Morgunblaðið - 17.05.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.05.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Stefán Gunnar Sveinsson Freyr Bjarnason Andri Yrkill Valsson Tveir af farþegum rútunnar, sem fór út af Suðurlandsvegi við Hofgarða skammt norðan við Fagurhólsmýri, lentu undir rútunni þegar hún valt út af veginum. Tveir bændur frá nær- liggjandi bæjum komu hins vegar fljótt á vettvang með dráttarvélar og tókst að lyfta rútunni ofan af fólkinu svo hægt væri að ná því undan henni og tók það um hálftíma. Farþegarnir tveir voru báðir á meðal þeirra fjög- urra sem fluttir voru á Landspítalann en allir fjórir voru sagðir með meðvit- und þegar þyrlan kom til Reykjavík- ur. Aðgerðastjórn Almannavarna var virkjuð í stjórnstöð á Selfossi þegar tilkynnt var um slysið og gekk sam- vinna viðbragðsaðila mjög greiðlega samkvæmt fréttatilkynningu frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Var búið að flokka áverka hinna slösuðu og ákveða flutningsmáta á sjúkrahús um hálfsjöleytið í gær. Viðbragðsaðil- ar komu fljótt á vettvang, bæði frá Höfn í Hornafirði og Kirkjubæjar- klaustri, auk þess sem björgunar- sveitarfólk sem var á leiðinni til Eg- ilsstaða var í nágrenni slysstaðarins þegar útkallið kom samkvæmt heim- ildum blaðsins. Var lagt mat á ástand og áverka hinna slösuðu á söfnunarsvæði sem sett var upp á Litla-Hofi. Þá bauð danskt varðskip sem liggur við bryggju í Reykjavík aðstoð sína og flutti þyrla skipsins hjúkrunarfólk á slysstað. Allt skoðað í þaula Ágætt veður var á vettvangi þegar björgunaraðilar komu á slysstað og ekki augljóst hvað gæti hafa valdið slysinu. Grímur Hergeirsson, starf- andi lögreglustjóri á Suðurlandi, sagði hins vegar við mbl.is í gær- kvöldi að meðal annars væri verið að skoða hvort vindstrengir, sem þekkt- ir eru á þessu svæði, gætu hafa komið við sögu. „Rannsóknardeild lögregl- unnar á Suðurlandi og tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru enn að vinna á vettvangi ásamt fleirum og verið að skoða allt í þaula,“ sagði Grímur við mbl.is en stefnt var að því að flytja rútuna í nótt til Sel- foss til frekari rannsókna. Bændur veittu aðstoð á slysstað  Kannað hvort vindstrengir gætu hafa átt þátt í til- drögum slyssins Ljósmynd/Guðmundur Karl Á slysstað Björgunarsveitarmenn og bændur úr nágrenninu á vettvangi rútuslyssins við Hofgarða í Öræfum síðdegis í gær. Rútan er mikið skemmd. Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Við fengum húsið afhent í byrjun febrúar, sjö vikum síðar náðum við að opna fyrstu eininguna [hjúkrun- arrými] fyrir tíu manns. Síðan var planið að opna næstu einingu fyrir páska, það tókst ekki. Svo komu páskarnir, sumardagurinn fyrsti og 1. maí og nú erum við búin að opna aðra eininguna. Svo nú erum við hálfnuð,“ segir Kristján Sigurðsson, forstjóri Vigdísarholts, sem rekur hið nýja hjúkrunarheimilis Seltjörn á Seltjarnarnesi. Í samtali við Morg- unblaðið 27. apríl sl. sagði Svanlaug Guðnadóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Seltjörn, frá því að bæði illa og hægt gengi að finna hjúkr- unarfræðinga til starfa. Enn er eftir að manna stöður á hinu nýja hjúkrunarheimili og aug- lýsti Seltjörn eftir hjúkrunarfræð- ingum til starfa í atvinnublaði Morg- unblaðsins í gær. Kristján segir í samtali við Morgunblaðið að það gangi þó alls ekki illa að manna stöðurnar en það taki tíma að opna nýtt hjúkrunar- heimili og að manna stöður. „Þetta fer vel af stað. Það kom aðeins bak- slag í kringum páskana en svo er þetta bara að gerast,“ segir Kristján og bætir við: „Við stefnum á að opna þriðja rýmið fyrir mánaðamót, og það fjórða í beinu framhaldi af því.