Morgunblaðið - 21.05.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 21.05.2019, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2019 ✝ Ingibjörg Þor-bergsdóttir fæddist í Reykja- vík 25. október 1927. Hún lést á Hrafnistu í Reykjanesbæ 6. maí 2019. For- eldrar hennar voru hjónin Krist- jana Sigur- bergsdóttir hús- móðir og Þorbergur Skúlason, skó- smíðameistari í Reykjavík. Bróðir Ingibjargar er Skúli Ólafur Þorbergsson, fæddur 3. apríl 1930, kvæntur Guðrúnu Stefaníu Björnsdóttur. Ingibjörg giftist 12. ágúst 1976 Guðmundi Jónssyni pí- anóleikara, f. 13. nóvember 1929, d. 11. nóvember 2010. Börn Guðmundar af fyrra hjónabandi eru Auður Eir, Guðmundur Kristinn, Helga Kristín og Þórdís. Barnabörn eru 11 og barnabarnabörn eru 12. Ingibjörg lauk prófum frá meðal annars að stýra þætt- inum Óskalög sjúklinga, að- stoðarþulur, stjórn barnatíma, umsjón með viðtals- og tónlist- arþáttum ásamt annarri dag- skrárgerð. Ingibjörg var varadagskrárstjóri og dag- skrárstjóri RÚV 1981 til 1985. Auk starfa sinna fyrir RÚV var Ingibjörg stundakennari við m.a. Miðbæjar- og Breiða- gerðisskóla frá 1957 til 1958. Ingibjörg starfaði einnig við blaðamennsku og sá m.a. um tónlistargagnrýni fyrir Tím- ann og Vísi ásamt því að skrifa fyrir barnablaðið Æsk- una. Ingibjörg samdi sönglög, dægurlög og barnalög, m.a. fyrir Þjóðleikhúsið og til grunnskólakennslu á Norð- urlöndum, söng inn á fjölda hljómplatna og samdi sjö leik- rit fyrir börn og unglinga sem flutt voru í útvarpi hér á landi og í Svíþjóð. Ingibjörg hlaut heið- ursverðlaun Íslensku tónlist- arverðlaunanna árið 2003, var kjörin heiðursfélagi FTT 1996 og var sæmd riddarakrossi ár- ið 2008 fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar. Útför Ingibjargar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 21. maí 2019, klukkan 13. Tónlistarskóla Reykjavíkur með klarínettuleik sem aðalgrein árið 1952 en stundaði þar jafnframt nám í hljómfræði, pí- anóleik og tónlist- arsögu. Hún lauk tónmenntakenn- araprófi frá KÍ ár- ið 1957 og fór í kynnisferð til Bandaríkjanna í boði George Washington-háskólans árið 1956 og söng þá m.a. með stórhljómsveitum. Hún dvaldi við nám við Dante Alighieri- skólann í Róm árið 1962 og sótti ýmis tónlistar- og tungu- málanámskeið á vegum inn- lendra og erlendra aðila. Ingibjörg hóf störf hjá RÚV árið 1946 og starfaði þar allt til ársins 1985 við hin ýmsu störf. Fyrsta starf hennar var á innheimtudeild en svo gerð- ist hún dagskrárgerðarmaður í tónlistardeildinni á árinu 1949. Verkefni hennar voru Elsku Imma frænka. Við þökkum fyrir allar þær ljúfu minningar sem við áttum með ykkur Guðmundi í Löngu- brekku og á Vatnsnesveginum. Við upplifðum alltaf mikla væntumþykju og vorum ávallt leystar út með hrósum og fulla maga. Það voru forréttindi að eiga þig að, allt okkar líf fram til þessa. Hugsunin um ykkur Guðmund sameinuð á ný er okkur ljúfsár. Þú gafst okkur margt sem við erum þakklátar fyrir. Eitt af því var sá heiður að þú til- einkaðir okkur lög eftir þig. Það er okkur afar dýrmætt. Nú kveðjum við þig í hinsta sinn með erindi úr þínu eigin ljóði. Sólskinsdís Sofðu litla sólskinsdís sofðu vært og rótt. Góðir englar gæti þín og gefi blíða nótt. Jana Birta Björnsdóttir, Vala Rún Björnsdóttir. „Hann Ari er lítill, hann er átta ára „trítill“ með augu mjög falleg og skær.