Morgunblaðið - 01.05.2019, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019
Stundum rata plötur tilmanns á óvenjulegan hátt.Maður getur verið að röltaframhjá kaffihúsi og ein-
hver er að spila eitthvað spennandi
þar inni sem hljómar alveg frábær-
lega. Maður getur keypt plötu í búð
af því að umslagið
talaði á einhvern
hátt til manns. Eða
að maður mætir á
tónleika með einni
af sinni uppáhalds-
hljómsveit nógu
tímanlega til að ná að horfa á upphit-
unarbandið, sem maður hafði aldrei
heyrt á minnst áður. Þannig var það
með mig og Thrill of confusion, en
þeir hituðu upp fyrir Brain Police á
Gauknum hinn 29. mars síðastliðinn.
Ég varð heilluð af frammistöðu
þeirra á tónleikunum og fór beint og
náði mér í þeirra fyrstu plötu á
geisladiski.
Fyrstu hlustanir á henni voru
mjög ánægjulegar því hún hljómar
vægast sagt frábærlega. Þetta er
gítarrokk, það er ekki spurning, og
nóg er af grípandi riffum og köflum
sem byggjast hárrétt upp svo maður
er farinn að flösuþeyta áður en mað-
ur veit af. Rödd Ragnars Breiðfjörð
Guðmundssonar er líka töluverður
hluti af þessum hljóm í bandinu sem
er í senn myrkur, blúsaður og undir
áhrifum frá stoner- og gruggrokki.
Það merkilega sem gerist svo eftir
nokkrar hlustanir, sem reyndar ger-
ist iðulega hjá mér, er að textar fara
að vera í stærra hlutverki í tónlist-
inni. Þá eru eyru og heili búin að
greina tónlistina og vilja nú vita
hvort hún er um eitthvað. Það er því
miður veikasti hluti þessa geisla-
disks. Það er sérstaklega áberandi
þegar hlustað er á plötuna í heyrn-
artólum og reyndar hljómar hún
ekki eins vel þannig. Hún er aug-
ljóslega mixuð til að spila hátt í
græjum og nýtur sín afskaplega vel
þannig, rétt eins og hljómsveitin
gerir á sviði. Krafturinn í gíturum,
samspil liðsmanna á milli, hrá og til-
finningarík rödd söngvarans, allt
þetta virkar þegar hlustað er hátt og
er ekkert endilega verið að rýna í
texta.
Við heyrnatólahlustun fær maður
á tilfinninguna að textasmiður nái
ekki að valda því að semja á ensku
og sé að reyna að fanga tilfinningar
sínar og fela bak við orð sem eru
betur fallin til að syngja en til að
koma skýrri hugsun frá sér. Og ekki
misskilja mig, það eru greinilega al-
vörutilfinningar þarna á ferð, en
maður nær þeim bara ekki nógu vel.
Það væri vel til íhugunar fyrir
hljómsveitina að prufa að semja
texta á íslensku og athuga hvernig
það hljómaði.
Uppáhaldslagið mitt á plötunni er
„Break free“ en mörg önnur ná að
hressa mann við og vekja. Einnig
verð ég að minnast á tvö ósungin lög
sem eru á plötunni, „Burning time“
og titillagið „Desolation“, en þau eru
hvort á sinn hátt mjög áhugaverð og
bera þess merki að þarna eru tón-
listarpælarar á ferð sem gaman
verður að fylgjast með í framtíðinni.
Þessi plata er jú fyrsta plata sveit-
arinnar og sem slík er hún nokkuð
vel heppnuð, en maður finnur að
þarna er pláss til að gera enn betur.
Hins vegar er þetta tvímælalaust
plata fyrir áhugafólk um grípandi
rokk. Er best lætur fær hún mann til
að hrista háls og haus og gleyma
stað og stund og það er nú bara dá-
góður árangur. P.s. Hún hentar vel
með uppvaskinu!
Hristingur Er best lætur fær plata Thrill of confusion gagnrýnanda til að
hrista háls og haus og gleyma stað og stund.
