Morgunblaðið - 13.05.2019, Qupperneq 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KRISTÍN EINARSDÓTTIR,
áður til heimilis á Flókagötu 1,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 1. maí á
hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Reykjavík.
Hún verður jarðsungin í Hallgrímskirkju þriðjudaginn 14. maí
klukkan 13.
Fríða Bjarnadóttir Tómas Zoëga
Anton Bjarnason Fanney Hauksdóttir
Bjarni Bjarnason Kristín Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ÁSTA HALLÝ NORDGULEN,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
fimmtudaginn 9. maí.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 17. maí klukkan 13.
Erla M. Nordgulen Ásgeirsd. Jón Einarsson
Lúðvík Jóhann Ásgeirsson Guðrún Björg Berndsen
Hildur Soffía Friðriksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
✝ Bragi Sigur-þórsson verk-
fræðingur fæddist
á Fossá í Kjós 19.
nóvember 1931.
Hann lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans hinn 5. maí
2019.
Foreldrar hans
voru Sigurþór
Ólafsson bóndi á
Fossá, f. 9. mars
1899, d. 8. jan. 1933, og Þór-
dís Ólafsdóttir ljósmóðir, f.
19. júní 1908, d. 27. júlí 1998.
Eftirlifandi eiginkona
Braga er Inga Björk Sveins-
dóttir kennari, f. 24.4. 1941.
Foreldrar hennar voru Hans-
ína Friðrika Guðjónsdóttir og
Sigurður Sveinn Ólafsson.
Þau eignuðust fjögur börn: 1)
Sólrún, f. 1.12. 1959, óperu-
söngkona, sonur hennar og
fv. eiginmanns, Bergþórs
Pálssonar, er Bragi, f. 16.4.
Björk, f. 23.11. 2005, og Val-
gerður, f. 18.8. 2008.
Bragi varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1951. Hann tók fyrrihluta-
próf í verkfræði frá Háskóla
Íslands 1954 og próf í bygg-
ingaverkfræði frá DTH í
Kaupmannahöfn 1957. Hann
var verkfræðingur hjá Al-
menna byggingafélaginu í
Reykjavík 1957-1971. Bragi
stofnaði ásamt öðrum Al-
mennu verkfræðistofuna í
Reykjavík 1971 og starfaði
þar uns hann lét af störfum
um sjötugt.
Bragi vann mikið við
burðarþolsútreikninga en
hann kom einnig að fjöl-
mörgum stórum verk-
framkvæmdum. Hann var
m.a. hönnunarstjóri járn-
blendiverksmiðjunnar á
Grundartanga, verkefna-
stjóri við hönnun og bygg-
ingu Seðlabanka Íslands og
hönnunar- og byggingastjóri
við byggingu Þjóðarbók-
hlöðu.
Útför Braga fer fram frá
Neskirkju í dag, 13. maí
2019, og hefst athöfnin
klukkan 15.
1981, hann á tvö
börn; Marsibil, f.
20.12. 2007, og
Ólaf, f. 28.2. 2012.
Dóttir Sólrúnar
og fv. eiginmanns,
Þórarins Stefáns-
sonar, er Berg-
lind Lilja, f. 16.2.
1994. 2) Þórdís, f.
7.4. 1964, sálfræð-
ingur, eiginmaður
hennar er Þor-
björn Guðjónsson læknir.
Börn þeirra eru Heba Björk,
f. 28.1. 1992, og Tómas, f. 1.4.
1994. 3) Friðrik, f. 8.4. 1968,
verkfræðingur, eiginkona
hans er María Guðmunds-
dóttir kennari. Synir þeirra
eru Rafnar, f. 1.7. 1997,
Bragi, f. 21.11. 1999, og Arn-
ar, f. 5.8. 2002. 4) Brynja, f.
20.3. 1972, d. 25.7. 2015,
vinnusálfræðingur, eigin-
maður hennar: Ragnar Krist-
insson. Dætur þeirra eru Inga
Mér hafa alltaf fundist æsku-
ár pabba sérstaklega merkileg.
Hann fæddist á sveitabæ í
Kjósinni og missti föður sinn
strax á öðru ári. Skörungurinn
amma Þórdís skildi pabba
skömmu síðar eftir í sveitinni
hjá ættingjum og lærði til ljós-
móður í Reykjavík. Þegar hann
var sex ára voru þau sameinuð
á ný og fluttu í Borgarfjörðinn
þar sem amma var héraðsljós-
móðir. Þar sótti hann sinn
sveitaskóla með því að mæta
annaðhvort á hestbaki eða á
hjóli. Allt eftir aðstæðum
hverju sinni.
