutum þess að koma til Jónu frænku. Á unglingsárunum var svo hægt að nálgast tugi Vikublaða heima hjá Jónu og ég sat iðulega í sófanum og las eins mikið og ég komst yfir á meðan mamma og Jóna spjöll- uðu. Þá eru ónefndar sólríku stundirnar í sumarbústaðnum þeirra Jónu og Arnars sem við heimsóttum reglulega. Jóna frænka gekk okkur syst- kinunum í ömmustað. Hún kom Ó! Athvarf umrenningsins, inntak hjálpræðisins, líkn frá kyni til kyns. (Ómar Ragnarsson) Hún amma mín er fallin frá, þessi dugmikla og góða kona. Oft var kátt á heimili ömmu og hlátursköstin ófá. Hún kunni að gera svo skrýtin hljóð með munn- inum, enginn gat gert það betur. Þegar maður kom í Melgerðið var amma mjög fljót að finna til kaffi og rosalega gott meðlæti, – hún var búin að baka pönnsur með sykri eða þá vöfflur áður en maður vissi af. Ingibjörg Þorbergsdóttir ✝ Ingibjörg Þor-bergsdóttir fæddist 14. sept- ember 1928. Hún lést 16. apríl 2019. Útför Ingibjargar fór fram 26. apríl 2019. Amma var oftast með rúllur í hárinu og auðvitað var slæða utan um allar rúllurnar. Þegar við bjugg- um í Svíþjóð kom amma oft í heim- sókn og bjó hjá okkur. Eitt sumarið buðu amma og afi mér að koma í heim- sókn, fékk ég 10 ára að fara alein á milli landa og bjó hjá ömmu og afa sumarpart. Minningin um góða ömmu mun alltaf lifa og fylgja mér. Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla’ á fold. Þú veist, hver var skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. (Ómar Ragnarsson) Júlía Sif Guðjónsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVAVA ÁRNÝ JÓNSDÓTTIR, Baðsvöllum 7, Grindavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 20. apríl. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 3. maí klukkan 14. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Slysavarnadeildina Þórkötlu. Benóný Þórhallsson Þórhallur Ágúst Benónýsson Sigríður Fjóla Benónýsdóttir Hólmar Már Gunnlaugsson Berglind Benónýsdóttir Ómar Davíð Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HREINN SUMARLIÐASON kaupmaður og fv. formaður Félags matvörukaupmanna, Erluhólum 5, lést á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð, Borgarnesi, 16. apríl. Útför hans fer fram í Áskirkju föstudaginn 3. maí klukkan 13. Sigurlína Hreinsdóttir Ágústa Hreinsdóttir Sigurður Ómar Sigurðsson Jóna Magga Hreinsdóttir Elvar Ólafsson barnabörn og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, BRYNJA EDDA JÓHANNESDÓTTIR JENSEN, fyrrverandi húsfreyja á Rauðavík á Árskógsströnd, lést mánudaginn 23. apríl á Hrafnistu í Reykjavík. Jarðsett verður frá Stærri-Árskógskirkju laugardaginn 4. maí klukkan 11. Valgerður Sólrún Sigfúsd. Sveinn Gunnlaugsson Hjalti Örn Sigfússon Aðalheiður Helgadóttir Jóhannes Sigfússon Katrín Steinsdóttir Brynjar Haukur Sigfússon Svanhildur Sigfúsdóttir Aðalsteinn Svanur Sigfússon Signý Sigurðardóttir Aðalheiður Ósk Sigfúsdóttir Lúðvík Áskelsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, systir, amma og langamma, LILJA GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR, Þorfinnsgötu 2, lést miðvikudaginn 24. apríl á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útför hennar fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 8. maí klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin, kt. 580690-2389, banki 0515-26-24303. Steinþór Ingvarsson Sigurður I. Steinþórsson Gunnar Steinþórsson Ágústa Valdimarsdóttir Jónas Sigurðarson Þóranna Pálsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, sonur, stjúpsonur, bróðir og mágur, GÍSLI BIRGISSON, lést á heimili sínu miðvikudaginn 24. apríl. Útför hans fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 7. maí klukkan 13. Arnór Blær, Sóley Bára, Aron Darri Guðfinna Gísladóttir Birgir Georgsson Dong Qing Guan Jóhann Birgisson Georg Birgisson Viktor Blær Birgisson Steindór G. Corrigan Marica Corrigan Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, INGEBURG GUÐMUNDSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður til heimilis að Austurvegi 16, Grindavík, lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Hafnarfirði, sunnudaginn 28. apríl. Útför hennar fer fram frá Grindavíkurkirkju mánudaginn 13. maí klukkan 14. Guðmundur Karl Tómasson Kristrún Bragadóttir Haraldur Tómasson Guðný Birna Sæmundsdóttir Róbert Tómasson Linda B. Guðmundsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, RAGNHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, íbúi á Kirkjuhvoli, Hvolsvelli, áður Kotmúla, Fljótshlíð, lést á dvalarheimilinu Kirkjuhvoli fimmtudaginn 25. apríl. Útför fer fram frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð laugardaginn 4. maí klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á dvalarheimilið Kirkjuhvol. Sigríður I. Magnúsdóttir Jón Þ. Óskarsson Guðmundur Magnússon Helga Pálsdóttir Einar Magnússon Benedikta Steingrímsdóttir Hanna Magnúsdóttir Bjarni S. Hjálmtýsson og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, VIGDÍS GUÐFINNSDÓTTIR, lést á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 26. apríl. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 9. maí klukkan 15. Marta Loftsdóttir Gunnar Jóhannsson Svava Loftsdóttir Ásmundur Kristinsson Pétur Guðfinnsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.