Morgunblaðið - 13.05.2019, Side 16

Morgunblaðið - 13.05.2019, Side 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019 Sálm. 86.5 biblian.is Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HREINN BJARNASON kaupmaður, Laugarnesvegi 87, Reykjavík, lést á Landakoti miðvikudaginn 1. maí Útför hans fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 15. maí klukkan 13. Blóm vinsamlega afþökkuð. Anna B. Agnarsdóttir Lilja Hreinsdóttir Guðlaugur Þór Þórarinsson Björk Hreinsdóttir Björn G. Aðalsteinsson Þóranna Hrönn, Gunnar Már, Elín Margrét, Anna María og Bjarki Valdimar ✝ Lilja BergeyGuðjónsdóttir fæddist á Skaga- strönd 19. október 1944. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 29. apríl 2019. Foreldrar Lilju voru Guðjón Ing- ólfsson, f. 1912, d. 1992, og Aðal- heiður Frímanns- dóttir, f. 1923, d. 2008. Systkini hennar eru Ármann Þór, f. 1942, Jóna Ósk, f. 1948, Lárus Sólberg, f. 1951, Ólafur Valgeir, f. 1958 og Ingi Hafliði, f. 1964. Fyrstu árin bjó Lilja á Skaga- strönd en flutti til Hafnar- fjarðar með foreldrum sínum og systkinum 1952 og þar bjó hún alla tíð síðan. Lilja giftist 15. júní 1963 Árna Inga Guðjóns- syni, f. 1944. Foreldrar hans voru Guðjón Árnason, f. 1909, d. 1990, og Magnúsína Katrín Guðjónsdóttir, f. 1912, d. 1974. Systkini Árna eru Guðjón Rún- ar, f. 1940, d. 1978, og Auður, f. 1943. Synir Lilju og Árna eru: fóru þau 1976 á Ölduslóð 6. Frá 1991 bjuggu þau á Arnarhrauni 31. Fyrstu búskaparárin var Lilja heimavinnandi. Síðar fór hún að vinna utan heimilisins, aðallega við verslunarstörf í hlutastarfi áður en hún lærði til sjúkraliða. Í mörg ár var hún sjúkraliði á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Þegar bakveiki fór að há henni við sjúkraliða- starfið færði hún sig um set og vann í nokkur ár á röntgendeild spítalans. Eftir það vann hún um tíma í Fjarðarkaupsapóteki og í nokkur ár á Heilsugæslunni Sólvangi uns hún lét af störfum 2008 í kjölfar veikinda nokkru áður en hún fór á eftirlaun. Hún náði sér nokkuð góðri af þeim veikindum en haustið 2018 veiktist hún aftur er hún greindist með krabbamein sem að lokum lagði hana að velli. Lilja var einn af stofnendum kvennadeildar FH og í fyrstu stjórn þess og formaður um tíma. Þá sat hún í stjórn hand- knattleiksdeildar FH í nokkur ár, en bæði Árni og síðar syn- irnir voru allir keppnismenn þar. Eins starfaði hún mikið fyrir kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafnarfirði, m.a. sem formað- ur. Útför Lilju Bergeyjar verður gerð frá Víðistaðakirkju í dag, 13. maí 2109, klukkan 15. 1) Guðjón, f. 1963, kvæntur Hafdísi Stefánsdóttur, f. 1962, þeirra börn a) Árni Stefán, f. 1986, maki Gerða Kristinsdóttir, f. 1989, dóttir þeirra er Hafdís Lilja, f. 2017. b) Hildur Rún, f. 1994, unn- usti hennar er Ísak Jasonarson, f. 1995. 2) Magnús, f. 1964, kvæntur Ragnheiði Ásmundsdóttur, f. 1967, þeirra börn a) Lilja Björg, f. 1991, b) Arnar Helgi, f. 1996, unnusta hans er Þórey Sif Hrafnsdóttir, f. 1999, c) Ásdís Inga, f. 1998, unnusti hennar er Sigurður Eðvarð Ólafsson, f. 1997, d) Magnús Fannar, f. 2000. 