Tólf ára fékk hann sín fyrstu
laun sem verkamaður hjá Vega-
gerð þess tíma. Notaðir voru
hestar sem drógu kerrur með
efni til að bera ofan í vegina í
sveitinni. Það er ákveðinn
sjarmi sem fylgir því að hugsa
um pabba í þessum sporum.
Þrettán ára flutti hann svo
ósyndur sveitastrákurinn á Bar-
ónsstíginn í Reykjavík.
Það má segja að fjölskyldan
hafi verið hans líf og yndi. Það
eru sterk minningabrot sem
tengjast honum að stússa í
garðinum í Vogalandinu. Þegar
framkvæmdir voru í gangi var
allt reiknað í botn áður en haf-
ist var handa. Pabbi setti niður
gula mælingarhæla og strengdi
band á milli eins og sannur fer-
kantaður verkfræðingur. Það
fæddist hver grænmetiskassinn
á fætur öðrum. Pabbi smíðaði
og fyllti á moldina en móðir mín
tók svo við og gróðursetti. Sam-
an framleiddu þau á hverju
sumri tugi kílóa af grænmeti.
Jarðarberin voru samt sem áð-
ur aðalsælgætið. Það voru dá-
semdarstundir hjá fjölskyldunni
að tína sæt jarðarber og borða
með rjóma eða ís. Það skipti
engu hvaða verk fylgdi garð-
inum eða húsinu; pabbi gekk í
verkið og ég lærði mikið af því
að fá að vera aðstoðarmaður
hans. Saman grófum við stóra
holu í garðinum og settum nið-
ur heitan pott, lögðum lagnir að
honum og smíðuðum pall og
skjólgirðingar.
Í minningunni er auðvitað
alltaf gott veður og við fjöl-
skyldan saman í garðinum að
snæða góðan mat eða busla í
pottinum. Þetta voru yndislegar
stundir og gott að vera í nær-
veru pabba á sínum eigin
heimavelli.
Skíðamennska er mitt aðal-
áhugamál og ég þakka pabba
fyrir að hafa komið því á. Helgi
eftir helgi brunuðum við fjöl-
skyldan með pabba á Lödu
Sport upp í Bláfjöll þar sem við
renndum okkur saman þangað
til öll orka var á þrotum. Mér
er sérstaklega minnisstætt þeg-
ar við pabbi settumst saman í
fyrsta skipti í glænýja stólalyftu
sem nú heitir Drottningin. Það
var toppdagur hjá okkur.
Nú í vetur var ljóst í hvað
stefndi hjá pabba. Hann tók
þeim fréttum af miklu æðru-
leysi. Hann vildi engan veginn
valda okkur í fjölskyldunni
áhyggjum. Hann vildi bara
ljúka þessu af sem fyrst og það
gerði hann. Það eru samt sem
áður afar dýrmætar stundir
sem ég átti með pabba þær vik-
ur sem hann dvaldi á spítala nú
undir lokin. Hann fór sáttur og
sæll.
Takk fyrir að vera pabbi
minn alla tíð.
Friðrik.
Það er ýmislegt sem kemur
upp í hugann þegar við hugsum
um afa Braga. Hann var blíður
og góður og það var alltaf nota-
legt að vera með honum. Hann
var alltaf eitthvað að stússa og
þá sérstaklega í sumar-
bústaðnum í Grímsnesi sem við
köllum Bringu. Við bræður vor-
um allir í fótbolta og afi útbjó
stóra flöt við bústaðinn þar sem
við gátum leikið okkur enda-
laust. Við spiluðum líka oft
botsía og þá tók afi þátt með
okkur og var ansi lunkinn.
Hann fann sér alltaf eitthvað til
að laga eða smíða og var oft að
hjálpa ömmu með grænmetis-
ræktun. Það var heilmikið
spjallað og spilað í sveitinni og
afi var líka duglegur að fara
með okkur og ömmu í göngu-
túra. Þess á milli sat hann í ró-
legheitum með bókina sína eða
leysti krossgátur og sudoku. Afi
hafði sérstaklega gaman af því
að mæla hvað við værum stórir
og var það reglulega merkt á
einn stólpann á bústaðnum og
spáð í það hvað við hefðum
stækkað mikið síðan síðast. Afi
var mjög fróður og hafði áhuga
á að fylgjast með því sem við
vorum að læra í skólanum og
hvað við værum að bralla á dag-
inn. Hann veitti okkur bræðrum
alltaf athygli og hjálpaði okkur
við allt það sem við leituðum til
hans með.
