Morgunblaðið - 13.05.2019, Page 25

Morgunblaðið - 13.05.2019, Page 25
ENGLAND Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Manchester City tryggði sér Eng- landsmeistaratitilinn í knattspyrnu karla á Amex-vellinum í Brighton í gær eftir 4:1-sigur gegn heima- mönnum í lokaumferð deildarinnar. Liverpool var eina liðið sem gat náð City að stigum fyrir lokaumferðina en aðeins einu stigi munaði á lið- unum fyrir lokaumferð gærdagsins. Liverpool vann 2:0-sigur gegn Wolves á Anfield og endaði með 97 stig en City endaði í efsta sæti deildarinnar með 98 stig. Enn á ný mistókst Liverpool að landa sigri í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa verið á toppi deild- arinnar yfir jólahátíðarnar. Frá árinu 2008 hefur það lið sem hefur verið í efsta sæti deildarinnar um jólin fagnað sigri í ensku úrvals- deildinni að undanskildum tveimur tímabilum. Árið 2008 var Liverpool á toppnum yfir hátíðarnar og hafði eins stigs forskot á Chelsea en Man- chester United fagnaði sigri í deild- inni það ár. Árið 2013 sat Liverpool í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar á jóladag en liðið var jafnt Arsenal að stigum, en Liverpool var með betri markatölu. Manchester City fagnaði sigri í deildinni það tímabil eftir að Liverpool missteig sig í lokaleikjum tímabilsins. Á jóladag 2018 var Liv- erpool með fimm stiga forskot á Manchester City á toppi deild- arinnar en City átti leik til góða. City sótti alltaf til sigurs Árangur Liverpool á tímabilinu er engu að síður magnaður og það er í raun ótrúlegt að vinna ekki deildina þegar lið tapar aðeins ein- um leik á tímabilinu. Liverpool gerði hins vegar sjö jafntefli gegn aðeins tveimur jafnteflum City og þar liggur munurinn í ár. Liverpool missteig sig í janúar þegar liðið gerði þrjú jafntefli í fjórum leikjum, gegn West Ham, Leicester og Man- chester United. City nýtti sér mis- tök leikmanna Liverpool og hirti toppsætið af þeim og lét það ekki af hendi. Þegar allt kemur til alls stóðust leikmenn City pressuna sem fylgir því að vera í efsta sæti deildarinnar, á meðan Liverpool gerði það ekki. Manchester City er besta knatt- spyrnulið Englands í dag þótt Jür- gen Klopp og lærisveinar hans í Liverpool séu ekki langt undan. Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Man- chester City, var að landa sínum áttunda meistaratitli á ellefu árum, sem er magnað afrek. Guardiola sótti alltaf til sigurs í öllum leikjum í vetur, á meðan Klopp gerði það ekki og þar liggur hundurinn grafinn. Sterkari á ögurstundu  Manchester City Englandsmeistari annað árið í röð  Jafnteflin reyndust Liverpool dýr  Lygilegur árangur Guardiola  Mikil bæting milli ára hjá Klopp AFP Herforinginn Katalóninn Pep Guardiola með sigurlaunin í gær. ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019 England Tottenham – Everton...............................2:2  Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn og lagði upp mark fyrir Everton. Burnley – Arsenal ................................... 1:3  Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á eftir 64 mín. og lagði upp mark Burnley. Manchester United – Cardiff ................. 0:2  Aron Einar Gunnarsson lék fyrstu 58 mínúturnar fyrir Cardiff. Brighton – Manchester City ................... 1:4 Crystal Palace – Bournemouth............... 5:3 Fulham – Newcastle ................................ 0:4 Leicester – Chelsea.................................. 0:0 Liverpool – Wolves................................... 2:0 Southampton – Huddersfield.................. 1:1 Watford – West Ham ............................... 1:4 Lokastaðan: Manch.City 38 32 2 4 95:23 98 Liverpool 38 30 7 1 89:22 97 Chelsea 38 21 9 8 63:39 72 Tottenham 38 23 2 13 67:39 71 Arsenal 38 21 7 10 73:51 70 Manch.Utd 38 19 9 10 65:54 66 Wolves 38 16 9 13 47:46 57 Everton 38 15 9 14 54:46 54 Leicester 38 15 7 16 51:48 52 West Ham 38 15 7 16 52:55 52 Watford 38 14 8 16 52:59 50 Cr. Palace 38 14 7 17 51:53 49 Newcastle 38 12 9 17 42:48 45 Bournemouth 38 13 6 19 56:70 45 Burnley 38 11 7 20 45:68 40 Southampton 38 9 12 17 45:65 39 Brighton 38 9 9 20 35:60 36 Cardiff 38 10 4 24 34:69 34 Fulham 38 7 5 26 34:81 26 Huddersfield 38 3 7 28 22:76 16 Holland AZ Alkmaar – PSV Eindhoven.............. 