Morgunblaðið - 21.05.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2019
olympium 350Nú bjóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda
Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem
eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn.
8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu.
Einnig mikið úrval aukabúnaða.
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Lónsbakk i - 601 Akureyr i
Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
maxipodium 500
Hestakerrur frá Fautras
maxipodium 500
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Seinni umræða um þingsályktunartillögu utan-
ríkisráðherra um hinn svonefnda þriðja orku-
pakka hélt áfram á Alþingi í gær, og voru tíu
manns enn á mælendaskrá um tíuleytið í gær-
kvöldi.
Þótti ljóst þegar blaðið fór í prentun að enn
ættu þingmenn eftir að ræða málið í nokkurn
tíma og var ekki gert ráð fyrir að greidd yrðu
atkvæði um tillöguna í nótt. Þingmenn Mið-
flokksins voru áberandi á mælendaskrá gær-
dagsins, en þeir höfðu áður talað um málið
framundir morgun aðfaranótt síðasta fimmtu-
dags. Þá voru þingmenn báðum megin borðs-
ins sem fyrr duglegir í andsvörum og rökræð-
um um málið.
Nokkrar umræður urðu um fundarstjórn
forseta áður en seinni umræðan gat haldið
áfram, þar sem fjórða mál á dagskránni,
stjórnarfrumvarp um breytingu á lögum um
útlendinga, var tekið af dagskrá svo hægt yrði
að ræða áfram um innleiðingu orkupakkans.
Töldu Bergþór Ólason og Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, þingmenn Miðflokksins, það
sérkennilega ráðstöfun þar sem stuttu áður
hafði verið kosið um afbrigði til þess að koma
mætti málinu á dagskrá. Sagði Sigmundur
Davíð að sig ræki ekki minni til að svona hefði
verið gert áður. Bryndís Haraldsdóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, sagðist hins vegar
undrandi á því að Miðflokksmenn væru ekki
ánægðir með að geta haldið umræðunni um
orkupakkann áfram þegar í stað.
Spurt um traust á dómstólum
Fyrr um daginn hafði verið tekin á dagskrá
sérstök umræða um stöðu Landsréttar. Þór-
hildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata,
var málshefjandi og spurði Þórdísi Kolbrúnu
Reykfjörð Gylfadóttur dómsmálaráðherra
hvað stæði til að gera til að efla aftur traust á
dómstólum landsins í kjölfar niðurstöðu Mann-
réttindadómstóls Evrópu varðandi skipun
dómara í Landsrétt. Þá vildi Þórhildur Sunna
vita hvort ráðherra liti svo á að dómurinn hefði
verið á einhvern hátt inngrip í fullveldi Íslands
eða að dómstóllinn hefði farið yfir strikið. Þór-
dís Kolbrún þakkaði Þórhildi fyrir að hefja
þessa umræðu og áréttaði að íslenska ríkið
hefði þegar óskað eftir endurupptöku hjá yf-
irdeild Mannréttindadómstóls Evrópu á
Landsréttarmálinu. Sagði Þórdís dóminn for-
dæmalausan með afgerandi minnihlutaáliti og
að dómurinn vekti veigamiklar spurningar um
túlkun og framkvæmd mannréttindasáttmála
Evrópu sem Ísland er aðili að. Sagði Þórdís
jafnframt að meðan beðið væri svars frá yf-
irdeildinni yrði ekki um frekari inngrip að
ræða. Vert væri þó að hafa í huga að Hæsti-
réttur hefði dæmt skipan allra dómara við
Landsrétt lögmæta. Spunnust nokkrar um-
ræður um málið í kjölfarið.
Seinni umræðan heldur áfram
Þingmenn töluðu langt fram á kvöld um þriðja orkupakkann Um tugur enn á mælendaskrá í gær-
kvöldi Sérstök umræða á þinginu um stöðu Landsréttar í kjölfar dóms Mannréttindadómstólsins
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Þetta er óneitanlega eitthvað sem
fór fyrir brjóstið á mér, ég er ekki
ánægður með svona framgöngu,“
segir Felix
Bergsson, far-
arstjóri íslenska
Eurovision-
hópsins, en flug-
vallarstarfsmenn
í Tel Aviv stærðu
sig af því á netinu
að þeir hefðu gef-
ið meðlimum
hljómsveit-
arinnar Hatara
„vond sæti“ í
flugvél þeirra frá Tel Aviv í gær-
morgun. Birtu þeir að auki ljósmynd
beint úr bókunarkerfi El Al, rík-
isflugfélags Ísraels, á flugvellinum
þar sem glöggt mátti sjá sæt-
isnúmer hljómsveitarmeðlima sem
og flugnúmer vélarinnar sem hljóm-
sveitin átti bókað far með.
Ljóst þykir að þetta framferði
gæti hafa brotið í bága við reglur
um persónuvernd eða flug-
samgöngur og segir Felix að hóp-
urinn muni skoða málið nánar á
næstu dögum og gera athugasemdir
við þessa framgöngu. „En hvort það
fari í gegnum okkar samstarfsaðila,
sem er Icelandair, sem bókar flugið,
eða einhverja aðra verður bara að
koma í ljós.“ Felix segir einnig
mögulegt að kvartað verði beint við
El Al vegna málsins.
