Morgunblaðið - 17.05.2019, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég las um málið í fjölmiðlum árið
2010 og fékk þá strax brennandi
áhuga á því að koma því til skila í
verki. Þetta er því búið að vera níu
ára vegferð, frá hugmynd að veru-
leika,“ segir Gunnar Karel Másson,
höfundur, leikstjóri og tónskáld, um
tónleikhúsverkið
Iður sem leikhóp-
urinn Óþekkt
frumsýnir í
Tjarnarbíói í
kvöld kl. 20. Í
kynningu kemur
fram að verkið
byggist á sönnum
atburðum frá
2010 þegar upp
komst að breski
lögreglu-
maðurinn Mark Kennedy hefði
njósnað um liðsmenn Saving Iceland
sem mótmæltu Kárahnjúkavirkjun.
„Efnið talar sterkt inn í samtím-
ann. Fólkið sem Mark Kennedy var
að njósna um á sínum tíma var að
berjast gegn loftslagsbreytingum.
Þetta er fólk sem við í dag myndum
telja að við ættum að vera í liði með.
Öflugustu aðgerðasinnar í loftslags-
málum í dag eru grunnskólabörn,“
segir Gunnar og tekur fram að hann
sé ekki í neinum vafa um að njósna-
aðferðir Marks Kennedy séu enn
viðhafðar þó almenningur viti
kannski ekki af því.
„Sem unglingur tók ég virkan þátt
í mótmælaaðgerðum bæði hérlendis
og í Danmörku. Af þeim sökum
tengdi ég sterkt við efnið og velti
fyrir mér hvernig mér myndi líða ef
einhver hefði verið að njósa um
mig,“ segir Gunnar sem var í meist-
aranámi í tónsmíðum við Konung-
legu akademíuna í Kaupmannahöfn
þegar hann heyrði fyrst um fram-
ferði Marks Kennedy.
„Ég eyddi töluverðum tíma í að
skoða viðbrögð aðgerðasinna við
uppljóstruninni, allt frá því þeir
gerðu sér grein fyrir að njósnari
væri meðal þeirra og þar til þeir
komust að því hver það væri,“ segir
Gunnar og bendir á að umræður að-
gerðasinna á spjallþráðum rati að
nokkru inn í handrit verksins. „Það
var þeim reiðarslag að komast að því
að Mark væri uppljóstrarinn, því
hann hafði komið svo vel fyrir að
hann var orðinn einn af hópnum.“
Hvers vegna talaði þessi efniviður
svona sterkt til þín?
„Það var hugmyndin um tvöfalda
lífið sem heillaði mig. Það var svo
mikil dramatík í kringum þessar að-
stæður. Þetta er maður sem er fjöl-
skyldufaðir og lögreglumaður. Hann
hafði ekki tekið þátt í svona stórum
aðgerðum áður, þó hann hefði unnið
við að leggja gildrur fyrir dópsala,“
segir Gunnar og tekur fram að sér
hafi þótt áhugavert hvernig Mark
Kennedy útskýrði fyrir aðgerða-
sinnum á Englandi langar fjarverur
sínar þegar hann fór heim til fjöl-
skyldu sinnar á Írlandi. „Hann hefur
lýst því í viðtölum hvers konar af-
sakana hann þurfti að grípa til þegar
hann fór heim til fjölskyldunnar í
jafnvel heilan mánuð og slökkti á
farsímanum og öllum samfélags-
miðlum.“
Framsækið á köflum
Tók tíma að finna leið að efninu?
„Já, það gerði það. Á þessum tíma
hefur endurreisnarskáldið John
Donne reglulega skotið upp koll-
inum í minni skapandi vinnu,“ segir
Gunnar og tekur fram að það tengist
aftur tvöfalda líferninu, en John
Donne var ljóðskáld og klerkur.
„John Donne átti í miklum erfið-
leikum með sína trú og var að mörgu
leyti efasemdamaður sem birtist
fyrst og fremst í ljóðum hans, en
ekki í predikunum hans. Fimm af
nítján heilögum sonnetum hans
mynda nokkurs konar rauðan þráð í
gegnum sýninguna. Ég sá sterka
tengingu milli þessara tveggja
manna sem voru að berjast við mis-
munandi yfirvald og ólíka tvöfeldni
gagnvart yfirvaldinu annars vegar
og sjálfum sér hins vegar,“ segir
Gunnar og bendir á að leit mann-
anna tveggja að sjálfum sér hafi
tengt þá sterkum böndum.
