Morgunblaðið - 13.05.2019, Qupperneq 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
SANGSIN gæðavara frá Kóreu
BREMSU
VÖRUR
í flestar gerðir bíla
60 ára Sigríður Dóra
ólst upp í Vestur-
bænum í Reykjavík en
býr á Seltjarnarnesi.
Hún er heilsugæslu-
læknir í Miðbænum og
nýtekin við starfi fram-
kvæmdastjóra lækn-
inga hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæð-
isins.
Maki: Björgvin Jónsson, f. 1964, hrl. hjá
Megin lögmannsstofu.
Dóttir: Margrét Erla, f. 1993.
Foreldrar: Magnús R. Gíslason, f. 1930,
d. 2016, tannlæknir og yfirtannlæknir í
heilbrigðisráðuneytinu, og Dóra Jó-
hannsdóttir, f. 1930, d. 2004, húsmóðir
og aðstoðarmaður tannlæknis.
Sigríður Dóra
Magnúsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Eirðarleysi gerir vart við sig í
dag. Vertu opinn fyrir því að kynnast
nýju fólki. Ástamálin ganga ljómandi vel.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert í góðu jafnvægi og allt virð-
ist með kyrrum kjörum í kringum þig.
Klukkan tifar samt áfram – fram-
kvæmdu það sem þig langar til.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Til þín verður leitað með per-
sónulegt málefni. Þú skýtur skjólshúsi
yfir ættmenni og það mun opna augu
þín fyrir ýmsu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér hættir til að vera of fastur/
föst fyrir og það leggur stein í götu
þína. Láttu áhyggjurnar ekki hrannast
upp heldur gakktu strax í málið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Aðrir eru sem bráðið smjör í hönd-
um þínum. Ekki notfæra þér það í of
miklum mæli. Þig langar að prófa að
ferðast á puttanum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur mikinn sjálfsaga og ger-
ir stundum of miklar kröfur til þín. Vertu
mátulega kærulaus og þá fer allt að
ganga betur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Dugnaðurinn er alveg að fara með
þig. En er það gott? Fram undan eru
ærin verkefni, má ekki fresta ein-
hverjum?
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu ekki smáóhapp eyði-
leggja fyrir þér daginn. Það að slá öðr-
um gullhamra getur breytt mörgu. Ekki
láta greipar sópa í búðunum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gerðu draum þinn að veru-
leika og leitaðu á vit ævintýranna. Ein-
beittu þér að því að leggja inn á banka-
reikning tilfinninganna.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Óvæntar fréttir berast langt
að sem gleðja þig. Gefðu þér tíma til
þess að kanna málin, því flas er ekki til
fagnaðar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Finndu þér eitthvert áhuga-
mál því þá er möguleiki á að kynnast
nýju fólki, það er það sem þú þarft
núna. Leggðu heilann í bleyti um hvern-
ig breyta má heima fyrir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er upplagt að eyða smátíma
í það að sýna sig og sjá aðra í dag.
Leyfðu barninu í þér að brjótast út. Ein-
hver léttir á hjarta sínu við þig.
Hann var í forsvari fyrir kvenna-
knattspyrnu Aftureldingar í allmörg
ár og hlaut viðurkenningu fyrir þau
störf. Hann var endurskoðandi
bæjarreikninga Mosfellsbæjar.
Hann var meðlimur í Félagi
íslenskra stórkaupmanna, nú Félagi
aði og lausnum fyrir íþróttahús og
sundlaugar.“
Ágúst var þjálfari hjá fimleika-
deild KR og skipulagði og sá um fim-
leikasýningar á Suður- og Norður-
landi með sameinuðum fimleika-
flokki karla hjá KR og Ármanni.
Á
gúst Óskarsson fæddist
13. maí 1949 á Sjúkra-
húsinu á Akureyri og
ólst upp í Héraðsskól-
anum á Laugum í
Reykjadal. „Ég starfaði þar við ýmis
störf, m.a. við sumarhótelið. Í æsku
ætlaði ég mér lengi að verða bóndi
og var með íslenskar hænur í mörg
ár,“ en Ágúst var oft í sveit á sumrin
og um páska í Máskoti í Reykjadal.
Hann vann einnig á búgarði í Eng-
landi 16 ára gamall sumarið 1965.
„Hugurinn hneigðist þó snemma
að íþróttum og má finna í skúffum
hjá mér eitthvað af verðlaunum sem
ég hef hlotið fyrir þær í gegnum tíð-
ina. Ég byrjaði um 11 ára aldur að
kenna sund og þjálfaði frjálsar
íþróttir og fótbolta öll sumur fyrir
HSÞ og sá einnig um allmörg hér-
aðsmót í frjálsum íþróttum fyrir
bæði HSÞ og UNÞ.“
Ágúst gekk í Barnaskólann Litlu-
Laugum, Héraðsskólann á Laugum
1963-1966, Gymnastikhøjskolen í
Ollerup í Danmörku 1966-1967,
Íþróttakennaraskólann á Laugar-
vatni 1967-1968 og Samvinnuskólann
á Bifröst 1970-1972.