Þínir afastrákar
Rafnar, Bragi og Arnar.
Þegar minnast skal Braga
Sigurþórssonar þá kemur fyrst
upp í hugann hvers góður mað-
ur hann var, hann barst aldrei
mikið á en hafði góðan húmor
fyrir hlutunum og það var alltaf
hægt að spjalla við hann.
Ég kunni strax vel við hann
þegar Brynja dóttir hans kynnti
mig fyrir honum, fljótlega eftir
að við sjálf kynntumst. Oft sat
ég og spjallaði við hann þegar
aðrir fjölskyldumeðlimir voru
að stússast eitthvað, og jafnvel
oftar sátum við bara tveir í ró-
legheitum saman og þurftum
ekkert að spjalla. Hann hafði
afar þægilega nærveru og var
eins og afastelpurnar hans Inga
Björk og Valgerður lýsa hon-
um; góður maður, rólegur og
góður hlustandi.
Þá er líka ósagt hvað það var
skemmtilegt vinna með honum.
Ég man eftir mörgum dögum í
sumarbústaðnum þeirra sem
hann og Inga Björk, sem alltaf
voru nær óaðskiljanleg, tóku
við rúmlega fokheldum og
gerðu að sínum eigin, við ýmis
störf og voru það ófáar stund-
irnar sem við fjölskyldan eydd-
um í bústaðnum með þeim
hjónum. Meðan Bragi hafði
heilsu dvöldust þau þarna
sumrin löng og alltaf var eitt-
hvað að sýsla við. Þá var einna
eftirminnilegast að Bragi var
alltaf búinn að undirbúa allar
framkvæmdir, teikna þær upp
og skipuleggja vel. Það var al-
veg klárt að hann var alltaf með
öll handtökin á hreinu, hvort
sem það var pallagerð eða gróð-
urkassi. Hann var alla tíð verk-
fræðingur fram í fingurgóma.
Það var nefnilega engin til-
viljun að Bragi, sem var sann-
arlega ekki af efnafólki kominn,
hafi klifið allar þær hindranir
sem urðu á vegi ungs fólks á
hans aldri og lokið námi sem
verkfræðingur í Kaupmanna-
höfn. Átti hann svo langan og
farsælan feril í vinnu og bera
margar af stærri byggingum
Reykjavíkur því vitni.
Í einkalífinu var Bragi líka
lánsamur og átti góða fjöl-
skyldu og börn, barna- og
barnabarnabörn sem unnu hon-
um. Það skyggði þó verulega á
þegar Brynja dóttir hans féll
frá langt fyrir aldur fram. And-
lát Brynju var honum og Ingu
Björk mjög þungbært og tók
það mikið á hann og má segja
að hann hafi aldrei verið samur
eftir. Engu að síður þá var
styrkur hans og hlýja ómetan-
leg á þeim erfiðu tímum. Sér-
staklega verður að minnast á
hjálpsemi hans og það hversu
vel hann ræktaði samband sitt
við börn okkar Brynju. Alla tíð
fram á síðustu daga tók hann
sig til og keyrði þær á hinar
ýmsu æfingar og frístundir,
alltaf mættur (hvenær sem er,
kvölds eða morgna) og aldrei
fannst manni eins og hann væri
að gera greiða og aldrei var erf-
itt að biðja hann um aðstoð.
Fyrir honum var þetta eðlileg-
asti hluturinn og hafði hann
líka mikla ánægju af.
Með Braga fer góður maður
af gamla skólanum, maður sem
vann allt sem hann gerði af
samviskusemi og alúð. Maður
sem var einstaklega hjálpfús og
maður sem kom vel fram, og af
virðingu, við alla sem hann hitti.
Hvíl í friði Bragi.
Ragnar Kristinsson.
Það er ljúft að láta hugann
reika um samverustundir sem
við hjónin höfum notið í fé-
lagsskap Braga og Ingu Bjark-
ar, um nær 60 ára skeið. Perlur
minninga raðast saman, þær
eru ólíkar að lit og lögun, sumar
hafa orðið til á jökli, aðrar í
suðrænum sandi, enn aðrar á
landinu okkar fagra.
Við sitjum á vélsleðum á
Snæfellsjökli og brunum áfram
í þoku, ætlum á toppinn.
