Morgunblaðið - 13.05.2019, Page 11

Morgunblaðið - 13.05.2019, Page 11
Morgunblaðið/sisi Ný verkefni Jökull ÞH fékk nýjan lit í Slipnum í Reykjavík á dögunum. þægilegar. Allar vistarverur eru með lofthitun. Skipstjóri er Baldvin Þorsteins- son, sem áður var skipstjóri á Snæfelli, kunnur aflamaður. Stýri- maður er Jóhann Hauksson og vél- stjóri Gunnar Þorsteinsson.“ Skipið var lengt í Noregi 1966 og yfirbyggt 1983. Það hefur borið mörg nöfn frá komunni til landsins og víða komið við: Stígandi ÓF, Stígandi RE, Jarl KE, Valdimar Sveinsson VE, Beggi á Tóftum SF, Bervík SH, Klængur ÁR, Margrét ÁR, Margrét SK, Margrét HF og Jökull ÞH. FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019 BORÐPLÖTUR OG SÓLBEKKIR • Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré • Mikið úrval efna, áferða og lita • Framleiðum eftir óskum hvers og eins • Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Auðvitað viljum við sem hér búum lengst halda hér úti sjálfstæðu sveitarfélagi,“ segir Guðrún Karól- ína Reynisdóttir, oddviti Helga- fellssveitar. „Skyldurnar sem sveitarfélagið þarf að mæta verða hins vegar æ meiri og kostnaðurinn þar með. Alltaf bætast við nýir lið- ir, til dæmis bættist við ráðning persónuverndarfulltrúa á siðasta ári. En mér virðist því sem stefnan sé að fáeinum sveitarfélögum verði gert að sameinast öðrum, innan fárra ára, hvernig sem að því verð- ur svo staðið.“ Tekjur á ári um 80 millj. kr. Helgafellssveit, sem er á norð- anverðu Snæfellsnesi, er meðal fá- mennustu sveitarfélaga landsins. Skráðir með lögheimili þar eru 62 og er þetta eitt fimm sveitarfélaga á landinu þar sem íbúarnir eru undir 100 talsins. Í vestri nær sveitin frá Kolgrafa- firði í vestri inn fyrir Álftafjörð og í suðri frá hábungunni á Vatnaleið að Stykkishólmi, sem stendur yst og nyrst á svonefndu Þórsnesi. Þetta svæði er alls 250 ferkílómetr- ar og á því eru nokkrir sveitabæir og byggð sumarhúsa sem fer fjölg- andi. Hefðbundinn búskapur hefur dregist mikið saman, en ferðaþjón- usta og önnur atvinna tekið við. Heildartekjur sveitarfélagsins á ári eru um 80 milljónir króna. Byggj- ast þær eins og í öðrum byggðum á fasteignagjöldum og svo útsvari sem í Helgafellssveit er í hámarki, það er 14,52% af tekjum gjaldenda. „Íbúatalan hefur haldist á svip- uðu róli um alllangt skeið; það er í kringum 60 manns. Það er mjög ánægjulegt að ungt fólk með börn sem á rætur sínar hér komi og setj- ist hér að, eins og gerst hefur á síð- ustu árum,“ segir Guðrún Karólína þegar Morgunblaðið hitti hana á dögunum, þá önnum kafna í sauð- burðarstússi. Farsælast að sameina allt Snæfellsnesið Fræðslumál eru stærsti út- gjaldaliður sveitarfélagsins. Í dag sækja 12 börn úr Helgafellssveit grunnskóla í Stykkishólmi, en sveitarfélagið og Stykkishólmsbær standa saman að rekstri grunn- skólans. Leikskólabörn úr sveitinni sem fara í Hólminn eru þrjú og niðurgreiða Helgfellingar skólavist þeirra, samkvæmt fastri krónutölu per barn. „Við höfum samvinnu við ná- grannabyggðir um ýmis mál og það hefur gengið farsællega,“ segir oddvitinn Sameining Helgafellssveitar við önnur sveitarfélög hefur oft komið til umræðu og efnt hefur verið til kosninga um tillögur þar að lút- andi. Sameining hefur aldrei náð fram að ganga. Fyrir tveimur árum var í deiglunni að sameina Helga- fellssveit, Stykkishólm og Grundarfjörð – en ekki reyndist vera hljómgrunnur fyrir slíku. Sjálf telur Guðrún oddviti raunar affarasælast að sameina allt Snæ- fellsnesið í eitt sveitarfélag sem hafi styrk til stórra verkefna og að veita íbúum þá þjónustu sem vænst er. Viljum halda í sjálfstæðið  Í Helgafellssveit á Snæfellsnesi eru aðeins 58 íbúar  Eitt af fámennustu sveitarfélögum landsins  Farsæl sam- vinna er við nágrannabyggðirnar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Höfuðból Helgafell er vinsæll viðkomustaður í sveitinni. Þegar fólk gengur á fjallið í fyrsta sinn eiga þrjár óskir fólks að rætast mæli það engin orð á leiðinni upp á fjallið og líti aldrei til baka. Óskirnar þurfa að vera góðs hugar. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Forystukona Guðrún Karólína Reynisdóttir á garðbandinu í fjárhúsinu með lamb í fangi. Bóndinn er oddvitanum yfirsterkari þessa dagana. Á landinu eru fimm sveitarfélög með undir 100 íbúum. Í Skorra- dal eru íbúarnir 58, í Helgafells- sveit 62 skráðir til heimilis, 40 búa í Árneshreppi, 90 manns búa í Skagabyggð og 74 í Fljóts- dalshreppi. Sigurður Ingi Jóhannnsson sveitarstjórnarráðherra sagði á þingi Sambands íslenskra sveit- arfélaga sl. haust um að sér þætti koma til greina að setja af stað átak þar sem sveitarfélög hafa tiltekin tíma, 4-8, ár, til að ná tilteknum markmiðum í frjálsum sameiningum.Eftir að umræddu tímabili lyki taki hins vegar gildi nýtt ákvæði sveitar- stjórnarlaga um lágmarksíbúa- fjölda sem geti til dæmis verið 1000 manns. Fimm undir 1.000 íbúum FÁMENN SVEITARFÉLÖG

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.