Morgunblaðið - 21.05.2019, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2019
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta kemur mér verulega á óvart. Mér fannst
mjög skemmtilegt að vera tilnefnd, en átti alls ekki
von á því að vinna enda flottar bækur tilnefndar til
verðlaunanna í ár – sem helgast af því að 2018 var
mjög sterkt ljóðaár, “ segir Eva Rún Snorradóttir
sem í gær hlaut Maístjörnuna, ljóðabókaverðlaun
Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns
Íslands – Háskólabókasafns, þegar þau voru veitt í
þriðja sinn við hátíðlega athöfn.
Verðlaunin hlaut hún fyrir ljóðabókina Fræ sem
frjóvga myrkrið. Auk hennar voru tilnefnd Ásdís
Ingólfsdóttir fyrir Ódauðleg brjóst; Gerður Kristný
fyrir Sálumessu; Haukur Ingvarsson fyrir Vistar-
verur; Linda Vilhjálmsdóttir fyrir Smáa letrið og
Sigfús Bjartmarsson fyrir Homo economicus I.
Þversagnir með sér í liði
Maístjarnan er einu verðlaun á Íslandi sem veitt
eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Verð-
laununum er ætlað að hvetja skáld til að yrkja og
koma ljóðum sínum í útgáfu. Verðlaunafé er 350
þúsund krónur. Gjaldgengar voru allar útgefnar ís-
lenskar ljóðabækur ársins 2018 sem skilað var til
Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og
fékk dómnefnd, sem skipuð er Sveini Yngva Egils-
syni og Evu Kamillu Einarsdóttur, þær til umfjöll-
unar.
„Þessi bók var tilraun til að heila visst samfélags-
mein, tráma kvenna minnar kynslóðar. Verðlaunin
eru ákveðin staðfesting á því að það markmið mitt
hafi tekist. Þegar ég hóf þetta verkefni vissi ég ekki
að ljóð gæti hentað sem verkfæri til að takast á við
svona uppsafnað myrkur sem legið hefur í þögn.
Ljóðið er svo ótrúlega margrætt verkfæri, næmt
og öflugt,“ segir Eva Rún, sem áður hefur sent frá
sér tvær ljóðabækur.
„Fyrri ljóðabækur mínar tvær voru leiðangur
innávið,“ segir Eva Rún og áréttar að leiðin inn sé
jafnframt leiðin út. Bendir hún á að í nýjustu bók
sinni hafi hún gert tilraun til að sameina vinnuað-
ferðir ljóðskáldsins og sviðslistakonunnar, en Eva
Rún hefur um árabil starfað með sviðslistahóp-
unum 16 elskendum og Kviss búmm bang. „Í nýju
bókinni prófaði ég í fyrsta sinn að nýta vinnuað-
ferðina sem ég nota þegar ég geri sviðslistaverk til
að skrifa ljóð. Þessi verðlaun sýna mér að sú tilraun
hafi virkað og eru mér hvatning til að halda áfram
að þenja ljóðið út í framhaldinu og leyfa ólíkum
vinnuaðferðum að blandast saman.“
Beðin að útskýra nánar vinnuaðferðina sem hún
notaði bendir Eva Rún á að í hóp skapist ákveðin
óreiða. „Það er miklu erfiðara að komast á ófyr-
irséðan stað þegar maður er einn. Þegar ég er ein
að reyna að skrifa skortir þessa drífandi óreiðu og
dýnamík sem fæst þegar unnið er í hóp. Ég fór því
að finna leiðir á vinnustofunni til að skapa óreiðu
og dýnamík,“ segir Eva Rún og rifjar upp að hún
hafi til dæmis skrifað öll fræin á miða. „Þannig
fann ég leið til að raða þessum miðum og vinna æf-
ingar með þeim þannig að það var nánast eins og
fjórir aðrir einstaklingar væru að vinna með mér.
Mér tókst því að skapa óreiðu og dýnamík sem
virkaði eins og hún væri ekki að koma úr höfðinu á
mér,“ segir Eva Rún og tekur fram að hún muni
nýta þessa nýju vinnuaðferð áfram í ljóðaskrifum
sínum. „Ég er einmitt á þeim stað í vinnuferlinu við
nýtt verk að ég er að fara að skapa óreiðuna á
skipulegan hátt. Sem er auðvitað ákveðin þver-
sögn, en mín reynsla er að þegar maður er með
þversagnirnar með sér í liði þá er maður á réttum
stað.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússson
„Ljóðið er svo ótrúlega
margrætt verkfæri“
Eva Rún Snorradóttir hlaut Maístjörnuna fyrir Fræ sem frjóvga myrkrið
„Fræ sem frjóvga myrkrið er frumleg og fjöl-
breytt ljóðabók þar sem skáldið Eva Rún
bregður á leik með ýmis form, allt frá örleik-
ritum til prósaljóða. Fyrri hluti bókarinnar er
margradda lýsing á ferð vinkvenna til sólar-
landa sem reynist í senn nöturleg og fyndin.