1:0  Albert Guðmundsson lék fyrstu 75 mín- úturnar fyrir AZ. Heracles – Excelsior ............................... 4:5  Elías Már Ómarsson skoraði þrennu fyr- ir Excelsior. Úkraína Arsenal Kiev – Chornomorets ............... 3:3  Árni Vilhjálmsson skoraði fyrir Chor- nomorets og lék fyrstu 84. mín. Grikkland Úrslitaleikur bikarkeppninnar: PAOK – AEK Aþena ............................... 1:0  Sverrir Ingi Ingason kom inn á sem varamaður í uppbótartíma hjá PAOK. Danmörk Fallkeppni, undanúrslit, fyrri leikir: Hobro – Vejle ........................................... 0:1  Kjartan Henry Finnbogason lék allan leikinn og skoraði sigumarkið. Svíþjóð Limhamn Bunkeflo – Rosengård .......... 3:2  Andrea Thorisson kom inn á eftir 89 mínútur og skoraði sigurmarkið.  Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik- inn hjá Rosengård. Noregur Ranheim – Vålerenga ............................. 1:5  Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn og skoraði fyrir Vålerenga. KNATTSPYRNA Elías Már Ómarsson skoraði þrennu í 5:4-sigri Excelsior á útivelli gegn Heracles í efstu deild Hollands í fót- bolta í gær. Elías skoraði fyrstu tvö mörk Excelsior í fyrri hálfleik, áður en hann gulltryggði dramatískan sigur í uppbótartíma. Albert Guðmundsson lék fyrstu 75 mínúturnar fyrir AZ Alkmaar í sterkum 1:0-heimasigri á PSV. Ajax er með pálmann í höndunum eftir úrslitin og nægir jafntefli gegn De Graafschap í lokaumferðinni til að tryggja sér Hollandsmeistaratit- ilinn. Elías skoraði þrjú í níu marka leik Ljósmynd/Excelsior Þrenna Elías Már Ómarsson skor- aði þrjú fyrir Excelsior í sigri. Lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar í NSÍ Runavík komust í gær upp í annað sæti færeysku úrvalsdeild- arinnar í knattspyrnu með 5:1- stórsigri á AB á heimavelli. NSÍ hefur unnið fjóra síðustu leiki sína og er liðið á fínni siglingu undir stjórn Guðjóns. NSÍ er með 19 stig, einu stigi minna en topplið KÍ Klaksvík, sem á leik til góða. Núverandi meistarar HB undir stjórn Heimis Guðjónssonar eru í 6. sæti eftir 2:0 sigur á IF Fuglafirði á útivelli. Brynjar Hlöðversson spil- aði fyrri hálfleikinn fyrir HB. Stórsigur hjá Guðjóni Þórðar Ljósmynd/NSÍ 2. sæti Guðjón Þórðarson er í toppbaráttunni í Færeyjum. Þór Þorlákshöfn tilkynnti í gær að félagið hefði ráðið þjálfarann reynda Friðrik Inga Rúnarsson til að taka við karlaliði félagsins í körfuknattleik af Baldri Þór Ragn- arssyni sem samdi á dögunum við Tindastól. Er þetta í annað skiptið á nokkrum árum sem Þór sækir þjálfara til Njarðvíkur en Einar Árni Jóhannsson þjálfaði Þór frá 2015-2018. Friðrik Ingi er 51 árs og á honum mátti skilja í fyrra að hann væri hættur þjálfun. Hann saknaði hins vegar körfuboltans eins og fram kemur í spjalli Hafnarfrétta við Friðrik. Friðrik gerði Njarðvík tvívegis að Íslands- meisturum og Grindavík einu sinni. Hann hefur einnig þjálfað KR og Keflavík auk íslenska landsliðsins. Þór hafnaði í 6. sæti í Dominos-deildinni á nýafstöðnu tímabili. Í 8-liða úrslitum sló liðið út Tindastól 3:2 eftir að hafa lent 0:2 undir. Í undan- úrslitum féll liðið úr keppni á móti KR 1:3. kris@mbl.is Friðrik Ingi til Þorlákshafnar Friðrik Ingi Rúnarsson Alfreð Gíslason á enn von um að gera Kiel að Þýska- landsmeisturum í handknattleik á sínu síðasta tímabili hjá félaginu. Kiel tókst að vinna toppliðið Flensburg í Kiel í gær 20:18 og opnaði þar með baráttuna um titilinn til mikilla muna. Liðin eru nú jöfn að stigum en Flens- burg á leik til góða. Flensburg á eftir að spila gegn Melsungen heima, Stuttgart úti, Füchse Berlín heima og Bergischer úti í lokaumferðinni. Kiel á eftir að mæta Minden heima, Lemgo úti og Hannover Burgdorf heima. Ganga má út frá því að Kiel þurfi að vinna þá leiki sem eftir eru til að eiga möguleika. Lið Melsungen, Füchse og Bergischer eru í 5.-7. sæti og leikirnir sem Flensburg á eftir teljast því ekki auðveldir. Flensburg hafði hins vegar að- eins tapað einum leik þar til í gær og er því enn líklegt til að klára dæmið. Verði liðin jöfn mun markatalan skera úr um úrslit. Kiel er með 180 mörk í plús en Flensburg 163. Spennan er því til staðar en Kiel hefur þegar unnið bikarkeppnina og getur því unnið tvöfalt. kris@mbl.is Vonin til staðar hjá Kiel Alfreð Gíslason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.