Skyndilega uppgötvum við að
fararstjórinn er horfinn og við
rammvillt, við stöðvum sleðana
og bíðum átekta, en á toppinn
komumst við. Bragi alltaf var-
kár á ferðalögum og hugulsam-
ur, sem brást þó einu sinni á
öðrum jökli, nánar tiltekið á
Grænlandi. Litli ferðaklúbbur-
inn var staddur ásamt ferða-
félögum í bátskænu við jökul-
sporð. Strákarnir vippuðu sér
frá borði og röltu frá bátnum,
við Inga Björk einar eftir um
borð hjá skipstjórnandanum,
sem sá aumur á okkur og færði
bátinn til svo við þyrðum að
hoppa í land. Þetta er í eina
skiptið sem ég man eftir að
Bragi væri ekki með hugann við
að aðstoða hana Ingu sína.
Grænlandsjökull er heillandi
í sól og blíðviðri eins og var í
þetta sinn. Það léku einnig hlýir
vindar um okkur þegar við
dvöldum við Svartahafið og
slógum þar upp brúðkaups-
veislu, þar sem við giftum
ferðafélaga eftir öllum kúnst-
arinnar reglum, eða á Kúbu þar
sem við heimsóttum m.a. heimili
Ernest Hemingway. Bragi var
fróðleiksfús, las mikið, nákvæm-
ur, hjálpsamur og einstaklega
góður og traustur félagi.
Við fórum eitt sinn í píla-
grímsferð að Kárahnjúkum.
Umræðan um að þar væri ekki
fallegt og að fáir hefðu komið
þar, leiddi til þess að við lögð-
um land undir fót. Þetta var um
verslunarmannahelgi, reyndar
var það rétt, það voru engir
nema við á svæðinu meðan við
stöldruðum við. Þá þegar var
þar orðin mikil eyðilegging svo
okkur þótti nóg um. Bragi var
varkár í dómum sínum um
menn og málefni, en ég held að
litli ferðaklúbburinn hafi verið
sammála um það að þarna væri
helgidómur sem vert væri að
varðveita óspjallaðan.
Eyjan Pag í Króatíu varð
áfangastaður okkar þegar Inga
Björk varð sjötug, þar ætluðum
við að njóta dagsins. Í morguns-
árið brá afmælisbarnið sér út í
bakarí til þess að gleðja okkur
með nýbökuðu bakkelsi og
verður þá vör við að verið er að
dúkleggja langborð á torginu,
sem var rétt við húsgaflinn hjá
okkur og þóttu okkur eyjar-
skeggjar næmir að ætla að
halda með okkur upp á daginn.
Er ekki að orðlengja það að um
hádegi svigna borðin af mat og
fljótandi veigum sem öllum
stóðu til boða. Um kvöldið var
okkur síðan boðið í veislusal við
torgið þar sem við dvöldum í
fagnaði með innfæddum fram
eftir kvöldi.
Svona er hægt að halda
áfram að bæta perlum minninga
á bandið, en nú hefur almættið
tekið við fararstjórn.
Blessuð sé minning okkar
kæra vinar, Braga Sigurþórs-
sonar.
Bryndís Helgadóttir.
Ég kynntist Braga árið 1957.
Snemma það ár lauk hann námi
í byggingarverkfræði við DTH,
Danmarks Tekniske Højskole, í
Kaupmannahöfn og hóf störf
hjá Almenna byggingafélaginu í
Reykjavík. Um vorið sama ár
tók ég fyrrihlutapróf í verk-
fræði við Háskóla Íslands og
fékk vinnu hjá Almenna bygg-
ingafélaginu um sumarið við
mælingar og teiknun með verk-
fræðingunum eins og kunnátta
mín leyfði. Um haustið fór ég til
Kaupmannahafnar í framhalds-
nám í byggingarverkfræði við
DTH og þar naut ég auðvitað
góðs af því sem Bragi og hinir
verkfræðingarnir hjá ABF
höfðu kennt mér um sumarið.
Þegar ég svo fór um haustið
„fræddu“ sumir þeirra mig um
krár og skemmtistaði í Höfn.
Bragi tók ekki þátt í því, hann
kom með „kúrsusana“ sína
(skýrslurnar úr námskeiðunum
hjá DTH) og lánaði mér. Þetta
lýsir Braga vel því að þótt hann
gæti verið gamansamur vék
gamansemin fyrir hjálpseminni
og greiðvikninni.
Snemma árs 1960 þegar ég
hafði lokið námi fór ég aftur að
vinna hjá Almenna bygginga-
félaginu og þar unnum við
Bragi saman þar til Almenna
verkfræðistofan var stofnuð
1971. Ýmis verkefni unnum við
þá saman og á skrifstofunni
vorum við saman í herbergi.
