Morgunblaðið - 13.05.2019, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019
Gráar fyrir járnum Í Tel Aviv, þar sem Eurovision fer fram að þessu sinni,
er ekki óalgengt að rekast á fólk í herklæðum. Ljósmyndari Morgunblaðs-
ins gekk fram á þessar þungvopnuðu ungu konur á rölti sínu.
Eggert
Á aðalfundi Frjálsa líf-
eyrissjóðsins sem fram fer í
dag í Arion banka verður
lögð fram tillaga mín um
breytingu á grein 4.9. í
samþykktum sjóðsins. Til-
lagan skerpir á sjálfstæði
sjóðsins, kveður á um starf
framkvæmdastjóra sem ný-
lega var ráðinn af sjóðnum
og veitir stjórn heimild að
gera rekstrarsamning við
fjármálafyrirtæki um dag-
legan rekstur sjóðsins í heild eða að
hluta og er áskilið að rekstrarsamning-
urinn skuli birtur á vefsíðu sjóðsins.
Þegar þessi tillaga mín var kynnt í
stjórn á síðasta stjórnarfundi þá gerði
meirihluti stjórnar tillöguna að sinni en
bætti við nýrri málsgrein um að breyt-
ingar á rekstrarfyrirkomulagi og
rekstraraðila þurfi að bera undir sjóð-
félagafund og öðlist aðeins gildi með
auknum meirihluta, 2/3.
Með þeirri viðbót er verið að viðhalda
óbreyttu vistarbandi sjóðsins hjá Arion
banka og gera nýjar samþykktir jafn
íþyngjandi og núverandi, jafnvel þó að
nafn bankans sé farið úr samþykktum.
Eðlilegra hefði verið að sjóðfélagar
hefðu fyrst kosið um rekstraraðila áður
en hann væri festur í sessi.
Stjórn lífeyrissjóðs ber ábyrgð á
starfsemi sjóðsins samkvæmt lögum og
ætti að hafa svigrúm til að
leita hagkvæmustu leiða
til útvistunar á einstaka
þáttum rekstursins í heild
eða hluta. Það að bera
breytingar á útvistun og
val á ólíkum tilboðum
mögulegra rekstraraðila
undir ársfund er til þess
fallið að gera starfsemina
óskilvirka og kostn-
aðarsama.
Ársfundurinn í dag
markar þau tímamót að
bankinn hættir að tilnefna
stjórnarmenn. Það færi vel
á því að á sama fundi fengi stjórn sjóðs-
ins eðlilegt frelsi til athafna og gæti
valið rekstraraðila að undangengnu út-
boði. Þannig mætti lækka kostnað
sjóðsins sem er meiri en sambærilegra
sjóða.
Eftir Halldór Friðrik
Þorsteinsson
» Það að bera breytingar
á útvistun og val á
ólíkum tilboðum mögulegra
rekstraraðila undir ársfund
er til þess fallið að gera
starfsemina óskilvirka
og kostnaðarsama.
Halldór Friðrik
Þorsteinsson
Höfundur er í stjórn
Frjálsa lífeyrissjóðsins.
Óbreytta vistarbandið
Í dag fer fram
ársfundur Frjálsa
lífeyrissjóðsins.
Gagnrýni á rekstr-
arfyrirkomulag
sjóðsins undir pils-
faldi Arion banka og
afskipti Fjármála-
eftirlitsins af mál-
efnum hans hafa
knúið núverandi
stjórn til að koma
fram með tillögur
um breytingar á regluverki líf-
eyrissjóðsins sem miða að því að
gera hann sjálfstæðari gagnvart
rekstraraðilanum. Nú hefur sjóð-
urinn loksins ráðið eigin fram-
kvæmdastjóra. Þá stendur til að
afnema ákvæði í samþykktum
sjóðsins sem veitir bankanum
einkarétt á að þjónusta sjóðinn.
Það er einnig löngu tímabært. Þó
leggur meirihluti stjórnar fram
tillögu sem felur í sér að aukinn
meirihluta atkvæða á ársfundi
þurfi til að segja upp rekstrar-
aðila sjóðsins. Eðlilegra er hins
vegar að setja það í hendi stjórn-
ar sjóðsins að ákveða hvernig
rekstri sjóðsins er háttað hverju
sinni. Að binda uppsögn
rekstrarsamnings við slíkan
meirihluta á ársfundi virðist gert
til að styrkja stöðu
bankans í þessum
breytingum. Þá
stendur til að
heimila rafrænar
kosningar til
stjórnarsetu og sú
réttarbót, sem er
löngu tímabær,
færir kosninga-
réttinn í reynd til
allra sjóðfélaga.
Þeir þurfa þá ekki
lengur gera sér
ferð í Borgartún 19
í Reykjavík til að
hafa áhrif á stjórn sjóðsins.
