Morgunblaðið - 21.05.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2019
Raðauglýsingar
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bókhald
NP Þjónusta
Annast liðveislu við bókhaldslausnir
o.þ.h..
Hafið samband í síma 831-8682.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122. Ýmislegt
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 - Opin vinnustofan kl. 9-12.30. Gönguhópur kl. 10.15.
Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 13. Vatnslitun kl. 13. -Bíó í
miðrými kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16.
Bridge kl. 12.30. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handa-
vinnuhópur kl. 12-16. MS-fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir
innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala
kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535 2700.
Boðinn Boccia kl. 10.30. Fuglatálgun kl. 13. Bridge og Kanasta kl. 13.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl.13.30.
Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna og
Arnhildar organista. Þetta er loka samvera á þessu vori og við
höldum grillpartý með gleði og söng. Verið velkomin í gott samfélag.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8.50. Thai Chi kl. 9-10. Leikfimi kl. 10-10.45. Spekingar og
sprellarar kl. 10.45-11.45. Listasmiðja opin kl. 9-12. Hádegismatur kl.
11.30. Kríurnar kl. 13. Bridge kl. 13-16. Enskunámskeið kl. 13-15.
Gáfumannakaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari
upplýsingar í síma 411 2790.
Furugerði 1 Opin fjöliðja með leiðbeinanda frá 10-16. Leikfimi kl 11,
hádegismatur kl. 11.30-12.30, Ganga kl 13, Boccia kl. 14, Kaffisala kl.
14.30-15.30 Samsöngur kl. 15.
Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. 7.30/15. Karlaleikf. Ásg. kl. 12. Gönguhópur
fer frá Jónshúsi kl. 10. Qi Gong, Sjál. kl. 9. Boccia. Ásg. kl. 12.45.
Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Línudans í Kirkjuhvoli kl.
13.30/14.30.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik
málun kl. 9-12. Glervinnustofa m/leiðb. kl. 13-16. Leikfimi gönguhóps
kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9, handavinna, kl. 13 handavinna, kl. 13 Hreyfi- og
jafnvægisæfingar, kl. 13.30 Alkort, kl. 14 Hreyfi- og jafnvægisæfingar.
Grensáskirkja Kyrrðar- og bænastund kl. 12. Verið velkomin!
Gullsmári Myndlistarhópur kl. 9. Boccia kl. 9.30. Málm/Silfursmiði
/Canasta kl. 13.
Hraunsel Kl. 9 dansleikfimi, kl 10 Qi-gong, kl. 13 Bridge Sólvangs-
vegur 1 kl. 9 handmennt, Hjallabraut 33 kl. 13 Fjölstofan.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45
og hádegismatur kl. 11.30. Bridge í handavinnustofu kl. 13 og eftir-
miðdagskaffi kl. 14.30.
Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45, Lesið upp úr blöðum kl.
10.15, upplestur kl. 11-11.30, tréútskurður kl. 9-12. Opin listasmiðja án
leiðbeinanda kl. 9-12, hádegisverður kl. 11.30-12.30, opin listasmiðja
kl. 13-16, kaffihúsaferð kl. 14.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Sameiginleg ferð
félagsstarfsins og kirkjunnar um Hvalfjarðarsveit og nágrenni í dag.
Farið frá Skólabraut kl. 8.30. Kaffispjall í króknum kl.10.30. Bridge í
Eiðismýri kl.13.30. Þeir sem vilja pútta í dag mæta á svæðið við
golfskálann kl.13.30. Karlakaffi í sfnaðarheimili kirkjunnar kl. 14. Ath.
nk. fimmtudag verður félagsvist í salnum á Skólabraut kl.13.30.
Munið lokakvöldið með ungmennráði í salnum á Skólabraut kl. 20 á
morgun
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur
kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl.
14.30–15. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568 2586.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Skák kl. 13. Allir velkomnir.
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝ Björgvin Sigur-björnsson
fæddist í Hænuvík í
Rauðasandshreppi
7. júlí 1928. Hann
lést á Hjúkrunar-
og dvalarheimilinu
Barmahlíð Reyk-
hólum 16. maí 2019.
Björgvin var eitt
af tíu börnum
hjónanna Ólafíu
Magnúsdóttur, f.
1890, d. 1972, og Sigurbjörns
Guðjónssonar, f. 1891, d. 1971.
Systkini Björgvins voru Aðal-
heiður Una, f. 1915, d. 2006,
Bjarni, f. 1916, d. 1990, Sigur-
björg (Ninna), f. 1919, d. 1998,
Búi, f. 1920, d. 1937, Ester, f.
1923, d. 1974, Gyða, f. 1924, d.
