Morgunblaðið - 01.05.2019, Síða 28

Morgunblaðið - 01.05.2019, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019 Viðbrögð við kjöri DonaldsTrumps í embætti Banda-ríkjaforseta hafa veriðmargvísleg. Í þeim kimum heimsins sem flokkast sem frjáls- lyndir og lýðræðissinnaðir, eða bara rétt vinstra megin við fasisma, hafa tveir þræðir verið mest áberandi: furðublandin skelfing og dálítið óöruggur hæðnishlátur. Sjónvarps- grínistar í Bandaríkjunum eru flest- ir hverjir algerlega helteknir af að sýna, greina og hæða nokkurn veg- inn allt sem forsetinn segir og gerir. Leikhúsin fengu endurnýjaðan áhuga á harmleik Shakespeares um uppgang harðstjórans Júlíusar Ses- ars, sem sum þeirra settu hreinlega í blá jakkaföt, of langt rautt háls- bindi og hæpna ljósa hárkollu. En auðvitað er svoleiðis leikur að hlið- stæðum dæmdur til að missa marks að miklu leyti. Shakespeare var ekki að skrifa um Donald Trump. Hann var varla einu sinni að skrifa um Júlíus Sesar. Hvað getur „alvöru“ leikhús lagt til málanna? Svar Mariusar von Mayenburg var Bæng!, sem frumsýnt var á Schaubühne í Berlín fyrir tveimur árum, og höfundurinn lýsir sem „of- næmisviðbrögðum“ eftir þessa óvæntu en mögulega fyrirsjáanlegu vendingu í alþjóðastjórnmálum. Þar er sagt frá uppvexti og framgangi skrímslisins Hrólfs Bæng, frá því hann sprettur nánast alskapaður og vel tenntur úr móðurkviði eftir að hafa kyrkt tvíburasystur sína ófædda, hvernig hann elst upp í skjóli velmeinandi, frjálslyndra og ofurmeðvitaðra millistéttarforeldra og ræktar allar sínar illu eðlisgáfur og siðblindu í skjóli hins nytsama sakleysis sem ríkir á þeim bænum. Von Mayenburg sýnir okkur líka hvað hinn siðmenntaði og friðelsk- andi lífsmáti herra og frú Bæng er þunn himna utan um dýrslegt eðlið, sem býr bæði í blóðugri nánustu fortíð fjölskyldunnar og velþóknun þeirra hjóna yfir baráttuvilja ung- barnsins á leikvellinum. Að því leyti er sögn verksins á svipuðu róli og réttlætingarræður Hrólfs sjálfs fyr- ir framferði sínu: svona erum við. Í þeim er líka að finna bitastæðasta innlegg von Mayenburg til grein- ingarvinnunnar varðandi stöðu mála í heiminum og vegferðina fram undan: hvað óþol okkar fyrir leið- indum og kyrrstöðu er mikilvægur og vanmetinn drifkraftur í mannlíf- inu. Nokkuð sem birtist í óseðjandi lyst okkar á blóðugum morðsögum og fréttum af viðbjóðslegu ofbeldi gegn börnum. Líka t.d. í einbeittum vilja fjölmiðlafólks til að fá vísinda- menn til að spá eldgosum og öðrum hamförum. Og svo auðvitað í kjör- þokka fólks á borð við Bolsonaro, Le Pen og Trump. Fyrir utan þessa forvitnilegu þanka verður að segjast að rann- sókn höfundar og framsetning efn- isins í verkinu nær ekki að varpa miklu eða nýstárlegu ljósi á við- fangsefnið. Von Mayenburg er vissulega flinkur höfundur, öruggur í því lausbeislaða formi sem hand- ritaskrif fyrir listrænt þenkjandi leikhús nútímans gerir ráð fyrir. Gréta Kristín Ómarsdóttir er líka á heimavelli í þessari hefð. Þannig eru bæði samskipti við áhorfendur, ferðalög í tíma og rúmi og stökk leikaranna út úr hlutverkum sínum og inn í raunheiminn lipur, eðlileg og þjóna tilgangi sínum. En frumleg og ögrandi eru þessi stílbrögð ekki lengur, frekar en notkun míkrófóna og kvikmyndavéla. Fyrir fastagesti leikhúsanna undanfarin ár er þetta orðið næsta fyrirsjáanlegt. En þrátt fyrir færni höfundar og þokkalega skemmtun lengst af (lop- inn er teygður til hins ýtrasta þessa tvo og hálfan tíma) er Bæng! ófull- nægjandi sýning. Hún sannfærði allavega ekki þann sem þetta skrif- ar um gagnsemi þess að skoða póli- tískar ógnir samtímans með einföld- unaraðferðum dæmisögunnar og frumlitakassa barnaleikritanna að vopni. Það að velmeinandi veimil- títur í Prenzlauer Berg veiti fórnar- lömbum heimilisofbeldis skjól í kjallaranum hjá sér, og fasíska frumsjálfið sem þau ala við brjóst sér vilji þau burt, varpar engu ljósi á flóttamannavandann eða uppgang útlendingaandúðar í Evrópu, sem virðist vera hliðstæðan sem