Morgunblaðið - 01.05.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 01.05.2019, Síða 22
22 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019 Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is fyrir heimilið VifturHitarar LofthreinsitækiRakatæki 60 ára Guðrún er Reykvíkingur, er með cand.mag. próf í ís- lensku og varði dokt- orsritgerð sína í ís- lenskum bókmenntum árið 2011. Hún er sjálf- stætt starfandi fræði- maður og gaf út bókina Á hverju liggja ekki vorar göfugu kerlingar, árið 2016. Maki: Eiríkur Rögnvaldsson, f. 1955, pró- fessor emeritus. Sonur: Ingólfur Eiríksson, f. 1994. Foreldrar: Ingólfur Pálmason, f. 1917, d. 1987, lektor í íslensku við Kennarahá- skólann, og Hulda Gunnarsdóttir, f. 1917, d. 2014, vaktkona á Kleppsspítala. Þau voru búsett í Reykjavík. Guðrún Ingólfsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Málin hafa þróast þannig að þú ert með puttann í næstum hverju sem er á þín- um vinnustað. Einhver gefur þér undir fót- inn. 20. apríl - 20. maí  Naut Við viljum öll stýra því hvernig aðrir sjá okkur, en sjálfsþekking er trúlega eina stjórntæki okkar. Þú færð fréttir sem koma flatt upp á þig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er ekki um annað að ræða en byrja á verkefni, þótt þú berir einhvern kvíð- boga fyrir því. Einhver fer undan í flæmingi við spurningar frá þér. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að leysa fjárhagslega flækju sem upp hefur komið. Allt sem þú lætur yfir þig ganga en er ekki viðunandi dregur þig smám saman niður. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Einhver náinn gæti veitt þér góð ráð um ástarsambönd. Andstæðingar þínir munu gefast upp og þá stendur þú uppi með pálmann í höndunum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er ástæðulaust að láta smá- munina vefjast fyrir sér. Mundu að fjöl- skyldan fer ekki neitt, því er best að láta sér lynda við hina. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er gott að hafa stjórn á öllum hlut- um en nauðsynlegt að vita hvenær maður á að sleppa hendinni af öðrum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú tekur það upp hjá þér að vera í forsvari fyrir verkefni sem þú veist ekkert um. Þú ert með hjartað í buxunum en þetta mun allt fara vel. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Kláraðu það sem þú hefur frestað, þannig færð þú svigrúm til þess að hleypa meiri spennu í líf þitt. Vertu viss um að allir fái það sem þeim ber. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þið ættuð ekki að láta aðra kúga ykkur til að gera eitthvað sem ykkur er þvert um geð. Í einkalífinu mun vinur koma þér til hjálpar með ferskum hugmyndum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er nánast ekki hægt að standast freistinguna að eyða peningum í dag, gættu samt hófs. Nú er að hrökkva eða stökkva í ástamálunum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þetta er góður dagur til þess að gera ferðaáætlanir með félaga eða maka. Nýttu frítímann til listsköpunar, í starf með börnum eða bara til að skemmta þér. Gestsdóttir, f. 5. janúar 1881, d. 13. september 1954, húsfreyja á Siglu- nesi. Marta og Gísli Gíslason voru bræðrabörn. Börn Mörtu og Gísla: 1) Gunnar Hólm Gíslason, f. 31. maí 1938, d. 1. febrúar 1939; 2) Guðrún Helga Gísladóttir, f. 17. júlí 1940, sjúkra- liði, búsett á Melum á Kjalarnesi; 3) Fjölskylda Eiginmaður Mörtu var Gísli Gíslason, f. 9. maí 1910, d. 17. maí 2001, bóndi í Fit og á