3) Jónas, f. 1969, kvæntur Berglindi Öddu Halldórsdóttur, f. 1973, synir þeirra a) Halldór Ingi, f. 1995, unnusta hans er Viktoría Valdís Utley, f. 1995, og Kristófer Máni, f. 2002. Lilja og Árni hófu búskap sinn í Köldukinn 19 en fluttu 1966 á Álfaskeið 80 og þaðan „Þessi lilja er mín lifandi trú“ segir í ljóðinu Liljan (texti eftir Þorstein Gíslason) en það hefur verið mér hugleikið frá andláti móður minnar enda margt sem þar segir sem á vel við. Missir okkar allra er mikill og þá ekki síst pabba enda hafa þau staðið saman í vel yfir hálfa öld. Mamma var sú sem leitað var til þegar eitthvað bjátaði á en pabbi ef það þurfti að laga eitthvað. Það væri hægt að hafa mörg orð um allar þær minningar sem komið hafa upp undanfarið. Ég er hins vegar ekki þekktur fyrir að tala of mikið að óþörfu og ætla hér að halda mig við það og láta nægja að minnast hennar með stolti yfir því að geta sagst vera sonur hennar. Ef maður getur það eru frekari orð óþörf og ég get svo sannarlega sagt með stolti: Lilja Guðjóns er mamma mín. Það á svo vel við að hafa loka- orðin úr Liljunni sem verður sungin í útförinni og mun örugg- lega framkalla tár, a.m.k. hjá mér. Og veturinn komi með kulda og klaka og hríðar og snjó, hún lifir í hug mér sú lilja og líf hennar veitir mér fró. Hvíl í friði, elsku mamma mín. Þinn sonur Magnús. Vorið, tíminn þegar gróðurinn vaknar, sól hækkar á lofti og huga þarf að sumarblómunum var tími sem hún Lilja tengda- móðir mín naut. Hún lagði sig fram um að hafa falleg sumar- blóm í garðinum og hafa hann snyrtilegan og svo þurfti auðvitað að setja niður kartöflur. En það var líka annar garður sem hún Lilja hugsaði vel um og það var hennar nánasti „garður“, fjöl- skyldan hennar. Það gátu allir leitað til Lilju og hún sýndi alltaf öllum áhuga. Hún var ákaflega stolt af barnabörnunum sínum og var góður vinur þeirra. Hún hringdi gjarnan til að athuga með þau og ef einhver var veikur var hún alltaf með góð ráð og jafnvel mætt með eitthvert góðgæti. Það var líka yndislegt að hlusta á hana segja frá litlu langömmu- stelpunni sem hún var svo ham- ingjusöm með. Mín fyrstu kynni af Lilju voru fyrir um þrjátíu árum þegar Maggi kynnti mig fyrir foreldr- um sínum á Ölduslóðinni og dreif sig svo á æfingu og skildi mig eft- ir eina með þeim. Lilja og Árni tóku mér bæði strax svo vel og tókst að gera þessi fyrstu kynni létt. Ég man að ég hugsaði með mér hvað þetta væri svakalega hugguleg kona og smart. Lilja lagði sig nefnilega alltaf fram um að vera vel tilhöfð. Það var alltaf gott að leita til Lilju og alltaf stóðu dyrnar henn- ar opnar fyrir mér. Sama hvert erindið var; eitthvað varðandi krakkana, bakstur, rabarbar- asultu eða bara spjall yfir kaffi- bolla. Báðar vildum við nefnilega hafa kaffið eins, með mikilli mjólk. Nú er vorið komið og gróður- inn að vakna en sá tími sem þér var ætlaður hérna með okkur er liðinn. Þér hefur sennilega verið ætlað að setja niður sumarblóm einhvers staðar annars staðar. Elsku Árni minn, þinn missir er mikill og megi góður Guð styðja þig og styrkja í sorginni. Elsku Lilja mín, það er margs að minnast á þrjátíu árum og söknuðurinn mikill. En ég er líka þakklát fyrir þessi ár og sérstak- lega að hafa fengið þig sem tengdamömmu. Guð blessi þig, elsku Lilja mín. Þín tengdadóttir Ragnheiður. Elsku Lilja mín. Undanfarnir dagar hafa verið erfiðir og söknuðurinn mikill. Að horfa á hópinn þinn í kringum þig segir allt sem segja þarf. Árni og strákarnir, við tengdadæturnar, barnabörnin og litla skottan, nafna okkar hún Hafdís Lilja, systkini ykkar beggja og makar, allir vinirnir og frændfólk sem komu til þín. Þú varst hrókur alls fagnaðar. Alltaf. Hugurinn reikar til fyrstu ár- anna þegar ég kynntist þér. Mömmu hans Gaua, sjúkraliðan- um Lilju, mömmu Magga og Jón- asar og konunnar hans Árna. Það fór fátt framhjá þér og þýddi nú lítið að læðast út í morgunsárið af Ölduslóðinni. Það var nefnilega þannig að þú fórst allaf fyrst á fætur og sast við eldhúsborðið í uppáhalds stellingunni þinni; með fæturna uppi á borði og bauðst góðan daginn. Úff, þar var ég nöppuð. Þú þekktir mig alveg, þú varst vinkona Geggu frænku og hafðir leikið við pabba í æsku. Við smullum saman. Þú bauðst mér að borða, lúðu og hvítvín. Æi ég hafði nú aldrei borðað lúðu. En ég lét slag standa og þetta var auðvitað æði eins og allur matur sem þú eldaðir. Þú varst fljót að fatta að ef ég vissi ekki af hvað skepnu kjötið var, þá borðaði ég það. Þú plat- aðir mig bara, hentir pappírnum af kjötinu og sagðir: „Það er kjöt í matinn.