“ Imma frænka var einstök kona. „Hin íslenska kona“ kemur upp í hugann, þessi viljasterki, sjálfstæði og hvetjandi einstak- lingur sem var svo stoltur af sínu fólki. Tónlistin og fjölskyldan var henni dýrmætast. Löngu fyrir fermingu var hennar lífshlaup ráðið; að semja lög og syngja opinberlega. Þegar hún var 25 ára útskrif- aðist hún fyrst kvenna með ein- leikarapróf á blásturshljóðfæri en hún var brautryðjandi á fleiri sviðum. Söng eigin lög á hljómplötur, stýrði útvarpsþáttum, tók þátt í útgáfu á efni fyrir börn og margir lærðu gítargripin í Æskunni eftir leiðbeiningum Immu. Ingibjörg Þorbergs hefur alla tíð verið dáð af þjóðinni enda hugljúf og inni- leg í öllu fasi. Hún hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til tónlistar. Börnin í fjölskyldunni og börn vina hennar voru hennar börn. Imma var einstaklega hvetjandi og ætíð með jákvæð og uppbyggj- andi ummæli um alla sem hún umgengst. Ekki man ég eftir að Imma frænka hallmælti nokkr- um manni. Minningar okkar um Immu frænku eru margar. Fyrir mig, Skúla Begga eins og hún kallaði mig, eru ógleymanlegar heim- sóknir sem barn á Óðinsgötuna og Kaplaskjólsveginn og að fá að gista hjá Immu og Ömmu Krist- jönu, þar opnaðist nýr heimur. Heimsóknir á RÚV og í Þjóðleik- húsið þar sem hún og pabbi sungu í Þjóðleikhúskórnum. Spila bítlaplöturnar hennar og passa páfagaukinn. Jóladagur var alltaf sérstakur, Þá kom Imma frænka í heimsókn til Keflavíkur og börnin okkar fengu að njóta hverrar stundar, enda Imma einstaklega gjafmild. Börnunum mín þremur tileinkaði hún hverju fyrir sig lag sem mun lifa með þeim um ókomna tíð og halda í heiðri minninguna um alla eilífð. Blessuð sé minning Immu frænku, þessarar sjálfstæðu ís- lensku konu. Skúli Þorbergur, Inga Lóa, María Rós, Berglind og Guðmundur Ingi. Það eru nú ekki allir sem fá bónusömmu í sængurgjöf. Við fengum svo sannarlega bón- usömmu með stóru B-i. Við héld- um reyndar á yngri árum að Imma væri nafnið yfir svona bón- usömmur. En það er bara ein Imma og það er hún Ingibjörg Þorbergs. Við kynntumst Immu ekki sem tónlistarkonunni Ingi- björgu Þorbergs heldur Immu sem konunni hans afa. Hún var kletturinn hans þegar hann veiktist skyndilega og setti hún tónlistina í annað sæti um tíma. En tónlistin var ekki langt undan því að stóri svarti flygillinn í stof- unni var notaður óspart til laga- smíða. Borðstofuborðið var alltaf drekkhlaðið veitingum þegar við kíktum í heimsókn í Löngubrekk- una og alltaf var tekið vel á móti manni. Það var mjög gaman að fylgjast með henni að störfum í eldhúsinu. Hún var aldrei að flækja hlutina. Henni tókst að út- búa þvílíkar kræsingar úr hinum ýmsum krukkum. Hafið þið ekki prófað pylsur í súrsætri sósu? Al- veg lúmskt gott. Bragðbætt keypt majónessalöt voru hennar meistaraverk. Svo var aldrei nóg af osti á Dominos-pizzum fyrir hennar smekk. Uppáhaldsmatur- inn hennar var hamborgari, ekki einhver venjulegur hamborgari heldur hamborgari með kjöti, osti, sósu og minnsta kálblaði í heimi. Kálblaðið var bara til að friða samviskuna en ekki fyrir bragðið. Imma var einstaklega úrræðagóð og hikaði ekki við að framkvæma hlutina. Gott dæmi um það þegar Immu tókst að láta afa hætta að reykja. Hún eyddi sömu upphæð í kaup á kristals- hlutum eins og hann eyddi í kaup á sígarettum. Einn daginn sat afi í stofunni í Löngubrekku og horfði í kringum sig. Stofan glitr- aði af kristölum í hinum ýmsum formum og litum. Afa fannst nóg komið af þessu glingri og