Hreggsstöðum á Barðaströnd. Foreldrar hans voru hjónin Gísli Marteinsson, f. 28. ágúst 1887, d. 2. október 1969, bóndi á Siglunesi á Barðaströnd, og Guðný M arta Þórðardóttir fæddist 1. maí 1918 í Fit á Barðaströnd og ólst þar upp, hún átti 12 systkini og var hún 6. í röðinni en þau eru öll fallin frá, mörg þeirra langt fyrir aldur fram. Marta og Gísli maðurinn hennar hófu búskap í Fit árið 1946. Fyrir utan hefðbundinn búskap sótti Gísli björg í bú á sjóinn, veiddi fisk og stundaði töluvert selveiðar. Árið 1968 brann bærinn í Fit og engu hægt að bjarga. Það sumar árið 1968, bjuggu þau í pínulitlum vega- vinnuskúr og fengu tjald hjá Vega- gerðinni og var þá oft mikil þröng á þingi. Keyptu þau Hreggsstaði það sama ár en tveimur árum seinna varð aftur húsbruni. Kom sprenging í miðstöðina og húsið brann um haustið 1970. En þau gáfust ekki upp og var allt endurbyggt og þá flutti öll fjölskyldan aftur í litla vegavinnuskúrinn og rétt fyrir jólin það ár var flutt í húsið sem var reist. Nokkur ár vann Marta við að salta grásleppuhrogn í sveitinni og vann í Sláturhúsinu í Stykkishólmi á haustin í nokkur ár og hélt þá til hjá Guðnýju dóttur sinni . Þau hjónin, Marta og Gísli voru ráðsmenn í Stóra-Langadal á Skóg- arströnd einn vetur og þá var hún farin að missa mjög mikið sjón en sá um alla eldamennsku og þrif með sóma. Marta hefur verið alveg blind í yfir 27 ár en prjónar sokka eins og enginn sé morgundagurinn. Þau fluttu til Patreksfjarðar 1997 í litla húsið sem Elli bróðir hennar gaf henni. Þau höfðu samt ávallt að- setur á Hreggsstöðum á sumrin, staðurinn var þeim svo kær þrátt fyrir að þau væru hætt hefð- bundnum búskap. Marta bjó alein í sjö ár í litla hús- inu sínu á Patreksfirði eftir að mað- urinn hennar lést og eldaði sjálf og þvoði þvott og sá um heimilið að öllu leyti. Hún fór á Dvalarheimilið í Stykkishólmi árið 2007. Marta er léttlynd og mikill grín- isti sem endurspeglar hennar háa aldur. Það geislar af Mörtu, seiglan og dugnaðurinn í henni er mikill og hún gleður marga með söng sínum. Marteinn Ólafur Þórður Gíslason, f. 7. febrúar 1943, sjómaður, búsettur í Ólafsvík: 4) Ingibjörg Lilja Gísla- dóttir, f. 26. desember 1948, hús- freyja, búsett í Stykkishólmi; 5) Aðalsteinn Gísli Þórarinn Gíslason, f. 12. maí 1953, sjómaður, búsettur í Garði; 6) Guðný Vilborg Gísladóttir, f. 25. febrúar 1958, kokkur, búsett í Marta Þórðardóttir, fyrrverandi bóndakona með meiru – 101 árs Fjölskyldan Marta og Gísli ásamt börnum sínum heima í stofunni í Fit árið 1965. Léttlynd og mikill grínisti Hjónin Gísli Gíslason og Marta Þórðardóttir eftir Grænlandsför árið 1985.101 árs Mynd tekin um síðustu helgi. 50 ára Díana ólst upp á Selfossi en býr í Reykjavík. Hún er stíl- isti og sölufulltrúi Vogue fyrir heimilið – húsgagnaverslun. Hún lærði sölusálfræði hjá Gucci á Ítalíu og hefur þjálfað starfsfólk Gucci um alla Evrópu. Börn: Árni Heimir Ingvarsson, f. 1987, Mikael Þór Árnason, f. 2010, og Hera Rut Árnadóttir, f. 2014. Systkini: Guðmundur Árni, f. 1957, og Sólveig Svava, f. 1959. Foreldrar: Bjarni Ævar Árnason, f. 1939, d. 1980, tækniteiknari, og Lóa Guð- mundsdóttir, f. 1940, fv. tryggingasölu- fulltrúi hjá Sjóvá, búsett á Selfossi. Díana Bjarnadóttir Til hamingju með daginn Hveragerði Hagalín Smári Halldórsson fæddist 27. ágúst 2018 kl. 9.25. Hann vó 3.586 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Thelma Lind Guðmundsdóttir og Halldór Smárason. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.