“ Þú og Árni óluð upp frábæra stráka. Þú varst mamman sem alltaf var með keppnisdótið tilbú- ið, meira að segja straujaðir það. Þeir urðu að líta vel út á vellinum og lykilatriði að vera með treyj- una gyrta í buxurnar. Árin liðu og Árni Stefán fædd- ist, fyrsta ömmu- og afabarnið. Þú taldir það nú ekki eftir þér að koma til okkar og passa svo við gætum unnið og alls ekki mátti fara með barnið út í kuldann, þú komst bara heim. Við Gaui giftum okkur og hver hélt ræðu? Nú auðvitað Lilja Guðjóns og afhentir mér afsal fyrir Guðjóni með þeim orðum að ekki yrði tekið við honum til baka. Ef ég kvartaði eitthvað þá vitnaðir þú í afsalið sem afhent var í votta viðurvist. Hildur Rún fæddist, en þá var amma Lilja í meiri vinnu en samt varstu alltaf til í að grípa inn í þegar þú gast, með pössun, gefa að borða, skutla eða hvað sem var og lofaðir nú oftast fyrir ykkur bæði því Árni sá um skutlið. Þú felldir gleðitár þegar fyrsta langömmubarnið fékk nafnið þitt og mitt, Hafdís Lilja, svo mikill gleðigjafi þetta litla ljós og ég er sorgmædd yfir því að hún fái ekki að hafa þig hjá sér lengur, en ég verð dugleg að segja henni sögur af þér. Þú varst alltaf vel upplýst um hvað hver og einn var að gera og stoltið leyndi sér ekki þegar þú talaðir um þitt fólk. Þú varst eitthvað svo elegant kona. Passaðir upp á útlitið, fórst ekki út án þess að setja á þig and- litið eins og þú sagðir, vildir klæðast flottum fötum og passa hárið. Þetta passaðir þú algjör- lega fram á það síðasta. Elsku Lilja mín það er svo margt sem mig langar að segja en orðin koma bara ekki. Mig langar að þakka fyrir svo margt, en umfram allt að þakka þér fyrir að hafa verið heimsins besta tengdamamma, því það eru sko ekki allir svona heppnir eins og við tengdadæturnar þínar þrjár. Takk fyrir allt. Þar til seinna. Þín Hafdís. Enn missum við góða vinkonu. Við vorum átta stelpur sem fórum að hittast í saumaklúbbi fyrir 57 árum, þekktumst af Vest- urbrautinni, úr skólanum og sundfélaginu. Með okkur þróað- ist innileg vinátta, virðing og kærleikur í blíðu og stríðu. Lilja er sú þriðja sem fer, Klara og Sigrún taka á móti henni og nú verður hóað í saumaklúbb. Í Lilju áttum við góða, duglega og sterka vinkonu, sem var alltaf til staðar, sagði það sem hún meinti, dreif í hlutunum og var með báða fætur á jörðinni. Vertu sæl, kæra vinkona, og hafðu þökk fyrir samveruna. Þú, Klara og Sigrún verðið alltaf hluti af okkur, við söknum ykkar. Árna og fjölskyldunni sendum við innilegar samúðar- kveðjur. Saumaklúbburinn, Auður, Hrafnhildur, Gerður, Ólöf og Soffía. Lilja hans Árna – Árni hennar Lilju. Þannig voru þau nefnd þegar annað þeirra eða bæði bárust í tal í fjölskyldunni eða vinahópnum. Við vorum svo heppin að eignast vináttu þeirra hjóna fyrir rúmum fimmtíu árum. Þeirra vinátta náði ekki bara til okkar hjónanna heldur hafa börn okkar og barna- börn notið elsku þeirra og um- hyggju alla tíð. Það var traustur og góður vinahópur sem varð til í kringum meistaraflokk karla í handbolta hjá FH upp úr 1960. Hann stækkaði fljótt þegar yngri leikmennirnir fóru að festa ráð sitt og konunum fjölgaði, fjöl- skyldurnar