Morgunblaðið - 13.05.2019, Side 17

Morgunblaðið - 13.05.2019, Side 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019 Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN EINARSDÓTTIR, áður til heimilis á Flókagötu 1, Reykjavík, lést miðvikudaginn 1. maí á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Reykjavík. Hún verður jarðsungin í Hallgrímskirkju þriðjudaginn 14. maí klukkan 13. Fríða Bjarnadóttir Tómas Zoëga Anton Bjarnason Fanney Hauksdóttir Bjarni Bjarnason Kristín Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁSTA HALLÝ NORDGULEN, lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 9. maí. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 17. maí klukkan 13. Erla M. Nordgulen Ásgeirsd. Jón Einarsson Lúðvík Jóhann Ásgeirsson Guðrún Björg Berndsen Hildur Soffía Friðriksdóttir barnabörn og barnabarnabörn ✝ Bragi Sigur-þórsson verk- fræðingur fæddist á Fossá í Kjós 19. nóvember 1931. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans hinn 5. maí 2019. Foreldrar hans voru Sigurþór Ólafsson bóndi á Fossá, f. 9. mars 1899, d. 8. jan. 1933, og Þór- dís Ólafsdóttir ljósmóðir, f. 19. júní 1908, d. 27. júlí 1998. Eftirlifandi eiginkona Braga er Inga Björk Sveins- dóttir kennari, f. 24.4. 1941. Foreldrar hennar voru Hans- ína Friðrika Guðjónsdóttir og Sigurður Sveinn Ólafsson. Þau eignuðust fjögur börn: 1) Sólrún, f. 1.12. 1959, óperu- söngkona, sonur hennar og fv. eiginmanns, Bergþórs Pálssonar, er Bragi, f. 16.4. Björk, f. 23.11. 2005, og Val- gerður, f. 18.8. 2008. Bragi varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1951. Hann tók fyrrihluta- próf í verkfræði frá Háskóla Íslands 1954 og próf í bygg- ingaverkfræði frá DTH í Kaupmannahöfn 1957. Hann var verkfræðingur hjá Al- menna byggingafélaginu í Reykjavík 1957-1971. Bragi stofnaði ásamt öðrum Al- mennu verkfræðistofuna í Reykjavík 1971 og starfaði þar uns hann lét af störfum um sjötugt. Bragi vann mikið við burðarþolsútreikninga en hann kom einnig að fjöl- mörgum stórum verk- framkvæmdum. Hann var m.a. hönnunarstjóri járn- blendiverksmiðjunnar á Grundartanga, verkefna- stjóri við hönnun og bygg- ingu Seðlabanka Íslands og hönnunar- og byggingastjóri við byggingu Þjóðarbók- hlöðu. Útför Braga fer fram frá Neskirkju í dag, 13. maí 2019, og hefst athöfnin klukkan 15. 1981, hann á tvö börn; Marsibil, f. 20.12. 2007, og Ólaf, f. 28.2. 2012. Dóttir Sólrúnar og fv. eiginmanns, Þórarins Stefáns- sonar, er Berg- lind Lilja, f. 16.2. 1994. 2) Þórdís, f. 7.4. 1964, sálfræð- ingur, eiginmaður hennar er Þor- björn Guðjónsson læknir. Börn þeirra eru Heba Björk, f. 28.1. 1992, og Tómas, f. 1.4. 1994. 3) Friðrik, f. 8.4. 1968, verkfræðingur, eiginkona hans er María Guðmunds- dóttir kennari. Synir þeirra eru Rafnar, f. 1.7. 1997, Bragi, f. 21.11. 1999, og Arn- ar, f. 5.8. 2002. 4) Brynja, f. 20.3. 1972, d. 25.7. 2015, vinnusálfræðingur, eigin- maður hennar: Ragnar Krist- insson. Dætur þeirra eru Inga Mér hafa alltaf fundist æsku- ár pabba sérstaklega merkileg. Hann fæddist á sveitabæ í Kjósinni og missti föður sinn strax á öðru ári. Skörungurinn amma Þórdís skildi pabba skömmu síðar eftir í sveitinni hjá ættingjum og lærði til ljós- móður í Reykjavík. Þegar hann var sex ára voru þau sameinuð á ný og fluttu í Borgarfjörðinn þar sem amma var héraðsljós- móðir. Þar sótti hann sinn sveitaskóla með því að mæta annaðhvort á