Morgunblaðið - 17.05.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019
HANDBOLTI
Þýskaland
Erlangen – Bietigheim ....................... 27:25
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen.
Hannes Jón Jónsson þjálfar Bietigheim.
Argentína
16-liða úrslit, fyrsti leikur:
Regatas – San Martin.......................... 90:95
Ægir Þór Steinarsson skoraði 6 stig fyr-
ir Regatas og tók 4 fráköst en hann lék í 19
mínútur.
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, fyrsti úrslitaleikur:
Milwaukee – Toronto ....................... 108:100
KÖRFUBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
Annar úrslitaleikur karla:
Hleðsluhöllin: Selfoss – Haukar (1:0) . 19.30
KNATTSPYRNA
1. deild karla, Inkasso-deildin:
Eimskipsv.: Þróttur R. – Víkingur Ó.. 19.15
Nettóvöllur: Keflavík – Afturelding ... 19.15
Leiknisvöllur: Leiknir R. – Njarðvík.. 19.15
2. deild karla:
Samsung-völlur: KFG – Þróttur V ..... 19.15
Hertz-völlur: ÍR – Selfoss.................... 19.15
3. deild karla:
Fagrilundur: Augnablik – Skallagrímur. 20
Í KVÖLD!
Noregur
Tromsö – Bodö/Glimt ............................. 1:2
Oliver Sigurjónsson var á meðal vara-
manna Bodö/Glimt allan leikinn.
Mjöndalen – Lilleström........................... 2:2
Dagur Dan Þórhallsson var á meðal
varamanna Mjöndalen alla leikinn.
Arnór Smárason kom inn á sem vara-
maður hjá Lilleström á 46. mín.
Vålerenga – Strömsgodset..................... 2:0
Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn
fyrir Vålerenga.
Viking – Stabæk ...................................... 3:0
Samúel Kári Friðjónsson lék allan leik-
inn fyrir Viking. Axel Óskar Andrésson er
frá keppni vegna meiðsla.
Staða efstu liða:
Molde 9 6 1 2 20:9 19
Odd 8 6 1 1 12:6 19
Bodø/Glimt 8 5 2 1 18:11 17
Vålerenga 9 5 2 2 17:10 17
Kristiansund 9 5 1 3 11:10 16
Viking 8 4 2 2 12:8 14
Brann 9 4 2 3 12:11 14
Haugesund 8 3 2 3 12:8 11
Mjøndalen 8 2 3 3 12:14 9
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
Öflugar Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði
frá 365
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
Greinaklippur
frá 595
695
Strákú
á tann
verði
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri í miklu úrvali
frá 995
Garðslöngur
í miklu úrvali
Fötur í
miklu úrvali
3.995
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar.........
Léttar og góðar hj
með 100 kg burðargetu
999
Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295
Laufhrífur
frá 999
Laufsugur
7.495
Úðabrúsar
í mörgum stærðum
frá 995
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
FÓTBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Hólmar Örn Eyjólfsson landsliðs-
maður í knattspyrnu hefur náð góð-
um bata í vetur eftir að hafa slitið
krossband í hné í byrjun nóvember.
Hann var skorinn upp 13. nóvember
og nú sex mánuðum síðar er hann
byrjaður að æfa að nýju með liði
sínu, Levski Sofia í Búlgaríu, og er
bjartsýnn á að geta spilað með því á
ný frá og með byrjun næsta tímabils.
Krossbandaslit hafa oft í för með
sér 11 til 12 mánaða fjarveru en
Hólmar sagði við Morgunblaðið að
endurhæfingin hefði gengið að ósk-
um.
„Ég fór í aðgerðina í Barcelona og
var þar í fyrstu endurhæfingunni í
um það bil mánuð. Síðan fór ég heim
til Íslands og hef verið í meðferð hjá
Róberti Magnússyni sjúkraþjálfara í
allan vetur, alveg þangað til í síðustu
viku þegar ég fór aftur til Búlgaríu.
Róbert tók vel á mér og kom mér í
gott stand til að byrja af krafti þegar
ég verð algjörlega tilbúinn til þess.
Það var virkilega gott að vera heima
á Íslandi í endurhæfingunni og hafa
fjölskylduna og vinina til að dreifa
huganum á meðan ég gat ekki spilað
fótbolta,“ sagði Hólmar, sem er að
ljúka öðru tímabili sínu með Levski
en hann gerði fjögurra ára samning
við félagið árið 2017.
Kominn í heilmikinn bolta
Hólmar er byrjaður að sparka
bolta á æfingum hjá Levski. „Já, ég
er kominn í heilmikinn bolta og tek
þátt í þeim æfingum þar sem ekki er
farið í líkamleg átök. Ég reikna með
að geta byrjað af fullum krafti þegar
undirbúningstímabilið byrjar um
miðjan júní,“ sagði Hólmar sem
hafði spilað 12 af fyrstu 13 leikjum
Levski í deildinni í haust og skorað
tvö mörk þegar hann slasaðist.
Lið Levski er að vanda í toppbar-
áttunni í Búlgaríu en vantaði í vetur
herslumuninn til að skáka Ludogo-
rets Razgrad og CSKA Sofia í slagn-
um um titilinn, eins og oftast áður
undanfarin ár. Liðið er í þriðja sæti,
sjö stigum á eftir Ludogorets og
fjórum á eftir CSKA þegar fjórar
umferðir eru eftir en ljóst að liðið fer
í undankeppni Evrópudeildarinnar í
sumar, mögulega beint í riðlakeppn-
ina ef það nær öðru sætinu.
