Morgunblaðið - 13.05.2019, Side 19

Morgunblaðið - 13.05.2019, Side 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019 Að spá í bolla er, ef rétt er á haldið, skapandi leið að flóknum tilfinning- um. „Sjáðu þarna, hvað skyldi þetta nú vera?“ Opnar spurningar og speglandi hugsun eru lyklar að djúpum leyndardóm- um tilfinningalífsins. Hún kunni þá list vel, hún amma. Var eiginlega sérfræðingur í skapandi meðferð, ekki menntuð sem slík, en hafði þetta einhvern veginn í sér. Blettirnir og rendurn- ar í kaffibollanum breyttust í lang- ar sögur sem undu upp á sig og urðu lifandi söguþræðir. Fengu merkingu fyrir þá sem spáð var fyrir og hjálpuðu þeim við að stað- setja sig í eigin lífi. Hún var glys- gjörn, en bar gott skynbragð á gæði. Bæði fólks og hluta. Yndisleg kona með ríkulega greind og næm- ar tilfinningar. Það var alltaf hægt að leita til hennar ef lífið var erfitt og hennar verður sárt saknað. Það varð sorg og það varð ró, þegar Olla amma dó. Eins og lóan suður um sjó sveif hún burt í betri mó. (ÁRH) Hugi og Muni. Það er góð tilfinning sem fylgir því að hafa endurnýjað vinskapinn við Ólöfu, eða Ollu eins og hún var Ólöf Vilhelmína Ásgeirsdóttir ✝ Ólöf Vilhelm-ína Ásgeirs- dóttir fæddist 28. júlí 1935. Hún lést 30. apríl 2019. Útförin fór fram 10. maí 2019. yfirleitt kölluð af vin- um sínum og okkur krökkunum sem voru heimagangar á Hörpugötu 13 á ár- unum 1962 til 1964. Við Ásgeir sonur hennar vorum þá kærustupar fimm og sex ára að aldri. Minningarnar um hana frá þessum ár- um eru hversu mér þótti hún falleg og góð, hún hafði alltaf tíma til að tala við okkur krakkana og sýna okkur hlýju og kærleika. Sterkasta minningin um hana er þegar við Ásgeir leiddumst upp Laugaveginn á ferðalagi okkar í tískuverslunina Bernhard Laxdal, þar sem Ólöf vann sem afgreiðslu- dama. Þetta var á sex ára afmæl- isdaginn minn og Ólöf hjálpaði Ás- geiri að gefa mér afar fagra slæðu í afmælisgjöf, sem hún síðan pakk- aði inn af mikilli alúð og vand- virkni. Það var mikils vert fyrir barn á þessum aldri að vera sýnd- ur þessi heiður og því ógleyman- legt. Mér þótti alltaf ótrúlega vænt um Ólöfu og finnst ég hafa verið sérlega heppin að kynnst henni aftur mörgum áratugum síðar þegar við Ásgeir hittumst af tilviljun og ákváðum að endurnýja kynnin. Því miður var tíminn með henni, hennar skemmtilegu kímnigáfu og skörpu greind fram á síðustu stund ekki eins langur og ég hefði viljað. Minningin um hana er falleg og gleymist ekki. Hvíl í friði, elsku Ólöf. Helga Lára Haraldsdóttir. Eiríkur Sigurðs- son, nánasti sam- starfsmaður minn á þriðja áratug, er fall- inn frá eftir erfið veikindi undanfarið misseri. Ungur ákvað hann að leggja fyrir sig veðurfræði. Hún er víð- feðm og skiptist í sérgreinar og teygir líka anga sína yfir í önnur fræði sem fjalla um náttúruna. Við flókið samspil tilviljana og eigin ákvarðana átti fyrir okkur Eiríki að liggja að sinna hafís og hefja síðan á miðjum aldri langt og far- sælt samstarf um það marg- slungna náttúrufyrirbæri og allt sem því viðvíkur. Eiríkur vann á Veðurstofu Ís- lands í skólaleyfum og hléum frá námi á tímabilinu 1955-1961 en að námi loknu starfaði hann á Veð- urstofunni frá 1963 og allt til sjö- tugs árið 2003. Feril sinn hóf hann á veðurspádeild á Keflavíkurflug- velli en lengst af var hann í höf- uðstöðvum stofnunarinnar í Reykjavík. Meginviðfangsefni hans urðu á