Dágóður árangur
Geisladiskur
Thrill of confusion – Desolation
bbbmn
Fyrsta plata Thrill of confusion kom út í
lok síðasta árs og inniheldur átta lög. Í
Thrill of confusion eru Ragnar Breið-
fjörð Guðmundsson sem syngur og leik-
ur á píanó, Þorkell Ólafsson sem leikur
á gítar, Hrafn Ingason sem leikur á gít-
ar, Jón Dan Jónsson sem leikur á bassa
og Brynjar Ólafsson sem leikur á
trommur. Hljóðritað, hljóðblandað og
hljómjafnað í Stúdíó Paradís af Jóhanni
Ásmundssyni og Ásmundi Jóhannssyni.
RAGNHEIÐUR
EIRÍKSDÓTTIR
TÓNLIST
Heimsferð Maós nefnist sýning með
verkum eftir Erró sem opnuð verð-
ur í Listasafni Reykjavíkur, Hafn-
arhúsinu, í dag kl. 17. Listamað-
urinn verður viðstaddur opnunina
og afhendir Guðmunduverðlaunin,
styrk úr Listasjóði Guðmundu S.
Kristinsdóttur, sem hann stofnaði
til minningar um móðursystur sína,
Guðmundu S. Kristinsdóttur frá
Miðengi. „Markmið sjóðsins er að
styrkja listakonur og er framlag
veitt til eflingar listsköpun þeirra.
Viðurkenning úr sjóðnum er ein sú
hæsta sem veitt er á sviði mynd-
listar á Íslandi,“ segir í tilkynningu
frá safninu.
Sýningarstjóri Heimsferðar Ma-
ós er Danielle Kvaran. Á vef safns-
ins segir um sýninguna: „Erró er
einna fyrstur vestrænna listamanna
til að tileinka sér goðsögn og mynd-
ir af Mao Zedong. Á árunum 1972
til 1980 málaði Erró seríuna Chin-
ese Paintings, meira en 130 mál-
verk sem segja sögu hins mikla
leiðtoga sem fer sigurför um heim-
inn. […] Kínverska serían er skáld-
skapur þar sem sviðsetning og nær-
vera Maós á mismunandi stöðum er
háðsleg vísun í bylgju Maóismans
sem reið yfir hópa vestrænna lista-,
mennta- og stjórnmálamanna í kjöl-
far stúdentaóeirðanna í París í maí
1968. Hún hlutgerir í senn útóp-
ískan framtíðardraum og ótta við
heimsútþenslu kínversku menning-
arbyltingarinnar. Það var Kín-
verska serían sem gerði Erró
þekktan í alþjóðlegu samhengi.“
Heimsferð Maós opnuð í Hafnarhúsi
Ádeila Ein myndanna 130 úr seríunni.
Hér er Maó ásamt félögum í Osló.
Birnir Jón Sigurðsson fór með sig-
ur af hólmi í rafbókasamkeppni
Forlagsins, Nýjum röddum, sem
snýst um að finna nýja rödd í ís-
lensku bókmenntalífi og var
keppnin nú haldin í annað sinn.
Skilyrði fyrir þátttöku er að höf-
undur handrits hafi ekki gefið út
fleiri en eitt prósaverk áður hjá at-
vinnuforlagi og bárust alls níu
handrit til dómnefndar. Dómnefnd
skipuðu Silja Aðalsteinsdóttir, rit-
höfundur og ritstjóri, Haukur
Ingvarsson, skáld og doktorsnemi í
bókmenntum, og Sigríður Rögn-
valdsdóttir, ritstjóri hjá Forlaginu,
og komust þau
að þeirri nið-
urstöðu að smá-
sagnasafnið Strá
eftir Birni skyldi
hljóta verðlaun-
in. Strá kemur
út bæði sem raf-
bók og hljóðbók
og má finna
hana í vefversl-
un Forlagsins á
forlagid.is, Amazon og öðrum stöð-
um þar sem rafbækur eru seldar,
að því er fram kemur í tilkynningu
frá Forlaginu.
Bar sigur úr býtum í rafbókasamkeppni
Birnir Jón
Sigurðsson
Guðrún Guðmundsdóttir fékk við-
urkenningu um liðna helgi fyrir að
vera hundraðþúsundasti gesturinn
sem komið hefur á Elly í Borgar-
leikhúsinu. Sýningin var númer 212
í röðinni en nú eru aðeins átta sýn-
ingar eftir því lokasýningin verður
15. júní. Það var Katrín Halldóra
Sigurðardóttir sem tilkynnti þetta í
lok sýningar ásamt Ragnari
Bjarnasyni sem tók lagið fyrir leik-
húsgesti eftir að sýningu lauk.