stækkuðu og sam- skiptin urðu nánari. Það voru haldnar ýmiskonar skemmtanir, farið í útilegur með fjölskyldurn- ar, ferðast til útlanda og svo auð- vitað stutt við félagið okkar með ýmsu móti. Lilja átti stóran þátt í að gera allt svo auðvelt og skemmtilegt með drifkrafti sín- um og glaðværð. Hún var sann- kallaður gleðigjafi, hrein og bein með stórt hjarta og umhyggju fyrir sínu fólki og vinum. Það var alltaf opið hús hjá þeim hjónum öllum mætt með hlýju og gleði. Drengirnir þeirra eru foreldrum sínum gott vitni, elskulegir og góðir menn. Við fjölskyldan minnumst Lilju með miklu þakk- læti fyrir alla hennar vináttu og stuðning alla tíð. Það er mikið ríkidæmi að eignast slíka vini eins og þau hjón. Kæri Árni, Guðjón, Magnús, Jónas og fjöl- skyldur, megi allar góðu minn- ingarnar hugga ykkur og styrkja. Inga, Magnús, Sólveig, Laufey og fjölskyldur. Á kveðjustundu kemur margt upp í hugann. Það er ekki sjálf- sagt að kynnast svo góðu og vönduðu fólki eins og þeim hjón- um Árna og Lilju. Við kynntumst Lilju í kringum 1980; hún var ein af þessum orkumiklu konum sem vann úti, hélt utan um alla kraft- miklu strákana sína sem hafa mikið látið til sín taka innan vall- ar sem utan, sinnti félagsstörf- um, m.a. fyrir fimleikafélagið. Oftar en einu sinni var hringt; þá var Lilja að sjá um helgarmót FH fyrir yngri flokka í handbolta og vantaði dómara og það var bara þannig að maður sagði alltaf já við Lilju þó að kl. væri 8 á sunnudagsmorgni! Síðastliðin 15 ár höfum við átt nána og hnökralausa samleið með Lilju og Árna síðan við flutt- um á efri hæðina á Arnarhraun- inu. Það var ómetanlegt að eign- ast svona góða nábýlinga. Við fengum fljótt að kynnast góðvild og hlýju af neðri hæðinni enda hefur ekki verið talin þörf á að setja hita í gólf hér uppi. Lilja vildi hafa allt á hreinu, var ákveðin og tillitssöm, umhug- að að öllum liði vel. Jú, hún var klárlega verkstjórinn í garðin- um, gaf hekklínuna og var hug- myndasmiðurinn varðandi rósir og beð. Garðinn vildi hún hafa snyrtilegan. Mál varðandi fram- kvæmdir í húsinu voru alltaf rædd og leyst í sátt. Lilja með sitt stóra hjarta mátti ekkert aumt sjá og alltaf tilbúin að leggja til hjálparhönd ef með þurfti, endalaus almenni- legheit og hjartahlýja skreytt með góðu skopskyni. Kringum hana var gaman að vera, hún var góður gestgjafi og náði að skapa þessa þægilegu stemningu þar sem þú varst alltaf velkomin og líðan betri eftir kaffispjall. Ef eitthvað stóð til á efri hæðinni var hún ávallt boðin og búin til að aðstoða af kærleika, örlæti og gleði. Eitt sinn mætti hún upp með fulla stauka af marglitum vanilluhringjum. Þá hafði okkur í efra dottið í hug að halda litríka veislu. Hún talaði ekkert um þetta en dreif sig í Fjarðarkaup, keypti matarliti og var síðan mætt upp stuttu síðar með her- legheitin. Stundum var hávaði í efra hvort sem það tengdist næt- urgleði eða múrbroti. Aðspurð kvaðst Lilja bara ekki hafa orðið vör við neinn hávaða eða ein- hverja truflun! Óteljandi eru þau skiptin sem hún opnaði fyrir okkur þegar við vorum læst úti. Við fundum líka oft og vel hvað Lilja dreifði vel af gæsku sinni og væntumþykju til fjölskyldu og vina. Hún var hörkutól og mikil keppnismann- eskja sem nýttist í hennar bar- áttu við langvinnt heilsuleysi sem hún tókst á við af mikilli þrautseigju og gaf ekkert eftir. Nei, hún ætlaði ekki að láta veik- indi trufla það sem henni þótti skemmtilegt að gera; hún dubb- aði sig upp, setti á sig varalit og brunaði af stað. Horfði alltaf fram á veginn þar sem hún sá eitthvað skemmtilegt til að njóta og gleðjast með öðrum. Lilju