1937, Hulda, f. 1926, d. 1937,
Agnar, f. 1928, d. 2008, og Ásta,
f. 1932, d. 1938.
Björgvin giftist 17. nóvember
1951 Guðrúnu Torfadóttur. For-
eldrar hennar voru Torfi Ólafs-
son og Elísabet Guðjónsdóttir.
Sonur Björgvins og
Guðrúnar er Sigur-
björn en fyrir átti
Guðrún þrjá syni;
Ingimar, Halldór og
Örn.
Björgvin og Guð-
rún tóku við búi í
Norðurbotni og
bjuggu þar til 1966
er þau fluttu út í
þorpið. Björgvin
lauk barnaskóla
Rauðasands 1942. Tók mótorvél-
stjórapróf í Reykjavík 1946.
Hann var vélstjóri á hinum ýmsu
bátum fyrir vestan. Hann var
verkstjóri í Hraðfrystihúsi
Tálknafjarðar 1967-1974, oddviti
Tálknafjarðarhrepps 1974-1982.
Hann söng í kirkjukórnum til
fjölda ára og tók virkan þátt í
uppbyggingu félagsmiðstöðvar-
innar og við byggingu kirkj-
unnar á Tálknafirði.
Útför Björgvins fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 21. maí
2019, klukkan 13.
Guð sá að þú varst þreyttur
og þrótt var ekki að fá,
því setti hann þig í faðm sér og sagði:
Dvel mér hjá;
Hamþrungin við horfðum
þig hverfa á annan stað,
hve heitt sem við þér unnum
ei hindrað gátum það.
Hjartað úr gulli hannað,
hætt var nú að slá
og vinnulúnar hendur
verki horfnar frá.
Guð sundur hjörtu kremur
því sanna okkur vill hann
til sín hann aðeins nemur
sinn allra besta mann.
(Frances og Kathleen Coelho)
Ásthildur Theodórsdóttir.
Elsku hjartans afi minn, það
tók á að ljúka síðasta faðmlaginu
á sunnudaginn, vitandi það að
þetta væri okkar síðasta faðmlag,
það var samt svo gott að fá tæki-
færi til að kveðja þig og þakka
þér fyrir okkar fallega vinasam-
band. Ég hef alla tíð litið upp til
þín því þú kunnir margt, varst
svo skynsamur og eldklár að
reikna í huganum langt fram eftir
aldri.
Þú dekraðir mig úr hófi fram í
æsku og lengur en það en það er
allt í lagi, það gerði mér ekkert
illt.
Þegar ég segi börnunum mín-
um frá þér segi ég þeim alltaf frá
aðfangadagskvöldunum þegar ég
fékk að fara til ykkar ömmu í
gistingu eftir kvöldkaffið hjá
mömmu og pabba, og þú last fyrir
mig heila bók, takk fyrir allan
tímann sem þú gafst mér í það.
Þegar ég varð 18 ára keyptum við
Benni Túngötu 27, þá var nú ekki
slæmt að eiga þig að, alltaf boð-
inn og búinn að koma og hjálpa til
við að laga eitthvað. Það var líka
gaman hjá okkur að smíða kofann
fyrir strákana og setja upp að-
stöðuna fyrir föndursmiðjuna
sem stóð nú stutt í rekstri, en
alltaf studdir þú við bakið á mér.
Það var bæði góð hugmynd að
byrja á þessu, og einnig sú
ákvörðun mín að hætta. Einnig
finnst mér það mjög dýrmætt að
hafa fengið að starfa með þér um
stund við að fella net fyrir Út-
naust.
Fyrir fimm árum varð mér það
ljóst að minni þitt væri farið að
stríða þér allverulega, og það var
erfitt að horfa á þig svona illa átt-
aðan í Sunnukoti og þú þurftir að
spyrja mig aftur og aftur hvar þú
værir, þar til ég fattaði að skjóta
því reglulega inn í samræðurnar,
en afi minn, svo leyndist í því dul-
in blessun.
Ég veit það hefði orðið þér
þungbært að kveðja mömmu,
Ingimar og Kiddý en ég hef trú á
því að þau hafi tekið á móti þér í
sumarlandinu. Ég mun ávallt
minnast þín með hlýju í hjarta.
Hafðu þökk fyrir allar okkar
góðu stundir, elsku afi.
Ég veit af þér vinur minn kær
og bið þess að friðinn þú finnir
þú ávallt munt standa mér nær
þó englunum núna þú sinnir.
Þín
Guðbjörg.
