Morgunblaðið - 01.05.2019, Page 25
VALUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Valur tryggði sér á sunnudaginn sig-
ur á Íslandsmóti kvenna í hand-
knattleik í sautjánda skipti þegar
liðið lagði fráfarandi Íslandsmeist-
ara í Fram að velli á Hlíðarenda.
Valur sigraði 3:0 í úrslitarimmunni
sem var stærri sigur en flestir
bjuggust við enda Fram-liðið ekki
árennilegt með fjölda landsliðs-
kvenna og sigursælan þjálfara. Á
einum áratug hefur Valsliðið fimm
sinnum orðið Íslandsmeistari en þó
voru liðin fimm ár frá síðasta sigri
þess á Íslandsmótinu.
Valur lét ekki nægja að vinna Ís-
landsmótið heldur varð einnig deild-
ar- og bikarmeistari. Ekki er því
neinn vafi á því að liðið var það
sterkasta á Íslandi í vetur. Í fyrra
komst liðið í úrslitarimmuna en tap-
aði þá fyrir Fram eftir spennandi
rimmu. Síðasta áratuginn hafa þessi
Reykjavíkurlið mæst hvað eftir ann-
að í úrslitum. Sigur Fram í fyrra var
sá eini í þessum rimmum en Valur
vann allar hinar úrslitarimmurnar á
móti Fram.
Skömmu eftir að Íslandsmótinu í
fyrra lauk samdi Valur við þær
Lovísu Thompson, Söndru Erlings-
dóttur, Írisi Björk Símonardóttur og
Alinu Molkovu. Greinilegt var að
Valur ætlaði sér að gera betur en lið-
ið missti á hinn bóginn Díönu Sat-
kauskaite og Línu Melvik Rypdal.
Þjálfarinn Ágúst Jóhannsson var þó
snemma kominn með í hendurnar
þann leikmannahóp sem hann vildi
hafa.
Sá sjöundi hjá Önnu
Í liði Vals eru þrír leikmenn sem
fengu sitt handboltauppeldi í Gróttu
og voru í stórum hlutverkum þegar
Grótta sigraði tvö ár í röð, 2015 og
2016. Markvörðurinn Íris Björk
Símonardóttir sem reyndist Val vel í
vetur, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir
sem áður hefur unnið þrefalt með
Val og Lovísa Thompson.
Sú síðastnefnda fagnaði sínum
þriðja Íslandsmeistaratitli í meist-
araflokki þótt hún sé einungis tvítug
að aldri. Rétt er að taka fram að hún
hefur átt stóran þátt í öllum þeim
sigrum og skoraði eftirminnilegt sig-
urmark Íslandsmótsins fyrir Gróttu
aðeins 15 ára gömul árið 2015. Ferill
Lovísu í meistaraflokki hefur farið
af stað með þeim hætti að nú styttist
væntanlega í að hún reyni fyrir sér
erlendis. Standi hugur hennar til
þess á annað borð.
Anna Úrsúla hefur verið afar sig-
ursæl á þessum áratug bæði með Val
og Gróttu. Varð hún nú Íslands-
meistari í meistaraflokki í sjöunda
skipti og í fimmta skipti með Val.
Anna var í firnasterku Valsliði með
Hrafnhildi Skúladóttur og fleiri
kempum áður en hún fór aftur í upp-
eldisfélag sitt á Seltjarnarnesinu
eins og áður var komið inn á. Var
hún hjá Val 2010-2014 og gekk aftur
í raðir félagsins í janúar 2018.
Anna var geysilega mikilvæg fyrir
miðju í sterkri vörn Valsliðsins í vet-
ur. Vörn sem tókst að halda vel aftur
af landsliðskonunum í Fram í úr-
slitarimmunni. Valur lagði grunninn
að sigrinum í úrslitarimmunni með
sterkum varnarleik og fyrir aftan
stóð Íris með alla sína reynslu. Oftar
en einu sinni minntust leikmenn
Fram á Írisi í viðtölum sem segir
nokkuð um hennar nærveru á vell-
inum. Íris var síðasta púslið í púslu-
spilinu en hún hafði tekið sér frí frá
handboltanum. Hún er ekki nema 31
árs gömul sem er enginn aldur fyrir
markvörð.
Sá fyrsti hjá Ágústi
Ágúst Jóhannsson hefur sett svip
sinn á handboltaíþróttina hérlendis
um langa hríð. Af þeim sökum kann
það að hafa komið einhverjum á
óvart að titillinn var hans fyrsti Ís-
landsmeistaratitill sem þjálfari. Þeg-
ar Valur varð bikarmeistari í vetur
þá var það fyrsti bikarmeistaratitill
Ágústs í nítján ár. Gerði hann
kvennalið Vals að bikarmeisturum
nokkuð óvænt árið 2000. Þá 23 ára
gamall.
Lið sem spila öfluga vörn í hand-
knattleik eiga ávallt möguleika.
