Morgunblaðið - 21.05.2019, Síða 9

Morgunblaðið - 21.05.2019, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2019 E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 1 4 5 PRÓFAÐU 100% RAFBÍL Í 24 TÍMA! RENAULT ZOE Renault ZOE – verð: 3.790.000 kr. TIL AFGREIÐSLU STRAX! Hafðu samband við sölumenn Renault og tryggðu þér 100% rafdrifinn ZOE til reynslu í 24 tíma. Renault ZOE hefur algjöra sérstöðu í þessum stærðarflokki rafbíla með 300 km uppgefið drægi.* ZOE er að auki, eins og aðrir nýir Renault bílar, með ríkulegan staðalbúnað. Taktu græna skrefið og prófaðu Reanult ZOE 100% rafbíl. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 /www.bl.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 *Uppgefið drægi miðast við WLTP staðal. Hjólreiðafólk í Reykjavík er lang- flest, eða 90%, með hjálm á höfði. Þetta er niðurstaða nýrrar könn- unar sem VÍS gerði á notkun hjálma hjá hjólreiðafólki í tengslum við verkefnið Hjólað í vinnuna, en sl. fimm ár hefur hlutfallið verið á bilinu 88% til 92%. Fjöldi hjólreiðafólks í könnun VÍS var 725 og er það talsvert meiri fjöldi en í fyrra þegar 407 hjól- reiðamenn fóru fram hjá talning- arfólki. Er það sagt í takt við fjölg- un þátttakenda á milli ára í fyrrnefndu verkefni. „Sýnileikafatnaður hefur einnig verið skráður og var rúmlega þriðj- ungur hjólreiðafólks í slíkum fatn- aði. Jákvætt er að sjá að hjólreiða- fólk hugi að sýnileika þar sem mörg hjólreiðaslys verða þegar aðrir vegfarendur sjá hjólreiðamenn ekki í tæka tíð,“ segir í tilkynningu frá VÍS. Hjálmur skiptir máli „Þrátt fyrir að höfuðhögg séu ekki algengustu áverkarnir þá sýna erlendar rannsóknir að í alvarleg- ustu slysunum verða höfuðhögg og að notkun hjálma minnki líkur á þeim um allt að 79%. En til að svo megi vera verður hjálmurinn að vera í lagi, af réttri stærð og rétt stilltur. Almennt er líftími hjálma fimm ár frá framleiðsludegi og þrjú ár frá söludegi og verður hann að sitja beint ofan á höfði, eyrun að vera í miðju v-formi bandanna og einungis einn til tveir fingur eiga að komast undir hökubandið,“ seg- ir þar ennfremur. Morgunblaðið/Hari Öryggisatriði Hjálmur eykur mjög öryggi hjólreiðamanna í umferðinni. Langflestir með hjálm á höfðinu  VÍS kannaði notkun reiðhjólahjálma Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Til stendur að gera Miðbakka við Gömlu höfnina í Reykjavík að torgi í sumar. Er þetta liður í því að endurheimta almenningssvæði sem hafa farið undir bílastæði, nú þegar bílakjallarinn undir Austurhöfn verður opnaður. Kostnaður er áætl- aður tæpar 40 milljónir króna auk virðisaukaskatts og skiptist hann til helminga milli Reykjavíkurborgar og Faxaflóahafna. Í sumar verða ýmis tímabundin verkefni sett upp á svæðinu með fjölbreyttri notkun, sem henta fjöl- skyldunni allri, að því er fram kem- ur í umsögn Hildar Gunnlaugs- dóttur, skipulagsfulltrúa Faxaflóahafna sf. Verkefnin sem ráðist verður í eiga að vera tíma- bundin og líta megi svo á að verið sé að prófa þau. Svæðið allt verður málað í áberandi litum og munstri af ungum listamönnum. Í umsögn Hildar eru þessi verk- efni talin upp:  Hjólabrettavöllur. Lengi hefur verið óskað eftir hjólabrettasvæði í miðborginni og stendur til að koma slíku svæði upp á Miðbakkanum. Svæðið verður um 700 fermetrar að stærð, fremur ílangt með römpum og kössum sem eru sérhannaðir fyr- ir hjólabrettaiðkun. Svæðið verður hannað í samráði við hjólabrettaiðk- endur og aðila sem rekur hjóla- brettaskóla í borginni.  Hjólaleikvöllur. Á hjólaleikvell- inum læra börn umferðarreglurnar á hjólum, hlaupahjólum, spark- hjólum o.fl. Börnin leika sér að því að fara meðfram stígum og læra um leið á umferðarmerkingar og að sýna tillit í umferðinni. Leikvöll- urinn verður unnin í samráði við Hjólafærni. Hjólaleiðirnar verða af- markaðar með gróðri, pöllum og málningu. Hönnun svæðisins verður sérstaklega unnin með börn í huga.  Matartorg. Matarvögnum og matarbílum verður boðin aðstaða gegn vægri leigu og á föstum tímum yfir sumarið. Bekkjum, skjólveggj- um og öðru slíku verður komið upp á matartorginu ásamt því að það verður skreytt í takt við svæðið allt. Auk þess þarf að setja upp raf- magnskassa með þriggja fasa raf- magni og afmarka stæði fyrir vagn- ana.  Körfuboltavöllur. Slíkur völlur í miðborginni hlaut kosningu í hverfakosningu hjá Reykjavík- urborg og því var búið að úthluta 2,5 milljónum með vsk. í það verk- efni. Upphæðin nægir til þess að setja upp eina körfu og undirlag. Ekki eru salerni á svæðinu í dag en með auknum straumi fólks þang- að þarf að koma upp salernum. Lagt er til að notuð verði gámasal- erni sem þarf að tengja í bæði vatn og fráveitu. Líf og leikir á Miðbakka Reykjavíkurhafnar í sumar  Bílastæði við Gömlu höfnina tekið undir leikvelli og mat- armarkað  Svæðið allt verður málað í áberandi litum Morgunblaðið/sisi Miðbakki Svæðið við Gömlu höfnina í Reykjavík hefur verið notað undir bílastæði en verður nú leiksvæði. Húsið í baksýn er Geirsgata 11.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.