lagði pakkann á hilluna. Imma fylgdist vel með sínu fólki. Hún fagnaði sigrum og afrekum með þeim og sparaði ekki hrósið þegar henni fannst hlutirnir vera gerðir vel. Þegar afi var á lífi þá var hverju langafabarni fagnað með góðri steik og rauðvínsglasi. Immu fannst mjög skemmtilegt að bjóða okkur systrunum og mömmu í Manhattanveislu heima hjá sér. Þá var öllu tjaldað til. Spariglösin sótt, ostabakki settur á borðið og varalitur á varirnar. Manhattan var blandaður þar sem afi hafði einhvern tímann boðið Immu upp á Manhattan. Okkar Manhattan var nú ekki al- veg eftir uppskriftinni þar sem einungis var notað dass af viskíi og svo var hrært í drykknum með kokkteilberjum á stilkum, oft fleiri en einu. Það var á þessum kvöldum sem við kynntumst henni sem tónlistarmanninum Ingibjörgu Þorbergs. Hún fór að rifja upp gömlu góðu dagana í tónlistinni. Skemmtilegast var að heyra frá því þegar heimsfrægðin bankaði upp á hjá henni einn dag- inn í New York. Hún þurfti sko að afþakka heimfrægðina því að hún þurfti nú að mæta í vinnuna á RÚV. Við vitum fyrir víst að Guð- mundur afi tók vel á móti Immu sinni á þeim stað sem nýtt æv- intýri hefst. Við kveðjum í dag Immu okkar með hugann fullan af þakklæti. Hulda Katrín, Þórhildur og Guðrún Björk. Við systurnar eignuðumst dýr- mætan vin í frænku okkar henni Immu. Hún hvatti okkur áfram til að vera duglegar að læra og fylgdist vel með. Það er ógleym- anlegt hve vel hún tók á móti okk- ur með fögrum söng, brauði og kökum allt af bestu gerð. Ekki gleymdi hún afmælisdögum okk- ar og gerði sér ferð í bæinn með fagra gripi og ávallt fylgdi góð- gæti með. Kærleikur hennar ylj- ar okkur hvort sem hún er nálæg eður ei, þannig var hún. Þökkum skaparanum fyrir að hafa deilt henni með okkur og sendum fjölskyldu hennar og vin- um samúðarkveðju. Yrsa og Ösp Ásgeirsdætur. Heimsborgarinn hún Ingi- björg Þorbergs lést mánudaginn 6. maí á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Reykjanesbæ. Imma, eins og hún var kölluð, var fjöl- skylduvinur okkar. Guðmundur Jónsson, píanóleikari og kennari til margra ára, var eiginmaður Immu og hann kenndi börnum okkar hjóna í Tónlistarskóla Kópavogs, það var nóg til þess að hún Imma var okkar og við henn- ar. Móðir Immu bar oft á góma, þar sem Imma var greinilega mjög elskuð af henni og það var gagnkvæmt. Einn bróður á Imma, hann Skúla Ólaf. Vænt- umþykjan var mikil þeirra í mill- um og samgangur mikill. Ella, tengdadóttir Skúla, og Viggi son- ur Skúla (maður Ellu) reyndust þeim hjónum einstaklega vel þeg- ar heilsa og þrek fór að gefa sig. Guðmundur lést á hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 2010. Imma ræddi oft við okkur mæðgur að hún þyrfti endilega að koma lögunum sínum í bók. Það var verið að syngja lögin hennar og þá vantaði nótur. Jenný Ruth dóttir okkar tók sig til og aðstoðaði Immu við að finna til og raða upp einum 100 lögum og gerði drög að kápu á bókina, þannig var auðveldara að óska eftir styrk við gerð bókarinnar. Kópavogsbær, eða bæjarstjórinn þáverandi, Sigurður Geirdal, tók vel í ósk Immu og fékk Þórunni Björnsdóttir, tónmenntakennara og kórstjóra í Kársnesskóla Kópavogs, til að vinna verkið með og fyrir Immu. Imma sagði að hún hefði ekki getað fengið betri manneskju en Tótu til að full- vinna bókina. „Hún er svo ynd- isleg hún Tóta.