Hundraðþúsund-
asti gestur á Elly
Glöð Guðrún Katrín, Halldóra og Ragnar.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Það er skemmtilegt fyrir stelp-
urnar að takast á við þessi verk. Þær
verða í allt öðrum stellingum og
hlutverki og leyfist að leika sér
meira en vanalega. Ætlunin er að
halda í punginn sem er í lögunum,“
segir Þorvaldur Örn Davíðsson,
stjórnandi dömukórsins Graduale
Nobili, sem heldur tónleika í dag, 1.
maí, í Langholtskirkju kl. 17 undir
nafninu: Þú komst í hlaðið. Þar ætla
23 dömur á aldrinum 18 til 28 ára að
hrista upp í hefðinni og flytja ein-
göngu karlaslagara.
„Karlmennskulög eru krefjandi
og bjóða upp á vítt raddsvið. Það
verður lítið mál fyrir dömurnar að
klæða sig upp í karlmannsföt, finna
sinn innri tenór og bassa en vera á
sama tíma þær sjálfar. Þær munu
ekki gefa karlakórunum neitt eftir,“
segir Þorvaldur sem stjórnað hefur
kórnum í tvo vetur.
„Kórinn hélt svipaða tónleika 2014
undir stjórn stofnanda kórsins, Jóns
Stefánssonar organista, sem leit á
Graduale Nobili sem krúnudjásnið í
tónlistaruppeldi Langholtskirkju.
Þeir tónleikar gengu glimrandi vel
og vegna fjölda áskorana ákváðum
við að endurtaka þá,“ segir Þorvald-
ur. Hann segir að á dagskránni megi
finna lög eins og „Brennið þið vitar“,
„Hraustir menn“, Pílagrímakór
Wagners og lokaverk óperunnar
Tannhäuser, þar sem ungu pílagrím-
arnir streyma inn. Þorvaldur telur
að tónleikarnir verði eins og ferskur
andvari inn í sumarið og hugsanlega
stærsti viðburður kórsenunnar í
sumar.
Konur geta flutt karlalög
Í tilefni þess að tónleikarnir eru
haldnir 1. maí mun Graduale Nobili
flytja Internasjónalinn, alþjóða-
baráttusöng verkalýðsins, á tónleik-
unum.
Þorvaldur segir að stór hluti tón-
listar sé helgaður karlmönnum og
svo hafi verið í gegnum tíðina en það
eigi ekki að standa í vegi fyrir því að
öll kyn geti flutt tónlistina.
Graduale Nobili var stofnaður ár-
ið 2000 og hefur kórinn að sögn Þor-
valdar séð um að frumflytja íslenska
tónlist og nýjar útsetningar. Kórinn
hefur gefið út nokkra diska og sung-
ið með mörgum listamönnum, má
þar nefna Björk og Fleet Foxes.
Kraftur Hluti af dömunum í Graduale Nobili kominn í gírinn og tilbúinn að syngja af krafti á tónleikum í Langholts-
kirkju 1. maí þar sem þær flytja m.a. Brennið þið vitar, Hraustir menn og fleiri tónverk fyrir karlaraddir.
Ætla að halda pungnum
Graduale Nobili flytur eingöngu karlaslagara á tónleikum í dag
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10,1 kg
Bandaríski kvik-
myndaleikstjór-
inn John Single-
ton er látinn, 51
árs að aldri, af
völdum hjarta-
áfalls. Singleton
hlaut mikla at-
hygli og lof fyrir
sína fyrstu kvik-
mynd, Boyz N
the Hood, sem
frumsýnd var árið 1991 og hlaut
Singleton tilnefningu til Óskars-
verðlauna fyrir hana, fyrstur þel-
dökkra leikstjóra. Fjallaði myndin
um líf ungra blökkumanna í South
Central í Los Angeles. Singleton
skrifaði handrit kvikmyndarinnar
út frá eigin minningum og fram-
leiddi hana einnig. Auk kvikmynda
leikstýrði Singleton sjónvarpsþátt-
um og framleiddi.
Leikstjórinn John
Singleton látinn
John Singleton