Morgunblaðið - 13.05.2019, Síða 27
menn liðsins eru flestir blautir á bak
við eyrun hvað toppbaráttu varðar.
Mörk í löngum uppbótartíma
Eyjamenn tóku á móti Grindvík-
ingum í fjörugum leik í 3. umferð
Pepsi Max-deildarinnar á laugardag
þar sem Eyjamönnum tókst að ná í
sitt fyrsta stig í sumar. Leikurinn
byrjaði á afar leiðinlega vegu því á 9.
mínútu slasaðist Sigurjón Ragn-
arsson þegar hann ætlaði að skalla
boltann en lenti illa á höfðinu í kjöl-
farið. Þar með lauk þátttöku hans og
var hann fluttur á sjúkrahús.
Þegar kom að uppbótartíma í fyrri
hálfleik þurfti að bæta við 21 mínútu.
Á þeim tíma voru skoruð 3 mörk.
Víðir Þorvarðarson braut ísinn með
rosalegri aukaspyrnu beint upp í
samskeytin og má segja að Eyja-
menn hafi verið sáttir við að skora
sitt fyrsta mark í deildinni. 5 mín-
útum síðar varð varnarmaðurinn Gil-
son Coelho fyrir því óhappi að skora
sjálfsmark þegar hann hitti knöttinn
illa. Á 21. mínútu í uppbótartímanum
komust Eyjamenn aftur yfir þegar
Guðmundur Magnússon potaði bolt-
anum í Grindvíkinginn Marc
McAusland og þaðan fór boltinn í
mark Grindavíkur.
Í síðari hálfleik náðu Grindvík-
ingar svo að jafna metin þegar Aron
Jóhannsson endurgerði markið hans
Víðis með fallegri aukaspyrnu beint í
samskeytin.
Liðin hættu ekki að sækja og voru
Eyjamenn rosalega nálægt því að
stela öllum stigunum en það tókst
ekki. Leiknum lauk 2:2 og Eyjamenn
sitja enn þá á botninum með eitt stig
á meðan Grindvíkingar komu sér
upp um eitt sæti og sitja nú í 9. sæti.
Morgunblaðið/Ómar
1:1 Kolbeinn Finnsson er kominn heim í slaginn og glímir hér við Óskar Örn.
Í EYJUM
Þórður Yngvi Sigursveinsson
sport@mbl.is
ÍBV og Þór/KA mættust á Hásteins-
velli í þriðju umferð Pepsi Max-
deildar kvenna í fótbolta í gær. Þór/
KA hafði betur, 3:1.
ÍBV byrjaði leikinn betur þrátt
fyrir töluverðan mótvind í fyrri hálf-
leik og það var Sigríður Lára Garð-
arsdóttir sem byrjaði markaveisluna
af vítapunktinum eftir að Cloé La-
casse féll inni í teig Þórs/KA.
Akureyrarkonur voru þó ekki
lengi að svara því á næstu 10 mín-
útum var Þór/KA komið yfir. Steph-
any Mayor og Margrét Árnadóttir
komu sér þá á blað með tveimur
glæsimörkum.
Í síðari hálfleik róaðist leikurinn
töluvert. Þór/KA tókst að verjast
gegn ÍBV, þrátt fyrir enn meiri mót-
vind en ÍBV var með í fyrri hálfleik.
Þór/KA tókst þó að ganga frá leikn-
um á 87 mínútu en Stephany Mayor
bætti þá við þriðja marki Akureyr-
inganna.
Byrjunin er ekki góð hjá ÍBV, sem
hefur ekki unnið leik á heimavelli,
hefur tapað báðum leikjum sínum
þar og situr nú í 7. sæti með 3 stig.
Þór/KA hoppaði upp í 4. sæti og er
þar með 6 stig eftir sinn annan sigur
í röð.
Annar sigur
Þórs/KA í röð
Þór/KA gerði góða ferð til Vest-
mannaeyja Mayor skoraði tvö
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Sókndjörf Stephany Mayor skoraði
tvívegis fyrir Þór/KA í Eyjum.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2019
Góð
heyrn
glæðir samskipti
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.
Þýskaland
Ludwigsburg – Alba Berlín ............... 79:80
Martin Hermannsson gaf 3 stoðsending-
ar og tók 3 fráköst fyrir Alba.
Frakkland
B-deild:
Evreux – Aix Maurienne .................... 93:84
Frank Aron Booker skoraði 14 stig fyrir
Evreux og gaf 4 stoðsendingar.