“ Kópavogsbær heiðraði Immu á sjötugsafmæli hennar með útgáfu á söngvasafni með rúmlega 100 lögum. Þetta varð auðvitað til þess að lögin lifa um aldur og ævi og ekki síður eru lögin aðgengileg. Guðmundur maður Immu átti fjögur börn með fyrri konu sinni sem eru í aldursröð Auður Eir, Guðmundur Kristinn, Helga Kristín og Þórdís. Helga Kristín og dætur hennar sinntu Immu og Guðmundi einstaklega vel. Ekki get ég látið þess ógetið að Immu var einstaklega hlýtt til „strákanna sinna“ eins og hún nefndi þá alltaf. Strákarnir voru félagar hennar í FTT, Félagi tón- skálda og textahöfunda, sem var stofnað formlega 1981. Maggi Kjartans og Kristján Skerja- fjarðarskáld voru ólatir að hringja og ýta á Immu að koma á fundi eða viðburði á vegum FTT. Ef það voru einhverjar vöflur á minni þá bara sóttu þeir hana, Immu þótti mjög vænt um „strákana sína“. Imma sótti um í Tónskáldafélag Íslands á sínum tíma, sem starfar á vettvangi klassískrar tónlistar, en fékk höfnun. Það stóð alltaf svolítið í henni en hún sagði líka að það væri allt í lagi því að það væri svo gaman með strákunum. Hvort það var vegna þess að Imma var kona eða þess að hún samdi líka dægurlög skal ósagt látið. Það er yndislegt að upplifa hvað Imma er elskuð og dáð af „yngri“ tónlistarmönnum og hvað kórar syngja mikið lögin hennar. Blessuð sé minning Ingibjarg- ar Þorbergs. Elín Ágústsdóttir. Elsku Imma! Þökkum þér fyr- ir dýrmæta samveru sem var okkur bæði kær og lærdómsrík. Þú varst ætíð þakklát og glöð í samskiptum okkar, fyrir það er- um við rík af ómetanlegum minn- ingum. Þá fylltu okkur miklu stolti þær viðurkenningar og heiður sem þér var sýndur fyrir sköpunargáfu þína. Forréttindi okkar voru að upplifa það marg- oft í návist þinni. Orðspor þitt mun lifa með okkur sem öðrum um ókomna tíð í textum og tón- um. Hamingja Við ferðumst frjáls um eigið land, um fjörur, hlíðar, hraun og sand. Já auðlind marga eigum við, sem allir verða að sýna grið. Og lýðveldið ég lofa vil, sú lofgerð aldrei hljóðna má. Mitt fagra land, ég fagna og skil, að frelsið dýrmætast ég á. Sú hugsun kveikir hamingju í hjarta mér. (Ingibjörg Þorbergs) Björn Víkingur og Elín. Minning Ingibjargar Þor- bergs, eða hennar Immu okkar, verður ávallt böðuð sólskini. Þessi fallega og yndislega kona kunni þá list að gefa af öllu hjarta. Hún og mamma okkar, Helga Óskarsdóttir, voru bestu vin- konur. Þær kynntust fyrir tæp- um 70 árum þegar móðurafi okkar, Óskar Gissurarson, vann á vegum Hitaveitu Reykjavíkur á heimili Immu á Óðinsgötunni. Afi skynjaði að Imma og Ingibjörg amma okkar myndu tengjast í tónlistinni. Hann bauð Immu og Kristjönu mömmu hennar því í kaffi til ömmu okkar á Lokastíg 23 í Reykjavík. Og þar var mamma. Imma sagði okkur að amma Ingi- björg hefði verið sú fyrsta sem elskaði yndislega jólalagið henn- ar, Hin fyrstu jól. Amma var hug- fangin af fegurð þessa lags og spilaði það aftur og aftur. Mamma okkar og Imma bund- ust djúpum vináttuböndum sem entust út ævina. Þær kunnu þá list að tala af einlægni og svo fal- lega hvor við aðra. Á sunnudög- um komu Imma og Kristjana í kaffi, og gjarnan hlaðnar gjöfum. Í minningunni var alltaf sól þegar Immu bar að garði. Imma elskaði börn vinkonu sinnar og sú ást var gagnkvæm. Það var auðvelt. Hún var ein sú hlýjasta og besta manneskja sem við höfum kynnst. Kunni þá list að hrósa og byggja upp ungt fólk betur en flestir. Jákvæð og góð og við skynjuðum hversu foreldr- um okkar þótti vænt um þessa dásamlegu konu. Svo bauð