Morgunblaðið - 13.05.2019, Side 24

Morgunblaðið - 13.05.2019, Side 24
HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is Haukar leika um Íslandsmeistaratit- ilinn í handknattleik 2019. Verður það í fyrsta sinn í fjögur ár sem liðið leikur til úrslita. Ekkert lið hefur oft- ar orðið Íslandsmeistari á þessari öld en Haukar og því eru það allnokkur tíðindi að lið Hauka skuli nú mæta til leiks á ný eftir þrjú mögur á þessum vettvangi. Skemmtileg tilviljun er að Haukar mæta liði Selfoss í úrslitum en Selfossliðið er þjálfað af Patreki Jóhannessyni sem var við stjórnvöl- inn hjá Haukum vorið 2015 þegar Ís- landsmeistarabikarinn vannst síðast hjá Hafnarfjarðarliðinu. Fyrsti leikur Hauka og Selfoss er ráðgerður í Schenker-höllinni á Ás- völlum í Hafnarfirði annað kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 18.30. Liðið sem fyrr vinnur þrjá leiki verður Íslandsmeistari. Leikurinn hittir á undankeppni Eurovision-söngkeppnina þegar ís- lenska lagið verður í eldlínunni. Haukar voru sterkari en leikmenn ÍBV í oddaleik liðanna á Ásvöllum á laugardaginn og unnu fyllilega sann- gjarnan þriggja marka sigur, 29:26. Haukar voru með yfirhöndina í leiknum frá upphafi. Þeir komust í 3:0 og 6:2 áður en Eyjamenn vökn- uðu almennilega og bitu frá sér. Haukar voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 13:11. ÍBV jafnaði metin fljótlega í síðari hálfleik, 13:13. Var það í einu skiptið í leiknum sem jafnt var á metum. Leikmenn Hauka skor- uðu sex mörk í röð og breyttu stöð- unni í 19:13. Eftir það lék aldrei vafi á hvorum megin sigurinn félli þótt örlítil spenna hafi myndast á allra síðustu mínútunum þegar leik- mönnum ÍBV tókst að saxa á forskot Hauka. Haukar unnu sanngjarnan sigur í einvíginu við ÍBV. Þeir voru öflugri í þremur leikjum af fimm auk þess að vera í jöfnum leik í annarri umferð í Vestmannaeyjum. Haukar hafa yfir fleiri vopnum að ráða í leikmannahóp sínum. Vörnin sterkari og mark- varslan jafnbetri, ekki síst þegar á reyndi á laugardaginn. Fjögurra ára bið er á enda  Patrekur mætir á ný á Ásvelli Morgunblaðið/Ómar Sterkur Daníel Þór Ingason, leikmaður Hauka, reyndist Eyjamönnum erf- iður í oddaleiknum. Hann skoraði átta mörk. Hér sækir hann að vörn ÍBV. 24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019 Norðlingabraut 8 110 Reykjavík S: 530-2005 Bíldshöfði 16 110 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 600 Akureyri S: 461-4800 &530 2000 www.wurth.is Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur Léttur dúnjakki • 90% dúnn/10% fiður, þéttvafið nylon efni • Einstaklega þægilegir, hlýir og léttir, ferðapoki fylgir hverjum dúnjakka • 5 mismunandi litir • Stærðir: XS - 4XL – henta báðum kynjum Vnr: 1899 707 Verð: 13.480 kr. HANDBOLTI Olísdeild karla Undanúrslit, oddaleikur: Haukar – ÍBV ....................................... 29:26  Haukar unnu 3:2 og mæta Selfossi í fyrsta úrslitaleiknum annað kvöld. Þýskaland Melsungen – RN Löwen...................... 23:26  Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 1 mark fyrir Löwen. Kiel – Flensburg .................................. 