Morgunblaðið - 17.05.2019, Side 20

Morgunblaðið - 17.05.2019, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019 Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Aðalgata 10, Fjallabyggð, fnr. 213-0062, þingl. eig. Joachim ehf., gerðarbeiðendur Birta lífeyrissjóður og Fjallabyggð, fimmtudaginn 23. maí nk. kl. 10:30. Vetrarbraut 4, Fjallabyggð, fnr. 213-1009, þingl. eig. Joachim ehf., gerðarbeiðendur Birta lífeyrissjóður og Fjallabyggð, fimmtudaginn 23. maí nk. kl. 10:45. Hvammur, Akureyri, fnr. 215-6376, þingl. eig. Kristján Ingimar Ragn- arsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Akureyrarkaupstaður, fimmtudaginn 23. maí nk. kl. 12:00. Freyjunes 10, Akureyri, fnr. 229-8384, þingl. eig. Halldór Jóhannsson, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Akureyrarkaupstaður og Sýslu- maðurinn á Norðurlandi eys, þriðjudaginn 21. maí nk. kl. 10:30. Goðanes 8-10, Akureyri, fnr. 236-5344, þingl. eig. Vodexx ehf., gerðar- beiðendur Sýslumaðurinn á Norðurlandi eys og Arion banki hf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 21. maí nk. kl. 10:15. Dalbraut 13, Dalvíkurbyggð, eignarhluti gerðarþola, fnr. 215-4776, þingl. eig. Gunnlaugur Antonsson, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Norðurlandi eys og Festi hf., miðvikudaginn 22. maí nk. kl. 14:15. Bakkavegur 9, Langanesbyggð, fnr. 216-7726, þingl. eig. Grétar Jósteinn Hermundsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norður- landi eys, miðvikudaginn 22. maí nk. kl. 12:00. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 16. maí 2019 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Bingó kl. 13.30, síðasta skiptið fyrir sumarfrí. Spjaldið kostar 250 krónur. Kaffi kl. 15. Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9- 16. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40- 12.45. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. S. 535-2700. Boðinn Handavinnusýning Boðans laugardaginn 18. maí og sunnu- daginn 19. maí kl. 13-17. Vöfflukaffi á boðstólnum allir velkomnir. Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Listasmiðja opin kl. 9-16. Thai chi kl. 9-10. Botsía kl. 10.15-11.20. Hádegismatur kl. 11.30. Zumba kl. 12.30. Hæðargarðsbíó kl. 13.30. Gáfumannakaffi kl. 14.30.Hugmyndabankinn opinn kl. 9-16. Skráning í vorferðina stendur yfir. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Furugerði 1 Íslenskumorgnar kl. 10, leikfimi kl. 11, hádegismatur kl. 11.30-12.30, ganga kl. 13, kaffisala kl. 14.30–15.30. Föstudagsfjör: Alltaf mismunandi. Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Vorsýning í Jónshúsi kl. 10.30-16. Kaffiveitingar frá kl. 13-15.30. Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Bókband með leiðbein- anda kl. 13-16. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir. Gjábakki Undirbúningur og uppsetning á handverki fyrir sýningu. Athugið! Um helgina, 18. og 19. maí verður hin árlega handverks- sýning kl. 13 til 17 báða dagana. Gullsmári Handavinna kl. 9 / Handverkssýning eldri borgara helgina 18.-19. maí 2019 kl. 13-17. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og ný- liðar velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30. Hraunsel Kl. 8-12 ganga í Kaplakrika alla virka daga, kl. 11.30 línu- dans, kl. 13 brids, kl. 13 botsía, kl. 10.45 leikfimi Hjallabraut, kl. 11.30 leikfimi Bjarkarhúsi. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, bíó kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9 í Borgum, sundleikfimi kl. 9 í Grafarvogssundlaug. Opið hús í Borgum í tilefni 5 ára afmælisins kl. 13 til 16 í dag, sýningar, tónlistaratriði, nafnasamkeppni, gleði og gaman. Allir hjartanlega velkomnir. Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45, lesið upp úr blöðum kl. 10.15, tréútskurður kl. 9-12, opin listasmiðja án leiðbeinanda kl. 9-12, upp- lestur kl. 11-11.30, hádegisverður kl. 11.30, föstudagsskemmtun kl. 14. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Spilað í króknum kl. 13.30. Brids í Eiðismýri kl. 13.30. ATH. Síðasti skráningardagur í dag vegna sameiginlegrar ferðar félagsstarfsins og kirkjunnar sem farin verður nk. þriðjudag 21. maí. Skráningablöð liggja frammi á Skóla- braut og Eiðismýri. Einnig má nálgast allar nánari upplýsingar hjá Kristínu í síma 8939800. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4 Spænskunámskeið kl. 13.00. Kennarar frá Spænsku- skólanum Háblame. Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23. Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Smá- og raðauglýsingar mbl.is alltaf - allstaðar ✝ Sigríður Kon-ráðsdóttir fæddist 12. mars 1920 á Miðjanesi í Reykhólasveit. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Vesturlands 3. maí 2019. Foreldrar henn- ar voru Konráð Sigurðsson bóndi og Ingveldur Pét- ursdóttir ljósmóðir. Systkini hennar voru Torfi, fæddur 1916, látinn 1988, Þor- björg, fædd 1924, látin 2015, Petrea Guðný, fædd 1931, látin 2007. Sigríður ólst upp á Miðjanesi fram til átta ára aldurs en þá flutti fjölskyldan að Finnmörk í Fitjárdal. Ári síðar að Böðvars- hólum í Vesturhópi þar sem hún ólst upp með fjölskyldu sinni fram á fullorðinsár. Skólagangan var ekki mikil mundardóttur. 2) Konráð Ingi, f. 1944, giftur Þórhildi Elías- dóttur en var áður giftur Vil- borgu Eddu Lárusdóttur og eiga þau þrjár dætur. Sigríður, f. 1967, gift Sverri Bergssyni. Unnur, f. 1972. Björk, f. 1982, í sambúð með Unnari Reynis- syni. 3) Birna, f. 1951, var í sambúð með Guðna Vigni Jóns- syni og þeirra sonur er Jón Vignir, f. 1979, giftur Elsu Dórótheu Kjartansdóttur. 4) Aðalsteinn, f. 1956, d. 2015, var giftur Þuríði Halldórsdóttur og eiga þau tvær dætur. Andrea Ágústa, f. 1991. Sigríður María, f. 1993. Aðalsteinn var áður giftur Ólöfu Kristjáns- dóttur. Langömmubörnin eru 13. Eftir að Torfi og Sigríður brugðu búi 1999 fór Torfi á sjúkrahúsið á Hvammstanga en Sigríður leigði íbúð þar uns hún flutti í Nestún árið 2000. Hún dvaldi í Nestúni fram til haustsins 2013 er hún fór inn á Heilbrigðisstofnun Vesturlands þar sem hún dvaldi fram til dauðadags. Útför hennar fer fram frá Hvammstangakirkju í dag, 17. maí 2019, klukkan 15. eins og títt var á þessum tíma en einhverja vetrar- parta var Sigríður í farskóla á Grund í Vesturhópi. Eftir fermingu var hún síðan tvo vetur við nám í Reykjaskóla í Hrútafirði. Sigríður giftist 29. desember 1940 Torfa Óldal Sig- urjónssyni frá Hörgshóli í Vesturhópi, f. 1918, d. 2002. Sama ár hófu þau búskap á Hörgshóli en 1942 fluttu þau að Stórhóli í Línakradal og bjuggu þar allt fram til ársins 1999 er jörðin var seld. Sigríður og Torfi eignuðust fjögur börn. 1) Sigurjón, f. 1940, d. 2015, giftur Vilborgu Þórðardóttur. Synir þeirra: Torfi, f. 1969, giftur Grétu Garðarsdóttur, og Þórður, f. 1973, giftur Karenu Ingi- Með þessari vísun í ljóðið fal- lega eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi kveð ég ömmu mína og nöfnu og óska henni friðar og blessunar. Nú sefur jörðin sumargræn. Nú sér hún rætast hverja bæn, og dregur andann djúpt og rótt, um draumabláa júlínótt. [...] Nú dreymir allt um dýrð og frið við dagsins þögla sálarhlið, og allt er kyrrt um fjöll og fjörð og friður drottins yfir jörð. Tenging mín við ömmu og nöfnu var í raun kaflaskipt. Fyrir og eftir pönk og diskó. Á fyrra tímabilinu var ég lítil malbiks- drottning úr Árbænum í heim- sókn hjá ömmu á Stórhóli. Þótti mjög vænt um nafnið og sveitina en viðkvæm sál og ekki mikill bógur. Hún var þá húsfreyja í sveit og hugsaði um menn og dýr frá morgni til kvölds. Þrotlaus vinna og ekki mikil hjálp í mér. Þó mér hefði kannski átt að