Morgunblaðið - 01.05.2019, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019
Viðbrögð við kjöri DonaldsTrumps í embætti Banda-ríkjaforseta hafa veriðmargvísleg. Í þeim kimum
heimsins sem flokkast sem frjáls-
lyndir og lýðræðissinnaðir, eða bara
rétt vinstra megin við fasisma, hafa
tveir þræðir verið mest áberandi:
furðublandin skelfing og dálítið
óöruggur hæðnishlátur. Sjónvarps-
grínistar í Bandaríkjunum eru flest-
ir hverjir algerlega helteknir af að
sýna, greina og hæða nokkurn veg-
inn allt sem forsetinn segir og gerir.
Leikhúsin fengu endurnýjaðan
áhuga á harmleik Shakespeares um
uppgang harðstjórans Júlíusar Ses-
ars, sem sum þeirra settu hreinlega
í blá jakkaföt, of langt rautt háls-
bindi og hæpna ljósa hárkollu. En
auðvitað er svoleiðis leikur að hlið-
stæðum dæmdur til að missa marks
að miklu leyti. Shakespeare var
ekki að skrifa um Donald Trump.
Hann var varla einu sinni að skrifa
um Júlíus Sesar. Hvað getur
„alvöru“ leikhús lagt til málanna?
Svar Mariusar von Mayenburg
var Bæng!, sem frumsýnt var á
Schaubühne í Berlín fyrir tveimur
árum, og höfundurinn lýsir sem „of-
næmisviðbrögðum“ eftir þessa
óvæntu en mögulega fyrirsjáanlegu
vendingu í alþjóðastjórnmálum. Þar
er sagt frá uppvexti og framgangi
skrímslisins Hrólfs Bæng, frá því
hann sprettur nánast alskapaður og
vel tenntur úr móðurkviði eftir að
hafa kyrkt tvíburasystur sína
ófædda, hvernig hann elst upp í
skjóli velmeinandi, frjálslyndra og
ofurmeðvitaðra millistéttarforeldra
og ræktar allar sínar illu eðlisgáfur
og siðblindu í skjóli hins nytsama
sakleysis sem ríkir á þeim bænum.
Von Mayenburg sýnir okkur líka
hvað hinn siðmenntaði og friðelsk-
andi lífsmáti herra og frú Bæng er
þunn himna utan um dýrslegt eðlið,
sem býr bæði í blóðugri nánustu
fortíð fjölskyldunnar og velþóknun
þeirra hjóna yfir baráttuvilja ung-
barnsins á leikvellinum. Að því leyti
er sögn verksins á svipuðu róli og
réttlætingarræður Hrólfs sjálfs fyr-
ir framferði sínu: svona erum við. Í
þeim er líka að finna bitastæðasta
innlegg von Mayenburg til grein-
ingarvinnunnar varðandi stöðu
mála í heiminum og vegferðina fram
undan: hvað óþol okkar fyrir leið-
indum og kyrrstöðu er mikilvægur
og vanmetinn drifkraftur í mannlíf-
inu. Nokkuð sem birtist í óseðjandi
lyst okkar á blóðugum morðsögum
og fréttum af viðbjóðslegu ofbeldi
gegn börnum. Líka t.d. í einbeittum
vilja fjölmiðlafólks til að fá vísinda-
menn til að spá eldgosum og öðrum
hamförum. Og svo auðvitað í kjör-
þokka fólks á borð við Bolsonaro,
Le Pen og Trump.
Fyrir utan þessa forvitnilegu
þanka verður að segjast að rann-
sókn höfundar og framsetning efn-
isins í verkinu nær ekki að varpa
miklu eða nýstárlegu ljósi á við-
fangsefnið. Von Mayenburg er
vissulega flinkur höfundur, öruggur
í því lausbeislaða formi sem hand-
ritaskrif fyrir listrænt þenkjandi
leikhús nútímans gerir ráð fyrir.
Gréta Kristín Ómarsdóttir er líka á
heimavelli í þessari hefð. Þannig
eru bæði samskipti við áhorfendur,
ferðalög í tíma og rúmi og stökk
leikaranna út úr hlutverkum sínum
og inn í raunheiminn lipur, eðlileg
og þjóna tilgangi sínum. En frumleg
og ögrandi eru þessi stílbrögð ekki
lengur, frekar en notkun míkrófóna
og kvikmyndavéla. Fyrir fastagesti
leikhúsanna undanfarin ár er þetta
orðið næsta fyrirsjáanlegt.
En þrátt fyrir færni höfundar og
þokkalega skemmtun lengst af (lop-
inn er teygður til hins ýtrasta þessa
tvo og hálfan tíma) er Bæng! ófull-
nægjandi sýning. Hún sannfærði
allavega ekki þann sem þetta skrif-
ar um gagnsemi þess að skoða póli-
tískar ógnir samtímans með einföld-
unaraðferðum dæmisögunnar og
frumlitakassa barnaleikritanna að
vopni. Það að velmeinandi veimil-
títur í Prenzlauer Berg veiti fórnar-
lömbum heimilisofbeldis skjól í
kjallaranum hjá sér, og fasíska
frumsjálfið sem þau ala við brjóst
sér vilji þau burt, varpar engu ljósi
á flóttamannavandann eða uppgang
útlendingaandúðar í Evrópu, sem
virðist vera hliðstæðan sem von
Mayenburg er að draga fram. Hálf-
tíma könnunarleiðangur um
athugasemdakerfin er mun gagn-
legri.