„Fyrsta hugmyndin var að gera
einhvers konar kórverk með sögu-
manni,“ segir Gunnar og tekur fram
að verkið hafi þróast töluvert í
vinnslu fyrir fjórum árum þegar
hann fékk listamannaaðstöðu í
Tjarnarbíói þar sem hann skrifaði
drög að fyrsta handriti. „Niður-
staðan varð verk sem byggist fyrst
og fremst á töluðum texta með söng
inn á milli,“ segir Gunnar og bendir
á að tónlistin, sem hann er höfundur
að, þjóni aðeins framvindu leiksins.
„Við skilgreinum þetta sem tón-
leikhúsverk vegna þess hversu mikil
áhersla er á sönginn þegar hann
kemur inn í verkið. Hljóðheimurinn
er stór partur af dramatúrgíu verks-
ins,“ segir Gunnar og bætir við: „Án
þess að ljóstra upp of miklu þá get
ég sagt að tónlistin byrji í fortíðinni
og færist sífellt nær nútímanum. Ég
vann tónlistina út frá leikhúslegum
forsendum þannig að tónlistin þjón-
ar verkinu en ekki öfugt. Það litar
val á tónefni. Að mörgu leyti er þetta
íhaldssamt, en fer á köflum út í að
vera mjög framsækið,“ segir Gunnar
og tekur fram að til að undirstrika
að verkið sé einleikur sé tónlistin
leikin af upptöku. Flytjendur eru
söngkonurnar Edda Björk Jóns-
dóttir, Sara Grímsdóttir og Alda
Úlfarsdóttir ásamt félögum úr
Drengjakór Reykjavíkur.
Hvers vegna valdir þú að leik-
stýra eigin verki?
„Það kemur til af því að ég vildi
sjálfur hafa puttana í öllu. Kosturinn
við langan meðgöngutíma verksins
er að ég var kominn með ákveðna
fjarlægð frá efninu sem hefur auð-
veldað mér að krukka í textann. Ég
hef í gegnum tíðina fyrst og fremst
unnið með samsköpunarhópum,“
segir Gunnar sem starfað hefur með
sviðslistahópnum 16 elskendum síð-
asta áratuginn. „Fyrsta leikverkið
sem ég gerði tónlistina við var Gang-
verkið sem Nemendaleikhúsið sýndi
í Borgarleikhúsinu haustið 2008 í
leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur
og hef mikið fengist við leikhús síðan
þá sem nýtist mér í þessari upp-
færslu,“ segir Gunnar sem naut þar
aðstoðar Sögu Sigurðardóttur sem
er dramatúrg sýningarinnar. „Mér
fannst mikilvægt að hafa sem
dramatúrg manneskju sem hefur vit
á sviðshreyfingum,“ segir Gunnar.
Leikmynd og búninga hannar Tinna
Ottesen og lýsingu hannar Jóhann
Friðrik Ágústsson.
Hvernig ber að skilja titilinn?
„Iður þýðir innyfli og vísar til þess
að í verkinu er Mark Kennedy að
rekja úr sér garnirnar,“ segir Gunn-
ar og bendir á að verkið, sem tekur
um klukkutíma í flutningi, gerist ár-
ið 2010. „Sögusvið sýningarinnar er
yfirheyrsla aðgerðasinna yfir Mark
Kennedy eftir að þau komust að því
að hann væri uppljóstrari en ekki
raunverulega einn af hópnum,“ segir
Gunnar og tekur fram að leikhóp-
urinn afbyggi manneskjuna í nálgun
sinni. Með eina leikhlutverk upp-
færslunnar fer Hlynur Þorsteinsson,
sem bregður sér í hlutverk Marks
Kennedy. „Ég kynntist Hlyni árið
2015, áður en ég byrjaði á handrita-
vinnunni, þar sem hann vann sem
sviðsmaður í uppfærslu 16 elskenda
á Minnisvarða. Hann var þá nýkom-
inn inn í leiklistarnám Listaháskóla
Íslands og ég var að segja honum frá
þessari hugmynd minni sem ég hafði
gengið með í fimm ár. Fyrir ári hitti
ég hann og þá var hann að klára leik-
aranám sitt og fór þá að ganga eftir
því að verkið rataði á svið. Í raun má
orða það þannig að þegar fyrstu
drögin að handritinu voru tilbúin var
leikarinn byrjaður að mennta sig til
að geta leikið þetta,“ segir Gunnar
að lokum.
Njósnari á meðal vor
Ljósmynd/Árni Már Erlingsson
Garnir Hlynur Þorsteinsson lætur rekja úr sér garnirnar í hlutverki Marks Kennedy í tónleikhúsverkinu Iður.