vera í blóð borið að hafa sérstakt lag á dýrum eða líða í það minnsta þokkalega innan um þau þá var það ekki raunin. Ég gat sótt kýrnar með fylgdarmanni. Hékk í pilsfaldinum á ömmu og var út- hlutað huggulegum inniverkum við nestisgerð, bakstur o.fl. þegar annað var fullreynt. Ég gat hlaupið á eftir rollum en alls ekki staðið fyrir þeim og í réttunum leið mér mun betur með ömmu og öðrum kvenfélagskonum í réttar- kaffinu heldur en nokkurn tíma inni í rétt með rollunum. Líf hennar var tileinkað því að hugsa um aðra eins og svo al- gengt var hjá konum af þessari kynslóð. Ótrúleg nægjusemi og úthald í víðum skilningi. En svo koma kaflaskilin og þá var sveitarómantíkin ekki í há- vegum höfð. Ég var svo lánsöm að vera unglingur á blómaskeiði pönksins. 15 ára þegar Rokk í Reykjavík kom út í bíó. Fór beint úr hermannaklossunum yfir í grænbláan fúskpels á diskótíma- bilinu. Frú Sigríði var hlíft við þess- um ósköpum. Hún var barn síns tíma og kunni best að meta það þegar dömur voru í pilsi og með vel greitt hár. Hún hafði stíl- hreinan smekk og hafði orð á því ef henni fannst eitthvað alveg laust við að vera fallegt. Lífið gekk sinn vanagang í sveitinni meðan við unga fólkið hlustuðum á ACDC og Donnu Summer og okkur tekið fagnandi þegar við byrjuðum að venja komur okkur í sveitina aftur. Sameiginlegur áhugi á handa- vinnu og ýmsu tengdu börnum og heimilishaldi tengdi okkur saman þegar ég var sjálf komin með fjöl- skyldu og langömmubörnin fengu að njóta samvista við hana eftir að hún hætti að búa. Þeim var strokið um vanga og drukku heitt kakó meðan móðir þeirra fékk orð í eyra ef hún fékk sér bara kaffi í bolla en skildi bónda sinn eftir kaffilausan og í ein- hverju reiðileysi. Amma var greind kona og fylgdist vel með þjóðmálum og líka því hvernig gekk við sveita- störfin löngu eftir að hún hætti sjálf að búa. Þessi næstum hundrað ár sem hún lifði eru umhugsunarefni á kveðjustundu. Og það hvaða dýr- mætu eiginleika hennar væri gott að tileinka sér og bera áfram. Nægjusemina og æðruleysið hef ég í blóðinu vonandi, þó eitthvað hafi vantað upp á hugrekkið og seigluna. Blessuð sé minning hennar Sigríður Konráðsdóttir. Sigríður Konráðsdóttir  Fleiri minningargreinar um Sigríður Konráðs- dóttir bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Sigrún Jó-hannesdóttir fæddist í Ólafsfirði 13. ágúst 1923. Hún lést á Dval- arheimilinu Hlíð 9. maí 2019. Foreldrar henn- ar voru Unnur Sveinsdóttir, f. 8. ágúst 1889, d. 7. maí 1930, og Jó- hannes Hólm Steinsson, f. 9. apríl 1876, d. 10. október 1931. Þau voru ábúendur á Hrúthól í Ólafs- firði. Eftir lát foreldranna fór Sigrún til Ingibjargar móður- systur sinnar og manns hennar Friðriks Jónssonar og ólst þar upp. Systkini Sigrúnar samfeðra voru; Steinn Guðni, f. 1901, d. 2003, og Halldóra, f. 1906, d. 1995. Alsystkini voru Ólöf, f. 1915, d. 2008, og Sveinn, f. Eftir að Bjarni lést bjó Sigrún þar áfram þar til hún fluttist á Dvalarheimilið Hlíð í október á síðasta ári. Þegar hefðbundinni skóla- skyldu þess tíma lauk vann Sig- rún við fiskvinnslu og ýmis önnur tilfallandi störf. Hún var síðar í vist í Ólafsfirði, á Akur- eyri og í Reykjavík. Veturinn 1944-1945 nam hún í Hús- mæðraskólanum á Laugalandi en var síðan húsmóðir á Akur- eyri næstu árin. Er barnaupp- eldi lauk fór Sigrún á vinnu- markaðinn og starfaði m.a. hjá Þvottahúsinu Mjallhvít og Kaffibrennslu Akureyrar, en eftir fráfall eiginmanns hjá Dvalarheimilinu Hlíð uns hún lét af störfum þegar sjötíu ár- um var náð. Eftirlaunaárin voru Sigrúnu býsna gæfurík og heilsan lengstum góð. Hún fylgdist vel með fréttum og umræðum um þjóðfélagsmál í fjölmiðlum og naut samskipta með sínu fólki. Útför Sigrúnar verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag, 17. maí, klukkan 13.30. Jarðsett verður í Kirkjugarði Akur- eyrar á Naustahöfða. 