Mér eru í barnsminni tvíbur-
arnir Agnar og Björgvin í Hænu-
vík, nauðalíkir en þó vel hægt að
þekkja í sundur. Fullum nöfnum
hétu þeir Valtýr Agnar og Guð-
jón Björgvin. Agnar átti eftir að
verða bóndi í Hænuvík, en Björg-
vin hvarf fljótlega, hafði þá stað-
fest ráð sitt norður í Tálknafirði.
Heimsóknir í Norður-Botn, þar
sem hann bjó með henni Rúnu,
urðu allnokkrar og þótti okkur
þar vel búið og búsældarlegt um
að litast. Björgvin var útsjónar-
samur og framfarasinnaður og
Rúna stjórnaði innanstokks,
enda mikill skörungur. Synir
hennar þrír, sem hún hafði eign-
ast fyrir hjónaband þeirra Björg-
vins, voru þarna til heimilis fyrst í
stað og Sigurbjörn sonur þeirra
var að spretta úr grasi.
Björgvin var snemma kallaður
til ábyrgðarstarfa í Tálkna-
fjarðarhreppi og á sjöunda ára-
tugnum yfirgáfu þau Norður-
Botn og byggðu hús við Miðtún í
Tunguþorpi.
Björgvin var um skeið sveitar-
stjóri á Tálknafirði og leiddi þá
ýmis framfaramál. Starfaði hann
þannig í þágu samfélagsins á
meðan þess var óskað, en þegar
fólkið valdi aðra forystu hvarf
hann af þeim vettvangi síður en
svo ósáttur. Björgvin frændi átti
ekki til drottnunargirni, en
þjónustulund ríka. Hygg ég að
bygging íþróttahúss og kirkju
hafi haft traustan stuðning hans
og njóta þess sveitungar hans
vestra enn í dag.
Nítján ára að aldri tók hann
þátt í björgun skipbrotsmanna af
togaranum Dhoon í Látrabjargi
og með Björgvin féll frá síðasti
maðurinn sem tók á móti þeim
niðri á Flaugarnefi.
Síðustu árin dvaldi Björgvin á
Dvalarheimilinu Barmahlíð á
Reykhólum, alltaf jafn ljúfur í
viðmóti þó að meðvitund um stað
og stund hafi fjarað út síðustu
árin, enda kominn á tíræðis-
aldurinn þegar kallið kom.
Systkinin frá Hænuvík þakka
Björgvin ljúfa samfylgd og góðar
móttökur á heimili þeirra Rúnu.
Minningin lifir um frábært fólk
sem gott var að þekkja og hægt
að taka til fyrirmyndar á mörg-
um sviðum.
Sigurjón Bjarnason.
Björgvin
Sigurbjörnsson
✝ Brynja UnnurMagnúsdóttir
fæddist á Suðureyri
við Súgandafjörð
19. júní 1939. Hún
lést á heimili sínu í
Kópavogi 11. maí
2019.
Foreldrar henn-
ar voru Magnús Vil-
hjálmur Magn-
ússon, f. 28. maí
1910, d. 20. apríl
1977, og Unnur Guðmundsdóttir,
f. 27. júlí 1910, d. 2. júlí 1993.
Systkini Brynju eru Sigrún
Magnúsdóttir, f. 26. ágúst 1934,
d. 14. janúar 2008, og Árni Magn-
ússon, f. 27. nóvember 1948.
Hinn 25. desember 1961 giftist
Brynja Erlingi Steinari Auð-
unssyni, f. 23. desember 1936, d.
17. nóvember 2013. Foreldrar
Erlings voru Auðun Árnason, f.
14. október 1901, d. 30. júní 1991,
og Sigríður Guðmundsdóttir, f.
10. desember 1907, d. 24. águst
1983.
Brynja og Erling eignuðust
fjögur börn: 1) Magnús, kvæntur
Kristínu Guðmundsdóttur, synir
þeirra eru Steinar Páll og Heiðar
Ingi. Steinar á eina dóttur, Þór-
eyju Lilju. 2) Þorsteinn, kvæntur
Elin Nilsen, börn þeirra eru
Brynjar og Berglind. 3) Hjálmar,
kvæntur Scarlet Cunillera, börn
þeirra eru Bríana Ösp og
Hjálmdís Brynja. Hjálmar á einn-
ig dótturina Sigríði Margréti frá
fyrri sambúð. Sigríður Margrét
er í sambúð með Alexander Erni
Haraldssyni og eiga
þau eina dóttur,
Aþenu Margréti. 4)
Unnur Sigríður, í
sambúð með Einari
Sigurðssyni, synir
þeirra eru Erling
Sigurður og Sig-
ursteinn Atli.
