Morgunblaðið - 01.05.2019, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 01.05.2019, Qupperneq 23
DAGBÓK 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019 Borgarnesi; 7) Árdís Lára Gísladótt- ir, f. 4. júní 1963, liðstjóri í skóla, bú- sett í Njarðvík. Barnabörn Mörtu eru 21, barnabarnabörn eru 39 og barnabarnabarnabörn eru 5. Systkini Mörtu voru Marteinn Ólafur Þórðarson, f. 10. apríl 1904, d. 17. apríl 1904; Ólafía Ástríður Þórðardóttir, f. 22. júlí 1907, d. 18. maí 1993; Guðrún Elísa Þórð- ardóttir, f. 8. apríl 1908, d. 2. mars 1982; Gísli Þórðarson, f. 14. apríl 1910, d. 3. september 1948; Aðal- steinn Þórðarson, f. 3. ágúst 1912, d. 27. apríl 1945; Lilja Sigurrós Þórðardóttir, f. 17. ágúst 1915, d. 11. nóvember 1945; Lára Þórðardóttir, f. 30. júní 1919, d. 22. nóvember 1955; Elías Þórðarson, f. 7. október 1921, 11. desember 2000; Kristján Hákon Þórðarson, f. 1. desember 1922, d. 14. desember 1975; Þór- arinn Fjeldsted Þórðarson, f. 15. desember 1923, d. 27. júlí 1951; Ár- dís Þórðardóttir, f. 27. desember 1924, 15. janúar 1925. Foreldrar Mörtu voru hjónin Þórður Valdimar Marteinsson, f. 1. maí 1879, d. 7. maí 1929, bóndi í Fit á Barðaströnd, og Ólafía Ingibjörg Elíasdóttir, f. 26. september 1885, d. 1. ágúst 1970, húsfreyja í Fit. Marta Þórðardóttir Valgerður Jónsdóttir húsfreyja á Efra-Vaðli Jón Einarsson bóndi á Efra-Vaðli á Barðaströnd Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Skriðnafelli Ólafía Ingibjörg Elíasdóttir húsfreyja í Fit Elías Ólafsson bóndi á Skriðnafelli Guðrún Bjarnadóttir húsfreyja í Ytri-Múla og á Skriðnafelli Ólafur Bjarnason bóndi í Ytri-Múla og á Skriðnafelli á Barðaströnd ón Guðbjartur Elíasson bóndi á Skriðnafelli JValgerður ElinborgJónsdóttir húsfreyja á Skriðnafelli Guðrún Þórðardóttir húsfreyja á Patreksfirði, í Flatey og Kópavogi Nói Alexander Marteinsson fv. bifreiðarstjóri, búsettur á Örkinni í Tálknafirði Þórður Marteinsson bóndi í Holti á Barðaströnd Halldóra Gísladóttir húsfreyja á Klúku og í Trostansfirði Þórður Sigurðarson bóndi á Klúku í Fífilstaðadal og í Trostansfirði, V-Barð. Ólafía Ástríður Þórðardóttir húsfreyja á Grænhóli Friðgerður Marteinsdóttir úsfreyja á Skjaldvararfossi á Barðaströnd h Gunnar Guðmundsson bóndi á Skjaldvararfossi Marteinn Erlendsson bóndi á Grænhóli á Barðaströnd Valgerður Jónsdóttir húsfreyja á Hamri, síðar í Haga á Barðaströnd Erlendur Runólfsson bóndi á Hamri á Barðaströnd Úr frændgarði Mörtu Þórðardóttur Þórður Valdimar Marteinsson bóndi í Fit á Barðaströnd skoðið úrvalið á facebook 20% afsláttur 1.-5. maí Sumarglaðningur ÁLNAVÖRUBÚÐINNI HVERAGERÐI 1.-5. maí 20% afsláttur af öllum vörum nema lopa og leikföngum Þú getur pantað í gegnum Facebook síðu okkar og fengið sent hvert á land sem er. Opið: mánudaga -laugardaga frá 10 - 18 sunnudaga frá 11 - 17 OPIÐ Í DAG 1. maí frá kl. 10-18 „ER EKKI NÓGU AUÐMÝKJANDI AÐ LÁTA ÖRYGGISVERÐINA FYLGJA HONUM ÚT?” „VIÐ SKULUM BYRJA AFTUR FRÁ ÞEIM STAÐ ÞEGAR ÉG SAGÐI „FÁÐU ÞÉR SÆTI”.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... litlir snúðar og sætabrauð. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG ER SJÁLFS MÍNS HERRA ÉG GAF SJÁLFUM MÉR FRÍ Í DAG KLUKKAN ER ORÐIN MARGT … FRÖKEN, VILTU FYLGD HEIM? VISSULEGA! ER LANGT HEIM TIL ÞÍN? HJÁLP! Davíð Hjálmar í Davíðshaga seg-ir frá því á Leir á sunnudag að hann hafi gengið upp í Hlíðarfjall, – það var sól og hlýtt og fuglarnir sungu. Sólin hátt í heiði brann, hlógu söngvaþrestir. Af mér flot og fita rann; fjórar brúttólestir. Sigmundur Benediktsson yrkir „Litla sumarvísu“ og segir gaman að rifja upp hagkveðlingaháttinn: Signir beðin sólin rjóð sumri léði geislaflóð, magna gleði lífsins ljóð Lóan kveður dýrðaróð. Hér er „Óður til ættjarðarinnar“ eftir Ingólf Ómar og skýrir hann tilurð kvæðisins þannig: „Nú þegar allt er að vakna til lífsins og vorið er loksins komið finnst mér tilvalið að kveða óð til ættjarðarinnar:“ Ég elska þig og tigna foldin fríð fjöllin þín og dali, byggð og heiðar, og gróðurlag sem prýðir holt og hlíð og hraunið grátt og jökulþústir breiðar. Blessuð sértu fold um ár og aldir og auðgist lýði gengi trú og þor, svo þínum frama tryggð og hagsæld haldir þá hlotnast oss að feta gæfuspor. Umferðin í Reykjavík varð Gústa Mar að yrkisefni þar sem hann ók Sæbraut/Reykjanesbraut á leið í Hafnarfjörð: Sveitamaður ekur um illa þetta fílar. Áfram gana á götunum geðveikt margir bílar. Ráðvillt fólkið æðir um er að fara á taugunum. Stjórnlaust ger á götunum glatað hefur sönsunum. Í umferðinni er ég strand angri helst vil gleyma. „Nú er horfið Norðurland nú á ég hvergi heima.“ Sigmundur Benediktsson sagðist skilja Gústa Mar mjög vel: Óttinn við brenglaða ökumenn rís og allir þar virðast á glóðum. Í dóphausaborginni dauðinn er vís og drífðu þig burt af þeim slóðum! Og að lokum gamall húsgangur: Mér er illt í mínum haus, mest af þreytu og lúa. Maður enginn mæðulaus má í heimi búa. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Söngvaþrestir og umferðin í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.