Stuttu eftir að við hjónin kom-
um frá Höfn kynntumst við
Ingu konu Braga, einstakri
hæfileikakonu, sem varð líka
góður vinur okkar hjónanna.
Almennu verkfræðistofuna
stofnuðum við, níu starfsmenn
verkfræðideildar ABF, og þar
unnum við Bragi báðir til
starfsloka okkar vegna aldurs.
Bragi var einstakur burðarþols-
hönnuður og afkastameiri en
aðrir. Ýmis verkefni unnum við
saman, m.a. hönnun Járnblendi-
verksmiðjunnar á Grundar-
tanga 1975-1979, þar sem Bragi
var hönnunarstjóri.
Sú venja hefur skapast að við
sem stofnuðum Almennu verk-
fræðistofuna hittumst vor og
haust og borðum saman ásamt
konum okkar. Bragi er sá þriðji
úr hópnum sem kveður. Við
söknum þeirra allra því að þetta
var samheldinn og góður hópur.
Síðast sá ég Braga rétt fyrir
páskana. Hann var glaður og
við spjölluðum saman um eitt
og annað. Þegar við kvöddumst
sagði hann: „Komdu fljótt aft-
ur.“ Mér þótti mjög vænt um að
heyra þetta og það undirstrik-
aði áratuga vináttu okkar. Ég
lofaði þessu en mér tókst ekki
að efna það.
Við Nína sendum Ingu, börn-
unum, tengdabörnunum og
barnabörnunum innilegustu
samúðarkveðjur. Við söknum
Braga.
Gunnar Baldvinsson.
Góður félagi og samstarfs-
maður til fjölda ára, Bragi Sig-
urþórsson verkfræðingur, lést á
líknardeild Landspítalans 5. maí
sl. eftir löng og erfið veikindi.
Við Bragi vorum jafnaldrar
og störfuðum saman í liðlega 40
ár. Bragi lauk meistaraprófi í
byggingarverkfræði frá DTH-
háskólanum í Kaupmannahöfn
1957.
Að loknu námi réðist hann
sem verkfræðingur til Almenna
byggingafélagsins hf. (ABF) í
Reykjavík þar sem leiðir okkar
Braga lágu saman og störfuðum
við þar allt til ársins 1971 er
ABF hætti störfum vegna
rekstrarerfiðleika.
Þegar hér var komið stofn-
uðum við, níu starfandi verk-
fræðingar hjá ABF, Almennu
verkfræðistofuna hf. með fram-
kvæmdastjóra ABF og stjórn-
arformanni. Hið nýja fyrirtæki
varð því í raun framhald af Al-
menna byggingafélaginu og tók
þar með yfir ráðgjafarekstur
ABF.
Bragi tók mikinn þátt í stofn-
un hinnar nýju verkfræðistofu
og var í stjórn hennar í mörg
ár, þar af stjórnarformaður í
nokkur ár. Hann átti því drjúg-
an þátt í uppbyggingu og þróun
stofunnar og sívaxandi umsvif-
um hennar. Stofan stækkaði
með árunum og voru starfs-
menn hennar orðnir á milli
fjörutíu og fimmtíu eftir um tíu
ára starfsemi fyrirtækisins.
Bragi stjórnaði hönnun fjölda
mannvirkja, stórra og smárra,
sem starfsmaður Almennu
verkfræðistofunnar og má þar
nefna m.a. Járnblendiverk-
smiðjuna á Grundartanga, höf-
uðstöðvar Seðlabanka Íslands
og Þjóðarbókhlöðu. Allt voru
þetta stór og vandasöm verk-
efni sem Bragi leysti með mikl-
um ágætum, enda hæfur hönn-
uður og vandvirkur, sem átti
auðvelt með að vinna með öðr-
um sem að verki komu með
honum. Samstarf Braga með
verkkaupum var alltaf með
mestu ágætum og létu þeir
ósjaldan í ljós við mig, sem
framkvæmdastjóra verkfræði-
stofunnar, ánægju með störf
Braga í þeirra þágu. Hann átti
því drjúgan þátt í að efla já-
kvætt orðspor Almennu verk-
fræðistofunnar meðan hann
starfaði á hennar vegum.
Hvíl þú í friði, góði vinur, og
við Marta flytjum Ingu Björk
og fjölskyldunni okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Svavar Jónatansson,
fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri AV.
Bragi
Sigurþórsson