Morgunblaðið - 13.05.2019, Síða 4

Morgunblaðið - 13.05.2019, Síða 4
SVIÐSLJÓS Jóhann Ólafsson johann@mbl.is „Hvenær er þessi söngvakeppni?“ sagði leigubílstjóri sem skutlaði und- irrituðum og ljósmyndara Morgun- blaðsins frá flugvellinum í Tel Aviv á hótel um miðjan dag á laugardag. Sjálfhverfi Íslendingurinn hafði haldið að allt snerist um keppnina og það voru því ákveðin vonbrigði að komast að því að svo er ekki. Svipuð vonbrigði og þegar börn komast að því að heimurinn snýst ekki í kring- um þau, get ég ímyndað mér. Annar leigubílstjóri, sem skutlaði okkur í Norðurlandapartí á laugar- dagskvöldið, hafði heldur engan sér- stakan áhuga á því að tala um söngvakeppnina. Hann var hins veg- ar mikill aðdáandi knattspyrnu- mannsins Viðars Arnar Kjartans- sonar sem lék um tíma með Maccabi Haifa hér í Ísrael. „Kjartansson. Great player, great player,“ sagði bílstjórinn og horfði dreyminn út um framrúðuna. Allir að elska Hatara Allir í Norðurlandapartíinu vissu auðvitað hvenær keppnin fer fram en undanriðill Íslands er á morgun. Flestir þar vita líka meira um keppnina en Víðir Sigurðsson um knattspyrnu og stemningin á laugar- dagskvöldið var svolítið eins og fyrir leiki Íslands á EM eða HM í knatt- spyrnu. Eins og sönnum Íslendingi á erlendri grundu sæmir tók ég sér- staklega eftir því hversu vinsælir liðsmenn Hatara voru. Var tilfinn- ingin svona árið 1986 þegar Gleði- bankinn fór til Bergen? Annars virðast „nördarnir“ hér á einu máli um að Hatari komist í úr- slit Eurovision en það yrði í fyrsta skipti í fimm ár sem Ísland kæmist í úrslit. Flestir þeirra hafa enn frem- ur trú á því að Ísland lendi í einu af fimm efstu sætunum. Allt bendir til þess að við þurfum að kanna hvar keppnin verður haldin á næsta ári. Hvar á Íslandi meina ég. Í gærkvöldi slógu liðsmenn Hat- ara í gegn á rauða dreglinum, sem raunar var appelsínugulur í þetta skiptið. Glensið og gamanið er nú að baki en í kvöld er dómararennsli í undanriðli Íslands, þar sem dómarar gefa lögunum stig. Á morgun er það svo undanriðillinn þar sem fólk heima í stofu kýs sitt uppáhaldslag og vonandi kemst Hatari í úrslitin á laugardag. Annað væri stærri skandall en gengi Gleðibankans. Morgunblaðið/Eggert Leðurklæddir Einar Stef́ánsson, Matthías Tryggvi Haraldsson og Klemens Hannigan á appelsínugula dreglinum. Eintóm ást frá „nördun- um“ ef Hatrið mun sigra Gleði Felix Bergsson veifaði íslenska fánanum á opnunarhátíð Eurovision. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019 a. 595 1000 Ítalía Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st áán fyr irv ar Lignano&Bibione 13. júní í 11 nætur Flug frá kr. 59.900 Sæti báðar leiðirmeð tösku og handfarangri Frá kr. 125.670 Frá kr. 139.995 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Drög að nefndaráliti um þriðja orkupakkann svonefnda verða lögð fyrir utanríkismálanefnd Alþingis á fundi nefndarinnar klukkan hálftíu í dag. Þetta segir Áslaug Arna Sig- urbjörnsdóttir, formaður utanríkis- málanefndar og þingmaður Sjálf- stæðisflokks. „Gestakomur í málinu eru búnar og það hefur gengið mjög vel að fá svör við helstu álitaefnum og spurn- ingum sem hafa vaknað vegna máls- ins. Á morgun mun ég leggja fram drög að nefndaráliti og umræðan í nefndinni mun leiða það í ljós hvort málið verður afgreitt úr nefndinni á morgun,“ sagði Áslaug Arna í gær, spurð hvenær málið verði afgreitt út úr nefndinni. Hún segir að margt hafi skýrst vel í vinnu nefndarinnar, en fjöl- margir fræðimenn og sérfræðingar hafa verið boðaðir á fundi nefnd- arinnar