Felix segir að hópurinn hafi orðið
var við að sætisnúmerunum hafði
verið lekið á netið snemma í gær-
morgun, en þá var hópurinn á leið-
inni á flugvöllinn. Þegar þangað var
komið hefði komið í ljós að sæt-
isnúmerin sem sáust á netinu voru
rétt. „Við veltum fyrir okkur hvort
við ættum að gera mál úr þessu á
flugvellinum, en ákváðum að bíða
með það og gera frekar formlega
kvörtun, auk þess sem við vildum
ræða við okkar menn hjá Rík-
isútvarpinu um hvað fólk vildi að við
gerðum í þessu, en mér finnst þetta
ekki gott mál.“
Þegar Morgunblaðið náði tali af
Felix var hópurinn staddur á Heath-
row og beið þess að fljúga heim til
Íslands, og var ráðgert að Eurovisi-
on-fararnir myndu lenda í Keflavík
um ellefuleytið í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Eggert
Hatari Heimferð íslenska Eurovisionhópsins frá Tel Aviv fékk heldur óskemmtilegt upphaf á flugvellinum.
Munu kvarta undan
vallarstarfsmönnum
Sætisnúmer Hatara birt á netinu fyrir flugtak í gær
Rétt um 30.000 manns höfðu lýst
yfir stuðningi sínum við brottvísun
Íslands úr Eurovision-keppninni í
þar til gerðri undirskriftasöfnun á
heimasíðunni change.org í gær-
kvöldi. Er þess þar krafist að Ís-
landi verði meinuð þátttaka í
söngvakeppninni á næsta ári
vegna þess uppátækis hljómsveit-
arinnar Hatara að flíka palestínska
fánanum þegar stigafjöldi Íslands
var lesinn upp. Segir á heimasíðu
söfnunarinnar að Hatari hafi van-
virt Ísrael og andrúmsloft keppn-
innar með athæfi sínu og því beri
að vísa Íslandi úr keppni.
Öllu færri, eða um 3.800 manns,
höfðu skrifað undir samsvarandi
undirskriftasöfnun í gærkvöldi,
þar sem þess er farið á leit við
skipuleggjendur söngvakeppn-
innar að þeir vísi Ísrael úr keppni
ótímabundið vegna framferðis Ísr-
aelsmanna gagnvart Palestínu.
Söfnuninni er augljóslega stefnt
til höfuðs hinni fyrri, en sama ljós-
mynd af athæfi Hatara prýðir báð-
ar safnanir.
Um 30.000 með brottvísun
UNDIRSKRIFTALISTAR
Fjölmiðlafrumvarp Lilju Daggar Al-
freðsdóttur, mennta- og menningar-
málaráðherra, hefur verið lagt fram
á Alþingi. Ráðherra mun mæla fyrir
frumvarpinu á yfirstandandi þingi.
Frumvarpið er að nokkru frábrugðið
frumdrögum þess á fyrri stigum
málsins.
Í frumvarpinu er lagt til að fjöl-
miðlar fái 25% af launakostnaði við
rekstur ritstjórnar endurgreiddan
úr ríkissjóði en að sú endurgreiðsla
muni aldrei nema meiru en 50 millj-
ónum. Þá verður sérstök reglugerð-
arheimild í frumvarpinu „þess efnis
að veita megi staðbundnum fjöl-
miðlum viðbótar endurgreiðslu,“
segir í tilkynningu um málið.
Í frumvarpinu sem nú verður lagt
fram hefur til tilbreytingar frá frum-
drögum frumvarpsins verið bætt við
ákvæði um 5,15% viðbótarendur-
greiðslu til fjölmiðla, sem mun ekki
verða háð takmörkum. Það er sagt
gert til að „draga úr áhrifum þess
ákvæðis er kveður á um að endur-
greiðslur nemi ekki hærri fjárhæð
en 50 milljónum króna“. Þessar við-
bótarendurgreiðslur munu þó aðeins
nema 5,15% af þeim launakostnaði
sem fer til starfsmanna í lægra
skattþrepi.
Þá er nefnt í frumvarpinu að
samningur ráðuneytisins við RÚV
renni út í árslok 2019 og að stefnt sé
að því athuga fyrir þann tíma „hvort
breyta skuli tekjuuppbyggingu Rík-
isútvarpsins, þar á meðal hvort
draga skuli úr umsvifum þess á aug-
lýsingamarkaði eða að fjármögnun
starfseminnar verði einungis byggð
á opinberum fjármunum.“
„Ein hugmynd sem hefur verið
rædd er að RÚV fari af auglýs-
ingamarkaði. Það yrði þó gert upp,
þannig að RÚV yrði ekki fyrir tekju-
missi vegna þessa,“ sagði Lilja Dögg
Alfreðsdóttir, mennta- og menning-
armálaráðherra, í Kastljósinu á
RÚV í gær.
„Við erum að hefja umræður um
þennan samning. En það er ljóst í
mínum huga að við viljum hafa
sterkt RÚV,“ sagði ráðherra enn-
fremur. „Ríkisútvarpið er á auglýs-
ingamarkaði og við höfum heyrt
talsverða gagnrýni hvað það varðar.
En það er alveg á hreinu í mínum
huga að við erum ekki að fara í nein-
ar aðgerðir sem veikja RÚV,“ sagði
Lilja.
Breytt fjölmiðla-
frumvarp lagt fram
Hafa rætt breytingar á RÚV
Morgunblaðið/Hari
Ráðherra Lilja Alfreðsdóttir mun
mæla fyrir frumvarpi um fjölmiðla.
Felix
Bergsson