Morgunblaðið - 21.05.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2019
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
40 ára Atli ólst upp í
Kópavogi og tíu ár í
Villingaholtsskóla í Fló-
anum í Árnessýslu.
Hann býr í Kópavogi og
er tölvunarfræðingur
hjá Hugsmiðjunni, með
BS-próf frá Háskóla
Íslands.
Maki: Heidi Lupnaav, frá Sorø í Dan-
mörku, f. 1979, með BA-gráðu í enskum
bókmenntum.
Börn: Anna Petrea, f. 2003, Emil Ingo, f.
2006, og Bjarki Magnus, f. 2010.
Foreldrar: Hafsteinn Karlsson, f. 1956,
skólastjóri í Salaskóla, og Ebba Páls-
dóttir, f. 1958, líftæknifræðingur hjá Ís-
lenskri erfðagreiningu. Þau eru bús. í
Kópavogi.
Atli Páll Hafsteinsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Eitthvað fer illa fyrir brjóstið á þér
og þú þarft að halda sjálfsstjórn. Vertu
viðbúinn því að allt geti brugðið til beggja
vona.
20. apríl - 20. maí
Naut Það eru miklir umbreytingatímar hjá
þér og þú færð tækifæri til að öðlast mikla
reynslu ef þú heldur rétt á spilunum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Haltu höfðinu hátt svo þú getir
séð allar þær hindranir sem leynast milli
þín og hins fullkomna dags.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gættu þess að lenda ekki í skugg-
anum af mönnum og málefnum. Gamall
vinur hefur samband og það mun gleðja
þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert á báðum áttum um hvort þú
eigir að þóknast vini þínum eða gera ást-
vini þínum til hæfis. Láttu það ekki draga
úr þér allan kjark þótt einhver óvelkomin
athygli beinist að þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er engin ástæða til þess að
velta sér upp úr öllum sköpuðum hlutum.
Hafðu það að leiðarljósi að sannleikurinn
er alltaf sagna bestur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þótt þér finnist gaman að gefa öðrum
ráð, þá verður þú að minnast þess að þú
átt ekki að stjórna lífi annarra. Vertu trúr
þinni sannfæringu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ættir að nota daginn til að
velta langtímamarkmiðum þínum fyrir þér.
Láttu það vera að flýta þér um of því það
býður hættunni heim og þú skilar verri
vinnu fyrir vikið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Notaðu daginn til þess að
sýsla á heimilinu og sinna skyldum þínum.
Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu
ekki ætlast til að aðrir séu eins.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að hafa mikið fyrir
hlutunum sem er allt í lagi ef þú bara gæt-
ir þess að skila vel unnu verki.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er þér nauðsyn að fá útrás
fyrir tilfinningar þínar. Taktu skref aftur-
ábak og skoðaðu málin af hlutlægni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Frábærar hugmyndir koma til þín á
færibandi um þessar mundir. Einhver sem
þú þekkir getur leitt þig til allra réttu að-
ilanna.
Landssambands kúabænda og stjórn
Bændasamtaka Íslands og jafnframt
varaformaður þeirra hvorra tveggja
samtaka. Auk ýmissa annarra starfa
í nefndum og ráðum. Núna er ég laus
frá þeim störfum öllum en er þó í
væri nóg. En heldur beit sú hugsun
mig í afturendann því ég var lengi í
sveitarstjórn Húnaþings vestra og
var þar oddviti á tímabili, varamaður
á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á
Norðurlandi vestra, var lengi í stjórn
G
uðný Helga Björnsdóttir
fæddist 21. maí 1969 á
Hvammstanga, en ólst
upp á Bessastöðum á
Heggstaðanesi í Vest-
ur-Húnavatnssýslu.
Guðný gekk í Laugarbakkaskóla,
varð stúdent frá Verzlunarskóla Ís-
lands og lauk BS-gráðu í búvísindum
frá Bændaskólanum á Hvanneyri.
Eftir námið á Hvanneyri sneri
Guðný aftur á heimaslóðirnar. „Við
Jói, maðurinn minn, keyptum bú-
reksturinn á Bessastöðum árið 1995.
Við vorum fyrst með kýr, kindur og
nokkur hross, en hættum með kind-
urnar eftir nokkur ár og tókum í
notkun nýtt lausagöngufjós árið sem
ég varð þrítug og fjölguðum kúnum.