Alltaf stefnt á efsta sætið
„Stefnan hér er alltaf að vinna
deildina þó það sé orðið langt síðan
það tókst síðast. Það verða líklegast
einhverjar breytingar hjá klúbbnum
í sumar þannig að það verður spenn-
andi að sjá hvernig næsta tímabil
þróast,“ segir Hólmar sem kveðst
kunna vel við sig í Sofia, höfuðborg
Búlgaríu.
Meiðslin kostuðu Hólmar þátt-
töku í tveimur síðustu landsleikjum
ársins 2019 og í það minnsta fjóra
fyrstu leikina í undankeppni EM en
hann á samkvæmt stöðunni núna
möguleika á að koma inn í landsliðs-
hópinn á ný í september þegar Ís-
land mætir Moldóvu á heimavelli og
Albaníu á útivelli. „Það er að sjálf-
sögðu markmiðið,“ sagði Hólmar
Örn Eyjólfsson.
Hraður bati hjá Hólmari
Byrjaður að æfa með Levski Sofia sex mánuðum eftir uppskurð vegna slitins
krossbands í hné Endurhæfingin fór fram í Barcelona og á Íslandi í vetur
Ljósmynd/Levski Sofia
Búlgaría Hólmar Örn Eyjólfsson vinnur skallaeinvígi í leik með Levski
Sofia. Hann er samningsbundinn félaginu í tvö ár til viðbótar.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Sumarið 2004 lék átján ára piltur
hálft tímabil í vörn Víkings í ís-
lensku úrvalsdeildinni. Hann mun
nú fara fyrir liði Derby á Wembley
mánudaginn 27. maí þegar leikið
verður til úrslita um sæti í ensku úr-
valsdeildinni.
Richard Keogh kom til Víkings í
júnímánuði 2004 sem lánsmaður frá
Stoke City, ásamt félaga sínum Jer-
maine Palmer, og þeir léku með
Fossvogsliðinu undir stjórn Sig-
urðar Jónssonar út tímabilið. Keogh
vann sér fast sæti í stöðu miðvarðar
og lék þar við hlið Grétars Sigfinns
Sigurðarsonar seinni hluta tímabils-
ins en þurfti þó að snúa aftur til
Stoke þegar tveimur umferðum var
ólokið. Hann spilaði níu leiki í deild-
inni, helming leikja Víkings en þá
voru tíu lið í úrvalsdeildinni.
Gríðarlega vinsæll
Keogh, sem nú er 32 ára, er í dag
fyrirliði Derby County sem mætir
Aston Villa í umræddum úrslitaleik
sem oft er kallaður „verðmætasti
fótboltaleikur í heimi“ vegna þess
hve mikið er undir. Keogh hefur
leikið með Derby í sjö ár, er gríðar-
lega vinsæll meðal stuðningsmanna
félagsins og er búinn að spila á
fjórða hundrað leiki með liðinu í
ensku B-deildinni. Þá á hann að baki
21 leik með landsliði Írlands, tvo
þeirra á þessu ári.
Keogh lagði upp eitt marka Derby
í mögnuðum 4:2 útisigri á Leeds í
seinni umspilsleik liðanna í fyrra-
kvöld en Derby hafði tapað fyrri
leiknum á sínum heimavelli, 0:1.
Keogh hefur leikið rúmlega 550
leiki í ensku deildakeppninni en
hann spilaði með Coventry, Carlisle
og Bristol City eftir að hann yfirgaf
Íslendingafélagið Stoke City árið
2005 án þess að hafa fengið tækifæri
með aðalliðinu. Hann hefur enn ekki
spilað í úrvalsdeildinni en fær nú
tækifæri til að taka þátt í að koma
Derby þangað.
Leeds líka með Víking
Víkingar „áttu“ leikmenn í báðum
liðum í þessu einvígi því sigurmark
Leeds í fyrri leiknum skoraði Kemar
Roofe. Hann lék þrjá leiki með Vík-
ingum sem lánsmaður frá West
Bromwich Albion vorið 2011 og
skoraði eitt mark í bikarkeppninni,
gegn KV á gervigrasvelli KR-inga.
Leeds keypti hann af Oxford United
fyrir þremur árum og Roofe hefur
gert 28 mörk í 110 leikjum fyrir fé-
lagið í B-deildinni.
Gamall Víkingur
á leið á Wembley
sem fyrirliði
Morgunblaðið/ÞÖK
Víkingur Keogh í leik árið 2004.
AFP
Derby Keogh er fyrirliði liðsins.
Vignir Svavarsson lýkur löngum ferli sem atvinnumaður í
handknattleik um helgina þegar hann tekur þátt í úrslita-
helgi EHF-bikarsins í handknattleik sem fram fer í Kiel í
Þýskalandi. Vignir sem leikið hefur með danska liðinu
TTH síðustu þrjú ár leikur í kvöld til undanúrslita í
keppninni við lærisveina Alfreðs Gíslasonar í Kiel. Í hinni
viðureign undanúrslitanna í kvöld mæta Bjarki Már El-
ísson og samherjar í Füchse Berlin portúgalska liðinu
Porto. Sigurliðin leika til úrslita á morgun en áður mætast
tapliðin úr leikjunum í viðureign um bronsverðlaunin.
Vignir ákvað í vetur flytja heim eftir keppnistímabilið
en hann hefur leikið með félagsliðum í Danmörku og í
Þýskalandi í 14 ár. Þar sem TTH er úr leik í úrslitakeppninni í Danmörku
verða leikirnir í dag og á morgun þeir síðustu hjá Vigni fyrir danska liðið.
Síðustu leikir Vignis í Kiel
Vignir
Svavarsson