1929, d. 2011. Sigrún giftist Bjarna Kristins- syni þann 24. maí 1946. Bjarni fædd- ist á Húsavík 30. desember 1916 og lést í Reykjavík 15. júlí 1975. Sigrún og Bjarni eignuðust þrjú börn: 1) Guð- rún, f. 1947, gift Birni Sigmundssyni og eiga þau þrjú börn og sjö barna- börn. 2) Jóhannes, f. 1949, kvæntur Þóreyju Eddu Stein- þórsdóttur. Þeirra börn eru fjögur og barnabörnin eru fimm. 3) Unnur, f. 1955, eign- aðist fjögur börn, eitt er látið, og barnabörnin eru fimm. Sigrún og Bjarni bjuggu á Akureyri allan sinn búskap, fyrst í Brekkugötu 8 en frá árinu 1961 í Byggðavegi 88. Í dag kveðjum við ömmu í Byggó eins og hún var alltaf köll- uð af okkur systkinunum. Það voru forréttindi að búa í þar- næsta húsi við hana í Byggðaveg- inum í nokkur ár þegar við vor- um börn. Það var notalegt að líta inn til hennar og fá ömmukleinur eða annað góðmeti í gogginn. Hún vann 17 ár í eldhúsinu á Dvalarheimilinu Hlíð og var hún flink við alla eldamennsku og bakstur; lærissneiðarnar, kon- fektkakan hennar og kleinurnar sem enginn gerir eins, koma strax upp í hugann. Það var stutt fyrir hana í vinnuna frá heimili hennar Byggðavegi 88 og kom hún oft við hjá okkur á heimleið og áttum við góðar stundir og spjall. Amma var fædd í Ólafsfirði og bjó þar æskuárin. Henni þótti alla tíð mjög vænt um staðinn og talaði svo fallega um hann. Mun- um við systkinin eftir mörgum skemmtilegum bíltúrum með henni, m.a. að heimsækja skyld- fólk hennar í Ólafsfirði og einnig eftir bíltúrum í Vaglaskóg en þangað þótti henni líka gaman að fara. Amma var mjög mikið snyrti- menni og voru rykkornin ekki mörg í hennar lífi. Heimili henn- ar var ævinlega nýstrokið og allt í röð og reglu. Við höfðum stund- um á orði að hennar áhugamál væri að þrífa. Hún meira að segja þurrkaði sjálf af eftir að hún fór á dvalarheimilið þrátt fyrir afar takmarkaða sjón. Hún vissi nákvæmlega hvar allt var og hreinlega þurrkaði af eftir minni. Amma fylgdist afar vel með öllum afkomendum sínum, mundi alla afmælisdaga og var alveg með á hreinu hvað allir voru að fást við. Hún hafði líka alltaf tíma fyrir fólkið sitt, alltaf var hægt að kíkja við í Byggó og eiga skemmtilegt spjall við hana. Hún var með alveg ótrúlega gott minni alla tíð og fylgdist yfirhöf- uð vel með öllu. Var með allar fréttir á hreinu og sagði okkur hinum frá og var stundum reynd- ar hissa á að við sem yngri vorum fylgdumst ekki nógu vel með. Spurði oft: „Ertu ekkert að fylgj- ast með?“ Seinni ár fékk hún mikinn áhuga á íþróttum, hand- boltanum sérstaklega. Hún mátti vart missa af leik í sjónvarpinu og gilti þá einu hvort félagslið eða landslið kvenna eða karla öttu kappi. Það varð henni því mikið áfall er sjónin dofnaði og gerði henni erfitt fyrir að fylgjast með. Hún færði stólinn bara nær sjónvarpinu, eiginlega alveg upp að því og hækkaði í tækinu og hélt áfram að fylgjast með. Hún fylgdist líka aðeins með fótbolt- anum og þremur dögum fyrir andlátið spurði hún t.a.m. hvern- ig leikur KA-Vals hefði farið. Amma var mannblendin og vissi fátt skemmtilegra en að setjast inn á kaffihús og fá sér gott kaffi og kökusneið og fylgj- ast með mannlífinu. Gaman var að fá hana í kaffi og mat þar sem hún var mikill sælkeri og kunni að meta góðar kökur og mat. Í hennar huga voru dvalar- heimilin fyrir aldrað fólk og þangað var hún ekkert að fara 95 ára gömul. Eftir að sjóninni hrakaði varð erfitt fyrir hana að búa áfram ein heima og í október síðastliðnum fór hún á Dvalar- heimilið Hlíð og undi hag sínum vel þar. Nú skilja leiðir. Amma hefur fengið hvíldina og afi tekið vel á móti henni í sumarlandinu. Far þú í friði, elsku amma, og takk fyrir allt, blessuð sé minning þín. Sigmundur, Sigrún og Anna Elín. Sigrún Jóhannesdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.