Imma okkur á jólaböll Útvarpsins. Tók við okkur viðtöl þar og í barna- blaðið Æskuna. Við fundum sterkt að hér var á ferðinni næm- ur listamaður en einnig frum- kvöðull og heimskona með risa- stórt og hlýtt hjarta. Þegar Imma var á miðjum aldri mætti síðan hamingjan sjálf inn í líf hennar. Guðmundur Jónsson píanóleikari var stóra ástin í lífi Immu. Og vandfundið fólk sem var jafn innilega ham- ingjusamt og þau. Konungleg voru matarboðin í Löngubrekk- unni í Kópavogi. Þar kynntumst við frönskum mat og lærðum meðal annars að borða snigla. Og falleg var tónlistin þeirra. Eftir hamingjusamt hjóna- band voru veikindi og fráfall Guð- mundar Immu þungbær. En nú eru þau aftur saman. Undir það seinasta var Imma orðin þreytt og södd lífdaga. Hún naut frábærrar umönnunar síns góða fólks í Keflavík. Imma, þessi stóra, góða mann- eskja sem kunni þá list að gefa mörgum – list hennar mun lifa með þjóðinni um ókomna tíð. Við þökkum Immu allt hið góða sem hún gaf okkur. Sendum bróður hennar, hans fólki og börnum Guðmundar, okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Hvíl í friði, elsku Imma okkar. Minning þín verður ávallt böð- uð sólskini. Alfreð, Ingibjörg Ósk, Eiríkur og Ferdinand. Mér er þakklæti efst í huga fyrir að hafa fengið að kynnast þeirri hæfileikaríku og hjarta- hlýju konu sem Imma var. Ég kynntist henni í gegnum píanó- kennara minn, Guðmund Jóns- son, sem var stóra ástin í lífi Immu. Ég hreinlega laðaðist að góð- mennsku hennar þegar hún opn- aði heimili þeirra hjóna fyrir mér með gleði og ilmandi kökubakstri fyrir jólin. Og tíminn leið hratt við að hlusta á hana segja skemmtilegar sögur úr útvarpinu frá því hún starfaði þar. Þá skynj- aði ég strax að hún var mikil bar- áttukona fyrir kvenréttindum, en hún fór sjálf ekki varhluta af þeim mismun. Hún gat t.d. ekki orða bundist þegar Sinfóníu- hljómsveit Íslands flutti eitt sinn einungis verk eftir karlmann á sjálfan kvenréttindadaginn 19. júní. Imma var stálminnug og nýttu samstarfsmenn hennar sér það óspart. Það var mun fljótlegra að fletta bara upp í Immu þegar þurfti að finna tiltekið lag til flutnings í útvarpinu, í stað þess að fara í skjalaskrána, því hún mundi númer æði margra laga í því safni. Imma hafði líka gaman af að heyra fréttir af mínu fólki og mundi auðvitað allt um alla á milli heimsókna og sýndi alltaf inni- lega hluttekningu á öllu sem við vorum að fást við. Hrós sparaði hún aldrei og var gjafmildin ein- stök. Ingibjörg Þorbergs Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GRÉTAR KARLSSON húsasmíðameistari, lést á heimili sínu mánudaginn 6. maí. Útförin fer fram frá Garðakirkju í dag, þriðjudaginn 21. maí, klukkan 13.00. María Grétarsdóttir Jafet Egill Gunnarsson Hrund Grétarsdóttir Kristinn Á. Kristinsson Hrannar, Ásdís Eir, Aron Grétar, Ísak Örn, Tómas Elí, Elísabet Júlía og Kári Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ARNÓR PÁLL KRISTJÁNSSON, bóndi á Eiði í Eyrarsveit, sem lést á Landspítalanum 11. maí, verður jarðsunginn frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 25. maí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Fellaskjól í Grundarfirði. Auður Jónasdóttir Elísa Anna Friðjónsdóttir Hermann Jóhannesson Óskar Arnórsson Rannveig Þórisdóttir Sveinn Arnórsson Guðrún Lilja Arnórsdóttir Bjarni Sigurbjörnsson Kári Arnórsson Ólöf Ragnhildur Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.