Við erum með hrossarækt sem við
sinnum frá ræktun til sýningar, eða
Jói sér um allt það erfiða í því, ég ríð
aðallega á sparihrossunum.“ Bessa-
staðir voru valdir hrossaræktarbú
ársins 2016 hjá Hrossaræktar-
samtökum Vestur-Húnavatnssýslu.
„Við höfum verið í skógrækt í tæp
20 ár í gegnum Norðurlandsskóga,
svo var hér töluvert æðarvarp hjá
ömmu minni, mamma tók við því
þegar hún gerðist amma, en tófurnar
eru mjög öflugar í að eyðileggja
varpið svo það er orðið fremur lítið.
Fyrir fáum árum hófum við líka
ferðaþjónustu eftir að hafa gert upp
gamalt hús hér á bænum.“
Fyrst eftir að þau hjónin hófu bú-
skap starfaði Guðný í hlutastarfi sem
ráðunautur hjá Ráðunautaþjónustu
Húnaþings og Stranda. „Þangað til
félagsmálavafstrið tók yfir þann tíma
sem til var eða búinn var til.
Að telja upp þau félagsstörf sem
ég hef sinnt er nú bara til að æra
óstöðugan,“ segir Guðný aðspurð.
„En það má nefna að ég hóf feril
minn í félagsmálum á unglingsaldri á
því að vera formaður Ungmenna-
félagsins Grettis í allnokkur ár. Þeg-
ar ég var í skólanum á Hvanneyri var
einn kennarinn sem kenndi okkur
ræðulist, hann sagði okkur að við
yrðum að kunna hana þar sem við
myndum örugglega meira og minna
verða oddvitar og framámenn í fé-
lagsmálum þegar heim kæmi. Þetta
fannst mér svo fjarri lagi að það hálfa
stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðar-
ins.“
Áhugamál Guðnýjar eru mýmörg
en hún segist hafa tíma fyrir fæst
þeirra. „Þess vegna er mjög gott að
vinnan dekkar hluta þeirra því það er
mjög gaman að ríða út á góðum hest-
um og rækta landið, skila því í betra
og fallegra horfi en við tökum við því.
Ég hef mjög gaman af lestri en sofna
alltaf þegar ég sest niður til að lesa.“
Guðný notar því mikið hljóðbóka-
áskriftina Storytel. „Ég á eftir að
sökkva mér á bólakaf í sagnfræði,
veit bara ekki alveg hvenær ég finn
tíma í það. Ég er heilluð af hreinum
ilmkjarnaolíum og virkni þeirra auk
þess sem ég velti mikið fyrir mér
mætti hugans og alls sem í kringum
okkur er.“
Fjölskylda
Eiginmaður Guðnýjar er Jóhann
Birgir Magnússon, f. 19.5. 1966,
bóndi og tamningamaður. Foreldrar
hans eru Sigurlaug Ólafsdóttir, f.
11.7. 1938, matráðskona, bús. á
Guðný Helga Björnsdóttir, bóndi á Bessastöðum – 50 ára
Hestakonan Guðný og stóðhesturinn Mjölnir frá Bessastöðum uppi á Stekk í Bessastaðalandi.
Fór óvænt út í félagsmálavafstur
Fjölskyldan Við fermingu yngsta barnsins, Fríðu Rósar, árið 2017.
30 ára Stefán er
Reykvíkingur og ólst
upp í Hamrahverfinu í
Grafarvogi og býr þar.
Hann er klippari hjá
365, aðallega hjá Stöð
2 sport.
Maki: Emilíanna
Valdimarsdóttir, f. 1994, nemi í umhverf-
isskipulagi hjá Landbúnaðarháskólanum
á Hvanneyri.
Systkini: Bryndís Elfa Geirmundardóttir,
f. 1978, og Hanna Birna Geirmundar-
dóttir, f. 1983.
Foreldrar: Geirmundur Geirmundsson, f.
1955, vinnur hjá Tryggingamiðstöðinni,
og Jóna Stefánsdóttir, f. 1956, vinnur hjá
sjávarútvegsráðuneytinu. Þau eru bús. í
Grafarvogi.
Stefán Snær
Geirmundsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is