sviði hafísþjónustu og úrvinnslu hafísgagna. Á áttunda áratugnum samdi Eiríkur þrjár viðamiklar skýrslur um hafís á íslenskum hafsvæðum árin 1968-1971. Nefnast skýrsl- urnar „Hafís við strendur Ís- lands“. Ensk þýðing Eiríks sjálfs fylgdi. Úrvinnsla Eiríks og ná- kvæm lýsing á ferðum hafíss við Ísland á seinni hluta hins fræga „hafísáratímabils“ bera vitni um aðdáunarverða elju og vandvirkni höfundar. Skýrslurnar munu þykja mikils virði er fram líða stundir. Á þessum tímum eimdi eftir af nafnleysiskröfu hjá stofnunum. Af hógværð sinni hafði Eiríkur látið sér lynda að vinna hans öll kæmi út í Íslendingasagnastíl án þess að Eiríkur Sigurðsson ✝ Eiríkur Sig-urðsson fædd- ist 2.október 1933.Hann lést 2. maí 2019. Útförin fór fram 10. maí 2019. höfundar væri getið. Hann féllst síðar á að bragarbót yrði gerð á og eru nú ritin kennd við höfund í skrám bókasafna. Eiríkur vann síðan ásamt öðrum að ár- legum en öllu minni skýrslum um hafís sem Veðurstofan hélt áfram að gefa út. Eiríkur var hár maður vexti, lengi vel spengilegur og vel á sig kominn. Þó hrjáðu hann ýmsir kvillar um dagana. Eiríkur var forvitinn að upplagi og urðu veik- indi hans þess valdandi að veður- fræðingurinn var að mér fannst jafnlærður um mannslíkamann og veðrið sjálft. Eiríkur var hvers manns hug- ljúfi, fróður um flest, viðræðugóð- ur og stálminnugur. Stóð ég mig oft að því að bregða mér yfir til Ei- ríks fengi ég snúna fyrirspurn í síma um hafískomu á tilteknu skeiði eða aðra viðburði. Það var fljótlegra að fletta upp í Eiríki en leita uppi svarið sjálfur. Eiríkur fylgdist vel með landsmálum og tók oft hressilegar rispur skýrum rómi um hneykslanlega þróun í fjármálum stjórnvalda, banka eða athafnamanna. Ég hugsaði stund- um að Eiríkur hefði orðið skæður stjórnmálamaður hefði hann haft skap til og áhuga. Hér gefst ekki rúm til að orð- lengja frekar um minn góða sam- herja og vin, harmonikkuleikar- ann sem skemmti á árshátíðum Veðurstofunnar, hinn góða son sem sinnti móður sinni af fórnfýsi til dauðadags hennar á hundr- aðasta og öðru ári o.fl. Við Jóhanna konan mín vottum fjölskyldunni samúð við lát Eiríks frænda síns. Það er ekki ein báran stök því að skammt er síðan hún sá á bak ástkærum foreldrum, Eggerti og Ingu, er bæði létust óvænt síðasta misserið. Blessuð sé minning þeirra og Eiríks Sigurðs- sonar. Þór Jakobsson. Fallin er hjartans fögur rós og föl er kalda bráin. Hún sem var mitt lífsins ljós ljúfust allra er dáin. Drjúpa hjóðlát tregatárin og tómið fyllir allt. Ekkert sefar hjartasárin í sálu andar kalt. Þögul sorg í sál mér næðir, sár og vonar myrk en Drottinn ætíð af gæsku græðir og gefur trúarstyrk. Hnípin vinur harmi sleginn, hugann lætur reika. Kannski er hún hinumegin í heilögum veruleika. Þú ert laus frá lífsins þrautum og liðin jarðarganga. En áfram lifir á andans brautum ævidaga langa. Heimur bjartur bíður þar og bráðum kem ég líka. Sigrún Óskarsdóttir ✝ Sigrún Óskarsdóttir fæddist1. janúar1935. Hún andaðist 16. apríl 2019. Útförin fór fram 10. maí 2019. Þá verður allt sem áður var er veröld finnum slíka. Drottinn verndar dag og nótt á dularvegi nýjum. Aftur færðu aukinn þrótt í eilífð ofar skýjum. Þú alltaf verður einstök rós, elsku vinan góða. Í krafti trúar kveiki ljós og kveðju sendi hljóða. (Jóna Rúna Kvaran) Ég sendi mínar innilegustu samúðarkveðjur til Ágústs Ósk- ars, Önnu Þórdísar, Eddu Bjark- ar og