hestbaki eða á hjóli. Allt eftir aðstæðum hverju sinni. Tólf ára fékk hann sín fyrstu laun sem verkamaður hjá Vega- gerð þess tíma. Notaðir voru hestar sem drógu kerrur með efni til að bera ofan í vegina í sveitinni. Það er ákveðinn sjarmi sem fylgir því að hugsa um pabba í þessum sporum. Þrettán ára flutti hann svo ósyndur sveitastrákurinn á Bar- ónsstíginn í Reykjavík. Það má segja að fjölskyldan hafi verið hans líf og yndi. Það eru sterk minningabrot sem tengjast honum að stússa í garðinum í Vogalandinu. Þegar framkvæmdir voru í gangi var allt reiknað í botn áður en haf- ist var handa. Pabbi setti niður gula mælingarhæla og strengdi band á milli eins og sannur fer- kantaður verkfræðingur. Það fæddist hver grænmetiskassinn á fætur öðrum. Pabbi smíðaði og fyllti á moldina en móðir mín tók svo við og gróðursetti. Sam- an framleiddu þau á hverju sumri tugi kílóa af grænmeti. Jarðarberin voru samt sem áð- ur aðalsælgætið. Það voru dá- semdarstundir hjá fjölskyldunni að tína sæt jarðarber og borða með rjóma eða ís. Það skipti engu hvaða verk fylgdi garð- inum eða húsinu; pabbi gekk í verkið og ég lærði mikið af því að fá að vera aðstoðarmaður hans. Saman grófum við stóra holu í garðinum og settum nið- ur heitan pott, lögðum lagnir að honum og smíðuðum pall og skjólgirðingar. Í minningunni er auðvitað alltaf gott veður og við fjöl- skyldan saman í garðinum að snæða góðan mat eða busla í pottinum. Þetta voru yndislegar stundir og gott að vera í nær- veru pabba á sínum eigin heimavelli. Skíðamennska er mitt aðal- áhugamál og ég þakka pabba fyrir að hafa komið því á. Helgi eftir helgi brunuðum við fjöl- skyldan með pabba á Lödu Sport upp í Bláfjöll þar sem við renndum okkur saman þangað til öll orka var á þrotum. Mér er sérstaklega minnisstætt þeg- ar við pabbi settumst saman í fyrsta skipti í glænýja stólalyftu sem nú heitir Drottningin. Það var toppdagur hjá okkur. Nú í vetur var ljóst í hvað stefndi hjá pabba. Hann tók þeim fréttum af miklu æðru- leysi. Hann vildi engan veginn valda okkur í fjölskyldunni áhyggjum. Hann vildi bara ljúka þessu af sem fyrst og það gerði hann. Það eru samt sem áður afar dýrmætar stundir sem ég átti með pabba þær vik- ur sem hann dvaldi á spítala nú undir lokin. Hann fór sáttur og sæll. Takk fyrir að vera pabbi minn alla tíð. Friðrik. Það er ýmislegt sem kemur upp í hugann þegar við hugsum um afa Braga. Hann var blíður og góður og það var alltaf nota- legt að vera með honum. Hann var alltaf eitthvað að stússa og þá sérstaklega í sumar- bústaðnum í Grímsnesi sem við köllum Bringu. Við bræður vor- um allir í fótbolta og afi útbjó stóra flöt við bústaðinn þar sem við gátum leikið okkur enda- laust. Við spiluðum líka oft botsía og þá tók afi þátt með okkur og var ansi lunkinn. Hann fann sér alltaf eitthvað til að laga eða smíða og var oft að hjálpa ömmu með grænmetis- ræktun. Það var heilmikið spjallað og spilað í sveitinni og afi var líka duglegur að fara með okkur og ömmu í göngu- túra. Þess á milli sat hann í ró- legheitum með bókina sína eða leysti krossgátur og sudoku. Afi hafði sérstaklega gaman af því að mæla hvað við værum stórir og var það reglulega merkt á einn stólpann á bústaðnum og spáð í það hvað við hefðum stækkað mikið síðan síðast. Afi var mjög fróður og hafði áhuga á að fylgjast með því sem við vorum að læra í skólanum og hvað við værum að bralla á dag- inn. Hann