20:18  Alfreð Gíslason þjálfar Kiel. Füchse Berlín – Ludwigshafen ......... 32:20  Bjarki Már Elísson skoraði 5 mörk fyrir Füchse. Leipzig – Bergischer .......................... 25:25  Arnór Þór Gunnarsson skoraði 5 mörk fyrir Bergischer. B-deild: Emsdetten – Lübeck-Schwartau....... 26:33  Sigtryggur Daði Rúnarsson skoraði 2 mörk fyrir Lübeck-Schwartau. Hüttenberg – Hamburg...................... 23:23  Ragnar Jóhannsson skoraði 8 mörk fyrir Hüttenberg.  Aron Rafn Eðvarðsson varði 3 skot í marki Hamburg. A-deild kvenna: Oldenburg – Dortmund ...................... 32:24  Hildigunnur Einarsdóttir skoraði ekki fyrir Dortmund. Danmörk Úrslitakeppnin: Aalborg – SönderjyskE ...................... 33:23  Ómar Ingi Magnússon skoraði 7 mörk fyrir Aalborg og Janus Daði Smárason 2.  Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 2 mörk fyrir SönderjyskE. Tvis Holstebro – Skjern...................... 31:24  Tandri Már Konráðsson skoraði 4 mörk fyrir Skjern. Björgvin Páll Gústavsson varði ekki skot í marki Skjern.  Aalborg 8, Skjern 6, Tvis Holstebro 5, SönderjyskE 4. GOG – Århus ........................................ 32:29  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 2 mörk fyrir GOG.  GOG 10, Bjerringbro/Silkeborg 6, Skan- derborg 5, Århus 2. Noregur Fyrsti úrslitaleikur: Arendal – Elverum.............................. 26:30  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 7 mörk fyrir Elverum en Þráinn Orri Jóns- son ekkert. EHF-bikar kvenna Seinni úrslitaleikur: Siofok – Esbjerg .................................. 26:21  Rut Jónsdóttir skoraði ekki fyrir Es- bjerg. KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Nettóvöllur: Keflavík – Breiðablik ..... 19.15 Kórinn: HK/Víkingur – Selfoss........... 19.15 Würth-völlur: Fylkir – KR .................. 19.15 Í KVÖLD! Sverrir Ingi Ingason og samherjar hans í PAOK tryggðu sér gríska bik- armeistaratitilinn í fótbolta með 1:0- sigri á AEK í úrslitaleik á laug- ardaginn. PAOK varð grískur meist- ari á dögunum og vann því tvöfalt í ár. Sverrir Ingi kom inn á sem vara- maður í uppbótartíma og hjálpaði PAOK að sigla sigrinum í höfn. Sverrir var í aðalhlutverki í bik- arnum hjá PAOK og lék alla fjóra leiki liðsins í 8-liða úrslitum og und- anúrslitum,en varð að gera sér að góðu að byrja á bekknum í úrslit- unum. Sverrir vann tvö- falt í Grikklandi AFP Tvöfalt Sverrir Ingi Ingason er tvöfaldur meistari í Grikklandi Rut Jónsdóttir og samherjar henn- ar í Esbjerg þurftu að sætta sig við silfurverðlaunin í EHF-bikarnum þetta árið eftir tvo úrslitaleiki gegn ungverska liðinu Siófok. Bestu ung- versku kvennaliðin eru geysilega sterk og það sýndi sig í síðari úr- slitaleiknum á laugardaginn þegar Siófok sigraði 26:21. Segja má að Ungverjarnir hafi verið í ágætri stöðu í úrslitarimmu liðanna eftir fyrri leikinn í Dan- mörku en þar gerðu liðin jafntefli 21:21. Rut skoraði ekki fyrir Es- bjerg í síðari leiknum. kris@mbl.is Silfur hjá Rut í Evrópukeppni Morgunblaðið/Ómar Úrslitaleikir Rut fór alla leið í úrslit EHF-bikarsins með Esbjerg. Ásvellir, Olísdeild karla, laugardaginn 11. maí 2019. Gangur leiksins: 3:0, 4:2, 6:2, 7:4, 10:7, 11:9, 13:11, 16:13, 19:14, 21:17, 24:19, 27:22, 29:26. Mörk Hauka: Daníel Þór Ingason 8, Adam Haukur Baumruk 7, Halldór Ingi Jónasson 6, Ásgeir Örn Hall- grímsson 3, Heimir Óli Heimsson 2, Orri Freyr Þorkelsson 1/1, Tjörvi Þor- geirsson 1, Atli Már Báruson 1. Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 19, Andri Sigmarsson Scheving 2/2. Utan vallar: 8 mínútur. Haukar – ÍBV 29:26 Mörk ÍBV: Elliði Snær Viðarsson 6, Sigurbergur Sveinsson 5, Kristján Örn Kristjánsson 4, Dagur Arnarsson 3, Gabríel Martinez 3, Hákon Daði Styrmisson 2/2, Róbert Sigurðarson 1, Fannar Þór Friðgeirsson 1/1, Frið- rik Hólm Jónsson 1. Varin skot: Björn Viðar Björnsson 10/2, Haukur Jónsson 6. Utan vallar: 10 mínútur. Dómarar: Jónas Elíasson og Svavar Ólafur Pétursson. Áhorfendur: 1.200.  Haukar unnu, 3:2. Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu í bandarísku at- vinnudeildinni þegar lið hennar Portland Thorns vann Orlando Pride 3:1 á útivelli. Orlando komst yfir snemma leiks en Dagný jafnaði metin á 28. mínútu af miklu harð- fylgi eftir að skot samherja hennar var varið. Portland er þá komið með 8 stig í fjórða sæti eftir fyrstu fjóra leikina og hefur ekki tapað leik. Gunnhildur Yrsa Jóns- dóttir og samherjar í Utah Royals máttu sætta sig við ósigur gegn Houston Dash á heimavelli, 1:2. Þetta eru fyrstu stigin sem Utah tapar, liðið hafði unnið þrjá fyrstu leiki sína og er nú í öðru sæti með 9 stig. Gunn- hildur lék allan leikinn á miðjunni hjá Utah. Andrea Thorisson skoraði sigurmark Limhamn Bunkeflo í óvæntum 3:2- sigri á Rosengård í Svíþjóð. Andrea kom inn á sem varamaður á 89. mínútu og lét strax að sér kveða. Glódís Perla Viggósdóttir var í vörn Rosengård. Dagný komin á blað Dagný Brynjarsdóttir Þórsarar frá Akureyri og Keflvíkingar hafa unnið báða leikina sína til þessa í 1. deild karla í knattspyrnu, In- kasso-deildinni, en tveimur umferðum er lokið. Bæði lið- in sóttu þrjú stig á útivöll á laugardaginn. Eyfirðingar fóru í Reykjanesbæ og unnu Njarðvík 0:2. Sveinn Elías jónsson skoraði fyrra mark Þórs en hið síð- ara var sjálfsmark. Á sama tíma fór hitt liðið úr Reykja- nesbæ, Keflavík, einmitt til Eyjafjarðar og mætti Magna á Grenivík. Keflavík sigraði 3:1 þótt Magni væri 1:0 yfir að loknum fyrri hálfleik. Ívar Sigurbjörnsson kom heimamönnum yfir. Keflvíkingar svöruðu hins vegar með tveimur mörkum á tveimur mínútum. Ingimundur Aron Guðnason jafnaði og Adam Árni Róbertsson kom Keflavík yfir. Rún- ar Þór Sigurgeirsson skoraði sigurmarkið á 90. mínútu. Njarðvík er með þrjú stig en Magni er án stiga. Haukar og Víkingur Ólafsvík gerðu markalaust jafntefli á Ásvöllum. Ólsarar byrja vel og eru með fjögur stig í 3. sæti en Haukar eru með eitt stig og í 10. sæti deildarinnar sem stendur. sport@mbl.is Þór og Keflavík byrja vel Sveinn Elías Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.