Frekari breytingum verður að
koma fram ef á að nútímavæða
sjóðinn að fullu og gera hann í
raun sjálfstæðan. Þannig þarf að
færa starfstöð sjóðsins út úr Ar-
ion banka og færa undir hann
ákveðna kjarnastarfsemi sem
ávallt hefur verið útvistað til
bankans. Líkt og tíðkast hjá
sjálfstæðum lífeyrissjóðum.
Sömuleiðis þarf að aðskilja end-
urskoðun bankans frá endur-
skoðun sjóðsins en sama endur-
skoðunarfélag hefur um árabil
þjónað báðum. Það er ekki heppi-
legt fyrirkomulag. Á síðasta árs-
fundi lýsti formaður endurskoð-
unarnefndar sjóðsins, sem
raunar er aðeins skipuð stjórnar-
mönnum, því yfir að farið yrði
með endurskoðun sjóðsins í út-
boð. Af því hefur þó ekki orðið.
Til þess að fylgja nauðsynlegu
breytingarferli eftir er æskilegt
að ákveðin endurnýjun verði í
stjórn sjóðsins. Stjórnarmenn
sem setið hafa í mörg ár, sem
ýmist voru skipaðir af bankanum
eða kosnir á grundvelli yfirráða
bankans, gefa allir kost á sér að
nýju. Það virðist því vera eftir-
sóknarvert að stýra lífeyrissjóði
svo árum og áratugum skiptir.
Hagsmunum sjóðfélaga
Frjálsa lífeyrissjóðsins er best
borgið á þessum tímamótum með
því að stokkað sé upp í stjórninni
og valdir séu nýir stjórnarmenn
sem líklegir eru til þess bera með
sér ný og fersk viðhorf inn í
stjórnina. Ég skora því á sjóð-
félaga að fylkja sér um að kjósa
nýtt fólk í stjórn sjóðsins á árs-
fundinum í dag.
Eftir Hróbjart
Jónatansson » Til þess að fylgja
nauðsynlegu
breytingarferli eftir
er æskilegt að ákveð-
in endurnýjun verði í
stjórn sjóðsins.
Hróbjartur
Jónatansson
Höfundur er lögmaður og sjóð-
félagi í Frjálsa lífeyrissjóðnum.
Frelsið er yndislegt
Það eru spennandi
tímar hjá Frjálsa
lífeyrissjóðnum. Tímar
umbreytinga og fram-
tíðarpælinga. Stjórn
Frjálsa hefur unnið öt-
ullega að því að hrinda í
framkvæmd sam-
þykktum síðasta árs-
fundar og það endur-
speglast í tillögum
stjórnar fyrir ársfund-
inn í dag mánudag 13. maí. Þar er
lögð til sú meginbreyting að heiti
rekstraraðila sem jafnan hefur verið í
samþykktum sjóðsins frá upphafi,
verði tekið út úr þeim.
Engum blöðum er um það að fletta
að verið er að gera sjóðinn óbundinn
núverandi rekstraraðila, Arion banka.
Þar á ofan eru nú allir stjórnarmenn
kjörnir af sjóðfélögum sjálfum. Þar
með lýkur því tímabili að bankinn
skipi minnihluta stjórnar. Það kann
vel að vera að á komandi árum telji
stjórn sjóðsins hag hans betur borgið
með sjálfstæðum rekstri eða með
sameiningu við annan sjóð sem er
með sjálfstæðan rekstur. Mögulega
verður sjóðurinn of stór til að geta
verið með banka sem rekstrarlegt
bakland.
En mikilvægasta verkefnið verður
ætíð að standa vörð um lífeyrissparn-
aðinn, ávaxta hann með traustum
hætti og greiða lífeyri. Allar meiri-
háttar ákvarðanir um skipan sjóðsins
verður því að taka af yfirvegun og á
þann hátt að traustur vilji sjóðfélaga
búi að baki en ekki einstaka upphlaup.
Frá stofnun sjóðsins 1978 hefur
verið tilgreint í samþykktum hans
hver sé rekstraraðili sjóðsins. Það er
algjör afbökun á sannleikanum, sem
haldið hefur verið fram, að stjórn
leggi fram tillögu um að festa sjóðinn
hjá Arion banka með því að það þurfi
2⁄3 hluta atkvæða á ársfundi til að
breyta um rekstraraðila. Þannig eru
samþykktir sjóðsins í dag, að það þarf
2⁄3 hluta greiddra atkvæða til að skipta
um rekstraraðila vegna þess að Arion
banki er tilgreindur í samþykktum
sem rekstraraðili sjóðsins. Stjórnin
leggur hinsvegar til að nafn bankans
verði tekið úr samþykktunum en að
stjórn hafi heimild til að semja við
rekstraraðila um dag-
legan rekstur sjóðsins.
Það er mikilvægt
ákvæði í tillögu stjórn-
ar að hafa valdið áfram
hjá sjóðfélögum ef
breyta á rekstrarfyrir-
komulagi eða skipta um
rekstraraðila.
Vilja menn virkilega
að fjórir einstaklingar í
stjórn geti tekið svo af-
drifaríkar ákvarðanir
um rekstur sjóðsins?