veitti okkur bræðrum alltaf athygli og hjálpaði okkur við allt það sem við leituðum til hans með. Þínir afastrákar Rafnar, Bragi og Arnar. Þegar minnast skal Braga Sigurþórssonar þá kemur fyrst upp í hugann hvers góður mað- ur hann var, hann barst aldrei mikið á en hafði góðan húmor fyrir hlutunum og það var alltaf hægt að spjalla við hann. Ég kunni strax vel við hann þegar Brynja dóttir hans kynnti mig fyrir honum, fljótlega eftir að við sjálf kynntumst. Oft sat ég og spjallaði við hann þegar aðrir fjölskyldumeðlimir voru að stússast eitthvað, og jafnvel oftar sátum við bara tveir í ró- legheitum saman og þurftum ekkert að spjalla. Hann hafði afar þægilega nærveru og var eins og afastelpurnar hans Inga Björk og Valgerður lýsa hon- um; góður maður, rólegur og góður hlustandi. Þá er líka ósagt hvað það var skemmtilegt vinna með honum. Ég man eftir mörgum dögum í sumarbústaðnum þeirra sem hann og Inga Björk, sem alltaf voru nær óaðskiljanleg, tóku við rúmlega fokheldum og gerðu að sínum eigin, við ýmis störf og voru það ófáar stund- irnar sem við fjölskyldan eydd- um í bústaðnum með þeim hjónum. Meðan Bragi hafði heilsu dvöldust þau þarna sumrin löng og alltaf var eitt- hvað að sýsla við. Þá var einna eftirminnilegast að Bragi var alltaf búinn að undirbúa allar framkvæmdir, teikna þær upp og skipuleggja vel. Það var al- veg klárt að hann var alltaf með öll handtökin á hreinu, hvort sem það var pallagerð eða gróð- urkassi. Hann var alla tíð verk- fræðingur fram í fingurgóma. Það var nefnilega engin til- viljun að Bragi, sem var sann- arlega ekki af efnafólki kominn, hafi klifið allar þær hindranir sem urðu á vegi ungs fólks á hans aldri og lokið námi sem verkfræðingur í Kaupmanna- höfn. Átti hann svo langan og farsælan feril í vinnu og bera margar af stærri byggingum Reykjavíkur því vitni. Í einkalífinu var Bragi líka lánsamur og átti góða fjöl- skyldu og börn, barna- og barnabarnabörn sem unnu hon- um. Það skyggði þó verulega á þegar Brynja dóttir hans féll frá langt fyrir aldur fram. And- lát Brynju var honum og Ingu Björk mjög þungbært og tók það mikið á hann og má segja að hann hafi aldrei verið samur eftir. Engu að síður þá var styrkur hans og hlýja ómetan- leg á þeim erfiðu tímum. Sér- staklega verður að minnast á hjálpsemi hans og það hversu vel hann ræktaði samband sitt við börn okkar Brynju. Alla tíð fram á síðustu daga tók hann sig til og keyrði þær á hinar ýmsu æfingar og frístundir, alltaf mættur (hvenær sem er, kvölds eða morgna) og aldrei fannst manni eins og hann væri að gera greiða og aldrei var erf- itt að biðja hann um aðstoð. Fyrir honum var þetta eðlileg- asti hluturinn og hafði hann líka mikla ánægju af. Með Braga fer góður maður af gamla skólanum, maður sem vann allt sem hann gerði af samviskusemi og alúð. Maður sem var einstaklega hjálpfús og maður sem kom vel fram, og af virðingu, við alla sem hann hitti. Hvíl í friði Bragi. Ragnar Kristinsson. Það er ljúft að láta hugann reika um samverustundir sem við hjónin höfum notið í fé- lagsskap Braga og Ingu Bjark- ar, um nær 60 ára skeið. Perlur minninga raðast saman, þær eru ólíkar að lit og lögun, sumar hafa orðið til á jökli, aðrar í suðrænum sandi, enn aðrar á landinu okkar fagra. Við sitjum á vélsleðum á Snæfellsjökli og brunum áfram í þoku, ætlum á toppinn. Skyndilega uppgötvum við að fararstjórinn er horfinn og við rammvillt, við