frá því málið gekk til henn- ar í byrjun apríl. Þeirra á meðal eru Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, Stefán Már Stefánsson, prófessor við laga- deild HÍ, og Friðrik Árni Friðriks- son Hirst landsréttarlögmaður auk Skúla Magnússonar, héraðsdómara og dósents við lagadeild HÍ. Þá bár- ust nefndinni yfir fimmtíu umsagnir um málið. „Með belti og axlabönd“ „Við höfum fengið álit frá fjöl- mörgum fræðimönnum, sérfræðing- um og öðrum sem málið snertir. Eftir það blasir það við fyrir mér að málið er vel búið af hendi utanrík- isráðherra. Fyrirvarinn sem settur er og flestir fræðimenn telja óþarf- an er þó settur vegna þeirra vanga- veltna sem komið hafa upp í mál- inu,“ segir hún og nefnir sameiginlega yfirlýsingu EFTA- ríkjanna í sameiginlegu EES-nefnd- inni og sameiginlega yfirlýsingu ut- anríkisráðherra og framkvæmda- stjóra orkumála ESB og segir þær þýðingarmiklar. „Við höfum bæði fengið staðfest- ingu frá ESB, þ.e.a.s. í sameigin- legri yfirlýsingu framkvæmdastjóra orkumála ESB og utanríkisráð- herra, sem og frá EFTA-ríkjunum í sameiginlegu EES-nefndinni. Sú staðfesting hefur mjög mikla þýð- ingu og þegar málið fer í aðra um- ræðu er það með belti og axlabönd gagnvart öllum þeim vangaveltum sem hafa komið upp um að við bind- um okkur með þessu á einhvern óeðlilegan máta,“ segir Áslaug Arna sem kveðst aðspurð ekki búast við því að margar nýjar spurningar vakni um málið. „Ég býst ekki við því að margt nýtt komi upp, en við höfum auðvit- að tekið allar áhyggjur alvarlega og leitast við að svara öllum spurn- ingum sem komið hafa upp. Það er verkefni nefndarinnar að gera það og það gerum við áfram ef ske kynni að eitthvað fleira kæmi upp,“ segir hún. Drög að áliti um orkupakkann í dag Morgunblaðið/Eggert Orkupakki Orkupakkinn er til umfjöllunar hjá utanríkismálanefnd. Gesta- komum er lokið og drög að nefndaráliti verða lögð fyrir nefndina í dag.  Orkupakkinn senn í aðra umræðu á Alþingi  Svör hafi fengist við helstu spurningum og álitaefnum  Allar áhyggjur verið teknar alvarlega  Afstaða ESB og EFTA-ríkja þýðingarmikil í framhaldinu Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Reykjavíkurborg er meðal 7% höf- uðborga heimsins sem fá A í einkunn í loftslagsmálum hjá samtökunum Carbon Disclosure Project (CDP). Um er að ræða óhagnaðardrifin um- hverfisverndarsamtök sem gefa alls 596 stórborgum um allan heim ein- kunn eftir því hversu vel þeim hefur tekist að draga úr útblæstri og koma sér upp loftslagsstefnu. Reykjavík í sérflokki Af þessum 596 borgum fá einungis 43 einkunnina. Reykjavík, París, London, Barcelona, Höfðaborg og Hong Kong eru meðal þeirra borga sem fá hæstu einkunn CDP. Segja samtökin að fjórar borgir hafi það að markmiði að vera reknar alfarið á endurnýjanlegum orkugjöf- um: París, San Francisco, Canberra og Reykjavík sem hafi nú þegar náð því markmiði. Af þeim 43 borgum sem hljóta A í einkunn eru 13 borgir sem hafa það að markmiði að vera algjörlega kol- efnisjafnaðar fyrir árið 2050. Reykjavík er meðal þeirra. „Við hvetjum borgir á heimsvísu til að stíga upp í aðgerðum sínum og setja sér markmið í samræmi við það sem nýjustu rannsóknir segja til um að þurfi að gera til að koma í veg fyr- ir hættuna sem fylgir loftslagsbreyt- ingum,“ er haft eftir Kyra Appleby, framkvæmdastjóra borgarsviðs hjá CDP, í tilkynningu. Reykjavík fær fyrstu einkunn  Umhverfismat á borgum á heimsvísu Morgunblaðið/Árni Sæberg Reykjavík Loftslagsstefna borgar- innar fær afbragðseinkunn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.