annarra ástvina. Blessuð sé minning Sigrúnar Óskarsdóttur. Jóhanna B. Magnúsdóttir. Elsku vinkona okkar: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) ✝ Sædís Vigfús-dóttir fæddist 10. júní 1946. Hún lést 7. apríl 2019. Útför Sædísar fór fram 15. apríl 2019. Hafðu þökk fyrir alla vináttuna, ráð- leggingarnar og hlýjuna gegnum ára- tugina. Elsku Sædís okk- ar, á hugann leita ótal minningar, ferðalög- in okkar saman, hlýj- an frá þér, heimsókn- ir og allt spjallið. Við verðum ævinlega þakklát fyrir að vera vinur þinn. Fjölskyldunni sendum við innilegar samúðarkveðjur, guð styrki ykkur og verndi ykkur öll. Minning um einstaka perlu lifir. Guðlaug (Gulla) og Arnór. Sædís Vigfúsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÉTUR AXEL PÉTURSSON járniðnaðarmaður, lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn 10. maí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 17. maí klukkan 15.00. Pétur Jökull Pétursson Tina Teigen Pétursson Stefán Pétursson Vigdís Jóhannsdóttir María Pétursdóttir Philip S. Pedersen Ásta S. Pétursdóttir Kasper Rasmussen og barnabörn Að þurfa að kveðja þig, elsku Ír- is mín, er mjög erfið stund, þar sem þú virtist vera tilbúin að taka ný skref í lífi þínu tek ég þung skerf við að fylgja þér til grafar. Við eigum margar góðar minn- Íris Björk Hlöðversdóttir ✝ Íris BjörkHlöðversdóttir fæddist 25. febrúar 1973. Hún lést 29. apríl 2019. Útför Írisar Bjarkar fór fram 9. maí 2019. ingar sem mér þykir óendanlega vænt um og eru þær allt frá því að við vorum krúttlegar stelpur að veiða fisk í mat- inn í klóakrörinu á Herjólfsgötu í að vera að fullorðnar stelpur að taka sig til í kjallaranum á Flókagötunni að fara á ball á Hótel Íslandi. Við saumuðum á okkur eins kjóla, þú grænan og ég hvítan, og mikið vorum við fínar til að fara á ball í eins kjólum – Ekki fannst mér heldur leiðinlegt að nota þig sem förðunarmódel þegar ég var í þeim bransa og ég held að þér hafi ekki heldur fundist það leið- inlegt – brallið og brasið á okkur varðandi myndatökurnar var óborganlegt og þessar minning- ar, myndir og filmur mun ég varðveita vel. En eins og gerist hjá mörgum þá fer fólk ólíkar leiðir í lífinu og leiðir skilur eins og gerðist hjá okkur en alltaf gátum við leitað hvor til annarrar ef eitthvað bját- aði á, og mikið var gott að getað leitað til þín, elsku Íris. Við gát- um talað um allt án þess að vera með fordóma vegna annarra og horfðum á alla jafna, alveg sama hvar þeir voru staddir í lífinu. Þú komst með mér í Skorra- dalinn síðastliðinn nóvember þar sem við töluðum saman um allt á milli himins og jarðar. Þú talaðir um börnin þín og hversu vel þeim gengi í lífinu og hversu stolt þú værir af þeim. Einnig talaðir þú um hvernig líf þitt væri búið að vera og hvernig þú ætlaðir að rísa upp eins og fuglinn Fönix. Elsku Íris mín, ég gæti skrifað margar síður um þig en margt vil ég geyma í hjarta mínu og geta rifjað upp með þér þegar ég þarf að tala við þig. Elsku Finnbogi, Emelía, Hlöð- ver, Hulda, Kjartan, Pálmar og ykkar fjölskyldur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og megi ljós Guðs og styrkur gefa ykkur kraft á þessum erfiðu tímum. Ég mun ávallt sakna þín, elsku Íris mín, og minning þín mun lifa í mínu hjarta. Þín vinkona Anna. 2. apríl síðastliðinn féll Hjálm- ar Þórðarson byggingaverkfræð- ingur frá. Þá vantaði aðeins 25 daga í að hann næði að