Brynja Magg,
eins og hún var
venjulega kölluð,
ólst upp í foreldra-
húsum í Bakaríshúsinu og eins
bjó hún um tíma hjá föðurafa og
ömmu á Suðureyri.
Brynja og Erling hófu búskap
sinn í húsnæði afa og ömmu og
byggðu síðar upp sitt heimili á
Hjallavegi 7.
Eftir að þau fluttu suður
bjuggu þau í Löngubrekku 32 í
Kópavogi en eftir fráfall Erlings
flutti Brynja að Gullsmára 7 í
Kópavogi.
Námsferill Brynju var við
Barnaskóla Suðureyrar og
hússtjórnarnám við Húsmæðra-
skólann Ósk á Ísafirði.
Brynja hóf ung störf við
sjávarútveg á heimaslóðum og
einnig á síld á Siglufirði og Seyð-
isfirði. Lengst af var hún við
verslunarstörf hjá Mumma og
Nonna Kitt í Suðurveri. Eftir að
þau hjónin fluttu suður vann
Brynja við ýmis þjónustustörf og
endaði starfsferil sinn í mötu-
neyti Símans í Reykjavík.
Útförin fer fram frá Háteigs-
kirkju í dag, 21. maí 2019, klukk-
an 13.
Með sorg í hjarta kveð ég
Brynju frænku mína. Við erum
búnar að vera vinkonur síðan við
vorum litlar stelpur, en orðnar
ömmur og langömmur í dag. Átt-
um báðar sömu ömmuna, hana
Guðrúnu Oddsdóttir, sem var
dugleg og góð kona. Hún var til
heimilis hjá foreldrum Brynju,
Unnu frænku og Villa Magg,
Rúnu og Árna Magga.
Brynja átti erfitt eftir að Erling
hennar dó, Brynja átti fjögur
yndisleg börn, þrjá syni og eina
dóttur, tengdabörn og barnabörn
sem vildu allt fyrir hana gera og
við vildum öll létta henni lífið.
Ég er þakklát fyrir að hafa ver-
ið í vinahópi hennar. Brostið
hjarta er ekki auðvelt að lækna en
nú er hún komin til Erlings síns og
ættingja sinna og mun halda upp á
afmælisdaginn sinn þar.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Hvíl í friði, elsku vinkona.
Samúðarkveðja til fjölskyldu
Brynju.
Dagrún Kristjánsdóttir.
Nú er Brynja frænka mín látin.
Okkur hjónunum hefur fundist
hún óvenju lasleg undanfarna
mánuði og hafa látið á sjá. Öðru-
vísi var sú Brynja sem við þekkt-
um áður, lífsglöð, kát og skemmti-
leg en skapmikil ef því var að
skipta og stóð þá fast á skoðunum
sínum og gaf sig ekki þó á móti
blési.
Alltaf var hún hlý og gestrisin
og var alltaf gaman að koma á
heimili þeirra Erlings fyrir vestan
og áttum við þar ótal margar
gleðistundir, sem aldrei gleymast.
Var þá rætt um allt milli himins og
jarðar og málin krufin til mergjar,
en alltaf í góðu.
Eftir andlát Erlings fannst mér
hún aldrei ná sér að fullu, en hann
lést árið 2013. Saknaði hún hans
mikið, enda hafði hjónaband
þeirra verið afar farsælt og ham-
ingjuríkt. Hafði hún stundum á
orði að erfitt væri að missa maka
sinn og vissi enginn hvað það væri
sem ekki hefði reynt það.
Eftir að við hjónin fluttum suð-
ur árið 2005 komum við oft í
Löngubrekkuna og heilsuðum upp
á húsráðendur. Alltaf var það jafn
gaman og gestrisni í heiðri höfð.
Oft hef ég saknað þessara daga og
gleðistundanna vestur í Súganda-
firði og munu þessar stundir aldr-
ei úr minni mínu hverfa.
Mig langaði til þess að kveðja
þessa elskulegu frænku mína með
örfáum orðum og þakka henni fyr-
ir allar liðnar samverustundir.
Ég kveð þig hugann heillar minning blíð
hjartans þakkir fyrir liðna tíð
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur drottinn þig við hönd.
(GJ)
Við hjónin vottum afkomendum
hennar og aðstandendum öllum
okkar dýpstu samúð.
Eðvarð Sturluson.
Brynja Unnur
Magnúsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför bróður míns og
móðurbróður okkar,
GUÐJÓNS JÓSEPSSONAR
frá Pálshúsum í Garðabæ.
Ester Helgadóttir
Guðmundur Kjartan Davíðsson
Edda Davíðsdóttir
Davíð Davíðsson
Kári Davíðsson
Skúli Davíðsson