verður víða sárt saknað en við vitum að lífsgleði hennar og kærleikur mun lifa áfram. Um leið og við þökkum Lilju ómet- anlega vináttu viljum við senda fjölskyldu hennar okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Jón Þór, Sif og Stefán Þór. Hún Lilja Guðjónsdóttir var gleðigjafi. Brosmild, hlý og nær- vera hennar litaði ávallt allt nán- asta umhverfi og samferðarfólk. Fólki þótti jafnan gott að njóta vináttu hennar og elsku. Og nú er hún öll, en Lilja lést eftir erfið veikindi. Í þeirri veikindabaráttu kom styrkur hennar, æðruleysi og jafnlyndi svo sannarlega vel í ljós; hún bar höfuðið hátt og gerði lítið úr eigin ástandi og veikindum, þegar um var spurð af samferðarfólki. Lilja var gegnheill FH-ingur eins og allt hennar fólk. Eigin- maðurinn Árni Guðjónsson leik- maður FH í handbolta um ára- raðir og margfaldur Íslandsmeistari. Og synirnir þrír, Guðjón, Magnús og Jónas, héldu þeim bolta á lofti síðar meir með glæsibrag og nú eru það sonarbörnin sem halda því merki hátt á lofti. Og ávallt var Lilja kjölfestan í íþróttum eigin- manns og sona; mætt til leiks hvetjandi og glöð. Félagsstörfin hvort sem var sem burðarás inn- an kvennadeildar FH eða í stjórn handknattleiksdeildar félagsins, ómældar stundir og elja, allt fyr- ir félagið. Við vitum að FH-ingar kveðja þessa sómakonu með söknuði og virðingu. Og hún Lilja var líka krati – gegnheill jafnaðarmaður, eins og fjölmargir Hafnfirðingar af hennar kynslóð. Hún átti ekki langt að sækja það, því pabbi hennar, Guðjón, var varabæjar- fulltrúi fyrir Alþýðuflokkinn forðum daga og systir Lilju, Jóna Ósk, var bæjarfulltrúi um árabil. Jóna Ósk varð raunar fyrsta kon- an sem varð forseti bæjarstjórn- ar Hafnarfjarðar árið 1986. Lilja var sterkur stólpi í bakvarðasveit hafnfirskra jafnaðarmanna um áratuga skeið fyrir Alþýðuflokk- inn, hvort sem var innan flokks- ins eða í Kvenfélagi Alþýðu- flokksins í Hafnarfirði þar sem hún var formaður um skeið. Við sem þessar línur ritum þökkum fyrir góða samvinnu og hjálp hennar í blíðu og stríðu á vett- vangi stjórnmálanna. Fólk varð betra af kynnum og samveru við Lilju Guðjónsdóttur. Allt hennar fólk, stórfjölskyldan, er mikið sómafólk sem hefur styrkt nærsamfélagið, Hafnar- fjörð, í leik og starfi. En nú hefur ættmóðirin kvatt hinstu kveðju og afkomendur syrgja og minn- ast góðra stunda. Þeim sendum við okkar innilegustu samúðar- og kærleikskveðjur. Guð blessi minningu Lilju Guðjónsdóttur. Guðmundur Árni Stef- ánsson, Gunnar Svavarsson og Ingvar J. Viktorsson. Ég vil gjarnan lítið ljóð láta af hendi rakna. Eftir kynni afargóð ég alltaf mun þín sakna. (Guðrún V. Gísladóttir) Lilja var ein þeirra dásamlegu FH-eiginkvenna sem tóku mér fagnandi í hópinn árið 1976. Frábærir tímar fóru í hönd hjá góða hópnum okkar og árum saman vorum við ein heild á bak við sigursælu „kallana“ okkar í handboltanum. En Lilja var líka sannur krati og fylgdi Alþýðuflokknum að málum. Á þeim vettvangi lágu leiðir okkar oft saman. Ég minnist hennar hér í örfá- um orðum þar sem ég á þess ekki kost að fylgja henni hinsta spöl- inn. Ég þakka Lilju yndislega sam- ferð, einstaka hlýju og velvild sem hún sýndi mér alltaf. Ég bið henni blessunar og góðrar heim- komu. FH hefur misst dyggan stuðn- ingsmann. En Árni og strákarnir þeirra frábæru og barnabörnin halda merkinu á lofti. Árna vini mínum, strákunum, tengdadætrum, barnabörnum og systkinum Lilju sendi ég mínar hlýjustu kveðjur. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Jóna Dóra Karlsdóttir. Lilja Bergey Guðjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.