stöðvum sleðana og bíðum átekta, en á toppinn komumst við. Bragi alltaf var- kár á ferðalögum og hugulsam- ur, sem brást þó einu sinni á öðrum jökli, nánar tiltekið á Grænlandi. Litli ferðaklúbbur- inn var staddur ásamt ferða- félögum í bátskænu við jökul- sporð. Strákarnir vippuðu sér frá borði og röltu frá bátnum, við Inga Björk einar eftir um borð hjá skipstjórnandanum, sem sá aumur á okkur og færði bátinn til svo við þyrðum að hoppa í land. Þetta er í eina skiptið sem ég man eftir að Bragi væri ekki með hugann við að aðstoða hana Ingu sína. Grænlandsjökull er heillandi í sól og blíðviðri eins og var í þetta sinn. Það léku einnig hlýir vindar um okkur þegar við dvöldum við Svartahafið og slógum þar upp brúðkaups- veislu, þar sem við giftum ferðafélaga eftir öllum kúnst- arinnar reglum, eða á Kúbu þar sem við heimsóttum m.a. heimili Ernest Hemingway. Bragi var fróðleiksfús, las mikið, nákvæm- ur, hjálpsamur og einstaklega góður og traustur félagi. Við fórum eitt sinn í píla- grímsferð að Kárahnjúkum. Umræðan um að þar væri ekki fallegt og að fáir hefðu komið þar, leiddi til þess að við lögð- um land undir fót. Þetta var um verslunarmannahelgi, reyndar var það rétt, það voru engir nema við á svæðinu meðan við stöldruðum við. Þá þegar var þar orðin mikil eyðilegging svo okkur þótti nóg um. Bragi var varkár í dómum sínum um menn og málefni, en ég held að litli ferðaklúbburinn hafi verið sammála um það að þarna væri helgidómur sem vert væri að varðveita óspjallaðan. Eyjan Pag í Króatíu varð áfangastaður okkar þegar Inga Björk varð sjötug, þar ætluðum við að njóta dagsins. Í morguns- árið brá afmælisbarnið sér út í bakarí til þess að gleðja okkur með nýbökuðu bakkelsi og verður þá vör við að verið er að dúkleggja langborð á torginu, sem var rétt við húsgaflinn hjá okkur og þóttu okkur eyjar- skeggjar næmir að ætla að halda með okkur upp á daginn. Er ekki að orðlengja það að um hádegi svigna borðin af mat og fljótandi veigum sem öllum stóðu til boða. Um kvöldið var okkur síðan boðið í veislusal við torgið þar sem við dvöldum í fagnaði með innfæddum fram eftir kvöldi. Svona er hægt að halda áfram að bæta perlum minninga á bandið, en nú hefur almættið tekið við fararstjórn. Blessuð sé minning okkar kæra vinar, Braga Sigurþórs- sonar. Bryndís Helgadóttir. Ég kynntist Braga árið 1957. Snemma það ár lauk hann námi í byggingarverkfræði við DTH, Danmarks Tekniske Højskole, í Kaupmannahöfn og hóf störf hjá Almenna byggingafélaginu í Reykjavík. Um vorið sama ár tók ég fyrrihlutapróf í verk- fræði við Háskóla Íslands og fékk vinnu hjá Almenna bygg- ingafélaginu um sumarið við mælingar og teiknun með verk- fræðingunum eins og kunnátta mín leyfði. Um haustið fór ég til Kaupmannahafnar í framhalds- nám í byggingarverkfræði við DTH og þar naut ég auðvitað góðs af því sem Bragi og hinir verkfræðingarnir hjá ABF höfðu kennt mér um sumarið. Þegar ég svo fór um haustið „fræddu“ sumir þeirra mig um krár og skemmtistaði í Höfn. Bragi tók ekki þátt í því, hann kom með „kúrsusana“ sína (skýrslurnar úr námskeiðunum hjá DTH) og lánaði mér. Þetta lýsir Braga vel því að þótt hann gæti verið gamansamur vék gamansemin fyrir hjálpseminni og greiðvikninni. Snemma árs 1960 þegar ég hafði lokið námi fór ég aftur að vinna hjá Almenna bygginga- félaginu og þar unnum við Bragi saman þar til Almenna verkfræðistofan var stofnuð 1971. Ýmis