Ágúst vann sumarið 1967 sem
næturvörður og hótelstjóri á Hótel
Akureyri og var framkvæmdastjóri
fyrir Laugahátíð um verslunar-
mannahelgi í nokkur ár. Hann hóf
kennslu sem íþróttakennari við
Varmárskóla og Gagnfræðaskólann í
Mosfellssveit árið 1968 og starfaði
þar fyrst um sinn í tvö ár áður en
hann hóf nám við Samvinnuskólann
á Bifröst. Að því námi loknu sneri
hann aftur til starfa við kennslu í
Mosfellssveit árið 1972. „Á þessum
árum kynntist ég konu minni, Helgu
Sigurðardóttur, og hófum við búskap
sem nú hefur staðið óslitinn í 42 ár.“
Árið 1983 hætti Ágúst kennslu og
tók við stöðu framkvæmdastjóra
íþróttamannvirkja í sveitarfélaginu í
nokkur ár. „Í framhaldi af því sneri
ég mér alfarið að rekstri fyrirtækis
okkar hjóna, Á. Óskarssyni ehf., sem
við höfðum rekið samhliða öðrum
störfum frá árinu 1976. Við það hef
ég síðan starfað og geri enn ásamt
Helgu og syni okkar, Heiðari Reyr,
en fyrirtækið sérhæfir sig m.a. í bún-
atvinnurekenda, meðlimur í Íslensk-
kínverska viðskiptaráðinu, félagi í
Oddfellow-reglunni IOOF stúku nr.
3, Hallveigu og meðlimur í Félagi frí-
merkjasafnara.
„Áhugamál mín eru íþróttir,
stangveiði, frímerkjasöfnun, íslensk
náttúra og ferðalög. Við hjónin höf-
um ferðast víða í gegnum árin bæði
innanlands og erlendis, m.a. til Kína,
Brasilíu og Egyptalands auk ýmissa
ríkja við Karíbahafið. Þá höfum við
heimsótt fjölmörg fylki í Bandaríkj-
unum og ferðast mikið um Evrópu.“
Fjölskylda
Ágúst er kvæntur Helgu Sigurð-
ardóttur, f. 2.5. 1960, skrifstofu-
stjóra. Foreldrar hennar voru hjónin
Sigurður Ísfeld Frímannsson, stræt-
isvagnabílstjóri, f. 4.9. 1930, d. 1.12.
1996, og Ragnheiður Guðmunds-
dóttir, smurbrauðs- og matráðskona,
f. 16.8. 1929, d. 14.5. 1999.
Sonur Ágústs úr fyrra sambandi
er 1) Óskar Örn Ágústsson, fjár-
málastjóri Eflingar, bús. í Mos-
fellsbæ, f. 12.4. 1973. Kvæntur Ástu
Sigurðardóttur, stærðfræðingi og
kennara, f. 7.6. 1980. Börn: Ágúst
Páll, f. 12.8. 2006, Sigurður Orri, f.
11.7. 2009 og Stefán Örn, f. 21.10.
2011. Börn Ágústs og Helgu eru 2)
Silja Rán Ágústsdóttir, efnafræð-
ingur í Noregi, f. 5.9. 1978. Maki:
Rolf Bolle, fiskifræðingur og lest-
arstjóri, f. 1.12. 1977. Börn: Tómas
Helgi f. 30.12. 2006, Even Bolle, f.
15.9. 2008, Einar Axel, f. 11.9. 2009
og Tellef Bolle, f. 30.6. 2010; 3) Heið-
Ágúst Óskarsson framkvæmdastjóri – 70 ára
Fjölskyldan Ágúst og Helga ásamt börnum, barnabörnum og heimilis-
hundunum í garðinum heima í Mosfellsbæ.
Verður ávallt Þingeyingur
Í Kaupmannahöfn Ágúst með tveimur af börnum sínum, Silju og Heiðari.
Vinirnir Ágúst með hundinum
sínum, honum Samson.
50 ára Kristbjörg ólst
upp í 101 Reykjavík en
býr í Hafnarfirði. Hún
er ljósmóðir og vinnur
við heimafæðingar,
hjá Mæðravernd og
kennir í Háskóla Ís-
lands.
Maki: Þorsteinn Jóhannsson, f. 1968,
rafeindavirki og er tæknimaður í flug-
hermum hjá Icelandair.
Börn: Hrannar Páll, f. 1995, Elvar Örn, f.
2001, Hekla Ýr, f. 2003, og Arnar Steinn,
f. 2008.
Foreldrar: Magnús K. Sigurjónsson, f.
1947, arkitekt, og Þórunn Benjamíns-
dóttir, f. 1945, kennari. Þau eru bús. í
Ölversholti I í Holtum, Rang.
Kristbjörg
Magnúsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is