Morgunblaðið - 21.05.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2019
Dýrabær Smáralind, Kringlunni, Reykjanesbæ og Akranesi | Byko Selfossi
Fiskó Garðabæ | Heimkaup | Hundaheppni | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
NÁTTÚRULEG INNIHALDSEFNI
bragðgott – hollt – næringarríkt
– fyrir dýrin þín
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Hneykslismál sem varð til þess að
varakanslari Austurríkis og formað-
ur Frelsisflokksins neyddist til að
segja af sér er álitið nokkurt áfall
fyrir þjóðernisflokka sem spáð er
mikilli fylgisaukningu í kosningum
til Evrópuþingsins síðar í vikunni.
Hneykslismálið hefur beint athygl-
inni að tengslum sumra þjóðernis-
flokkanna við stjórnvöld í Rússlandi.
Sebastian Kurz, kanslari Austur-
ríkis og formaður Austurríska
þjóðarflokksins (ÖVP), ákvað að
boða til þingkosninga eftir að vara-
kanslarinn Heinz-Christian Strache
sagði af sér. Fjölmiðlar höfðu birt
myndskeið þar sem Strache ræddi
við konu sem þóttist vera frænka
rússnesks auðkýfings. Hermt er að
myndskeiðið hafi verið tekið upp á
laun á spænsku eyjunni Ibiza í júlí
2017. Konan sagðist vera að leita að
fjárfestingartækifærum í Austurríki
og bauðst til að kaupa helmings hlut
í dagblaðinu Kronen Zeitung til að
breyta ritstjórnarstefnu þess og sjá
til þess að það styddi Frelsisflokk-
inn. Strache sagði að ef hún gerði
þetta myndi hann sjá til þess að
fyrirtæki hennar fengi samninga um
opinberar framkvæmdir. Hann
kvaðst vilja breyta „fjölmiðlalands-
laginu“ í Austurríki og fara að dæmi
Viktors Orbáns, forsætisráðherra
Ungverjalands, sem hefur hert tök
stjórnarflokksins á ungverskum fjöl-
miðlum til að koma í veg fyrir gagn-
rýni á ráðamenn landsins.
Strache kvaðst telja að fylgi
Frelsisflokksins gæti orðið allt að
34% með stuðningi Kronen Zeitung
ef Rússar keyptu blaðið og hann
lagði til við konuna að hún stofnaði
byggingarfyrirtæki sem fengi alla
verktökusamninga sem stærsta
byggingafyrirtæki Austurríkis hefði
nú við ríkisstofnanir landsins. Hann
nefndi einnig nokkra blaðamenn,
sem hann vildi að létu af störfum
fyrir Kronen Zeitung, og fimm aðra
sem yrðu ráðnir í þeirra stað.
Myndskeiðið varð til þess að
Strache sagði af sér sem varakansl-
ari og formaður Frelsisflokksins.
„Þetta var dæmigerð karlmennsku-
hegðun undir áhrifum áfengis og ég
vildi ganga í augun á þessari þokka-
fullu konu sem var gestgjafi minn,“
sagði hann. „Ég hegðaði mér eins og
unglingur.“
Hneykslismálið varð ennfremur
til að Herbert Kickl, innanrík-
isráðherra, var rekinn úr rík-
isstjórninni, sem aftur leiddi til þess
að aðrir ráðherrar Frelsisflokksins
sögðu af sér embættum sínum í gær,
en þeir fóru með varnarmál, utanrík-
ismál, samgöngumál og félagsmál.
Sagði Kurz að sérfræðingar eða
háttsettir opinberir starfsmenn yrðu
skipaðir eftirmenn þeirra fram að
þingkosningunum, en líklegt er talið
að þær verði haldnar í september.
Reyna að sameina krafta sína
Nokkrir fyrrverandi foringjar í
SS-sveitum nasista stofnuðu
Frelsisflokkinn eftir síðari heims-
styrjöldina og hann hefur verið á
meðal öflugustu þjóðernisflokkanna
í Evrópu. Strache hafði ætlað að
taka þátt í fundahöldum nýs banda-
lags evrópskra þjóðernisflokka,
Evrópu þjóðanna, í Mílanó um
helgina í boði Matteos Salvinis, að-
stoðarforsætis- og innanríkis-
ráðherra Ítalíu og leiðtoga hægri-
flokksins Bandalagsins, sem hefur
reynt að sameina krafta evrópsku
þjóðernisflokkanna fyrir kosning-
arnar til Evrópuþingsins. Á meðal
annarra í bandalaginu eru flokkur
franska þjóðernissinnans Marine Le
Pen og Annar kostur fyrir Þýska-
land, AfD.
Hneykslismál Strache skyggði á
fundahöld þjóðernisbandalagsins og
beindi sjónum fjölmiðla að tengslum
sumra flokkanna við stjórnvöld í
Rússlandi. Til að mynda hefur verið
skýrt frá því að flokkur Le Pen hef-
ur fengið lán hjá rússneskum banka
og hefur sætt rannsókn franskra
yfirvalda vegna ásakana um að
flokkurinn hafi misnotað opinbert fé.