verkefni unnum við þá saman og á skrifstofunni vorum við saman í herbergi. Stuttu eftir að við hjónin kom- um frá Höfn kynntumst við Ingu konu Braga, einstakri hæfileikakonu, sem varð líka góður vinur okkar hjónanna. Almennu verkfræðistofuna stofnuðum við, níu starfsmenn verkfræðideildar ABF, og þar unnum við Bragi báðir til starfsloka okkar vegna aldurs. Bragi var einstakur burðarþols- hönnuður og afkastameiri en aðrir. Ýmis verkefni unnum við saman, m.a. hönnun Járnblendi- verksmiðjunnar á Grundar- tanga 1975-1979, þar sem Bragi var hönnunarstjóri. Sú venja hefur skapast að við sem stofnuðum Almennu verk- fræðistofuna hittumst vor og haust og borðum saman ásamt konum okkar. Bragi er sá þriðji úr hópnum sem kveður. Við söknum þeirra allra því að þetta var samheldinn og góður hópur. Síðast sá ég Braga rétt fyrir páskana. Hann var glaður og við spjölluðum saman um eitt og annað. Þegar við kvöddumst sagði hann: „Komdu fljótt aft- ur.“ Mér þótti mjög vænt um að heyra þetta og það undirstrik- aði áratuga vináttu okkar. Ég lofaði þessu en mér tókst ekki að efna það. Við Nína sendum Ingu, börn- unum, tengdabörnunum og barnabörnunum innilegustu samúðarkveðjur. Við söknum Braga. Gunnar Baldvinsson. Góður félagi og samstarfs- maður til fjölda ára, Bragi Sig- urþórsson verkfræðingur, lést á líknardeild Landspítalans 5. maí sl. eftir löng og erfið veikindi. Við Bragi vorum jafnaldrar og störfuðum saman í liðlega 40 ár. Bragi lauk meistaraprófi í byggingarverkfræði frá DTH- háskólanum í Kaupmannahöfn 1957. Að loknu námi réðist hann sem verkfræðingur til Almenna byggingafélagsins hf. (ABF) í Reykjavík þar sem leiðir okkar Braga lágu saman og störfuðum við þar allt til ársins 1971 er ABF hætti störfum vegna rekstrarerfiðleika. Þegar hér var komið stofn- uðum við, níu starfandi verk- fræðingar hjá ABF, Almennu verkfræðistofuna hf. með fram- kvæmdastjóra ABF og stjórn- arformanni. Hið nýja fyrirtæki varð því í raun framhald af Al- menna byggingafélaginu og tók þar með yfir ráðgjafarekstur ABF. Bragi tók mikinn þátt í stofn- un hinnar nýju verkfræðistofu og var í stjórn hennar í mörg ár, þar af stjórnarformaður í nokkur ár. Hann átti því drjúg- an þátt í uppbyggingu og þróun stofunnar og sívaxandi umsvif- um hennar. Stofan stækkaði með árunum og voru starfs- menn hennar orðnir á milli fjörutíu og fimmtíu eftir um tíu ára starfsemi fyrirtækisins. Bragi stjórnaði hönnun fjölda mannvirkja, stórra og smárra, sem starfsmaður Almennu verkfræðistofunnar og má þar nefna m.a. Járnblendiverk- smiðjuna á Grundartanga, höf- uðstöðvar Seðlabanka Íslands og Þjóðarbókhlöðu. Allt voru þetta stór og vandasöm verk- efni sem Bragi leysti með mikl- um ágætum, enda hæfur hönn- uður og vandvirkur, sem átti auðvelt með að vinna með öðr- um sem að verki komu með honum. Samstarf Braga með verkkaupum var alltaf með mestu ágætum og létu þeir ósjaldan í ljós við mig, sem framkvæmdastjóra verkfræði- stofunnar, ánægju með störf Braga í þeirra þágu. Hann átti því drjúgan þátt í að efla já- kvætt orðspor Almennu verk- fræðistofunnar meðan hann starfaði á hennar vegum. Hvíl þú í friði, góði vinur, og við Marta flytjum Ingu Björk og fjölskyldunni okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Svavar Jónatansson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri AV. Bragi Sigurþórsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.