von Mayenburg er að draga fram. Hálf- tíma könnunarleiðangur um athugasemdakerfin er mun gagn- legri. Björn Thors er Hrólfur Bæng. Það eru gleðitíðindi að nú virðist Björn vera búinn að leggja Kenneth Mána endanlega til hvílu, hvort sem það voru nú leiktaktar hans eða leikhúsminni mitt sem héldu svona lengi í honum lífinu. Björn er oft og iðulega bráðfyndinn hér, aldrei beinlínis ógnvekjandi samt. Sá kæk- ur hans að þagna í miðjum setn- ingum dró mjög úr slagkrafti text- ans, hvort sem um var að kenna óöryggi með hann eða misráðinni tilraun til að gefa honum raunsæis- legra yfirbragð. Sem er engin ástæða til, svo mjög sem stílbrögð textans benda í aðrar áttir. Þeirra fremst hinar löngu og bráðfyndnu stuðluðu romsur sem faðirinn datt inn í þegar hann komst í geðshrær- ingu. Vel útfærðar hjá þýðandanum Hafliða Arngrímssyni og leika Hirti Jóhanni Jónssyni á tungu. Þau Brynhildur Guðjónsdóttir eru bráðskemmtileg sem foreldr- arnir lánlausu. Hjörtur fyndnastur þegar þolgæði mjúka mannsins er ögrað og Brynhildur í afbrýðisem- inni út í hina kynæsandi barnfóstru. Sú er túlkuð af Katrínu Halldóru Sigurðardóttur, ein af fjórum kon- um sem hún smíðar í sýningunni og hafa allar skýrt svipmót, eftirminni- legust sennilega hin kúgaða Ússí í næsta húsi. Eiginmaður hennar, of- beldishrottinn Reynir, er síðan ein af rullum Halldórs Gylfasonar sem einnig fá allar afgerandi svip, eru hver annarri sannari og fyndnari hjá þessum flinka týpusmið. Það kemur svo í hlut Davíðs Þórs Katr- ínarsonar að vera hinn frekar svip- lausi kamerumaður og verða svolít- ið utanveltu í stuðinu, en gerir sitt vel. Einkum í dálítið sjokkerandi at- riði þar sem hann og frú Bæng hyggjast fá Ússí til að „stíga fram“ og afhjúpa ummerki heimilisofbeld- isins, sem reynast vandræðalega lítilfjörleg í það sinnið. Christopher Ian Astridge sýning- arstjóri er síðan sýnilegur og ósýni- legur eftir þörfum, og stelur sen- unni smá með fiðluleik þegar mikið liggur við. Tónlistarval og útfærsla Garðars Borgþórssonar er með ágætum. Eva Signý Berger gerir búninga sem eru meira og minna hárréttir á natúralískum forsendum og hjálpa við að jarðtengja galskap- inn. Leikmynd Barkar Jónssonar er smart verk með ótal möguleikum sem eru vel nýttir í flæðandi og lip- urri sviðsetningu Grétu Kristínar. Lýsing Kjartans Þórissonar fín. Vandi sýningarinnar liggur fyrst og fremst í verkinu, eða kannski í þunglamalegu eðli leikhússins sjálfs, og viðbragðssnerpu þess. Sem innlegg í umræðu um kjör Trumps, uppgang andverðleika- stjórnmála og lýðskrum úr öfga- hægriáttinni er það hvorki nógu snjallt né fyndið. Það býður heldur ekki upp á óvænta, spennandi eða gagnlega greiningu. Það má auðvit- að hafa dálítið gaman af yfirgengi- leika Hrólfs Bæng og hlæja kulda- hlátri að vanmætti velmeinandi en villuráfandi nærsamfélagsins. En það er brandari sem allir eru búnir að vera að segja, oft betur, í síbylj- unni frá því Marius von Mayenburg ýtti öðru til hliðar til að skoða ástand heimsins síðla árs 2016. Skrímslafræði fyrir byrjendur Ljósmynd/Grímur Bjarnason Yfirgengileiki „Það má auðvitað hafa dálítið gaman af yfirgengileika Hrólfs Bæng,“ segir í rýni um uppfærsluna á Bæng! í Borgarleikhúsinu. Borgarleikhúsið Bæng! bbbnn Eftir Marius von Mayenburg. Íslensk þýðing: Hafliði Arngrímsson. Leikstjórn: Gréta Kristín Ómarsdóttir. Leikmynd: Börkur Jónsson. Búningar: Eva Signý Berger. Lýsing: Kjartan Þórisson. Tónlist og hljóð: Garðar Borgþórsson. Mynd- band: Ingi Bekk. Leikgervi: Elín S. Gísla- dóttir. Sýningarstjóri: Christopher Ian Astridge. Leikarar: Björn Thors, Bryn- hildur Guðjónsdóttir, Davíð Þór Katrínarson, Halldór Gylfason, Hjörtur Jóhann Jónsson og Katrín Halldóra Sigurðardóttir. Frumsýning á Nýja sviði Borgarleikhússins 26. apríl 2019. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur sem hámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Tilvalinn með á völlinn í sumar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.