Björn Thors er Hrólfur Bæng.
Það eru gleðitíðindi að nú virðist
Björn vera búinn að leggja Kenneth
Mána endanlega til hvílu, hvort sem
það voru nú leiktaktar hans eða
leikhúsminni mitt sem héldu svona
lengi í honum lífinu. Björn er oft og
iðulega bráðfyndinn hér, aldrei
beinlínis ógnvekjandi samt. Sá kæk-
ur hans að þagna í miðjum setn-
ingum dró mjög úr slagkrafti text-
ans, hvort sem um var að kenna
óöryggi með hann eða misráðinni
tilraun til að gefa honum raunsæis-
legra yfirbragð. Sem er engin
ástæða til, svo mjög sem stílbrögð
textans benda í aðrar áttir. Þeirra
fremst hinar löngu og bráðfyndnu
stuðluðu romsur sem faðirinn datt
inn í þegar hann komst í geðshrær-
ingu. Vel útfærðar hjá þýðandanum
Hafliða Arngrímssyni og leika Hirti
Jóhanni Jónssyni á tungu.
Þau Brynhildur Guðjónsdóttir
eru bráðskemmtileg sem foreldr-
arnir lánlausu. Hjörtur fyndnastur
þegar þolgæði mjúka mannsins er
ögrað og Brynhildur í afbrýðisem-
inni út í hina kynæsandi barnfóstru.
Sú er túlkuð af Katrínu Halldóru
Sigurðardóttur, ein af fjórum kon-
um sem hún smíðar í sýningunni og
hafa allar skýrt svipmót, eftirminni-
legust sennilega hin kúgaða Ússí í
næsta húsi. Eiginmaður hennar, of-
beldishrottinn Reynir, er síðan ein
af rullum Halldórs Gylfasonar sem
einnig fá allar afgerandi svip, eru
hver annarri sannari og fyndnari
hjá þessum flinka týpusmið. Það
kemur svo í hlut Davíðs Þórs Katr-
ínarsonar að vera hinn frekar svip-
lausi kamerumaður og verða svolít-
ið utanveltu í stuðinu, en gerir sitt
vel. Einkum í dálítið sjokkerandi at-
riði þar sem hann og frú Bæng
hyggjast fá Ússí til að „stíga fram“
og afhjúpa ummerki heimilisofbeld-
isins, sem reynast vandræðalega
lítilfjörleg í það sinnið.
Christopher Ian Astridge sýning-
arstjóri er síðan sýnilegur og ósýni-
legur eftir þörfum, og stelur sen-
unni smá með fiðluleik þegar mikið
liggur við. Tónlistarval og útfærsla
Garðars Borgþórssonar er með
ágætum. Eva Signý Berger gerir
búninga sem eru meira og minna
hárréttir á natúralískum forsendum
og hjálpa við að jarðtengja galskap-
inn. Leikmynd Barkar Jónssonar er
smart verk með ótal möguleikum
sem eru vel nýttir í flæðandi og lip-
urri sviðsetningu Grétu Kristínar.
Lýsing Kjartans Þórissonar fín.
Vandi sýningarinnar liggur fyrst
og fremst í verkinu, eða kannski í
þunglamalegu eðli leikhússins
sjálfs, og viðbragðssnerpu þess.
Sem innlegg í umræðu um kjör
Trumps, uppgang andverðleika-
stjórnmála og lýðskrum úr öfga-
hægriáttinni er það hvorki nógu
snjallt né fyndið. Það býður heldur
ekki upp á óvænta, spennandi eða
gagnlega greiningu. Það má auðvit-
að hafa dálítið gaman af yfirgengi-
leika Hrólfs Bæng og hlæja kulda-
hlátri að vanmætti velmeinandi en
villuráfandi nærsamfélagsins. En
það er brandari sem allir eru búnir
að vera að segja, oft betur, í síbylj-
unni frá því Marius von Mayenburg
ýtti öðru til hliðar til að skoða
ástand heimsins síðla árs 2016.
Skrímslafræði fyrir byrjendur
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Yfirgengileiki „Það má auðvitað hafa dálítið gaman af yfirgengileika Hrólfs Bæng,“ segir í rýni um uppfærsluna á Bæng! í Borgarleikhúsinu.
Borgarleikhúsið
Bæng! bbbnn
Eftir Marius von Mayenburg. Íslensk
þýðing: Hafliði Arngrímsson. Leikstjórn:
Gréta Kristín Ómarsdóttir. Leikmynd:
Börkur Jónsson. Búningar: Eva Signý
Berger. Lýsing: Kjartan Þórisson. Tónlist
og hljóð: Garðar Borgþórsson. Mynd-
band: Ingi Bekk. Leikgervi: Elín S. Gísla-
dóttir. Sýningarstjóri: Christopher Ian
Astridge. Leikarar: Björn Thors, Bryn-
hildur Guðjónsdóttir, Davíð Þór
Katrínarson, Halldór Gylfason, Hjörtur
Jóhann Jónsson og Katrín Halldóra
Sigurðardóttir. Frumsýning á Nýja sviði
Borgarleikhússins 26. apríl 2019.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Gullfiskur
Kæliþurrkaður harðfiskur
sem hámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur 84%prótein.
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Tilvalinn með
á völlinn í
sumar