Síðari hlutinn er einlægari og myndrænni og
þar eru ljóð sem lýsa vináttu, sársauka, sjálfs-
uppgötvun og annarlegum heimi á áleitinn
hátt.“
Frumleg og fjölbreytt bók
UMSÖGN DÓMNEFNDAR
Marglofuð tónleikasýning tónlistar-
mannsins David Byrne samnefnd
nýjustu plötu hans, American Ut-
opia, sem kom út í fyrra, verður
brátt sýnd á Broadway í New York.
Byrne kemur fram í sýningunni
með fjölmennum hópi tónlistar-
manna og flytur bæði eigin lög og
lög sem hann flutti með hljómsveit
sinni Talking Heads fyrir margt
löngu. Áður en sýningar hefjast á
Broadway verður American Utopia
sýnd í Emerson Colonial-leikhúsinu
í Boston í september og fer þaðan í
Hudson-leikhúsið á Broadway í
október. Þar verður sýnt fram til
19. janúar 2020.
Amerísk útópía Byrne sýnd á Broadway
Morgunblaðið/Ómar
Reffilegur David Byrne hélt sýningu á
Listahátíð í Reykjavík fyrir níu árum.
Gunnar Gränz sýnir gömul og ný
verk í Listagjánni í Bókasafni Ár-
borgar á Selfossi en sýningin var
opnuð um helgina. Gunnar kallar
sýninguna Tiltekt og segir í tilkynn-
ingu að listsköpun hans hafi tekið
ýmsum breytingum á liðnum árum.
Hann túlki bæjarlífið með sínum
hætti. Sýningin verður opin út þenn-
an mánuð. Gunnar sýnir einnig verk
sín í Silfurhorninu á Hótel Selfossi.
Gunnar er fæddur í Vestmanna-
eyjum en flutti á stríðsárunum til
Selfoss. Hann lærði málaraiðn og
starfaði mest við það en hefur ávallt
haft gaman af listmálun. Hann var
einn af stofnendum Myndlistarfélags
Árnessýslu og hefur verið virkur fé-
lagi síðan.
Tiltekt í bókasafni Árborgar
Abstrakt Verk eftir Gunnar.
Vorhefti Skírnis,
tímarits Hins
íslenska bók-
menntafélags, er
komið út og með-
al efnis í því er
grein eftir skáld-
ið Hannes Pét-
ursson um Stað-
arhóls-Pál og
grein eftir Berg-
svein Birgisson þar sem hann gagn-
rýnir hvernig akademísk orðræða
hefur þróast í hugvísindum og úti-
lokað skáldlegt hugarflug og tilfinn-
ingar. Ragnar Ingi Aðalsteinsson
fjallar um helsta sérkenni íslenskrar
braghefðar; stuðlasetninguna og
Valdimar Hafstein og Egill Viðars-
son rita samantekt á landsþekktum
vísum Vatnsenda-Rósu frá
höfundarréttarsjónarhorni. Gunnar
Harðarson fjallar um margræddan
dóm Hæstaréttar um málefni Lands-
réttar og að venju má finna grein
um íslenskt mál, að þessu sinni skrif-
ar Sigríður Sigurjónsdóttir um mál-
umhverfi barna og framtíð íslensk-
unnar. Auður Aðalsteinsdóttir
fjallar um náttúruhamfarir í nokkr-
um íslenskum skáldsögum á hundr-
að ára tímabili og skáld Skírnis er
Fríða Ísberg. Myndlistarþátturinn,
skrifaður af Aldísi Snorradóttur,
fjallar um Hrafnhildi Arnardóttur/
Shoplifter, fulltrúa Íslands á Fen-
eyjatvíæringnum. Ritstjóri er Páll
Valsson.
Grein eftir Hannes
Pétursson í Skírni
Hannes Pétursson
Nathalía Druzin
Halldórsdóttir
mezzósópran og
Anna Guðný
Guðmundsdóttir
píanóleikari
koma fram í síð-
ustu Kúnstpásu
starfsárs Ís-
lensku óp-
erunnar kl.
12.15 í dag í
salnum Norðurljósum í Hörpu.
Þær munu flytja aríur og sönglög
eftir tónskáld á borð við Händel,
Mozart, Verdi og Tchaikovsky.
Aðgangur er ókeypis að tónleik-
unum.
Síðasta Kúnstpása
starfsársins
Natalía Druzin
Halldórsdóttir
Viðurkenning Eva Rún
Snorradóttir veitti verðlaun-
unum viðtöku við hátíðlega at-
höfn í Þjóðarbókhlöðunni í gær.