Le Pen hefur sagt að flokkurinn hafi
ekki getað fengið lán hjá frönskum
bönkum. Flokkur Salvinis gæti orðið
gjaldþrota vegna hárrar fésektar,
sem hann var dæmdur til að greiða
vegna fjársvika hans á árunum 2008
til 2010, og ferðir Salvinis til Moskvu
hafa verið gagnrýndar í fjölmiðlum á
Ítalíu. Ráðherrann segist hafa farið
til Moskvu vegna þess að hann telji
refsiaðgerðir Evrópuríkja gegn
Rússlandi vera „brjálæði“. Yfirvöld í
Þýskalandi eru að rannsaka fjármál
AfD og forystumenn í flokknum hafa
verið gagnrýndir fyrir að ferðast til
svæða sem Rússar hafa hernumið í
Úkraínu. Nokkrir þeirra sögðust
hafa farið þangað til að fylgjast með
kosningum en aðrir sögðust hafa
verið þar í einkaerindum.
Aðrir þjóðernisflokkar, m.a. í
Skandinavíu, Póllandi og Eystra-
saltslöndum, hafa hins vegar hafnað
samstarfi við rússnesk stjórnvöld.
„Stjórnmálamenn til sölu“
Forystumenn margra þjóðernis-
flokkanna, sem hafa einnig verið
kenndir við „lýðhyggju“, hafa lýst
sér sem verjendum kristninnar og
talsmönnum fólksins í baráttu við
spillta yfirstétt. Hugsanlegt er að
hneykslismál Strache grafi undan
slíkum málflutningi. Enn hafa þó
ekki komið fram neinar vísbend-
ingar um að hneykslismálið hafi
veruleg áhrif á fylgi þjóðernisflokk-
anna, að sögn stjórnmálaskýranda
fréttaveitunnar AFP.
Hneykslismálið gefur þó að
minnsta kosti andstæðingum þjóð-
ernisflokkanna færi á að gagnrýna
tengsl þeirra við Rússa og saka þá
um tvískinnung. „Fyrir nokkrum
mánuðum var Marine Le Pen með
lofsöng um Heinz-Christian
Strache,“ sagði Bruno Le Maire,
efnahagsráðherra Frakklands.
„Hann hefur nú neyðst til að segja
af sér og við vitum hvers vegna:
hann var staðinn að því að reyna að
selja erlendum öflum þjónustu sína.
Á bak við þjóðernishreyfingu hans
er undirgefni við erlend öfl.“
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, tók í sama streng og varaði
við stuðningi við „stjórnmálamenn
sem eru til sölu“. „Evrópuríki
standa nú frammi fyrir lýðhyggju-
hreyfingum sem fyrirlíta evrópsk
gildi á mörgum sviðum og eru stað-
ráðnar í því að uppræta þau,“ sagði
hún.
Beinir sjónum að Rússatengslum
Hneykslismál í Austurríki beinir athygli að tengslum sumra þjóðernisflokka í Evrópu við stjórn-
völd í Rússlandi Þjóðernisflokkunum spáð mikilli fylgisaukningu í kosningum til Evrópuþingsins
AFP
Sagði af sér Heinz-Christian Strache, varakanslari og formaður Frelsis-
flokksins, á blaðamannafundi í Vín þegar hann tilkynnti afsögn sína.
AFP
Boðað til kosninga Alexander Van der Bellen, forseti Austurríkis (t.v.), og
Sebastian Kurz kanslari á blaðamannafundi eftir að ríkisstjórn landsins féll.
Saksóknarar í Svíþjóð lögðu í gær
fram formlega beiðni um handtöku-
tilskipun á hendur Julian Assange,
stofnanda uppljóstrunarvefjarins
WikiLeaks, vegna rannsóknar á
ásökun um að hann hefði gerst sekur
um nauðgun. Assange afplánar nú 50
vikna fangelsisdóm í Bretlandi fyrir
að hafa óhlýðnast fyrirmælum
bresks dómstóls þegar hann leitaði
hælis í sendiráði Ekvadors árið 2012
til að komast hjá því að verða fram-
seldur til Svíþjóðar.
Eva-Marie Persson, vararíkissak-
sóknari Svíþjóðar, lagði beiðnina
fram við dómstól í Uppsölum í gær
og verði hún samþykkt verður óskað
eftir því að bresk yfirvöld framselji
Assange til Svíþjóðar.
Sænskir saksóknarar höfðu áður
ákveðið að hefja rannsókn að nýju á
máli konu sem kærði Assange fyrir
nauðgun árið 2010 eftir að hafa hitt
hann á ráðstefnu WikiLeaks í Stokk-
hólmi. Assange hefur alltaf neitað
sök.
AFP
Umdeildur fangi Breskir lögreglumenn á verði við sendiráð Ekvadors
í Lundúnum þar sem Julian Assange var handtekinn 11. apríl.
Óska eftir hand-
töku Assange
Framsalsbeiðni undirbúin í Svíþjóð