Svíþjóð
Södertälje – Borås................................81:70
Jakob Örn Sigurðarson tók 5 fráköst fyr-
ir Borås á 26 mínútum.
Södertälje sænskur meistari, 4:1.
Úrslitakeppni NBA
Vesturdeild, undanúrslit:
Houston – Golden State .................. 113:118
Golden State sigraði 4:2.
Denver – Portland.............................. 96:100
Portland sigraði 4:3.
KÖRFUBOLTI
Pepsi Max-deild kvenna
ÍBV – Þór/KA ........................................... 1:3
Staðan:
Valur 2 2 0 0 8:2 6
Breiðablik 2 2 0 0 6:1 6
Stjarnan 2 2 0 0 2:0 6
Þór/KA 3 2 0 1 7:6 6
HK/Víkingur 2 1 0 1 1:1 3
Fylkir 2 1 0 1 2:3 3
ÍBV 3 1 0 2 3:5 3
Keflavík 2 0 0 2 1:4 0
Selfoss 2 0 0 2 1:5 0
KR 2 0 0 2 0:4 0
2. deild kvenna
Leiknir R. – Völsungur ............................ 1:3
Hamrarnir – Fjarð/Höttur/Leiknir........ 2:1
Rússland
Zenit Pétursborg – CSKA Moskva ........ 3:1
Arnór Sigurðsson lék síðasta korterið en
Hörður B. Magnússon sat á varamanna-
bekk CSKA.
Jenisei – Krasnodar ................................ 0:4
Jón Guðni Fjóluson sat á varamanna-
bekk Krasnodar.
Frakkland
Dijon – Strasbourg .................................. 2:1
Rúnar Alex Rúnarsson lék allan leikinn í
marki Dijon.
Bandaríkin
Utah Royals – Houston Dash ................. 1:2
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan
leikinn með Utah.
Orlando Pride – Portland Thorns......... 1:3
Dagný Brynjarsdóttir skoraði fyrsta
mark Portland og lék allan leikinn.
Ítalía
Frosinone – Udinese ............................... 1:3
Emil Hallfreðsson lék síðasta hálftímann
með Udinese.
1:0 Sigríður Lára Garðarsd. 34..
1:1 Stephany Mayor 38.
1:2 Margrét Árnadóttir 41.
1:3 Stephany Mayor 87.
I Gul spjöldCaroline Van Slambrouck
(ÍBV)
MM
Stephany Mayor (Þór/KA)
ÍBV – ÞÓR/KA 1:3
M
Sigríður Lára Garðarsdóttir (ÍBV)
Caroline Van Slambrouck (ÍBV)
Chloé Lacasse (ÍBV)
Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
Bryndís L. Hrafnkelsd. (Þór/KA)
Lára Kristín Pedersen (Þór/KA)
Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA)
Dómari: Ásmundur Þ. Sveinsson, 6.
0:1 Óttar Bjarni Guðmundsson 21.
0:2 Arnar Már Guðjónsson 45.
1:2 Gary Martin 57. (víti)
I Gul spjöldGary Martin (Val)
Andri Adolphsson (Val)
Hallur Flosason (ÍA)
Hörður Gunnarsson (ÍA)
I Rauð spjöldEngin.
VALUR – ÍA 1:2
MM
Óttar Bjarni Guðmundsson (ÍA)
M
Árni Snær Ólafsson (ÍA)
Einar Logi Einarsson (ÍA)
Marcus Johansson (ÍA)
Arnar Már Guðjónsson (ÍA)
Stefán Teitur Þórðarson (ÍA)
Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA)
Bjarni Ólafur Eiríksson (Val)
Andri Adolphsson (Val)
Dómari: Egill A. Sigurþórsson, 6.
1:0 Víðir Þorvarðarson 45.
1:1 Sjálfsmark 45.
2:1 Sjálfsmark 45.
2:2 Aron Jóhannsson 60.
I Gul spjöldCastanheira (ÍBV)
Ngolok (ÍBV)
Alexander Veigar (Grindavík)
I Rauð spjöldEngin.
ÍBV – GRINDAVÍK 2:2
MM
Aron Jóhannsson (Grindavík)
M
Víðir Þorvarðarson (ÍBV)
Matt Garner (ÍBV)
Jonathan Franks (ÍBV)
Vladimir Tufegdzic (Grindavík)
Alexander V. Þórarins. (Grindavík)
Patrick N’Koyi (Grindavík)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson, 8.