Ég hef ekki trú á því.
Rafrænar kosningar framundan
Sjóðfélagalýðræði hefur verið ofar-
lega á blaði í stjórn Frjálsa. Meðal
annars er fullur vilji til þess að auka
möguleika sjóðfélaga til áhrifa með
rafrænum kosningum. Lagt er til að
stjórn hafi þá heimild að efna til raf-
rænna kosninga. Á hinn bóginn þarf
að vanda mjög til slíkra kosninga og
reynslan sýnir að upp geta komið
hnökrar sem skapa tortryggni varð-
andi slíkt kosningafyrirkomulag.
Stjórnin er einhuga í því að stefna að
rafrænum kosningum en vill halda
þeim möguleika opnum að viðhafa
hefðbundna kosningu sem útgöngu-
leið komi eitthvað upp á. Það er skyn-
samlegt og varfærnislegt en fullur
vilji er til þess að rafrænar kosningar
meðal sjóðfélaga verði það sem koma
skal.
Ávöxtun Frjálsa
stenst samanburð
Í grein frambjóðenda til stjórnar-
kjörs og á síðasta ársfundi hefur verið
stillt upp samanburði á kostnaði
Frjálsa lífeyrissjóðsins og Almenna
lífeyrissjóðsins. Beinn kostnaður
sjóðanna var sambærilegur 2018,
0,33% af eignum hjá Frjálsa og 0,30%
hjá Almenna og munaði því aðeins
0,03 prósentustigum. Mismunur á
óbeinum kostnaði, sem felur í sér
kostnað vegna fjárfestinga í sjóðum,
skýrist fyrst og fremst af mismun-
andi áherslum sjóðanna í eignastýr-
ingu hverju sinni.
Ávöxtun sjóðsins hefur verið góð
undanfarin ár. Síðastliðið eitt ár er
ávöxtun fjárfestingarleiða sjóðsins
8,2%-14,1%, sl. 5 ár 5,8%-8,9% og sl.
10 ár 7,2%-10,7% á ársgrundvelli.
Stærsti hluti kostnaðar Frjálsa er
umsýsluþóknun til Arion banka fyrir
rekstur sjóðsins. Andvirði umsýslu-
þóknunarinnar hefur bankinn m.a.
nýtt til að sinna öflugu markaðs- og
sölustarfi fyrir sjóðinn, svo og allri
annarri starfsemi fyrir sjóðinn. Hefur
það gengið mjög vel því sjóðurinn
hefur stækkað hlutfallslega meira en
lífeyriskerfið í áraraðir og tæplega
tvöfalt fleiri greiða skylduiðgjald í
Frjálsa en Almenna að meðaltali í
hverjum mánuði, um 15.400 manns í
Frjálsa en 8 þúsund í Almenna miðað
við árið 2018. Það er markmið sjóðs-
ins að lækka hlutfallslegan kostnað
og mun það gerast hraðar eftir því
sem sjóðurinn stækkar meira. Það
sem skiptir hinsvegar aðalmáli fyrir
sjóðfélaga er ávöxtun sjóðfélaga og
hvaða lífeyri hann fær fyrir iðgjöldin
sín. Hvort sem horft er til 10 ára eða
15 ára er ávöxtun Frjálsa hærri í öll-
um fjárfestingarleiðum heldur en hjá
Almenna.
Frelsi til að velja skiptir máli
Sjóðfélagar Frjálsa velja að greiða
í sjóðinn og eru ekki undir neinni
nauðung. Líki þeim ekki starfsemi
sjóðsins, þá geta þeir hvenær sem er
ákveðið að greiða iðgjöld í annan sjóð
og flutt séreign sína úr sjóðnum. Það
er þetta frelsi sem vísað er til í nafni
sjóðsins og það hefur skipt miklu máli
í þróun lífeyriskerfisins á Íslandi. Um
60 þúsund sjóðfélagar hafa valið að
greiða í sjóðinn og enginn frjáls sjóð-
ur er með eins marga virka sjóð-
félaga. Á síðasta ári völdu tæplega 23
þúsund sjóðfélagar að greiða iðgjöld
til sjóðsins.
Ég vona að sem flestir sjái sér fært
að mæta á ársfund Frjálsa og sækist
eftir stuðningi í stjórnarkjöri. Það er
mikill heiður að hafa notið trausts til
þess að sinna stjórnarstörfum í
Frjálsa. Á þeim vettvangi eru fram-
undan mikilvæg og krefjandi verkefni
sem ég býð mig fram til að sinna af
kostgæfni.
Eftir Elínu
Þórðardóttur
Elín Þórðardóttir
» Vilja menn virkilega
að fjórir einstakling-
ar í stjórn geti tekið svo
afdrifaríkar ákvarðanir
um rekstur sjóðsins?
Traustur vilji sé
fyrir ákvörðunum
Höfundur er stjórnarmaður í Frjálsa.