Morgunblaðið - 13.05.2019, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
13. maí 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.89 122.47 122.18
Sterlingspund 158.73 159.51 159.12
Kanadadalur 90.56 91.1 90.83
Dönsk króna 18.323 18.431 18.377
Norsk króna 13.946 14.028 13.987
Sænsk króna 12.668 12.742 12.705
Svissn. franki 120.14 120.82 120.48
Japanskt jen 1.1089 1.1153 1.1121
SDR 168.87 169.87 169.37
Evra 136.82 137.58 137.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.7977
Hrávöruverð
Gull 1285.4 ($/únsa)
Ál 1766.0 ($/tonn) LME
Hráolía 70.45 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Rúmlega 40 ríki
Bandaríkjanna hafa
hafið lögsókn á
hendur lyfjafyrir-
tækjum sem þau
saka um samsæri
um verðhækkanir á
algengum lyfjum.
Í stefnunni segir
að allt að 20 lyfja-
fyrirtæki hafi átt aðild að verðsamráðinu
sem náð hafi til á annað hundrað lyfja,
þar á meðal lyfjum sem brúkuð eru við
meðferð gegn sykursýki og krabbameini.
Meðal fyrirtækjanna er Teva Pharma-
ceuticals, stærsti framleiðandi sam-
heitalyfja í veröldinni.
Koma m.a. fram í stefnunni dæmi um
samráð um yfir 1.000% hækkun. „Við
höfum gögn er sýna afdráttarlaust að
framleiðendur samheitalyfja svindluðu á
bandarískum almenningi sem svarar
mörgum milljörðum dollara,“ segir
stefnandi málsins, William Tong, sak-
sóknari Connecticut-ríkis.
Samráð um hækkun
lyfjaverðs
STUTT
VIÐTAL
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
„Við Háskólann í Reykjavík (HR) er
lögð áhersla á hagnýta þekkingu,
verklega þjálfun og tengsl við at-
vinnulífið. Iðnmenntun er því mjög
góður undirbúningur fyrir nám við
HR. Háskólamenntaðir einstakling-
ar sem hafa grunn í iðngreinum eru
afar eftirsóttir í atvinnulífinu,“ segir
Hera Grímsdóttir, nýr forseti iðn-
og tæknifræðideildar HR.
Iðn- og tæknifræðideild HR býð-
ur upp á tækninám þar sem nem-
endur öðlast lögverndað starfsheiti í
lok námstímans og ganga beint inn í
verðmæt störf, að sögn Heru.
„Námið við deildina tekur mið af
þörfum atvinnulífsins hverju sinni,
með áherslu á öfluga og hagnýta
tækniþekkingu sem nýtist vel frá
fyrsta degi í starfi. Deildin hvílir á
grunni Tækniskóla Íslands sem
sameinaðist þáverandi Háskólanum
í Reykjavík árið 2005. Þessi grunnur
veitir HR sérstöðu en við skólann er
lögð áhersla á að nemendur öðlist
verkþekkingu, auk þess að þekkja
og skilja fræðin. Hægt er að stunda
nám í iðn-, bygginga- og tækni-
fræði,“ segir Hera.
Hún segir iðnfræði hagnýtt og
gott nám sem veitir iðnlærðum af
bygginga-, véla- og rafmagnssviði
tækifæri til að afla sér tæknimennt-
unar á háskólastigi. Til að útskrifast
sem iðnfræðingur þarf nemandi að
hafa lokið sveinsprófi í iðngrein á
viðkomandi sviði og veitir námið þá
rétt til meistarabréfs. Hægt er að
stunda námið í fjarnámi og taka það
samhliða vinnu. Að sögn Heru eru
starfssvið iðnfræðinga fjölbreytt og
starfa þeir m.a. hjá verktakafyrir-
tækjum, á verkfræðistofum, hjá
orku- og framleiðslufyrirtækjum svo
eitthvað sé nefnt.
Eftirsóttur starfskraftur
„HR er eini háskólinn á Íslandi
sem kennir byggingafræði og er
námið sett upp sem verkefnamiðað
nám. Byggingafræðingar hafa breitt
þekkingarsvið og vinna því við fjöl-
breytt störf tengd byggingariðnaði.
Þeir starfa meðal annars við hönnun
mannvirkja og eftirlit og stjórnun
framkvæmda. Þekking þeirra á
byggingaferli, efnisvali og verkefna-
stjórnun er afar dýrmæt.
Tæknifræði hentar þeim einstak-
lingum vel sem vilja hagnýta tækni-
menntun sem býður upp á mikla
möguleika, bæði í vel launuð störf í
atvinnulífinu og í áframhaldandi
framhaldsnám eða meistaranám.
Námið tekur aðeins þrjú og hálft ár
og er tæknifræði lögverndað starfs-
heiti. Hægt er að velja á milli náms í
byggingartæknifræði, rafmagns-
tæknifræði og véla- og orkutækni-
fræði. Slík þekking er dýrmæt þeg-
ar út á vinnumarkaðinn er komið,“
segir Hera Grímsdóttir.
- Hún var meðal annars spurð
hvort og hvers vegna háskólanám
eftir iðnnám væri góð hugmynd?
„Iðnmenntun er mjög góður und-
irbúningur fyrir nám við HR og í
boði eru námsbrautir sem veita
spennandi möguleika í atvinnulífinu.