verða ní- ræður. Að loknu námi í Kaupmanna- Hjálmar Þórðarson ✝ HjálmarÞórðarson verkfræðingur fæddist 27. apríl 1929 á Vatnsnesi, Grímsnesi. Hann lést 2. apríl 2019 á hjúkrunarheimil- inu Skógarbæ, Reykjavík. Útför hans fór fram í kyrrþey. hafnarháskóla hóf Hjálmar störf hjá Sigurði S. Thorodd- sen, á árinu 1956. Meðstofnandi varð hann svo 1962 að Verkfræðistofu Sig- urðar Thoroddsen sf. og þar átti hann sinn starfsferil all- an. Hönnun vatns- aflsvirkjana var helsti starfsvettvangur hans um langt árabil. Eftirminnilegt verk- efni var virkjun Laxár 3 á árunum 1970-73, en þar var hann staðar- verkfræðingur og sá bæði um hönnun og eftirlit með fram- kvæmd verksins. Þetta verkefni hafði orðið að erfiðu deilumáli landeigenda og stjórnar Laxár- virkjunar, sem þó leystist bæri- lega. Aðalverktaki verksins, Norðurverk hf., reyndist ekki léttbær, en með skýrri stefnu Hjámars og einurð, auk bak- stuðnings frá Sigurði gamla, lauk þessu verkefni farsællega. Einmitt í upphafi þessa verks var ég, nýráðinn græninginn, sendur norður í vinnu til Hjálm- ars við hönnun og eftirlit með framkvæmdum. Þar var ég kom- inn í alvöruverkefni sem oftast var spennandi og skemmtilegt, en gat þó orðið snúið fyrir nýliðann. En veganestið sem ég fékk frá Hjámari á þessum árum reyndist mér drjúgt æ síðan. Sá þriðji, Ás- geir Höskuldsson, bygginga- meistari á Húsavík, bættist í hóp- inn og varð úr nokkuð öflugt og glaðvært eftirlitsteymi, undir styrkri stjórn Hjálmars. Vinskap eignuðumst við þrír sem entist okkur út ævina, þó oft með stop- ulum endurfundum. Hjálmar sinnti mörgum og margvíslegum verkefnum en á síðari árum var hönnun hreinlæt- is- og hitakerfa, loftræstikerfa og fleiri sérkerfa hans sérsvið. Þar fór ávallt afar glöggur og traustur verkfræðingur. Lét fátt hagga sér og sinnti verkefnunum af kunnáttu og samviskusemi. Gott gat verið að leita ráða hjá Hjálmari en fyrir kom að hann þagnaði við, mátti þá vita að spjallinu væri lokið af hans hálfu. Skildist sú afstaða ævinlega. Blessuð sé minning Hjálmars Þórðarsonar. Níels Indriðason. Elsku hjartans Þorvaldur bróðir minn, mér finnst al- veg ömurlegt að þú sért farinn, sannarlega varstu elskaður, kæri bróðir. Ég man þá tíma þegar þú komst á Njálsgötu og við fórum saman á rúntinn – þú áttir alltaf tyggjó í bílnum. Það var svaka stuð að vera tyggjó-brjálæðingar á flottum bíl – þú varst hetja og æðrulaus með eindæmum – leið- inlegt að hafa ekki verið hjá þér þegar þú fórst. Þú reyndist mér vel og yfir þér var falleg ára, fal- leg sál sem fer eftir því á góðan stað (það er bara lögmál í alheim- Þorvaldur Þórarinsson ✝ Þorvaldur Þór-arinsson fædd- ist 12. nóvember 1969. Hann lést 26. mars 2019. Útför Þorvalds fór fram 8. apríl 2019. inum). Þetta kom virkilega flatt upp á mig og mjög erfitt að skilja. Maður er ekki líkamleg vera sem verður andleg – maður er andleg vera sem er stund- um líkamleg – stað- reynd. Ég elska þig út af lífinu, geri það núna, gerði það og mun gera það hiklaust í eilífðinni líka. Þú stóðst þig eins og hetja, elsku hjartans ljósið mitt. Ég verð ávallt systir þín á himni sem og jörðu. Ég treysti Guði algerlega. Ég votta ykkur, pabbi, Selmu Huld, Ragnar Smára, Helenu, systkinum mínum, vinum og vandamönnum mína dýpstu sam- úð á þessari sorgarstund. Ég elska þig. Kveðja, þín litla systir, Hrefna Björt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.