Ágúst skipulagði mjög góða vörn hjá
Valsliðinu eins og áður segir þar sem
Anna og Gerður Arinbjarnar voru
gjarnan fyrir miðju. Hildur Björns-
dóttir, Lovísa og Díana Dögg Magn-
úsdóttir eru einnig góðir varn-
armenn. Segja má að sú
síðastnefnda hafi sprungið út hjá Val
bæði í vörn og sókn.
Valur var með góða blöndu leik-
manna. Anna, Íris Björk og Íris Ásta
Pétursdóttir kunna allar að vinna
titla og studdu því vel við öfluga
unga leikmenn eins og Lovísu,
Söndru, Díönu og Ragnhildi Eddu
Þórðardóttur sem allar eiga sjálf-
sagt eftir að spila marga landsleiki
með tíð og tíma.
Valsliðið var sannfærandi í allan
vetur og tapaði aðeins þremur leikj-
um af tuttugu og einum í deilda-
keppninni. Allir tapleikirnir voru
gegn Fram og fyrir úrslitarimmuna
var því spurning hvernig Valsliðið
kæmi út á móti Framliðinu. En Vals-
konur sneru taflinu við í úr-
slitarimmunni og unnu alla þrjá leik-
ina gegn Fram.
Sá fimmti hjá Val
síðasta áratuginn
Óhemjusterkt varnarlið Góð blanda yngri og reyndari leikmanna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigursælar Valskonurnar Íris Ásta Pétursdóttir og Hildur Björnsdóttir lyfta Íslandsbikarnum á Hlíðarenda.
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019
Opið virka daga 10.00-18.15, laugardaga 11.00-14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | Sími 588 8686
Gómsætir og girnilegir réttir
í fiskborði beint í ofninn
Glæný stórlúða
Glæný smálúða
Stór humar
Túnfiskur
Klausturbleikja
Humarsúpa
Ef ævintýri ÍR-inga lýkur með
því að liðið landi Íslandsmeist-
aratitlinum í körfubolta í fyrsta
sinn í 42 ár munu eflaust ein-
hverjir KR-ingar benda á og rifja
upp dómaramistökin í lok þriðja
leiks í fyrrakvöld. Mistök dómara
og leikmanna eru nánast óhjá-
kvæmilegur hluti af íþróttum en
mistök í lok mikilvægra leikja
gleymast síður.
Það er alveg ljóst að Helgi
Már Magnússon átti að fá að
taka tvö vítaskot í lok venjulegs
leiktíma eftir að brotið var á hon-
um. Það sem mönnum finnst
kannski sárast við ranga nið-
urstöðu í þessu máli er sú stað-
reynd að myndbandstækni var
notuð. Frábær dómari kemst að
þeirri niðurstöðu að breyta rétt-
um dómi í rangan.
Mjög svipað atvik varð í und-
anúrslitum bikarkeppninnar í
handbolta karla í mars, þegar
rangur dómur varð niðurstaðan
eftir myndbandsáhorf dómara
sem hjálpaði Val að komast í
framlengingu gegn Fjölni, þar
sem Valur vann svo sigur.
Ég held að mörgum Fjöln-
ismönnum hafi þá liðið eins og
þar hafi bitnað á þeim að vera
„litla“ liðið gegn stórveldinu. Það
er þá kannski einhver huggun
fólgin í því að sjá stórveldi KR,
sigurvegara Íslandsmótsins síð-
ustu fimm ár í röð, lenda í sams
konar mótlæti.
Auðvitað er málið einfaldlega
það að jafnvel bestu menn geta
gert mistök. Sérstaklega þegar
púlsinn er í hæstu hæðum. Ef
dómarar spenntust ekki upp eins
og aðrir þegar komið væri að ög-
urstundu í háspennuleikjum væri
það vegna þess að þeir hefðu
ekki áhuga á íþróttinni. Ef þeir
hefðu ekki áhuga væru þeir ekki
að dæma, og þá væri lítið gaman
að þessu. Svona mistök eru samt
grafalvarleg.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Grindavík, Þróttur úr Reykjavík, Njarðvík, Fjölnir og
Keflavík tryggðu sér í gærkvöld sæti í 16-liða úrslitum
Mjólkurbikars karla í knattspyrnu. Stefán Birgir Jó-
hannesson skoraði tvö marka Njarðvíkur sem vann
Fram 3:1 í framlengdum leik í Safamýri og Aron Jó-
hannsson gerði tvö marka Grindavíkur í 4:1 sigri á Aft-
ureldingu. Keflavík vann nauman sigur á 3. deildar liði
Kórdrengja, 1:0, og Guðmundur Karl Guðmundsson
skoraði tvívegis fyrir Fjölni í 3:1 sigri á ÍR. Í dag lýkur
32ja liða úrslitunum með tíu leikjum og þar ber hæst við-
ureign Vals og FH á Hlíðarenda klukkan 16.30. ÍBV tek-
ur á móti Stjörnunni í öðrum úrvalsdeildarslag. vs@mbl.is
Naumur sigur Keflvíkinga
Guðmundur Karl
Guðmundsson