Tæknimenntaðir einstaklingar sem
útskrifast frá háskólanum eru eft-
irsóttir starfskraftar meðal annars í
iðnfyrirtækjum, á verkfræðistofum,
hjá verktökum og opinberum aðil-
um.
Skortur fyrirsjáanlegur
Til að viðhalda samfélaginu þarf
ákveðinn fjölda tæknimenntaðra á
hverju sviði en til að geta bætt og
þróað þarf að mennta enn fleiri en
við höfum gert hingað til. Við í iðn-
og tæknifræðideild Háskólans í
Reykjavík undirbúum nemendur
okkar til að takast á við þau fjöl-
breyttu verkefni sem bíða þeirra við
komu út á vinnumarkaðinn en því
miður er það fyrirsjáanlegt að
næstu útskriftarárgangar munu
engan veginn duga til að fylla þau
störf sem í boði eru og er full ástæða
til að vekja athygli þeirra sem huga
að námi á þeim tækifærum sem
fylgja slíku námsvali. Tekjumögu-
leikarnir eru miklir og markaðurinn
hreinlega kallar eftir iðnmenntuðu
fólki.“
- Er sú leið almennt fær?
„Það virðist vera útbreiddur mis-
skilningur að leið iðnmenntaðra ein-
staklinga inn í háskóla sé lokuð. Það
er ekki fyrirstaða að hafa ekki lokið
formlegu stúdentsprófi en við HR er
í boði undirbúningsnám við Há-
skólagrunn sem er sérstaklega snið-
ið að þörfum þeirra sem hyggjast
stunda tækninám. Fyrir þá sem
hafa hug á iðn- eða byggingafræði-
námi en vantar ákveðinn grunn þá
eru sérsniðið námskeið í stærðfræði,
ensku, íslensku og eðlisfræði sem
taka aðeins á því sem nauðsynlegt
er til að stunda námið og eru kennd
samhliða náminu.
Sömuleiðis býður Háskólagrunn-
ur HR upp á góðan undirbúning fyr-
ir tæknifræðina sem og hverskyns
háskólanám. Þegar nemendur sækja
um velja þeir háskólagrunn miðað
við það háskólanám sem stefnt er að
í framhaldinu. Nemendur í tækni-
greinum í HR hafa margvíslegan
bakgrunn, hvort sem það er reynsla
á vinnumarkaði, burtfararpróf,
sveinspróf, meistarabréf, 4. stigs
vélstjórapróf, tækniteiknun eða
stúdentspróf. Vegna þessa myndast
góð og skemmtileg stemning í
bekkjum og nemendur læra einnig
mjög mikið hver af öðrum.
Ótal úrlausnarefni bíða
Vissulega má alltaf gera betur og
eitt af verkefnum Iðn- og tækni-
fræðideildar er að efla og auðvelda
aðgengi iðnmenntaðra inn í háskóla-
nám. Þá er m.a. á döfinni að bæta
flæði á milli skólastiga og er fram-
tíðarsýn deildarinnar að starfs-
menntun og/eða starfstengd sér-
þekking geti verið viðurkennd sem
undirbúningur fyrir námið í ríkara
mæli og jafnvel í vissum tilvikum
nýst sem hluti námsins, t.d. með
raunfærnimati eða stöðuprófi,“ seg-
ir Hera.
- Hún var að lokum spurð hvort
fólk með iðnmenntun fyrir háskóla-
gráðu væri eftirsótt á vinnumarkaði
og svaraði mjög ákveðið.
„Já, það hefur að undanförnu
reynst erfitt fyrir fyrirtæki að
manna störf á sviði iðn- og tækni-
greina og því er mikilvægt að fjölga
þeim sem útskrifast af þessum svið-
um til að mæta þörfum atvinnulífs-
ins. Tæknimenntaðra einstaklinga
framtíðarinnar bíða ótal úrlausnar-
efni. Má þar t.d. nefna fjölgun íbúa
og ferðamanna og aukin umsvif at-
vinnulífsins sem kalla á bættar sam-
göngur. Við þurfum að nýta tæki-
færin sem felast í því að vera lítil
þjóð með mikla endurnýjanlega
orku og sýna frumkvæði á því sviði.
Það þarf að koma í veg fyrir myglu í
húsum og byggja ódýrara og hag-
kvæmara húsnæði svo að fleiri geti
keypt sér þak yfir höfuðið. Og svo
mætti lengi telja. Ekkert af þessu
gerist af sjálfu sér heldur þarf fólk
með sérhæfða menntun og það er
mikil eftirspurn eftir því fólki.
Með fjórðu iðnbyltingunni fylgja
krefjandi verkefni samhliða breyt-
ingum á störfum og tækni. Þar með
eykst eftirspurn eftir fólki með sér-
hæfða tæknimenntun og nýja gerð
stjórnunarhæfni. Eftirspurnin kem-
ur úr öllum áttum.“
Erfitt að manna störf á
sviði iðn- og tæknigreina
HR Hera Grímsdóttir meðal nemenda . Við skólann er lögð áhersla á hagnýta þekkingu, verklega þjálfun og tengsl
við atvinnulífið. Nemendur öðlast lögverndað starfsheiti í lok námstímans og ganga beint inní verðmæt störf.
Iðnmenntun er mjög góður undirbúningur fyrir nám við Háskólann í Reykjavík