“ Kristján segir að almennt sé það þannig með hjúkrunarheimili að það vanti alltaf hjúkrunarfræðinga. Það sé „krónísk staða“ sem alltaf sé verið að leysa úr. Spurður hvort búið sé að manna sjúkraliðastöður sem lausar voru þegar Morgunblaðið heyrði í Seltjörn í síðasta mánuði kveður Kristján já við. „Að einhverju leyti.“ Færri komast að en vilja Aðspurður segir Kristján að mikil ásókn sé í hin lausu hjúkrunarrými, og færri hafi komist að en vilji. Spurður um fráflæðisvandann sem uppi er á Landspítalanum segir Kristján: „Við gerum okkur grein fyrir því að við erum að einhverju leyti að taka við fólki frá Landspít- alanum og erum að gera þetta eins hratt og við getum.“ Helmingur rýma nú í notkun  Opna þriðju deildina í nýju hjúkrunarheimili á Seltjarnarnesi fyrir mánaðamót  „Mönnun gengur alls ekki illa“  Skortur á hjúkrunarfræðingum „krónískur“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Spánnýtt Frá vígsluathöfn í febrúar. Í dag er helmingur heimilisins nýttur. Þrír piltar hafa játað aðild sína að íkveikju sem leiddi til eldsvoðans í þaki Seljaskóla aðfaranótt sunnudagsins 12. maí. Segir í tilkynningu frá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu að rann- sókn málsins sé langt komin. Í tilkynningunni kemur fram að allir piltarnir þrír séu undir sjálfræðisaldri og einn þeirra enn fremur undir sak- hæfisaldri. Þá kemur fram að málið hafi verið unnið í samráði við fé- lagsyfirvöld og að rannsókn þess haldi áfram. Ekki er hægt að gefa frekari upp- lýsingar á þessu stigi, að því er segir í tilkynningu lögreglunnar. Bruninn kom upp í þaki einnar af byggingum Seljaskóla aðfaranótt sunnudagsins 12. maí síðastliðins og leiddi hann til þess að þak bygging- arinnar, sem er með sex kennslu- stofum, gaf sig. Féll skólahald niður á mánudaginn vegna eldsvoðans. Þetta var annar bruninn á skömm- um tíma í húsnæði Seljaskóla en áður hafði kviknað í annarri byggingu skól- ans í mars. Þá reyndist hins vegar hafa kviknað í út frá rafmagnslögnum og höfðu menn því áhyggjur af því að upptök eldsvoðans nú væru af sama toga. sgs@mbl.is Játuðu að hafa kveikt í  Þrír piltar undir sjálfræðisaldri gáfu sig fram við lögregl- una vegna brunans í Seljaskóla  Rannsóknin langt komin Morgunblaðið/Ómar Slökkvistarf Þrír piltar hafa játað aðild að íkveikju í Seljaskóla. Eins og stendur bíður 91 ein- staklingur eftir plássi, flestir aldr- aðir og fjölveikir sem lokið hafa meðferð og liggja inni á Landspít- ala eða á legudeildum á hans veg- um. Þetta staðfestir Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar Landspítalans, í sam- tali við Morgunblaðið. Hún segir að þessir einstaklingar hafi allir lokið svokölluðu færni- og heilsu- mati sem sé forsenda þess að hægt sé að óska dvalar á hjúkr- unarheimili en hafi ekki fengið pláss á slíku heimili eða ekki boð- ist pláss á heimili sem hentar. Á Vífilsstöðum eru 44 „bið- pláss“ fyrir sjúklinga sem bíða eftir rými á hjúkrunarheimili. Þau eru sem stendur öll í notkun. Á Akranesi og í Borgarnesi eru einn- ig biðpláss sem hins vegar eru ekki að fullu nýtt. 91 að bíða eftir plássi FRÁFLÆÐISVANDI Á LANDSPÍTALA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.