Leikhópurinn Óþekkt frumsýnir tónleikhúsverkið Iður
eftir Gunnar Karel Másson í Tjarnarbíói í kvöld klukkan 20
Gunnar Karel
Másson
Kvikmyndahátíðin í Cannes hefur
hlotið harða gagnrýni fyrir að
meina breskum kvikmyndaleik-
stjóra, Gretu Bellamacina, aðgang
að hátíðarsvæðinu af því hún var
með fjögurra mánaða son sinn með
sér. Kvikmynd Bellamacina, Hurt
By Paradise, er sýnd á markaðs-
hluta hátíðarinnar og segir leik-
stjórinn að viðmót starfsmanna
hafi verið hreint út sagt hneyksl-
anlegt. Hún hafi ekki mátt fara
með barn sitt inn á hátíðarsvæðið
án þess að kaupa fyrir það að-
gangspassa sem kostar 300 evrur,
jafnvirði um 41 þúsund króna.
Bauðst Bellamacina til þess að
greiða evrurnar 300 fyrir barnið
og var þá sagt að það myndi taka
tvo sólahringa að afgreiða umsókn
um passa fyrir það. Var hún beðin
um að yfirgefa svæðið.
Eftir að þessi hneisa spurðist út
sendu skipuleggjendur hátíð-
arinnar frá sér yfirlýsingu þar sem
þeir hörmuðu að leikstjórinn hefði
mætt þessu viðmóti starfsmanna og
sögðu að bætt yrði fyrir skaðann.
Leikstjórinn segir kaldhæðnis-
legt frá því að segja að kvikmynd
hennar fjalli um unga móður og
rithöfund sem berjist í bökkum.
Átti að greiða 300 evrur fyrir ungbarn
Leikstjórinn Greta Bellamacina.
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Mið 22/5 kl. 19:00 33. s Fim 30/5 kl. 19:00 37. s Mán 10/6 kl. 19:00 42. s
Fim 23/5 kl. 19:00 34. s Sun 2/6 kl. 19:00 38. s Fim 13/6 kl. 19:00 43. s
Lau 25/5 kl. 13:00 aukas. Mið 5/6 kl. 19:00 39. s Fös 14/6 kl. 19:00 44. s
Sun 26/5 kl. 19:00 35. s Fim 6/6 kl. 19:00 40. s Sun 16/6 kl. 19:00 45. s
Mið 29/5 kl. 19:00 36. s Fös 7/6 kl. 19:00 41. s
Stundum ég þarf að vera svolítið óþekk!
Elly (Stóra sviðið)
Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas.
Fös 24/5 kl. 20:00 216. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 17/5 kl. 20:00 17. s Fös 24/5 kl. 20:00 19. s Fim 6/6 kl. 20:00 21. s
Fim 23/5 kl. 20:00 18. s Fim 30/5 kl. 20:00 20. s Fös 7/6 kl. 20:00 22. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Bæng! (Nýja sviðið)
Fim 23/5 kl. 20:00 7. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s Fös 14/6 kl. 20:00 Lokas.
Sun 26/5 kl. 20:00 8. s Fim 6/6 kl. 20:00 10. s
Alltof mikið testósterón
Sýningin sem klikkar (Stóra sviðið)
Sun 19/5 kl. 20:00 42. s Lau 25/5 kl. 20:00 43. s Lau 1/6 kl. 20:00 aukas.
Aðeins örfáar sýningar.
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 18/5 kl. 13:00 Aukas. Sun 26/5 kl. 13:00 Lau 8/6 kl. 13:00
Lau 18/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 26/5 kl. 16:00 Aukas. Lau 8/6 kl. 16:00 Auka
Sun 19/5 kl. 13:00 Sun 2/6 kl. 13:00
Sun 19/5 kl. 16:00 Sun 2/6 kl. 16:00
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fös 31/5 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Mið 22/5 kl. 19:30
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Loddarinn (Stóra Sviðið)
Fös 17/5 kl. 19:30 6.sýn Fös 24/5 kl. 19:30 8.sýn
Fim 23/5 kl. 19:30 7.sýn Mið 29/5 kl. 19:30 9.sýn
Hárbeitt verk eftir meistara gamanleikjanna
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Lau 18/5 kl. 15:00
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Hárið (Stóra sviðið)
Fös 14/6 kl. 19:30 Lau 15/6 kl. 19:30
Áhugasýning ársins 2019
Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn)
Fim 23/5 kl. 19:30 Fös 24/5 kl. 19:30
Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor
Dansandi ljóð (Leikhúskjallarinn)
Sun 19/5 kl. 20:00
Brúðkaup Fígaros (Stóra Sviðið)
Lau 7/9 kl. 19:30 Frums. Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn
Sun 15/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn
Óborganlegu gamanópera eftir meistara Mozart
MUTTER COURAGE (Kassinn)
Fös 17/5 kl. 20:00 Sun 19/5 kl. 15:00 Mán 20/5 kl. 20:00
Lau 18/5 kl. 20:00 Sun 19/5 kl. 20:00
EFTIR BERTOLT BRECHT
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200